AI assistant
Heimstaden AB (publ) — Capital/Financing Update 2021
May 3, 2021
8423_rns_2021-05-03_cf1c0fef-a8fa-4990-b12b-19d1bad832e3.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Veðhafa- og veðgæslusamkomulag
Í TENGLSUM VIÐ
SKULDABRÉFAÚTGÁFU A/F HEIM SLHF.
milli
A/F HEIM slhf.,
veðgæsluaðila,
og
umboðsmanna kröfuhafa
[•]¹ 2021
Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta.
Efnisyfirlit
- Skilgreiningar og tülkun ... 2
- Veðtrygging fyrir skráðu skuldabréfunum ... 3
- Aðild kröfuhafa ... 3
- Réttur kröfuhafa ... 4
- Skipun, staða og hæfi veðgæsluaðila ... 4
- Hlutverk og skyldur veðgæsluaðila ... 5
- Breytingar á veðgæsluaðila ... 5
- Boðun veðhafafunda ... 6
- Tilhögun og lögmæti veðhafafunda ... 6
- Ákvarðanir veðhafafunda ... 7
- Atkvæðisréttur á veðhafafundi ... 7
- Ákvarðanataka á veðhafafundi ... 8
- Skipan samningsnefndar og úrræði kröfuhafa ... 8
- Fullnusta veðtrygginga ... 9
- Skaðabótaábyrgð ... 9
- Trúnaður ... 9
- Tilkynningar ... 10
- Þóknun veðgæsluaðila ... 10
- Lög og varnarþing ... 10
- Gildistími ... 10
- Annað ... 11
FYLGISKJAL I. ... 13
FYLGISKJAL II. ... 15
Veðhafa- og veðgæslusamkomulag þetta er gert þann [+]² 2021 („samkomulagið“) og er á milli:
(1) A/F HEIM slhf., kt. 490321-0120, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík („sjóðurinn“);
(2) LEX ehf., kt. 570297-2289, Borgartúni 26, 105 Reykjavík („veðgæsluaðili“); og
(3) Umboðsmanna kröfuhafa (skilgreindir í grein 1.1).
INNGANGUR:
(A) Heimstaden ehf., kt. 440315-1190, Lágmúla 6, 108 Reykjavík („útgefandi“) hefur gefið út skuldabréfaflokkana HEIMA071225 (ISIN: IS0000030799) („HEIMA25“) og HEIMA071248 (ISIN: IS0000030807) („HEIMA48“ og sameiginlega með HEIMA25 kallaðir „upprunalegu skuldabréfaflokkarnir“ og skuldabréf í upprunalegu skuldabréfaflokkunum kölluð „upprunalegu skuldabréfin“).
(B) Sjóðurinn hyggst leggja fram tilboð („tilboðið“) til allra eigenda upprunalegu skuldabréfanna sem felur í sér að:
(i) kröfuhafar, sem eiga skuldabréf í HEIMA25, fá greiðslu í formi skráðu skammtíma skuldabréfanna (skilgreind í grein 1.1);
(ii) kröfuhafar, sem eiga skuldabréf í HEIMA48, fá greiðslu í formi skráðu langtíma skuldabréfanna (skilgreind í grein 1.1),
(sameiginlega nefnd „skráðu skuldabréfin“) en stefnt er að því að skráðu skuldabréfin verði tekin til viðskipta í kauphöllinni innan 6 (sex) mánaða frá útgáfudegi þeirra.
(C) Gangi kaup sjóðsins á upprunalegu skuldabréfunum í geg, hyggst sjóðurinn samhliða selja öll upprunalegu skuldabréfin til útgefanda og fá greitt fyrir:
(i) skuldabréf í HEIMA25 með því að útgefandi undirgengst skuldbindingar samkvæmt skammtíma seljandaláninu (skilgreint í grein 1.1); og
(ii) fyrir skuldabréf í HEIMA48 með því að útgefandi undirgengst skuldbindingar samkvæmt langtíma seljandaláninu (skilgreint í grein 1.1) (hér eftir kann að vera vísað til skammtíma seljandalánsins og langtíma seljandalánsins sameiginlega sem „seljandalánanna“).
(D) Kröfur sjóðsins samkvæmt seljandalánunum verða tryggðar með veði í sömu eignum og nú standa til tryggingar á upprunalegu skuldabréfunum og kröfur kröfuhafa samkvæmt skráðu skuldabréfunum verða tryggðar með veði í viðkomandi seljandaláni samkvæmt veðsamningi á milli sjóðsins (sem veðsala) og veðgæsluaðila, f.h. kröfuhafa („Heimstaden veðsamningurinn“).
(E) Tryggingafyrirkomulagið (skilgreint í grein 1.1) er gert til að:
(i) kveða á um veðrétt viðkomandi kröfuhafa yfir viðkomandi seljandalánunum, sem veðgæsluaðili mun fara með fyrir hönd kröfuhafa, til tryggingar á skuldum sjóðsins samkvæmt skráðu skuldabréfunum; og
(ii) sjá til þess að ef gengið verður að veðrétti kröfuhafa yfir seljandalánunum, þá muni allir kröfuhafar njóta jafns réttar.
(F) Það skal teljast forsenda fyrir sölu kröfuhafa á upprunalegu skuldabréfunum geg, greiðslu með skráðu skuldabréfunum að gengið hafi verið frá samkomulaginu og tryggingafyrirkomulaginu með undirritun allra viðeigandi aðila á öll skjöl sem falla þar undir.
(G) Með samkomulaginu er skipaður veðgæsluaðili, f.h. kröfuhafa, í tengslum við tryggingafyrirkomulagið.
² Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta.
2
1. SKILGREININGAR OG TÜLKUN
1.1 Í samkomulaginu skulu eftirfarandi hugtök hafa þá merkingu sem þeim er gefin hér að neðan:
„Aðildaryfirlýsing“ merkir yfirlýsingu um aðild nýs veðgæsluaðila og/eða nýs umboðsmanns kröfuhafa að samkomulaginu, eftir því sem við á, sbr. fylgiskjal I til II við samkomulagið.
„HEIMA25“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (A).
„HEIMA48“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (A).
„Heimstaden veðsamningurinn“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (D).
„Kröfuhafar“ merkir eigendur skráðu skuldabréfanna sem tryggð eru samkvæmt tryggingafyrirkomulaginu.
„Langtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [•]³ 2021, að höfuðstólsfjárhæð 6.202.821.600 krónur, sem sjóðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071248, sem er með lokagjalddaga þann 7. desember 2048.
