Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimstaden AB (publ) Capital/Financing Update 2021

May 3, 2021

8423_rns_2021-05-03_5c979090-26b6-4be7-bf6e-94b28ad5c50e.pdf

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Tryggingarbréf – veösamningur

BUNDIÐ VÍSITÕLU NEYSLUVERÐS TIL VERÐTRYGGINGAR

Í TENGLS LUM VÍÐ

SELJANDALÁN TIL HEIMSTADEN EHF.

milli

Heimstaden ehf. (sem útgefanda og veösala)

Heimstaden III ehf. og Heimstaden VI ehf. (sem veösala),

A/F HEIM slhf. (sem veðhafa)

og

LEX ehf. (sem veðgæsluaðila)

[•]¹ 2021

¹ Dagestning tryggingarbréfa liggur fyrir síðar þegar þau verða gefin út og rétt dags. færð inn hér.


Aðilar að þessu tryggingarbréfi – veðsamningi („tryggingarbréfið“) eru:

(1) Heimstaden ehf. kt. 440315-1190, Lágmúla 6, 108 Reykjavík („útgefandi“ og/eða „veðsali“);
(2) Heimstaden III ehf., kt. 410415-1190, og Heimstaden VI ehf., 681212-2480, bæði til heimilis að Lágmúla 6, 108 Reykjavík (hvort um sig „veðsali“ og sameiginlega með útgefanda „veðsalar“);
(3) A/F HEIM slhf., kt. 490321-0120, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík („sjóðurinn“); og
(4) LEX ehf., kt. 570297-2289, Borgartúni 26, 105 Reykjavík, í hlutverki sínu sem veðgæsluaðili f.h. og í umboði sjöðsins („veðgæsluaðili“).

INNGANGUR:

(A) Með tryggingarbréfinu setja veðsalar tilgreindar fasteignir að veði til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu á veðtryggðum kröfum (skilgreindar í gr. 1.1), eftir því sem nánar er lýst í tryggingarbréfinu.
(B) Sjóðurinn og veðgæsluaðili eru sammála um að veðgæsluaðili skuli fara með öll réttindi veðhafa samkvæmt tryggingarbréfinu í umboði veðhafa og kemur fram fyrir hönd veðhafa í tengslum við tryggingarbréfið.

  1. SKILGREININGAR OG TÚLKUN

1.1 Í tryggingarbréfinu hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er gefin hér á eftir:

„Langtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [+]² 2021, að höfuðstólsfjárhæð 6.202.821.600 krónur, sem sjöðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071248, sem er með lokagjaldaga þann 7. desember 2048.

„Skammtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [+]³ 2021, að höfuðstólsfjárhæð 4.798.962.365 krónur, sem sjöðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071225, sem er með lokagjaldaga þann 7.6.2026.

„Seljandalánin“ merkir langtíma seljandalánið og skammtíma seljandalánið.

„Veðhafar“ merkir sjöðinn, sem eiganda seljandalánanna eða síðari framsalshafa þeirra.

„Veðtryggðar kröfur“ merkir allar skuldir og fjárskuldbindingar (í hvaða gjaldmiðli sem er), nú eða síðar, samkvæmt seljandalánunum, hvað nafni sem nefnast, og hvort sem um er að ræða höfuðstól, vexti, dráttarvexti, verðbætur, lögbundin vanskilaálög, kostnað við kröfugerð, innheimtu- og málskostnað af fullnustugerðum eða annan tengdan kostnað.

1.2 Skilgreind hugtök í seljandalánunum skulu hafa sömu merkingu í tryggingarbréfinu nema annað sé tekið fram eða bersýnilega ljóst af samhengi.
1.3 Tilvísanir til löggjafar skulu taldar fela í sér tilvísanir til þeirrar löggjafar eins og henni kann að hafa verið breytt og reglna sem kunna að hafa verið settar með stoð í slíkri löggjóf.
1.4 Tilvísanir til sérhvers aðila skulu (þar sem við á) vera álítnar tilvísanir til eða eiga við um þá sem með lögmætum hætti hafa tekið við réttindum og/eða skyldu af þeim.

  1. VEDTRYGGING - FASTEIGNAVED

2.1 Með undirritun sinni á tryggingarbréfið setja veðsalar þær fasteignir, sem tilgreindar eru hér á eftir, að veði til handa veðhöfum með 2. veðrétti og uppfærslurétti, næst á eftir tryggingarbréfi að upphaffegri höfuðstólsfjárhæð kr. 18.500.000.000, dags. 12. desember 2018, til tryggingar

² Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta
³ Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta


skilvísri og skaðlausri greiðslu hinna veðtryggðu krafna að fjárhæð allt að kr. [•]⁴ (krónur [•]) („fjárhæðin“), auk vaxta, dráttarvaxta og verðbóta.

Veðsettar fasteignir:

Fastanúmer Svæði Sveitarfélag Póstnúmer Heimilisfang
2304863 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304864 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304865 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304866 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304867 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304868 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304869 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304870 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304871 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304872 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304873 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304874 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2367550 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1223
2304923 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304924 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304925 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304926 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304927 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304928 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304929 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304930 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304931 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304932 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304933 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304934 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2367555 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1228
2304935 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304936 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304937 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304938 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304939 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304940 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304941 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304942 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304943 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304944 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304945 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304946 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2367556 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1229
2304959 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304960 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304961 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304962 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230

⁴ Fjárhæð verður sú sama og á fyrra bréfi nema uppreiknuð miðað við breytingar á vísitölu frá útgáfu fyrra tryggingarbréfs.


2304963 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304964 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304965 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304966 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304967 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304968 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304969 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2304970 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2367557 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1230
2306077 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306078 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306079 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306080 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306081 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306082 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306083 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2306084 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2367558 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1231
2304947 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304948 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304949 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304950 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304951 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304952 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304953 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304954 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304955 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304956 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304957 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2304958 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2367559 Suðurnes Reykjanesbær 235 Fjörubraut 1232
2365140 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2365141 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308591 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308592 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308595 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308596 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308597 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308601 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308602 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308603 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308593 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308594 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut

2308598 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308599 Suðurnes Reykjanesbær 235 1101
2308600 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308604 Suðurnes Reykjanesbær 235 1101
2308605 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308606 Suðurnes Reykjanesbær 235 1101
2365142 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2365143 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308607 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308608 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308611 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308612 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308613 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308617 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308618 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308619 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308609 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308610 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308614 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308615 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308616 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308620 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308621 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2308622 Suðurnes Reykjanesbær 235 1102
2365158 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2365159 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308465 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308466 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308469 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308470 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308471 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308475 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308476 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108

2308477 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308467 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308468 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308472 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308473 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308474 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308478 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308479 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308480 Suðurnes Reykjanesbær 235 1108
2308673 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308674 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308677 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308678 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308679 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308683 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308684 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308685 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308675 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308676 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308680 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308681 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308682 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308686 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308687 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2308688 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2365169 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2365170 Suðurnes Reykjanesbær 235 1111
2365167 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2365168 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308656 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308657 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308660 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308661 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112

2308662 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308666 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308667 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308668 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308658 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308659 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308663 Suðurnes Reykjanesbær 235 Skógarbraut
2308664 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308665 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308669 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308670 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2308671 Suðurnes Reykjanesbær 235 1112
2305007 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305008 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305009 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305010 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305011 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305012 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305013 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305014 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305015 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305016 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305017 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2305018 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233
2367066 Suðurnes Reykjanesbær 235 1233

2.2 Veðgæsluaðili, eða sá sem tekur við réttindum og skyldum hans með lögmætum hætti, fer með öll réttindi veðhafa samkvæmt tryggingarbréfinu og kemur fram fyrir hönd veðhafa í tengslum við réttindi og skyldur samkvæmt tryggingarbréfinu en veðhöfum er óheimilt að leita fullnustu krafna sinna á grundvelli tryggingarbréfsins án aðkomu veðgæsluaðila.

2.3 Hver aðili að tryggingarbréfinu samþykkir að hver og einn veðhafanna, eins og þeir eru á hverjum tíma, skuli njóta jafnra réttinda samkvæmt tryggingarbréfinu.

2.4 Fjárhæðin er bundin vísitölu neysluverðs til verðtryggingar miðað við grunnvísitölu fyrir maí 2021, eða 498,01667 stig, og tekur breytingum í samræmi við breytingar á vísitölunni miðað við grunnvísitölu. Aldrei skal þó miða við lægri vísitölu en grunnvísitölu tryggingarbréfsins.

2.5 Sérhver fasteign er veðsett ásamt ölu því sem henni fylgir og fylgja ber, allt eins og viðkomandi fasteign verður frekast veðsett samkvæmt 15. – 20. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð og í


pvi ástandi sem hún er í nú eða kann síðar að verða, með hverskyns endurbótum og viðbótum, hverju nafni sem nefnast.

2.6 Veðréttur í eignarhluta í fjölbýlishúsi nær til þeirrar einingar sem veðsali á eignarrétt að, þ.e. séreignar hans og tilheyrandi hlutdeildar í sameign, þ.m.t. lóðarréttindi, sbr. 18. gr. laga nr. 75/1997 og 11. gr. laga um fjőleignarhús nr. 26/1994.

2.7 Veðsölum er heimilt að hagnýta sjálfsvörsluveð með venjubundnum hátti, nema um annað hafi verið samið, sbr. 7. gr. laga nr. 75/1997.

2.8 Veðsölum er óheimilt að veðsetja réttindi sín skv. leigusamningum um veðsettar fasteignir.

2.9 Veðsölum er skylt að vátryggja veðsettar fasteignir gegin tjóni af völdum eldsvoða, auk hverskyns öðrum háttum sem er vátryggt fyrir í starfsemi svipaðri þeirri sem veðsalar hafa með höndum. Falla allar vátryggingarbætur undir veðsetninguna. Vátryggingar skulu keyptar hjá viðurkenndum tryggingarfélögum og skulu veðsalar greiða öll iðgjöld á gjalddaga og gera hverjar þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að þær vátryggingar sem teknar hafa verið haldist í fullu gildi. Veðsalar skuldbinda sig til að láta veðgæsluaðila í té, hvenær sem hann krefst, skilríki fyrir því að hinar veðsettu fasteignir séu vátryggðar, ella er veðgæsluaðila heimilt en þó ekki skylt að vátryggja viðkomandi fasteignir á kostnað veðsala.

2.10 Veðsölum er enn fremur skylt á hverjum tíma að fullnægja öllum lögbundnum kröfum, þ.m.t. öryggis- og eftirlitskröfum, varðandi hinar veðsettu fasteignir.

3. UMBOD TIL VEDGÆSLUADILA

3.1 Sérhver veðsali og veðhafi veitir veðgæsluaðila fullt og ótakmarkað umboð til að:

(a) Framkvæma hverja þá skyldu sem veðsali hefur undirgengist skv. tryggingarbréfinu en hefur ekki framkvæmt, þrátt fyrir áskorun veðgæsluaðila.

(b) Framkvæma allt það sem nauðsynlegt er í tengslum við fullnustu veðsins skv. gr. 7 og veðsali sinnir ekki, þrátt fyrir áskorun veðgæsluaðila, þ.m.t. að undirrita öll skjöl f.h. veðsala í tengslum við framsal á hinu veðsetta.

3.2 Umboð það sem veðgæsluaðila er veitt skv. tryggingarbréfinu og þau réttindi sem honum eru fengin eru eingöngu til að vernda hagsmuni veðhafa og veðgæsluaðili er aldrei skuldbundinn gagnvart útgefanda eða veðsala til að nýta umboðið eða réttindin.

3.3 Þótt að veðgæsluaðili nýti umboðið eða réttindi skv. tryggingarbréfinu þá leysir það ekki veðsala eða útgefanda undan skyldum sínum eða skuldbindingum skv. tryggingarbréfinu eða seljandalánunum.

3.4 Veðgæsluaðili er þó ávallt ábyrgur fyrir þeim fjármunum sem hann raunverulega móttekur sem veðgæsluaðili.

4. FRAMSAL Á RÉTTINDUM VEDGÆSLUADILA

4.1 Veðgæsluaðila skal heimilt að framselja öll réttindi sín og skyldur skv. tryggingarbréfinu til nýs veðgæsluaðila sem tekur við réttindum og skyldum veðgæsluaðila samkvæmt tryggingarbréfinu.

4.2 Ef skipt er um veðgæsluaðila í samræmi við framangreint þá skulu útgefandi og sérhver veðsali, skv. beiðni veðgæsluaðila, undirrita öll nauðsynleg skjöl og framkvæma allt það sem nauðsynlegt er eða eðlilegt í tengslum við aðilaskiptin.

4.3 Þá skal veðgæsluaðila jafnframt heimilt að fela öðrum aðila, með skriflegu umboði, að fara með í heild eða hluta, þær heimildir og réttindi sem veðgæsluaðila eru fengin með tryggingarbréfinu.

5. SÉRSTAKAR SKYLDUR VEDSALA

5.1 Sérhver veðsali og veðhafi skal skv. beiðni veðgæsluaðila undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem með sanngirni má ætlast til að:


(a) Tryggingarbréffet betta veiti veðgæsluaðila, f.h. veðhafa, þau réttindi sem kveðið er á um í tryggingarbréfinu.
(b) Veðgæsluaðili geti, f.h. veðhafa, nýtt réttindi skv. tryggingarbréfinu, þar með talið í tengslum við fullnustu veðsins.

5.2 Komi til fullnustu veðsins þá skuldbindur sérhver veðsali og veðhafi sig til að undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem veðgæsluaðili með sanngirni óskar eftir í tengslum við fullnustuna, s.s. vegna afsals eða framsals.
5.3 Samþykki veðgæsluaðili, f.h. veðhafa, að gerðar séu breytingar á hinu veðsettu eignum, skuldbindur sérhver veðsali sig til að undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem veðgæsluaðili óskar eftir í tengslum við breytingarnar.
5.4 Veðsali skal greiða öll opinber gjöld, þ.m.t. stimpil- og þinglýsingagjöld og allan kostnað sem kann að falla til vegna tryggingarbréfsins, breytingu á því eða fullnustu á grundvelli þess.

6. BREYTINGAR Á HINU VEÐSETTA

6.1 Útgefandi hefur heimild til að óska eftir því við veðgæsluaðila að breytingar séu gerðar á hinum veðsettu eignum, með því að tilteknar eignir séu leystar úr veðböndum og/eða viðbótareignir veðsettar. Veðgæsluaðili skal f.h. veðhafa verða við slíkri ósk, enda séu slíkar breytingar í samræmi við ákvæði seljandalánanna.
6.2 Samþykki veðgæsluaðili beiðni veðsala um breytingar skv. þessari grein í samræmi við seljandalánin, þá skulu veðsalar undirrita öll skjöl sem veðgæsluaðili óskar eftir í tengslum við breytingarnar.
6.3 Þeir aðilar sem undirrita skjöl, f.h. veðsala, samkvæmt framangreindu skulu afhenda veðgæsluaðila sönnun fyrir umboði sínu á formi og að efni sem veðgæsluaðili samþykkir.

7. FULLNUSTA VEÐSINS

7.1 Hafi veðtryggð krafa verið gjaldfelld og ákvörðun tekin um að ganga að veðinu, skal veðgæsluaðila, f.h. veðhafa, vera heimilt að:

(a) Látá selja hið veðsetta nauðungarsölu fyrir útistandandi veðtryggðum kröfum, án undangengins dóms, sáttar eða fjárnáms, sbr. 2. töl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu.
(b) Selja hið veðsetta í almennri sölu fyrir útistandandi veðtryggðum kröfum. Skal hann þó ávallt leitast við að fá sem hæst verð fyrir hið veðsetta á þeim tíma sem það er selt.
(c) Leysa til sín hið veðsetta á eðlilegu og sanngjörnu markaðsvirði.

