Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Icelandair Group Capital/Financing Update 2014

Dec 22, 2014

2197_rns_2014-12-22_7cdd3e86-aafd-436b-b034-ed9f39fd4ffc.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Útgáfa skuldabréfs

Útgáfa skuldabréfs

Icelandair Group hf. hefur lokið sölu á nýjum flokki óveðtryggðra skuldabréfa.
Skuldabréfaflokkurinn, sem ber auðkennið ICEAIR 15 1, er til fimm ára, útgefinn
í Bandaríkjadal og ber fasta 4,25% vexti sem greiðast hálfsárslega.

Skuldabréf að fjárhæð 23.660.000 Bandaríkjadala voru seld innlendum
fagfjárfestum þann 19. desember sl. Heildarheimild útgáfu í þessum
skuldabréfaflokki er 75 milljónir Bandaríkjadala.

Skuldabréfaflokkurinn verður gefinn út rafrænt og verður útgáfulýsing birt á
heimasíðu Verðbréfaskráningar Íslands í fyrsta lagi þann 15. janúar 2015.
Skuldabréfin verða gefin út með heimild Seðlabanka Íslands.

Óskað verður eftir að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á
Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi og mun Íslandsbanki annast skráninguna.

Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
Netfang: [email protected]
Sími: 665 8801