„Samstæða útgefanda“ merkir útgefanda og öll dótturfélög hans eins og þau eru á hverjum tíma.
„Seljandalánin“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (C).
„Skammtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [•]⁴ 2021, að höfuðstólsfjárhæð 4.798.962.365 krónur, sem sjóðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071225, sem er með lokagjalddaga þann 7.6.2021.
„Skráðu skuldabréfin“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (B).
„Skráðu langtíma skuldabréfin“ merkir skuldabréf útgefin í flokki skuldabréfa sjóðsins með auðkenninu [•]⁵, ISIN IS[•], sem er með lokagjalddaga þann 7. desember 2048 og gefin eru út í 20.676.072 króna nafnverðseiningum. Við fyrstu útgáfu skuldabréfa undir þessum flokki eru gefin út skuldabréf að nafnvirði 6.202.821.600 krónur sem samsvarar heildarheimild til útgáfu skuldabréfa í þessum flokki. Nánari lýsingu á skuldabréfaflokknum er að finna í útgáfulýsingu skráðs langtíma flokks.
„Skráðu skammtíma skuldabréfin“ merkir skuldabréf útgefin í flokki skuldabréfa sjóðsins með auðkenninu [•], ISIN IS[•]⁶, sem er með lokagjalddaga 7.6.2026 og gefin eru út í 20.596.405 króna nafnverðseiningum. Við fyrstu útgáfu skuldabréfa undir þessum flokki eru gefin út skuldabréf að nafnvirði 4.798.962.365 krónur sem samsvarar heildarheimild til útgáfu skuldabréfa í þessum flokki. Nánari lýsingu á skuldabréfaflokknum er að finna í útgáfulýsingu skráðs skammtíma flokks.
„Tilboðið“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (B).
„Tryggingafyrirkomulagið“ merkir fyrirkomulag um sameiginlegar veðtryggingar kröfuhafa, sem komið er á fót með veðskjölunum og umboðssamningum og sem standa skulu til tryggingar á skuldbindingum sjóðsins á grundvelli skráðu skuldabréfanna, allt eftir því sem nánar er lýst í samkomulaginu.
„Umboðsmenn kröfuhafa“ merkir aðila sem undirritað hafa aðildaryfirlýsingu f.h. kröfuhafa og koma fram fyrir hönd kröfuhafa í tengslum við tryggingafyrirkomulagið en hugtakið nær til umboðsmanna kröfuhafa í skuldabréfaflokki skráðu skuldabréfanna sem skipaðir hafa verið samkvæmt umboðssamning.
³ Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta.
⁴ Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta.
⁵ Mun liggja fyrir áður en skuldabréf verða gefin út.
⁶ Mun liggja fyrir áður en skuldabréf verða gefin út.
"Umboössamningur" merkir samning sem gerður er í tengslum við útgáfu skuldabréfaflokks, milli sjóðsins, kröfuhafa og umboðsmanns kröfuhafa í viðkomandi skuldabréfaflokki.
"Upprunalegu skuldabréfaflokkarnir" hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (A).
"Upprunalegu skuldabréfin" hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í inngangsgrein (A).
"Útgáfulýsing skráðs langtíma flokks" merkir útgáfulýsingu sjóðsins fyrir rafræna útgáfu skuldabréfa að fjárhæð allt að 6.202.821.600 króna hjá Nasdaq CSD SE, útibú á Íslandi, dags. [•]⁷ 2021, fyrir skuldabréf með lokagjalddaga 7. desember 2048.
"Útgáfulýsing skráðs skammtíma flokks" merkir útgáfulýsingu sjóðsins fyrir rafræna útgáfu skuldabréfa að fjárhæð allt að 4.798.962.365 króna hjá Nasdaq CSD SE, útibú á Íslandi, dags. [•]⁸ 2021, fyrir skuldabréf með lokagjalddaga 7.6.2026.
"Útgáfulýsingarnar" merkir útgáfulýsingu skráðs langtíma flokks og útgáfulýsingu skráðs skammtíma flokks.
"Útgefandi" hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefin í inngangsgrein (A).
"Vanefndatilvik" skal hafa sömu merkingu og skilgreind er í útgáfulýsingunum.
"Veðhafafundur" merkir fund umboðsmanna kröfuhafa samkvæmt samkomulaginu og sem veðgæsluaðili boðar til í samræmi við grein 8.
"Veðskjöl" merkir samkomulagið og Heimstaden veðsamninginn og aðildaryfirlýsingar, ásamt öllum öðrum viðbótum aðila, tilkynningum, viðaukum, fylgiskjólum, breytingum og öllum öðrum skjólum sem þeim tengjast.
1.2 Tilvísanir til löggjafar skulu taldar fela í sér tilvísanir til þeirrar löggjafar eins og henni kann að hafa verið breytt og reglna sem kunna að hafa verið settar með stoð í slíkri löggjóf.
1.3 Tilvísanir til sérhvers aðila skulu (þar sem við á) vera álitnar tilvísanir til eða eiga við um eftirmenn þeirra.
- VEDTRYGGING FYRIR SKRÁÐU SKULDABRÉFUNUM
2.1 Samhliða gerð samkomulagsins gera veðgæsluaðili (f.h. kröfuhafa) og sjóðurinn Heimstaden veðsamninginn, þar sem sjóðurinn setur kröfur samkvæmt skammtíma seljandaláninu að veði til tryggingar á skuldum sjóðsins samkvæmt skráðu skammtíma skuldabréfunum og kröfur samkvæmt langtíma seljandaláninu að veði til tryggingar á skuldum sjóðsins samkvæmt skráðu langtíma skuldabréfunum. Útgefandi veitir engin veðréttindi til tryggingar á skráðu skuldabréfunum.
- ADILD KRÖFUHAFA
3.1 Sérhver umboðsmaður kröfuhafa í viðeigandi skuldabréfaflokki skráðu skuldabréfanna skal undirrita og afhenda veðgæsluaðila aðildaryfirlýsingu f.h. kröfuhafa þess skuldabréfaflokks, sbr. fylgiskjal I, svo þeir verði aðilar að samkomulaginu og tryggingafyrirkomulaginu, f.h. og í umboði kröfuhafa. Aðildaryfirlýsing sem hefur verið undirrituð og afhent veðgæsluaðila í samræmi við framangreint skuldbindur bæði upphaflega eigendur skráðu skuldabréfanna sem og síðari framsalshafa. Með því að fjárfesta í skráðu skuldabréfunum í skuldabréfaflokki, sem viðkomandi umboðsmaður kröfuhafa hefur skilað aðildaryfirlýsingu fyrir, samþykka kaupendur skráðu skuldabréfanna að vera bundnir af (og njóta réttinda samkvæmt) samkomulaginu og tryggingafyrirkomulaginu, enda bera skilmálar skráðu skuldabréfanna, sbr. viðkomandi útgáfulýsingar, með sér upplýsingar um og tilvísun til samkomulagsins og tryggingafyrirkomulagsins.
⁷ Dags. ræðst af dags. uppgjörs við fjárfesta en útgáfulýsingarnar verða undirritaðar eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör.
⁸ Dags. ræðst af dags. uppgjörs við fjárfesta en útgáfulýsingarnar verða undirritaðar eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör.
3.2 Sérhver krőfuhafi telst hafa sambykkt pau réttindi og skyldur sem líst er í samkomulaginu frá beim degi sem umboðsmaður krőfuhafa undirritar og afhendir veðgæsluaðila aðildaryfirlýsingu.
3.3 Afhendi umboðsmaður krőfuhafa veðgæsluaðila aðildaryfirlýsingu til samræmis við framangreint, þá öðlast krőfuhafi jafnframt réttindi samkvæmt Heimstaden veðsamningnum, að fenginni staðfestingu veðgæsluaðila þess efnis.
4. RÉTTUR KRŌFUHAFA
4.1 Sérhver krőfuhafi sambykkir, með fjárfestingu sinni í skráðu skuldabréfunum, að allir krőfuhafar njóti hlutfallslega jafns réttar miðað við stöðu krafna þeirra á grundvelli skráðu skuldabréfanna í tengslum við veðrétt yfir viðeigandi seljandaláni samkvæmt Heimstaden veðsamningnum og beim réttindum sem viðkomandi seljandalánum fylgir.
4.2 Með samkomulaginu afsala krőfuhafar sér rétti sínum til að gripa til sjálfstæðra aðgerða til innheimtu og fullnustu krafna á grundvelli skráðu skuldabréfanna, nema í samræmi við ákvæði samkomulagsins.
4.3 Sjóðnum er með öllu óheimilt að veita einum krőfuhafa hvers konar viðbótarveð eða greiða viðbótargreiðslur umfram samningsbundnar greiðslur á umsömdum gjalddögum vegna skuldbindinga sem tryggðar eru með tryggingafyrirkomulaginu, nema öllum krőfuhöfum sé jafnframt veitt sama viðbótarveð eða greidd hlutfallslega jöfn viðbótargreiðsla. Sjóðnum er jafnframt óheimilt að kaupa á markaði útgefin skráð skuldabréf nema slíkt kauptilboð sé sett fram til allra eigenda skuldabréfa í sama skuldabréfaflokki.
5. SKIPUN, STADA OG HÆFI VEDGÆSLUAÐILA
5.1 Veðgæsluaðili er hér með skipáður af sjóðnum og sambykkir veðgæsluaðili að taka að sér þáð hlutverk. Þótt veðgæsluaðili sé upphafléga skipáður af sjóðnum eru starfsskyldur veðgæsluaðila alfarið gagnvart krőfuhöfum og hefur hvorki sjóðurinn né nokkur þriðji aðili neitt boðvald yfir veðgæsluaðila og er óheimilt að hafa áhrif á störf hans eða skipun, nema að svo miklu leyti sem sérstaklega er kveðið á um slíkt í samkomulaginu.
5.2 Sjóðurinn veitir hér með veðgæsluaðila fullt umboð til að sinna þeim skyldum sem honum eru faldar með samkomulaginu. Með undirritun og afhendingu aðildaryfirlýsingar í samræmi við samkomulagið veitir umboðsmaður krőfuhafa, f.h. viðkomandi krőfuhafa, veðgæsluaðila jafnframt sitt umboð til sömu verka.
5.3 Veðgæsluaðili skal vera óháður sjóðnum og samstæðu útgefanda í störfum sínum fyrir krőfuhafa. Veðgæsluaðila er óheimilt taka að sér önnur störf eða verkefni fyrir sjóðinn eða samstæðu útgefanda á gildistíma samkomulagsins sem fara í bága við almennar hagsmunaárekstrareglur veðgæsluaðila og Lögmannafélags Íslands á hverjum tíma. Framangreint kemur þó ekki í veg fyrir að veðgæsluaðili taki að sér hlutverk umboðsmanns krőfuhafa samkvæmt umboðsamningi, enda eru skyldur veðgæsluaðila sem umboðsmanns krőfuhafa og veðgæsluaðila í þágu krőfuhafa en ekki sjóðsins eða samstæðu útgefanda. Þá skal veðgæsluaðila jafnframt heimilt að taka að sér veðgæslu f.h. sjóðsins sem leiðir af Heimstaden veðsamningnum.
5.4 Veðgæsluaðili skal búa yfir nægilegri þekkingu til að gegna starfinu. Veðgæsluaðili skal vera lögmannsstofa, með sérþekkingu á viðkomandi sviði, með fullnægjandi þekkingu á fasteignum, verðbréfamarkaði og fjármögnun sambærilegra félaga og útgefanda og að öðru leyti með burði til að gegna hlutverkinu, meðal annars með tilliti til stærðar og rekstraröryggis.
5.5 Veðgæsluaðili skal ávallt á meðan hann gegnir hlutverki veðgæsluaðila vera með gilda starfsábyrgðartryggingar gagnvart tjóni sem kann að hljótast af störfum hans. Skal vátryggingarfjárhæð starfsábyrgðartryggingarinnar nema að lágmarki kr. 2.000.000.000.
5.6 Veðgæsluaðili og sá lögmaður sem sinnir verkefnum hans mega ekki á undanförnum fimm árum hafa verið lýstir gjaldbrota, leitað nauðasamninga eða heimildar til greiðslustöðvunar eða hlotið dóm fyrir brott á lögum í tengslum við fyrirtækjarekstur.
4
5.7 Veðgæsluaðili gerir sér grein fyrir því að verðbréf sjóðsins kunna að verða skráð á skipulegan verðbréfamarkað, auk þess sem til stendur að skrá skráðu skuldabréfin á skipulegan verðbréfamarkað. Þær aðstæður geta því skapast að veðgæsluaðili teljist vera innherji, sbr. meðal annars ákvæði laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og reglur nr. 1050/2012 um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja. Veðgæsluaðili skuldbindur sig til að vera upplýstur um slíkar reglur eins og þær eru á hverjum tíma og haga störfum sínum til samræmis við þær.
6. HLUTVERK OG SKYLDUR VEDGÆSLUADILA
6.1 Veðgæsluaðili skal gæta hagsmuna kröfuhafa gagnvart sjóðnum og vera í samskiptum við umboðsmenn kröfuhafa.
6.2 Veðgæsluaðili skal ganga úr skugga um að veðin sem veitt eru samkvæmt Heimstaden veðsamningnum séu gild og réttarvernd undirliggjandi veðréttinda sé tryggð. Þá skal veðgæsluaðili hafa umsjón með veðréttindum samkvæmt Heimstaden veðsamningnum og tryggja að framkvæmd allra breytinga sem varða veðandlagið sé í samræmi við ákvæði Heimstaden veðsamningsins. Veðgæsluaðili skal hafa fullt umboð sjóðsins og kröfuhafa til þess að undirrita skjöl í tengslum við það hlutverk.
6.3 Veðgæsluaðili skal halda utan um og varðveita öll frumrit veðskjala og annarra gagna sem hann fær afhent.
6.4 Veðgæsluaðili heldur utan um aðildaryfirlýsingar og skal hann hafa umboð frá sjóðnum til að taka á móti aðildaryfirlýsingum.
6.5 Veðgæsluaðili skal hafa umsjón með veðréttindum samkvæmt Heimstaden veðsamningnum og framkvæmd samkvæmt honum, sem og bera ábyrgð á að hreyfingar á veðsettum eignum séu réttilega framkvæmdar og réttarvernd tryggð þegar við á. Í því sambandi skal veðgæsluaðili taka við og fara yfir gögn sem sjóðurinn veitir viðtöku og stafa frá útgefanda vegna eða í tengslum við seljandalánin og senda áfram til umboðsmanna kröfuhafa til upplýsingar.
6.6 Veðgæsluaðili hefur heimild til að kalla eftir og taka á móti öllum upplýsingum frá sjóðnum sem hann telur þörf á til að hann geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samkomulaginu. Veðgæsluaðili skal boða og, eftir atvikum, stýra veðhafafundum í samræmi við greinar 8-12.
6.7 Veðgæsluaðili skal grípa til viðeigandi fullnustuaðgerða fyrir hönd kröfuhafa í samræmi við samkomulagið, sbr. grein 14, og hefur hann fullt umboð til þess.
6.8 Veðgæsluaðili skal hvorki sinna daglegu eftirliti með störfum sjóðsins né staðreyna eða kanna hvort sjóðurinn hlíti skilmálum skráðu skuldabréfanna. Veðgæsluaðili skal eftir bestu getu tilkynna umboðsmönnum kröfuhafa ef hann verður var við eitthvað við störf sín sem veðgæsluaðili, sem gæti raskað tryggingarréttindum kröfuhafa en veðgæsluaðili skal ekki teljast grandsamur um atvik nema hann hafi fengið skriflegar tilkynningar um atvik frá umboðsmanni kröfuhafa, kröfuhöfum, sjóðnum eða öðrum. Veðgæsluaðili skal almennt senda afrit til sjóðsins af öllum tilkynningum sem hann sendir til umboðsmanna kröfuhafa, nema hann telji að slíkt gæti raskað hagsmunum kröfuhafa. Þá skal veðgæsluaðili almennt senda afrit til umboðsmanna kröfuhafa af öllum tilkynningum sem hann sendir til sjóðsins, nema slíkar tilkynningar hafi verið sendar þeim, eða umbjöðendum þeirra, í gegnum tilkynningakerfi Nasdaq Iceland.
7. BREYTINGAR Á VEDGÆSLUADILA
7.1 Umboðsmenn kröfuhafa geta tekið ákvörðun á veðhafafundi um að segja veðgæsluaðila upp störfum og fela sjóðnum að skipa nýjan í hans stað, með fyrirvara um samþykki umboðsmanna kröfuhafa.
7.2 Vilji veðgæsluaðili láta af störfum skal hann þegar í stað upplýsa sjóðinn um það og skal sjóðurinn þá, eins fljótt og kostur er, skipa nýjan veðgæsluaðila, með fyrirvara um samþykki umboðsmanna kröfuhafa.
7.3 Pegar sjóðurinn hefur skipað nýjan veðgæsluaðila, með fyrirvara um sambykki umboðsmanna kröfuhafa, sbr. framangreint, skal sjóðurinn fara fram á það við fráfarandi veðgæsluaðila að boðað verði til veðhafafundar þar sem skipun hins nýja veðgæsluaðila er lögð fyrir umboðsmenn kröfuhafa til sambykktar. Verði tillaga sjóðsins um veðgæsluaðila ekki sambykkt skal sjóðurinn, í samráði við umboðsmenn kröfuhafa eftir því sem efni eru til, skipa annan veðgæsluaðila, með fyrirvara um sambykki umboðsmanna kröfuhafa, og boða á veðhafafund með sama hætti. Sambykki veðhafafundur ekki þann veðgæsluaðila sem sjóðurinn hefur samið við og ekki næst samkomulag milli sjóðsins og umboðsmanna kröfuhafa um annað, geta umboðsmenn kröfuhafa sem fara með 1/4 atkvæða á veðhafafundi, samið við nýjan veðgæsluaðila með fyrirvara um sambykki umboðsmanna kröfuhafa í samræmi við það sem mælt er fyrir um í grein 7.6.
7.4 Veðgæsluaðili sem lætur af störfum samkvæmt framangreindu skal laus undan skyldum sínum þegar hinn nýi veðgæsluaðila hefur staðfest skipun sína með undirritun aðildaryfirlýsingar, sbr. grein 7.7. Fráfarandi veðgæsluaðili skuldbindur sig til að skrifa undir viðauka við veðskjölin og hvers kyns önnur skjöl sem nauðsynlegt kann að vera að undirrita til þess að hinn nýi veðgæsluaðili geti tekið við réttindum og skyldu samkvæmt veðskjölum og öðrum skjölum tengdum tryggingafyrirkomulaginu. Pá skal fráfarandi veðgæsluaðili afhenda nýjum veðgæsluaðila öll frumrit veðskjala eða annarra skjala sem hann hefur undir höndum og nýr veðgæsluaðila með réttu óskar eftir, enda hafi allar útistandandi þóknanir fráfarandi veðgæsluaðila verið uppgerðar.
