Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Earnings Release 2015

Jul 27, 2015

2197_rns_2015-07-27_d3b1cb41-3c20-4dbc-aaaa-f84abb90c3f0.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

EBITDA hjá Icelandair Group eykst á milli ára á 2. ársfjórðungi

EBITDA hjá Icelandair Group eykst á milli ára á 2. ársfjórðungi

-- EBITDA var jákvæð um 50,3 milljónir USD samanborið við 45,2 milljónir USD á
öðrum ársfjórðungi 2014.
-- Arðbær innri vöxtur í millilandaflugi og lægra eldsneytisverð skýrir að
mestu afkomubatann milli ára.
-- Flutningatekjur jukust um 2%, en heildartekjur drógust saman um 1%
-- Eiginfjárhlutfall var 36% í lok júní.
-- Handbært fé frá rekstri 86,7 milljónir USD.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð, EBITDA nam 50,3 milljónum USD og jókst um
5,0 milljónir USD samanborið við afkomu annars ársfjórðungs 2014. Helsta
skýringin á góðu gengi félagsins er arðbær innri vöxtur í millilandastarfsemi
félagsins. Framboð í millilandafluginu var aukið um 15% á fjórðungnum
samanborið við síðasta ár og á sama tíma fjölgaði farþegum um 17%. Sætanýting
var góð, nam 81,8% og jókst um 1,8 prósentustig á milli ára. Þá hefur lækkun
eldsneytisverðs á milli ára jákvæð áhrif á afkomuna. Rekstur annarrar starfsemi
félagsins gekk einnig vel á fjórðungnum.

Í upphafi árs gáfum við út EBITDA-spá sem nam 160-165 milljónum USD og
staðfestum við hana við birtingu uppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung í apríl
síðastliðnum. Rekstur félagsins hefur gengið vel á fyrstu sex mánuðum ársins,
auk hagfelldrar þróunar á ytri aðstæðum frá síðasta uppgjöri. Uppfærðar
forsendur gera nú ráð fyrir að EUR/USD krossinn verði að meðaltali 1,10 út árið
í stað 1,07 sem hefur jákvæð áhrif á reksturinn. Eins hefur bókunarstaða fyrir
næstu mánuði í millilandaflugi styrkst umfram væntingar félagsins og hefur það
að öðru óbreyttu jákvæð áhrif á afkomu á síðari hluta ársins, þá sérstaklega á
afkomu þriðja ársfjórðungs. Að teknu tilliti til þessara þátta er nú gert ráð
fyrir að EBITDA félagsins fyrir árið 2015 verði á bilinu 180-185 milljónir
USD.“

Viðhengi: