AI assistant
Heimstaden AB (publ) — M&A Activity 2021
Jun 11, 2021
8423_rns_2021-06-11_2c0833fc-3bca-4ea3-b32b-4ce8800ef23c.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Heimstaden ehf.: Birting á breytingum á tilboðsyfirliti frá A/F HEIM, tilboð í öll útistandandi skuldabréf í skuldabréfaflokkunum HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646
Heimstaden ehf.: Birting á breytingum á tilboðsyfirliti frá A/F HEIM, tilboð í öll útistandandi skuldabréf í skuldabréfaflokkunum HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646
A/F HEIM hefur óskað eftir því að Heimstaden ehf. birti fyrir þeirra hönd neðangreindar breytingar á tilboði A/F HEIM í öll útistandandi skuldabréf í skuldabréfaflokkunum HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646:
- Tilboðið gilti áður til föstudagsins 11. júní 2021 en gildir nú til mánudagsins 5. júlí 2021. Uppgjör viðskipta verður nú mánudagurinn 12. júlí 2021. Lokadagur til að samþykkja framangreint tilboð í einhvern af framangreindum skuldabréfaflokkum gildir til kl:16:00 mánudaginn 5. júlí 2021 og verður uppgjör viðskipta þann 12. júlí 2021.
Beiðni kom frá kröfuhafa um að utanaðkomandi lögmaður yfirfari skjölin til viðbótar við yfirferð veðgæsluaðila og stendur sú vinna nú yfir og er gert ráð fyrir að minnisblað um þá yfirferð verði birt í Kauphöll.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Þór Sigurvinsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance
S: 895-9242