7.5 Missi veðgæsluaðili hæfi sitt á samningstímanum, sbr. grein 5, skal hann tilkynna um slíkt til sjóðsins og láta af störfum án tafar, og skal sjóðurinn þá, eins og fljót og auðið er, skipa nýjan veðgæsluaðila með fyrirvara um sambykki kröfuhafa, sbr. og grein 7.3.
7.6 Hafi sjóðurinn ekki samið við nýjan veðgæsluaðila 14 dögum eftir að honum verður kunnugt um að veðgæsluaðili hyggst láta af störfum geta umboðsmenn kröfuhafa sem ráða yfir 1/4 atkvæða á veðhafafundi samið við nýjan veðgæsluaðila með fyrirvara um sambykki kröfuhafa, og borið undir veðhafafund til sambykktar. Sjóðurinn skal þó ekki verða ábyrgur fyrir þóknun hins nýja veðgæsluaðila að svo miklu leyti sem samningur við hinn nýja veðgæsluaðila leiðir til þess að þóknun til veðgæsluaðila er orðinn verulega hærri en þóknun upphaflægs veðgæsluaðila.
7.7 Pegar skipt er um veðgæsluaðila skal hinn nýi veðgæsluaðili, eftir að veðhafafundur hefur sambykkt skipun hans, gangast undir að taka við öllum réttindum og skyldum veðgæsluaðila samkvæmt samkomulaginu með undirritun aðildaryfirlýsingar í samræmi við fylgiskjal II við samkomulagið.
- BODUN VEDHAFAFUNDA
8.1 Veðgæsluaðili boðar umboðsmenn kröfuhafa á veðhafafundi ef þörf er á sambykki kröfuhafa í samræmi við samkomulagið.
8.2 Veðgæsluaðili er skuldbundinn til þess að boða til veðhafafundar ef hann fær beiðni þess efnis frá umboðsmanni kröfuhafa eða sjóðnum. Pá ber honum jafnframt að boða til veðhafafundar að eigir frumkvæði, verði hann áskynja um atriði sem hann telur nauðsynlegt að taka fyrir á veðhafafundi.
8.3 Veðgæsluaðili skal bregðast við öllum beiðnum eða tilkynningum sem vísað er til í grein 8.1 eins fljót og auðið er. Eigi síðar en sjö dögum frá mottóku beiðni þess efnis skal veðgæsluaðili boða umboðsmenn kröfuhafa á veðhafafund með eigi skemmri fyrirvara en 14 daga og eigi lengri fyrirvara en 28 daga. Heimilt er að boða veðhafafund með skemmri fyrirvara en hér er mælt fyrir um ef allir umboðsmenn kröfuhafa sammælast um það, en slíkur fyrirvari skal þó aldrei vera skemmri en 7 dagar. Skal fundarboð sent á umboðsmenn kröfuhafa með sannanlegum hætti. Í fundarboði skal tilgreina fundarstað, fundartíma, dagskrá og tillögur fyrir veðhafafund.
- TILHÖGUN OG LÖGMÆTI VEDHAFAFUNDA
9.1 Umboðsmenn kröfuhafa mæta fyrir hönd kröfuhafa á veðhafafundi og greiða atkvæði þar í samræmi við fyrirmæli frá þeim kröfuhöfum sem þeir sækja umboð sitt til.
9.2 Veðgæsluaðili og umboðsmenn kröfuhafa, sem og ráðgjafar þeirra og fulltrúar, eiga rétt á að sækja veðhafafund, auk annarra sem veðgæsluaðili boðar en eingöngu umboðsmenn kröfuhafa hafa atkvæðisrétt á slíkum fundum.
9.3 Veðgæsluaðili skal setja fundinn. Umboðsmenn kröfuhafa á veðhafafundi skulu kjósa fundarstjóra og fundarritara. Sé veðgæsluaðili jafnframt umboðsmaður kröfuhafa skal hann ekki stýra fundi heldur óháður aðili sem er til þess hæfur. Fundarstjóri skal í upphafi fundar staðfesta hvort fundurinn sé ályktunarbær, sbr. grein 9.4.
9.4 Til að veðhafafundur sé ályktunarbær þarf fundurinn að hafa verið boðaður með réttum hætti, sbr. grein 8., og umboðsmenn kröfuhafa sem fara með a.m.k. 50% atkvæðisréttar, sbr. viðmið greinar 11.1, séu mættir á fundinn.
9.5 Ef veðhafafundur er ekki ályktunarbær vegna ónógrar fundarsóknar skal veðgæsluaðili slíta fundi án þess að taka þar til afgreiðslu nein mál. Veðgæsluaðili skal í kjólfar slíks fundar, án ástæðulauss dráttar, boða umboðsmenn kröfuhafa á nýjan fund sem haldinn verður ekki fyrr en 7 dögum síðar og ekki seinna en 14 dögum síðar. Sá fundur er ávallt ályktanabær, óháð fundarsókn, ef til hans var boðað með réttum hætti, sbr. grein 8.
10. ÁKVARDANIR VEDHAFAFUNDA
10.1 Þær ákvarðanir sem umboðsmenn kröfuhafa, eða fulltrúar þeirra, taka á veðhafafundi geta eingöngu verið eftirfarandi:
(a) Hvort ganga skuli að veðum sem Heimstaden veðsamningurinn veitir, að fullu eða að hluta, og ef það skal gert, á hvaða hátt.
(b) Hafi verið ákveðið að ganga að veði í seljandalánunum, til hvaða aðgerða skuli grípa á grundvelli seljandalánanna og veðréttinda eða ábyrgða sem standa þeim til tryggingar og þá með hvaða hætti.
(c) Hvort hefja skuli samningaviðræður við sjóðinn í kjólfar vanefndatilviks og skipa samninganefnd til samningaviðræðna og hvort samþykkja skuli tillögur sem lagðar eru fyrir veðhafafund í framhaldi samningaviðræðna, sbr. grein 13;
(d) Hvort breyta eigi ákvæðum veðskjala eða veita samþykki til breytinga á grundvelli veðskjala, þar sem samþykki veðhafafundar er áskilið, eða hvort veita eigi undanþágur frá ákvæðum veðskjala.
(e) Hvort afturkalla eigi skipun veðgæsluaðila og hvort samþykkja eigi nýjan veðgæsluaðila.
11. ATKVÆÐISRÉTTUR Á VEDHAFAFUNDI
11.1 Á veðhafafundi miðast atkvæðaréttur umboðsmanna kröfuhafa við uppgreiðsluverðmæti skráðu skuldabréfanna innan þess skuldabréfaflokks sem hann er í umboði fyrir sem hlutfall af uppgreiðsluverðmæti allra þeirra krafna samkvæmt skráðu skuldabréfunum sem tryggðar eru samkvæmt tryggingafyrirkomulaginu, eins og það er við lok dags daginn fyrir veðhafafund, sbr. þó grein 11.2.
11.2 Skráð skuldabréf í eigu sjóðsins, útgefanda eða félaga í samstæðu útgefanda bera ekki atkvæðisrétt og skulu ekki tekin með við útreikning á samþykkishlutfalli. Umboðsmenn kröfuhafa skulu tilkynna veðgæsluaðila um hvort skráð skuldabréf séu í eigu sjóðsins, útgefanda eða félaga í samstæðu útgefanda og eftir atvikum uppgreiðsluverðmæti þeirra.
11.3 Sérhver umboðsmaður kröfuhafa skal leggja fram upplýsingar um uppgreiðsluverðmæti skráðra skuldabréfa þess skuldabréfaflokks sem hann er í umboði fyrir. Veðgæsluaðila er jafnframt heimilt að sækja upplýsingar um uppgreiðsluverðmæti skráðra skuldabréfa beint frá verðbréfamiðstöð og reikningsstofnunum.
7
11.4 Ef ágreiningsmál koma upp í tengslum við atkvæðisrétt á veðhafafundi skal fundarstjóri skera úr þeim ágreiningi en séu umboðsmenn krőfuhafa ósáttir við niðurstöðu fundarstjóra, geta þeir látið reyna á lögmæti hennar fyrir dómi.
- ÁKVARDANATAKA Á VEDHAFAFUNDI
12.1 Ef ekki er kveðið á um annað í samkomulaginu eða Heimstaden veðsamningnum þarf samþykki 2/3 hluta atkvæða sem farið er með á veðhafafundi til ákvarðanatöku.
12.2 Ákvarðanir um eftirgjöf trygginga, þarfnast samþykkis 9/10 hluta atkvæða sem farið er með á veðhafafundi, að svo miklu leyti sem slíkar breytingar eru ekki sérstaklega heimilaðar í Heimstaden veðsamningnum.
12.3 Ákvarðanir um breytingar á grein 12.2 þarfnast samþykkis allra atkvæða sem farið er með á veðhafafundi. Sama gildi um ákvarðanir á veðhafafundi, sem raska jafnræði milli krőfuhafa og áskilja tilteknum krőfuhöfum betri rétt en öðrum samkvæmt tryggingafyrirkomulaginu, hvort sem er með breytingum á samkomulaginu, Heimstaden veðsamningnum eða með öðrum hætti.
12.4 Ákvarðanir sem teknar eru með tilskyldu samþykkishlutfalli á ályktanabærum veðhafafundi binda alla krőfuhafa sem tryggðir eru samkvæmt tryggingafyrirkomulaginu.
12.5 Sjóðurinn skal í samráði við veðgæsluaðila birta niðurstöður veðhafafundar í samræmi við lög og reglur um reglubundna upplýsingagjöf útgefenda skráðra verðbréfa.
- SKIPAN SAMNINGSNEFNDAR OG ÚRRÆDI KRŌFUHAFA
13.1 Ef ályktunarbær veðhafafundur ákveður að hefja samningaviðræður við sjóðinn vegna vanefndatilviks, sbr. grein 10.1(c), skal skipuð samninganefnd fyrir hönd krőfuhafa. Skal samninganefndin samanstanda af öllum umboðsmönnum krőfuhafa.
13.2 Samninganefndin skal boða sjóðinn á fyrsta fund innan 14 daga frá þeim degi sem ákvörðun um skipan hennar er tekin. Samninganefndin skal jafnframt boða veðgæsluaðila til allra funda sem samninganefndin á með sjóðnum. Veðgæsluaðili skal veita þær upplýsingar sem samninganefndin eða sjóðurinn óska eftir og varða tryggingafyrirkomulagið eða störf veðgæsluaðila. Sjóðurinn og samninganefndin skulu á fundum sínum eiga samráð við veðgæsluaðila áður en tillögur til lausna eru lagðar fyrir veðhafafund til samþykktar, sbr. grein 13.3.
13.3 Samninganefndin og sjóðurinn skulu í sameiningu útbúa tillögur til lausna, sem leggja skal fyrir veðhafafund til samþykktar. Tillögur samkvæmt þessari grein verða ekki lagðar fyrir veðhafafund nema allir nefndarmenn auk sjóðsins séu því samþykkir. Eftir atvikum skal gera skriflegt samkomulag milli sjóðsins og umboðsmanna krőfuhafa vegna þeirrar lausnar sem samþykkt er á veðhafafundi, eigi síðar en sex mánuðum frá því að ákvörðun um skipan samninganefndar var tekin, og bindur samkomulagið alla krőfuhafa og sjóðinn.
13.4 Ef aðilar komast ekki að samkomulagi innan þess tíma skal halda nýjan veðhafafund til að ákvarða hvort og með hvaða hætti ganga eigi að veðum, sbr. grein 10.1(a) eða 10.1(b) í samkomulaginu.
13.5 Ef ekki er tekin ákvörðun um að ganga að veðum á veðhafafundi, sbr. grein 10.1(a) eða 10.1(b), eða ef ákvörðun hefur verið tekin um að hefja samningaviðræður, sbr. grein 10.1(c), og ef samningaviðræður hafa ekki skilað niðurstöðu innan sex mánaða frá þeim veðhafafundi sem haldinn var í kjólfar vanefndatilviks, getur umboðsmaður krőfuhafa falið veðgæsluaðila að ganga að veðum að svo miklu leyti sem þörf er á til að greiða kröfu viðkomandi krőfuhafa samkvæmt skráðum skuldabréfum. Berist veðgæsluaðila beiðni samkvæmt þessari grein skal hann tilkynna öðrum krőfuhöfum um hana án tafar. Veðgæsluaðili skal verða við beiðninni innan 28 daga en ekki fyrr en 14 dögum frá því að hún barst honum. Við fullnustu samkvæmt þessari grein skal fara eftir grein 14 eftir því sem við á. Greiðslum vegna fullnustu samkvæmt þessari grein skal ráðstafað hlutfallslega og í samræmi við greinar 14.4 - 14.6. Ef fullnusta veða í samræmi við framangreint leiðir ekki til fullrar greiðslu skuldabréfaflokks er umboðsmanni krőfuhafa heimilt að
8
beita öðrum þeim fullnustuaðgerðum sem kröfuhöfum stæðu almennt til boða, ef ekki væri fyrir samkomulagið.
