AI assistant
Hampiðjan hf. — M&A Activity 2014
Oct 29, 2014
6172_rns_2014-10-29_049880df-811e-412e-9e9d-21885bca57d6.html
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Hampiðjan – Samruni fjárhagslega tengdra aðila
Hampiðjan – Samruni fjárhagslega tengdra aðila
Hluthafar Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf. staðfestu á
hluthafafundi sem haldinn var í gærkvöldi samruna félaganna tveggja í samræmi
við samrunaáætlun dags. 15. ágúst 2014. Með samrunanum yfirtekur
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. (yfirtökufélag) einkahlutafélagið Svöluhraun
(yfirtekið félag) og hið sameinaða félag mun starfa framvegis undir nafni og
kennitölu yfirtökufélagsins.
Kristján Loftsson, stjórnarmaður í Hampiðjunni hf., er stjórnarformaður
Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf. og Vilhjálmur
Vilhjálmsson, stjórnarformaður Hampiðjunnar hf., er jafnframt stjórnarmaður í
báðum félögum. Svöluhraun ehf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. teljast því
til fjárhagslega tengdra aðila fruminnherja félagsins.
Fiskveiðahlutafélagð Venus hf. á hlutafé að nafnverði kr. 65.428.818 í
Hampiðjunni, eða 13,09% af heildarhlutafé félagsins. Fiskveiðahlutafélagið
Venus hf. á 39,50% eignarhlut í Hval hf. en dótturfélag þess Vogun hf. á 37,6%
hlut í Hampiðjunni. Svöluhraun ehf. á hlutafé að nafnverði kr. 7.500.000 í
Hampiðjunni, eða 1,5% af heildarhlutafé félagsins. Eftir samrunann verður
eignarhlutur Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf. í Hampiðjunni að nafnverði
kr. 72.928.818, eða 14,59% af heildarhlutafé félagsins.