7.2 Veðgæsluaðila skal ávallt haga fullnustuaðgerðum með hagsmuni veðhafa að leiðarljósi. Þá skal veðgæsluaðili sinna fullnustuaðgerðum innan eðlilegra tímamarka.

8. RÁDSTÖFUN ANDVIRDIS

8.1 Komi til fullnustu veðsins skal veðgæsluaðili ráðstafa öllum fjármunum sem hann móttekur til greiðslu á hinum veðtryggðu kröfum.

9. TAKMARKANIR Á HEIMILDUM VEÐSALA

9.1 Veðsölum skal vera óheimilt að framsalja réttindi sín eða skyldur samkvæmt tryggingarbréfinu nema fyrir liggi skriflegt samþykki veðgæsluaðila.
9.2 Veðsölum skal óheimilt að selja, veðsetja eða leggja hvers kyns kvaðir á hinar veðsettu eignir nema með samþykki veðgæsluaðila.
9.3 Prátt fyrir framangreint má veðsali vera yfirtekið félag í samruna við útgefanda eða annan veðsala án samþykkis veðgæsluaðila eða frekari aðgerða.


10. TILKYNNINGAR

10.1 Allar tilkynningar og önnur samskipti sem eru gefin út eða afhent vegna tryggingarbréfsins skulu vera skrifleg (í bréfi eða tölvupósti) og skulu sendast til veðsala, sjóðsins og veðgæsluaðila með sannanlegum hætti á eftirfarandi heimilisföng og/eða tölvupóstföng, til þess að þær geti talist gildar:

(a) Ef til veðsala:

Heimstaden ehf.

Lágmúla 6, 108 Reykjavík

b.t. Erlends Kristjánssonar

[email protected]

(b) Ef til sjóðsins:

A/F HEIM slhf.

Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

b.t. Valdimars Ármann

[email protected]

(c) Ef til veðgæsluaðila:

LEX ehf.

Borgartúni 26, 105 Reykjavík

b.t. Guðmundar Ingva Sigurðssonar

[email protected]

10.2 Tilkynna skal þegar í stað um allar breytingar á heimilis- eða tölvupóstfangi.

11. GILDISTÍMI OG VEÐBANDSLAUSN

11.1 Hið veðsetta skal standa til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu hinna veðtryggðu krafna þar til að þær hafa allar verið greiddar að fullu með óafturkræfum og skilyröislausum hætti.

11.2 Þegar hinar veðtryggðu kröfur hafa verið greiddar að fullu, skv. framangreindu, eða hafi ekki verið stofnað til veðtryggðra krafna með seljandalánunum fyrir 30. júlí 2021, skal veðgæsluaðili, að beiðni og á kostnað veðsala, gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að fella niður þau veð sem veitt hafa verið á grundvelli tryggingarbréfsins.

12. LÖG OG VARNARÞING

12.1 Um tryggingarbréfið gilda íslensk lög.

12.2 Rísi mál út af tryggingarbréfinu, skulu aðilar leitast við að leysa ágreining með samkomulagi sín á milli, en náist ekki að leysa úr ágreiningi með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

13. ANNAÐ

13.1 Allar breytingar sem gerðar eru á tryggingarbréfinu skulu vera skriflegar og samþykktar af sjóðnum, veðsölum og veðgæsluaðila f.h. veðhafa.

13.2 Tryggingarbréfið er gefið út í 2 samritum til þinglýsingar hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum.

13.3 Öllu framanrituðu til staðfestu undirrita aðilar tryggingarbréfið.


[undirritunarsioa fylgir]


Reykjavik [•] 2021

F.h. Heimstaden ehf.

F.h. LEX ehf., sem veðgæsluaðili

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd útgefanda ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda útgefanda.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðgæsluaðila ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðgæsluaðila.

F.h. Heimstaden III ehf., sem veðsala

F.h A/F HEIM slhf.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðsala ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðsala.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd sjóðsins ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir sjóðsins til að skuldbinda sjóðinn.

F.h. Heimstaden VI ehf., sem veðsala

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðsala ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðsala.

Vottar að réttri dags. og undirritun: