AI assistant
Icelandair Group — Earnings Release 2014
Oct 30, 2014
2197_rns_2014-10-30_1b8c576f-9307-495d-89fe-d4950e8ff80d.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Góð afkoma Icelandair Group á 3. ársfjórðungi 2014
Góð afkoma Icelandair Group á 3. ársfjórðungi 2014
-- Hagnaður eftir skatta nam 85,8 milljónum USD samanborið við 65,3 milljónir
USD árið áður.
-- EBITDA nam 123,9 milljónum USD samanborið við 102,2 milljónir USD árið
áður.
-- Heildartekjur jukust um 13%.
-- Eiginfjárhlutfall 46% í lok september.
-- Handbært fé frá rekstri 5,8 milljónir USD samanborið við 30,3 milljónir USD
árið áður.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:
„Millilandaflug félagsins gekk vel á þriðja ársfjórðungi og var afkoma þess
mjög góð. Framboð í leiðakerfinu var aukið um 19% frá fyrra ári. Sætanýting var
84,2%, og jókst um 0,7 prósentustig frá fyrra ári. Tæplega 970 þúsund farþegar
ferðuðust með félaginu í fjórðungnum og hafa þeir aldrei verið fleiri. Aukin
umsvif í millilandaflugi ásamt mikilli fjölgun ferðamanna til Íslands höfðu
jákvæð áhrif á aðra starfsemi samstæðunnar.
Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 85,8 milljónum USD og jókst um
20,5 milljónir USD frá fyrra ári. Fjárhagslega er félagið mjög sterkt og
tilbúið til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar, en þegar hefur verið
tilkynnt um áætlanir um 12% vöxt í millilandaflugi á næsta ári.
Vegna góðs gengis á þriðja ársfjórðungi gerum við nú ráð fyrir að EBITDA ársins
2014 muni nema 150-155 milljónum USD sem er hækkun frá áður útgefinni
afkomuspá.“
Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
[email protected]
896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
[email protected]
665 8801
Viðhengi: