Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Heimstaden AB (publ) Capital/Financing Update 2021

May 3, 2021

8423_rns_2021-05-03_1bcf02c8-02b2-4560-bc7a-c93bbb36e99b.pdf

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Tryggingarbréf – veösamningur

BUNDIÐ VÍSITÕLU NEYSLUVERÐS TIL VERÐTRYGGINGAR

Í TENGLS LUM VÍÐ

SELJANDALÁN TIL HEIMSTADEN EHF.

milli

Heimstaden ehf. (sem útgefanda og veösala)

Heimstaden III ehf. og Heimstaden VI ehf. (sem veösala),

A/F HEIM slhf. (sem veðhafa)

og

LEX ehf. (sem veðgæsluaðila)

[•]¹ 2021

¹ Dagestning tryggingarbréfa liggur fyrir síðar þegar þau verða gefin út og rétt dags. færð inn hér.


Aðilar að þessu tryggingarbréfi – veðsamningi („tryggingarbréfið“) eru:

(1) Heimstaden ehf. kt. 440315-1190, Lágmúla 6, 108 Reykjavík („útgefandi“ og/eða „veðsali“);
(2) Heimstaden III ehf., kt. 410415-1190, og Heimstaden VI ehf., 681212-2480, bæði til heimilis að Lágmúla 6, 108 Reykjavík (hvort um sig „veðsali“ og sameiginlega með útgefanda „veðsalar“);
(3) A/F HEIM slhf., kt. 490321-0120, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík („sjóðurinn“); og
(4) LEX ehf., kt. 570297-2289, Borgartúni 26, 105 Reykjavík, í hlutverki sínu sem veðgæsluaðili f.h. og í umboði sjöðsins („veðgæsluaðili“).

INNGANGUR:

(A) Með tryggingarbréfinu setja veðsalar tilgreindar fasteignir að veði til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu á veðtryggðum kröfum (skilgreindar í gr. 1.1), eftir því sem nánar er lýst í tryggingarbréfinu.
(B) Sjóðurinn og veðgæsluaðili eru sammála um að veðgæsluaðili skuli fara með öll réttindi veðhafa samkvæmt tryggingarbréfinu í umboði veðhafa og kemur fram fyrir hönd veðhafa í tengslum við tryggingarbréfið.

  1. SKILGREININGAR OG TÚLKUN

1.1 Í tryggingarbréfinu hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er gefin hér á eftir:

„Langtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [+]² 2021, að höfuðstólsfjárhæð 6.202.821.600 krónur, sem sjöðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071248, sem er með lokagjaldaga þann 7. desember 2048.

„Skammtíma seljandalánið“ merkir samning um seljandalán, dags. [+]³ 2021, að höfuðstólsfjárhæð 4.798.962.365 krónur, sem sjöðurinn veitir útgefanda í tengslum við kaup útgefanda á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum HEIMA071225, sem er með lokagjaldaga þann 7.6.2026.

„Seljandalánin“ merkir langtíma seljandalánið og skammtíma seljandalánið.

„Veðhafar“ merkir sjöðinn, sem eiganda seljandalánanna eða síðari framsalshafa þeirra.

„Veðtryggðar kröfur“ merkir allar skuldir og fjárskuldbindingar (í hvaða gjaldmiðli sem er), nú eða síðar, samkvæmt seljandalánunum, hvað nafni sem nefnast, og hvort sem um er að ræða höfuðstól, vexti, dráttarvexti, verðbætur, lögbundin vanskilaálög, kostnað við kröfugerð, innheimtu- og málskostnað af fullnustugerðum eða annan tengdan kostnað.

1.2 Skilgreind hugtök í seljandalánunum skulu hafa sömu merkingu í tryggingarbréfinu nema annað sé tekið fram eða bersýnilega ljóst af samhengi.
1.3 Tilvísanir til löggjafar skulu taldar fela í sér tilvísanir til þeirrar löggjafar eins og henni kann að hafa verið breytt og reglna sem kunna að hafa verið settar með stoð í slíkri löggjóf.
1.4 Tilvísanir til sérhvers aðila skulu (þar sem við á) vera álitnar tilvísanir til eða eiga við um þá sem með lögmætum hætti hafa tekið við réttindum og/eða skyldu af þeim.

