Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hampiðjan hf. M&A Activity 2016

Jun 13, 2016

6172_rns_2016-06-13_9369c03c-6876-44ed-8bd9-6bd1a8a23b1a.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hampiðjan hf. – Upplýsingar um framgang kaupanna á P/f Von

Hampiðjan hf. – Upplýsingar um framgang kaupanna á P/f Von

Vísað er í tilkynningar frá 15. mars og 21. apríl síðastliðnum um að Hampiðjan
hafi gengið frá kaupum á 95,703% eignarhlut í færeyska fyrirtækinu P/f Von.
Beðið var samþykkis samkeppnisyfirvalda á Íslandi og í Litháen.
Samkeppniseftirlitið á Íslandi hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni
telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til að aðhafast frekar vegna
samruna Hampiðjunnar og P/f Von á grundvelli 17. gr. Samkeppnislaga nr.
44/2005. Um kaupin gildir enn fyrirvari um samþykki samkeppnisyfirvalda í
Litháen.

Nánari upplýsingar veitir:

Hjörtur Erlendsson,
forstjóri Hampiðjunnar,
sími 664 3361