14. FULLNUSTA VEDTRYGGINGA
14.1 Eins og fram kemur í grein 4.2 afsala kröfuhafar sér rétti til að ganga að veðum eða undirliggjandi réttindum, í vanefndatilvikum að eigin frumkvæði, sbr. þó úrræði kröfuhafa hér að framan í grein 13.5.
14.2 Skal fullnusta veðs yfir seljandalánunum, komi til slíkra aðgerða, fara fram í samræmi við ákvæði Heimstaden veðsamningsins, samkomulagsins og í samræmi við ákvarðanir veðhafafunda.
14.3 Veðgæsluaðili skal annast fullnustuaðgerðir í samræmi við ákvarðanir veðhafafundar, og skal hann fá öll nauðsynleg gögn og upplýsingar til þess frá umboðsmönnum kröfuhafa óski hann eftir því.
14.4 Veðgæsluaðili skal móttaka greiðslur vegna fullnustuaðgerða og úthluta til umboðsmanna kröfuhafa í hlutfalli við útistandandi kröfur kröfuhafa vegna skráðu skuldabréfanna eins fljótt og auðið er og eigi síðar en næsta virka dag eftir að veðgæsluaðili tók við greiðslunni, að því gefnu að veðgæsluaðili hafi fengið uppfærðar upplýsingar um kröfur samkvæmt skráðu skuldabréfunum frá umboðsmönnum kröfuhafa ásamt viðeigandi greiðslu- eða bankaupplýsingum þeirra. Í þessu sambandi skal veðgæsluaðili hafa fullt umboð frá kröfuhöfum og sjóðnum til þess að taka við andvirði af fullnustu veða sem veitt eru samkvæmt Heimstaden veðsamningnum til samræmis við framangreint.
14.5 Móttaki veðgæsluaðili fjármuni vegna fullnustu sem duga ekki til fullrar greiðslu allra krafna sem gjaldfallnar eru samkvæmt skráðu skuldabréfunum skal ráðstafa þeim í eftirfarandi röð:
(a) til greiðslu innheimtukostnaðar og kostnaðar við fullnustuaðgerðir;
(b) til greiðslu gjaldfallinna en ógreiddra þóknana og útlagðs kostnaðar veðgæsluaðila og umboðsmanna kröfuhafa;
(c) til greiðslu gjaldfallinna vaxta, verðbóta og þóknana samkvæmt skráðu skuldabréfunum;
(d) til greiðslu gjaldfallinna greiðslna höfuðstóls skráðu skuldabréfanna;
(e) til greiðslu allra annarra krafna samkvæmt skráðu skuldabréfunum.
14.6 Fáist ekki greiðsla að fullu samkvæmt ofangreindu skal greiða viðeigandi kröfur hlutfallslega miðað við fjárhæð.
15. SKADABÓTAÁBYRGD
15.1 Sérhver kröfuhafi, eða umboðsmaður f.h. kröfuhafa, sem brýtur gegin samkomulaginu, svo sem vegna aðgerða er brjóta í bága við jafnan rétt kröfuhafa, skal vera skaðabótaskyldur í samræmi við almennar reglur.
15.2 Veðgæsluaðili ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar. Veðgæsluaðili ber þó ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem kröfuhafar kunna að verða fyrir. Pá ábyrgist veðgæsluaðili að engu leyti greiðslur eða innheimtu krafna samkvæmt skráðu skuldabréfunum.
15.3 Ábyrgð veðgæsluaðila takmarkast við pá fjárhæð sem hægt er að krefjast, og fæst greidd, úr starfsábyrgðartryggingu hans, sbr. grein 5.5, nema um sé að ræða tjón sem rekja má til ásetnings veðgæsluaðila.
16. TRÚNADUR
16.1 Veðgæsluaðila er skylt að gæta fyllsta trúnaðar um hvaðeina sem hann verður áskynja um í störfum sínum á grundvelli samkomulagsins, nema fyrir liggi skýr lagaákvæði eða úrskurður þar
9
til bærs stjórnvalds eða dómstóls sem skylda hann til að láta af hendi slíkar upplýsingar. Trúnaðarskyldan helst eftir að veðgæsluaðili lætur af störfum.
16.2 Trúnaðarskyldan tekur ekki til upplýsingagjafar veðgæsluaðila sem honum er nauðsynleg til að vinna verk sín samkvæmt samkomulaginu.
17. TILKYNNINGAR
17.1 Nema kveðið sé á um annað í samkomulaginu, skulu allar tilkynningar og önnur samskipti sem eru gefin út eða afhent vegna samkomulagsins vera skrifleg (í bréfi eða tölvupósti) og skulu sendast til sjóðsins, veðgæsluaðila og umboðsmanna kröfuhafa með sannanlegum hætti á eftirfarandi heimilisföng og/eða tölvupóstföng, til þess að þær geti talist gildar gagnvart gagnaðila:
(a) Ef til sjóðsins:
A/F HEIM slhf.
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
b.t. Valdimars Ármann
(b) Ef til veðgæsluaðila:
LEX ehf.
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
b.t. Guðmundar Ingva Sigurðssonar
(c) Ef til umboðsmanna kröfuhafa, þá samkvæmt þeim upplýsingum sem veittar eru þar um í viðkomandi aðildaryfirlýsingum.
17.2 Tilkynna skal þegar í stað um allar breytingar á heimilis- eða tölvupóstfangi.
18. PÓKNUN VEDGÆSLUAÐILA
18.1 Sjóðurinn einn ber skyldu til að greiða veðgæsluaðila vegna starfa hans og skulu þeir gera með sér samning um þóknun til handa veðgæsluaðila vegna starfa hans á grundvelli samkomulagsins.
