Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hampiðjan hf. M&A Activity 2016

Jun 20, 2016

6172_rns_2016-06-20_dbc8d4ff-c510-4599-be3a-59fbd9ba033c.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hampiðjan hf. lýkur við kaup á P/f Von

Hampiðjan hf. lýkur við kaup á P/f Von

Í tilkynningum þann 15. mars og 21. apríl síðastliðinn tilkynnti Hampiðjan að
félagið hafi gengið frá kaupum á 95,7% eignarhlut í færeyska fyrirtækinu P/f
Von. Að teknu tilliti til þeirra hluta sem Hampiðjan átti fyrir í félaginu og
eigin hlutabréfum P/f Von mun Hampiðjan fara með um 98,2% af hlutafé félagsins.
Kaupverðið nemur 333 milljónum danskra króna eða um 44,8 milljónum evra.

Öll skilyrði kaupsamnings vegna hlutanna hafa nú verið uppfyllt og mun
Hampiðjan taka yfir rekstur félagsins á næstu dögum.

Kaupin eru fjármögnuð með láni frá Arion banka hf. að fjárhæð 36 milljónum evra
og handbæru fé Hampiðjunnar.

Líkt og áður hefur komið fram er Von móðurfélag þriggja meginfélaga; P/f Vónin
í Færeyjum, Vonin Refa A/S í Noregi og UAB Vonin Lithuania. Velta Von
samstæðunnar á síðasta ári var 59,3 milljónir evra, EBITDA var 6,9 milljónir
evra og heildareignir samstæðunnar voru 55,7 milljónir evra.

Eftir kaupin mun Hampiðjan vera með starfsemi í 12 löndum og starfsstöðvarnar
verða alls 35 talsins. Fyrir utan að styrkja þjónustunet Hampiðjunnar
umtalsvert þá bætist við úrval af veiðarfærum og ekki síst mikil þekking og
reynsla í gerð fiskeldiskvía sem henta erfiðum aðstæðum á norðurslóðum.

Fyrirsjáanleg samlegðaráhrif eru mikil og töluverðir hagræðingarmöguleikar eru
til staðar ásamt stuðningi samstæðufélaganna við starfsemi hvers annars.

Nánari upplýsingar veitir:

Hjörtur Erlendsson
forstjóri Hampiðjunnar

Sími 664 3361