  1. VEDTRYGGING - FASTEIGNAVED

2.1 Með undirritun sinni á tryggingarbréfið setja veðsalar þær fasteignir, sem tilgreindar eru hér á eftir, að veði til handa veðhöfum með 2. veðrétti og uppfærslurétti, næst á eftir tryggingarbréfi að upphaffegri höfuðstólsfjárhæð kr. 18.500.000.000, dags. 12. desember 2018, til tryggingar

² Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta
³ Samningur verður dags. eigi síðar en 3 dögum fyrir uppgjör viðskipta við fjárfesta


skilvísri og skaðlausri greiðslu hinna veðtryggðu krafna að fjárhæð allt að kr. [•]⁴ (krónur [•]) („fjárhæðin“), auk vaxta, dráttarvaxta og verðbóta.

Veðsettar fasteignir:

Fastanúmer Svæði Sveitarfélag Póstnúmer Heimilisfang
2364963 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur 203 Boðaþing 20
2364978 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur 203 Boðaþing 20
2364986 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur 203 Boðaþing 20
2364992 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur 203 Boðaþing 20
2365022 Höfuðborgarsvæðið Kópavogur 203 Boðaþing 20
2308095 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308096 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308097 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2354598 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2354599 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2354600 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308098 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308099 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308100 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308101 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308102 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308103 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308105 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308106 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308107 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308108 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308109 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308110 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308112 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308113 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308114 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308115 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308116 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308117 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308119 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308120 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308121 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308122 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308123 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2308124 Höfuðborgarsvæðið Hafnarfjörður 221 Eskivellir 13
2505670 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Fálkahlíð 6
2505674 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Fálkahlíð 6
2505675 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Fálkahlíð 6
2505676 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Fálkahlíð 6
2331049 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361019 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361020 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361021 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5

⁴ Fjárhæð verður sú sama og á fyrra bréfi nema uppreiknuð miðað við breytingar á vísitölu frá útgáfu fyrra tryggingarbréfs.


2361022 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361023 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361024 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361025 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361026 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361027 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361028 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361029 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361030 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361031 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361032 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361033 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361034 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361035 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361036 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361037 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361038 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361039 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361040 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361041 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361042 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361043 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361044 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361015 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361016 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361017 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2361018 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Gerplustræti 1-5
2264682 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264683 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264684 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264685 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264686 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264687 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264688 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2264689 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 23
2265285 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265286 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265287 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265288 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265289 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265290 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265291 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265292 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 25
2265298 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265299 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265300 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265301 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265302 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265303 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27

2265304 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2265305 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 116 Jörfagrund 27
2352869 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352870 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352872 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352873 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352876 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352877 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352878 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352879 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352882 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352885 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352887 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352886 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2352884 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 101 Lindargata 28
2505544 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 4
2505537 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505539 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505554 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505556 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505557 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505558 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505572 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505574 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2505576 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 102 Smyrilshlið 10
2354891 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354892 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354893 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354894 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354895 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354896 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354897 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354898 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354899 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354900 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354901 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354902 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354903 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354904 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354905 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354906 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354907 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354908 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354909 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354910 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354911 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354912 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354913 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10
2354914 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 10

2328358 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356838 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356839 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356840 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356848 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356849 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356850 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356851 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356860 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356861 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356862 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356863 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356872 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356873 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356874 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 2
2356844 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356845 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356846 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356847 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356856 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356857 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356858 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356859 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356868 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356869 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356870 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356871 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356877 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356878 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4A
2356841 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356842 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356843 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356852 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356853 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356854 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356855 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356864 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356865 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356866 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356867 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356875 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2356876 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 4B
2355025 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355026 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355027 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355028 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355029 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355030 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355031 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6

2355035 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355036 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355037 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355038 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355039 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355040 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355041 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355046 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355047 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355048 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355049 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355050 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355051 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355052 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355057 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355058 Höfuðborgarsvæðið Reykjavík 110 Tangabryggja 6
2355385 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358151 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358152 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358153 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358154 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358155 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358156 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358157 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358158 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358159 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358160 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358161 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358162 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358163 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358164 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358165 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358166 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358167 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358168 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358169 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358170 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358171 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358172 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358173 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358174 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358175 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358176 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358177 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358178 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358179 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358180 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358181 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 24-26
2358209 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30

2358210 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358211 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358212 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358213 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358214 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358215 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358216 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358217 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358218 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358219 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358220 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358221 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358222 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358223 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358224 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358225 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358226 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358227 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358228 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358229 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358230 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30
2358231 Höfuðborgarsvæðið Mosfellsbær 270 Vefarastræti 28-30

2.2 Veðgæsluaðili, eða sá sem tekur við réttindum og skyldum hans með lögmætum hætti, fer með öll réttindi veðhafa samkvæmt tryggingarbréfinu og kemur fram fyrir hönd veðhafa í tengslum við réttindi og skyldur samkvæmt tryggingarbréfinu en veðhöfum er óheimilt að leita fullnustu krafna sinna á grundvelli tryggingarbréfsins án aðkomu veðgæsluaðila.

