AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2015
Apr 24, 2015
2197_rns_2015-04-24_58914229-a197-46c8-ba72-0db7225e71b1.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Afkoma á 1. ársfjórðungi 2015 umfram áætlanir
Afkoma á 1. ársfjórðungi 2015 umfram áætlanir
Samkvæmt drögum að árshlutareikningi fyrir fyrsta ársfjórðung er gert ráð fyrir
að afkoma félagsins verði betri á fjórðungnum en ráðgert var í upphafi árs,
aðallega vegna hærri tekna og betri nýtingar. Gert er ráð fyrir að EBITDA verði
neikvæð um USD 2-4 milljónir. Sætinýting í millilandaflugi var 4,9
prósentustigum hærri en á sama tímabili á síðasta ári og herbergjanýting hótela
var 7,8 prósentustigum hærri. Á móti kemur að þróun EUR/USD hefur verið
óhagstæðari en gert var ráð fyrir.
Horfur fyrir árið í heild eru góðar og bókanir fyrir stærstu mánuði ársins líta
vel út. Í afkomuspá fyrir árið í heild gerir félagið nú ráð fyrir að EUR/USD
krossinn verði að meðaltali 1,07 á síðustu 9 mánuðum ársins en í afkomuspá sem
birt var í byrjun febrúar var gert ráð fyrir að krossinn væri 1,15. Styrking
USD gagnvart Evrópumyntum hefur og mun hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins,
sérstaklega á háannatíma. Betri afkoma á fyrsta ársfjórðungi gerir það að
verkum að afkomuspá félagsins fyrir árið í heild helst óbreytt, þrátt fyrir
óhagstæða gengisþróun. Félagið gerir ráð fyrir að fyrir að EBITDA verði á
bilinu 160-165 milljónir USD. Starfsemi félagsins er mjög háð ytri aðstæðum,
svo sem sveiflum á gjaldmiðla- og eldsneytisverðum og óvissa á vinnumarkaði á
Íslandi getur haft veruleg áhrif á afkomuna.
Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 verður birtur 29.
apríl n.k. og kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður 30. apríl kl. 16.30 í
sal 3 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
[email protected]
896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
[email protected]
665 8801