AI assistant
Hampiðjan hf. — M&A Activity 2018
Jun 15, 2018
6172_rns_2018-06-15_d564c33e-2314-4a8b-b399-9f5d36813769.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Disclosure 362722
Hampiðjan hf. - Fyrirtækjafréttir
Hampiðjan kaupir spænskt netaverkstæði
Hampiðjan hefur ritað undir samkomulag um kaup á spænska félaginu Tor-Net LP, SL í Las Palmas á Kanaríeyjum. Kaupin hafa í för með sér töluverða samlegð þar sem Hampiðjan selur nú þegar mikið af vörum til veiðarfæragerðar á Kanaríeyjum. Með eigið netaverkstæði ásamt annarri vörusölu er hægt að veita útgerðarfélögunum á þessu svæði mun betri þjónustu en nú er.
Umfang kaupanna er takmarkað í samanburði við rekstur og efnahag Hampiðjunnar.
Gert er ráð fyrir að rekstur Tor-Net LP, SL komi inn í samstæðuuppgjör Hampiðjunnar frá 1. júlí 2018.
Í samkomulaginu er fyrirvari um frekari áreiðanleikakönnun á næstu vikum en stefnt er að uppgjöri þann 28. júní 2018. Verða þá birtar frekari upplýsingar um fjárhag félagsins, kaupverð og áhrif á afkomu samstæðunnar.
Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar, sími 664-3361.