2.3 Hver aðili að tryggingarbréfinu samþykkir að hver og einn veðhafanna, eins og þeir eru á hverjum tíma, skuli njóta jafnra réttinda samkvæmt tryggingarbréfinu.

2.4 Fjárhæðin er bundin vísitölu neysluverðs til verðtryggingar miðað við grunnvísitölu fyrir maí 2021, eða 498,01667 stig, og tekur breytingum í samræmi við breytingar á vísitölunni miðað við grunnvísitölu. Aldrei skal þó miða við lægri vísitölu en grunnvísitölu tryggingarbréfsins.

2.5 Sérhver fasteign er veðsett ásamt ölu því sem henni fylgir og fylgja ber, allt eins og viðkomandi fasteign verður frekast veðsett samkvæmt 15. – 20. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð og í því ástandi sem hún er í nú eða kann síðar að verða, með hverskyns endurbótum og viðbótum, hverju nafni sem nefnast.

2.6 Veðréttur í eignarhluta í fjölbýlishúsi nær til þeirrar einingar sem veðsali á eignarrétt að, þ.e. séreignar hans og tilheyrandi hlutdeildar í sameign, þ.m.t. lóðarréttindi, sbr. 18. gr. laga nr. 75/1997 og 11. gr. laga um fjöleignarhús nr. 26/1994.

2.7 Veðsölum er heimilt að hagnýta sjálfsvörsluveð með venjubundnum hætti, nema um annað hafi verið samið, sbr. 7. gr. laga nr. 75/1997.

2.8 Veðsölum er óheimilt að veðsetja réttindi sín skv. leigusamningum um veðsettar fasteignir.

2.9 Veðsölum er skylt að vátryggja veðsettar fasteignir gegin tjóni af völdum eldsvoða, auk hverskyns öðrum hættum sem er vátryggt fyrir í starfsemi svipaðri þeirri sem veðsalar hafa með höndum. Falla allar vátryggingarbætur undir veðsetninguna. Vátryggingar skulu keyptar hjá viðurkenndum tryggingarfélögum og skulu veðsalar greiða öll iðgjöld á gjalddaga og gera hverjar þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að þær vátryggingar sem teknar hafa verið haldist í fullu gildi. Veðsalar skuldbinda sig til að láta veðgæsluaðila í té, hvenær sem hann krefst, skilríki fyrir því að hinar veðsettu fasteignir séu vátryggðar, ella er veðgæsluaðila heimilt en þó ekki skylt að vátryggja viðkomandi fasteignir á kostnað veðsala.


2.10 Veðsölum er enn fremur skylt á hverjum tíma að fullnægja öllum lögbundnum kröfum, þ.m.t. öryggis- og eftirlitskröfum, varðandi hinar veðsettu fasteignir.

3. UMBOD TIL VEDGÆSLUADILA

3.1 Sérhver veðsali og veðhafi veitir veðgæsluaðila fullt og ótakmarkað umboð til að:

(a) Framkvæma hverja þá skyldu sem veðsali hefur undirgengist skv. tryggingarbréfinu en hefur ekki framkvæmt, þrátt fyrir áskorun veðgæsluaðila.

(b) Framkvæma allt það sem nauðsynlegt er í tengslum við fullnustu veðsins skv. gr. 7 og veðsali sinnir ekki, þrátt fyrir áskorun veðgæsluaðila, þ.m.t. að undirrita öll skjöl f.h. veðsala í tengslum við framsal á hinu veðsetta.

3.2 Umboð það sem veðgæsluaðila er veitt skv. tryggingarbréfinu og þau réttindi sem honum eru fengin eru eingöngu til að vernda hagsmuni veðhafa og veðgæsluaðili er aldrei skuldbundinn gagnvart útgefanda eða veðsala til að nýta umboðið eða réttindin.