18.2 Sjóðurinn skal jafnframt bera allan eðlilegan útlagðan kostnað af störfum veðgæsluaðila.
19. LÖG OG VARNARÞING
19.1 Um samkomulagið gilda íslensk lög.
19.2 Rísi mál út af samkomulaginu, skulu aðilar leitast við að leysa ágreining með samkomulagi sín á milli, en náist ekki að leysa úr ágreiningi með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
20. GILDISTÍMI
20.1 Samkomulagið tekur gildi við undirritun. Réttindi og skyldur einstakra kröfuhafa samkvæmt samkomulaginu falla niður þegar allar kröfur þeirra samkvæmt skráðu skuldabréfunum hafa verið greiddar upp að fullu og samkomulagið fellur alfarið niður þegar allar kröfur samkvæmt skráðu skuldabréfunum hafa verið greiddar upp gagnvart öllum kröfuhöfum.
10
20.2 Hafi uppgjör samkvæmt tilboðinu ekki átt sér stað fyrir 30. júlí 2021, fellur samkomulagið sjálfkrafa úr gildi á þeim degi og skulu þá skuldbindingar allra aðila að samkomulaginu falla niður og réttaráhrif þess skulu vera þau sömu og ef samkomulagið hefði aldrei verið gert.
21. ANNAD
21.1 Allar breytingar sem gerðar eru á samkomulaginu skulu vera skriflegar, samþykktar af tilskyldum meirihluta kröfuhafa á veðhafafundi, skv. ákvæðum samkomulagsins, og undirritaðar af hálfu sjóðsins, veðgæsluaðila og viðeigandi umboðsmönnum kröfuhafa.
21.2 Samkomulagið er gert í tveimur frumritum og heldur sjóðurinn einu eintaki og veðgæsluaðili einu. Samkomulagið skal birt á heimasíðu sjóðsins til upplýsingar fyrir kröfuhafa.
21.3 Öllu framanrituðu til staðfestu undirrita aðilar samkomulag þetta.
[undirritunarsíða fylgir]
- undirskriftarsia veðhafa- og veðgæslusamkomulags-
Reykjavík [•] 2021
F.h. A/F HEIM slhf.
F.h. LEX ehf., sem veðgæsluaðili
Sá sem undirritar samkomulag þetta fyrir hönd sjóðsins ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir sjóðsins til að skuldbinda sjóðinn.
Sá sem undirritar samkomulag þetta fyrir hönd veðgæsluaðila ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir veðgæsluaðila til að skuldbinda veðgæsluaðila.
Vottar að réttri dags. og undirritun:
FYLGISKJAL I.
FORM AD ADILDARYFIRLÝSINGU KRÖFUHAFA
[Veðæsluaðili]
[staður og dagsetning]
Aðildaryfirlýsing kröfuhafa
Vísað er til veðhafa- og veðæslusamkomulagsins, dags. [•] 2021 og veðskjalanna (eins og það hugtak er skilgreint í veðhafa- og veðæslusamkomulaginu). Hugtök sem notuð eru í aðildaryfirlýsingu þessari skulu hafa sömu merkingu og þeim er gefin í veðhafa- og veðæslusamkomulaginu.
Aðildaryfirlýsing þessi mælir fyrir um aðild að veðhafa- og veðæslusamkomulaginu og skal skoðast sem hluti viðkomandi samninga.
Í samræmi við ákvörðun [,], þann [,], og til samræmis við ákvæði veðhafa- og veðæslusamkomulagsins hefur undirritaður verið skipaður umboðsmaður kröfuhafa skv. umboðssamningi fyrir [auðkenni flokks], og tekur sem slíkur við því hlutverki, ásamt öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja og staðfestir það með undirritun sinni á yfirlýsingu þessa.
[EF VÍÐ Á:] [Fyrri umboðsmaður kröfuhafa er við undirritun yfirlýsingarinnar leystur undan þeim réttindum og skyldum sem hann hafði sem umboðsmaður kröfuhafa, að því undanskildu að hann ber áfram ábyrgð á ráðstöfunum sínum sem hann framkvæmdi sem umboðsmaður kröfuhafa.]
Þá verða framangreindir kröfuhafar með undirritun umboðsmanns þeirra, aðilar að veðskjölunum með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja.
Allar tilkynningar og önnur samskipti sem eru gefin út eða afhent skulu sendast til undirritaðs umboðsmanns kröfuhafa með sannanlegum hætti á eftirfarandi heimilisfang og/eða tölvupóstfang, sbr. og grein 17 í veðhafa- og veðæslusamkomulaginu:
[umboðsmaður kröfuhafa], [heimilisfang] [tölvupóstfang]
[undirritunarsíða fylgir]
13
[staður og dagsetning]
Fyrir hönd umboðsmanns kröfuhafa
Vottar að réttri dagsetningu, fjárræði og undirskrift:
Staður og dagsetning
Móttekið fyrir hönd [•] sem veðgæsluaðila
14
FYLGISKJAL II.
FORM AD ADILDARYFIRLÝSINGU VEDGÆSLUADILA
A/F HEIM slhf.,
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík,
b.t. Valdimars Ármann
[umboðsmenn kröfuhafa]
[staður og dagsetning]
Aðildaryfirlýsing veðgæsluaðila
Vísað er til veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins, dags. [•] 2021 og veðskjalanna (eins og það hugtak er skilgreint í veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu). Hugtök sem notuð eru í aðildaryfirlýsingu þessari skulu hafa sömu merkingu og þeim er gefin í veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu.
Aðildaryfirlýsing þessi mælir fyrir um aðild að veðhafa- og veðgæslusamkomulaginu og skal skoðast sem hluti þess.
Í samræmi við ákvæði veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins og veðskjalanna hefur undirritaður verið skipaður veðgæsluaðili og tekur sem slíkur við því hlutverki, ásamt öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. Undirritaður staðfestir þetta og lýsir því yfir að frá og með undirritun aðildaryfirlýsingar þessarar verði hann bundinn af ákvæðum veðhafa- og veðgæslusamkomulagsins og veðskjalanna sem veðgæsluaðili.
[EF VÍÐ Á:] [Fyrri veðgæsluaðili skal hér með vera leystur undan þeim réttindum og skyldum sem hann hafði sem slíkur, að því undanskildu að hann ber áfram ábyrgð á ráðstöfunum sínum sem hann framkvæmdi í því hlutverki.]
[staður og dagsetning]
Fyrir hönd A/F HEIM slhf.
Fyrir hönd [•] sem veðgæsluaðila
[Fyrir hönd [•] sem fyrri veðgæsluaðila]
Fyrir hönd umboðsmanns kröfuhafa [bæta við fleirum eftir þörfum]
Vottar að réttri dagsetningu, fjárræði og undirskrift aðila:
15