3.3 Þótt að veðgæsluaðili nýti umboðið eða réttindi skv. tryggingarbréfinu þá leysir það ekki veðsala eða útgefanda undan skyldum sínum eða skuldbindingum skv. tryggingarbréfinu eða seljandalánunum.

3.4 Veðgæsluaðili er þó ávallt ábyrgur fyrir þeim fjármunum sem hann raunverulega móttekur sem veðgæsluaðili.

4. FRAMSAL Á RÉTTINDUM VEDGÆSLUADILA

4.1 Veðgæsluaðila skal heimilt að framselja öll réttindi sín og skyldur skv. tryggingarbréfinu til nýs veðgæsluaðila sem tekur við réttindum og skyldum veðgæsluaðila samkvæmt tryggingarbréfinu.

4.2 Ef skipt er um veðgæsluaðila í samræmi við framangreint þá skulu útgefandi og sérhver veðsali, skv. beiðni veðgæsluaðila, undirrita öll nauðsynleg skjöl og framkvæma allt það sem nauðsynlegt er eða eðlilegt í tengslum við aðilaskiptin.

4.3 Þá skal veðgæsluaðila jafnframt heimilt að fela öðrum aðila, með skriflegu umboði, að fara með í heild eða hluta, þær heimildir og réttindi sem veðgæsluaðila eru fengin með tryggingarbréfinu.

5. SÉRSTAKAR SKYLDUR VEDSALA

5.1 Sérhver veðsali og veðhafi skal skv. beiðni veðgæsluaðila undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem með sanngirni má ætlast til að:

(a) Tryggingarbréf þetta veiti veðgæsluaðila, f.h. veðhafa, þau réttindi sem kveðið er á um í tryggingarbréfinu.

(b) Veðgæsluaðili geti, f.h. veðhafa, nýtt réttindi skv. tryggingarbréfinu, þar með talið í tengslum við fullnustu veðsins.

5.2 Komi til fullnustu veðsins þá skuldbindur sérhver veðsali og veðhafi sig til að undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem veðgæsluaðili með sanngirni óskar eftir í tengslum við fullnustuna, s.s. vegna afsals eða framsals.

5.3 Samþykki veðgæsluaðili, f.h. veðhafa, að gerðar séu breytingar á hinu veðsettu eignum, skuldbindur sérhver veðsali sig til að undirrita öll þau skjöl og gera allar þær ráðstafanir sem veðgæsluaðili óskar eftir í tengslum við breytingarnar.

5.4 Veðsali skal greiða öll opinber gjöld, þ.m.t. stimpil- og þinglýsingagjöld og allan kostnað sem kann að falla til vegna tryggingarbréfsins, breytingu á því eða fullnustu á grundvelli þess.


  1. BREYTINGAR Á HINU VEDSETTA

6.1 Útgefandi hefur heimild til að óska eftir því við veðgæsluaðila að breytingar séu gerðar á hinum veðsettu eignum, með því að tilteknar eignir séu leystar úr veðböndum og/eða viðbótareignir veðsettar. Veðgæsluaðili skal f.h. veðhafa verða við slíkri ósk, enda séu slíkar breytingar í samræmi við ákvæði seljandalánanna.

6.2 Samþykki veðgæsluaðili beiðni veðsala um breytingar skv. þessari grein í samræmi við seljandalánin, þá skulu veðsalar undirrita öll skjöl sem veðgæsluaðili óskar eftir í tengslum við breytingarnar.

6.3 Þeir aðilar sem undirrita skjöl, f.h. veðsala, samkvæmt framangreindu skulu afhenda veðgæsluaðila sönnun fyrir umboði sínu á formi og að efni sem veðgæsluaðili samþykkir.

  1. FULLNUSTA VEDSINS

7.1 Hafí veðtryggð krafa verið gjaldfelld og ákvörðun tekin um að ganga að veðinu, skal veðgæsluaðila, f.h. veðhafa, vera heimilt að:

(a) Látá selja hið veðsetta nauðungarsölu fyrir útistandandi veðtryggðum kröfum, án undangengins dóms, sáttar eða fjárnáms, sbr. 2. töl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu.

(b) Selja hið veðsetta í almennri sölu fyrir útistandandi veðtryggðum kröfum. Skal hann þó ávallt leitast við að fá sem hæst verð fyrir hið veðsetta á þeim tíma sem það er selt.

(c) Leysa til sín hið veðsetta á eðlilegu og sanngjörnu markaðsvirði.

7.2 Veðgæsluaðila skal ávallt haga fullnustuaðgerðum með hagsmuni veðhafa að leiðarljósi. Þá skal veðgæsluaðili sinna fullnustuaðgerðum innan eðlilegra tímamarka.

  1. RÁDSTÕFUN ANDVIRDIS

8.1 Komi til fullnustu veðsins skal veðgæsluaðili ráðstafa öllum fjármunum sem hann móttekur til greiðslu á hinum veðtryggðu kröfum.

  1. TAKMARKANIR Á HEIMILDUM VEÐSALA

9.1 Veðsölum skal vera óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt tryggingarbréfinu nema fyrir liggi skriflegt samþykki veðgæsluaðila.

9.2 Veðsölum skal óheimilt að selja, veðsetja eða leggja hvers kyns kvaðir á hinar veðsettu eignir nema með samþykki veðgæsluaðila.

9.3 Þrátt fyrir framangreint má veðsali vera yfirtekið félag í samruna við útgefanda eða annan veðsala án samþykkis veðgæsluaðila eða frekari aðgerða.

  1. TILKYNNINGAR

10.1 Allar tilkynningar og önnur samskipti sem eru gefin út eða afhent vegna tryggingarbréfsins skulu vera skrifleg (í bréfi eða tölvupósti) og skulu sendast til veðsala, sjóðsins og veðgæsluaðila með sannanlegum hætti á eftirfarandi heimilisföng og/eða tölvupóstföng, til þess að þær geti talist gildar:

(a) Ef til veðsala:

Heimstaden ehf.

Lágmúla 6, 108 Reykjavík

b.t. Erlends Kristjánssonar

[email protected]


(b) Ef til sjóðsins:

A/F HEIM slhf.

Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

b.t. Valdimars Ármann

[email protected]

(c) Ef til veðgæsluaðila:

LEX ehf.

Borgartúni 26, 105 Reykjavík

b.t. Guðmundar Ingva Sigurðssonar

[email protected]

10.2 Tilkynna skal þegar í stað um allar breytingar á heimilis- eða tölvupóstfangi.

11. GILDISTÍMI OG VEÐBANDSLAUSN

11.1 Hið veðsetta skal standa til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu hinna veðtryggðu krafna þar til að þær hafa allar verið greiddar að fullu með óafturkræfum og skilyrðislausum hætti.

11.2 Þegar hinar veðtryggðu kröfur hafa verið greiddar að fullu, skv. framangreindu, eða hafi ekki verið stofnað til veðtryggðra krafna með seljandalánunum fyrir 30. júlí 2021, skal veðgæsluaðili, að beiðni og á kostnað veðsala, gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að fella niður þau veð sem veitt hafa verið á grundvelli tryggingarbréfsins.

12. LÖG OG VARNARÞING

12.1 Um tryggingarbréfið gilda íslensk lög.

12.2 Rísi mál út af tryggingarbréfinu, skulu aðilar leitast við að leysa ágreining með samkomulagi sín á milli, en náist ekki að leysa úr ágreiningi með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

13. ANNAÐ

13.1 Allar breytingar sem gerðar eru á tryggingarbréfinu skulu vera skriflegar og samþykktar af sjóðnum, veðsölum og veðgæsluaðila f.h. veðhafa.

13.2 Tryggingarbréfið er gefið út í 2 samritum til þinglýsingar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

13.3 Öllu framanrituðu til staðfestu undirrita aðilar tryggingarbréfið.

[undirritunarsíða fylgir]


Reykjavik [•] 2021

F.h. Heimstaden ehf.

F.h. LEX ehf., sem veðgæsluaðili

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd útgefanda ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda útgefanda.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðgæsluaðila ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðgæsluaðila.

F.h. Heimstaden III ehf., sem veðsala

F.h A/F HEIM slhf.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðsala ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðsala.

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd sjóðsins ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir sjóðsins til að skuldbinda sjóðinn.

F.h. Heimstaden VI ehf., sem veðsala

Sá sem undirritar tryggingarbréf þetta fyrir hönd veðsala ábyrgist og staðfestir að hann hafi heimild í samræmi við lög og reglur og samþykktir félagsins til að skuldbinda veðsala.

Vottar að réttri dags. og undirritun: