AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Hampiðjan hf.

Interim / Quarterly Report Aug 25, 2022

6172_10-k_2022-08-25_e1459156-ea06-425a-a597-27557a2e7a4f.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Hampiðjan hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2022

Efnisyfirlit: Bls.

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra............................................................................ 2 Könnunaráritun óháðs endurskoðanda.......................................................................... 3 Samandreginn rekstrarreikningur.................................................................................. 4 Yfirlit um heildarafkomu................................................................................................. 4 Samandreginn efnahagsreikningur................................................................................ 5 Yfirlit um breytingar á eigin fé........................................................................................ 6

Samandregið sjóðstreymi.............................................................................................. 7 Skýringar....................................................................................................................... 8 - 10

Hampiðjan hf. kt. 590169-3079 Skarfagörðum 4 Reykjavík

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra

Samandreginn árshlutareikningur Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2022 er samstæðureikningur Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga.

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður samstæðunnar á tímabilinu 8.292 þúsund evrur og eigið fé í lok þess 146.129 þúsund evrur en af þeirri upphæð eru 14.478 þúsund evrur hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Að öðru leyti vísast til samandregna árshlutareikningsins um rekstur samstæðunnar á tímabilinu og fjárhagsstöðu í lok þess.

Tekjur samstæðu Hampiðjunnar á tímabilinu jukust um 8,3% á milli ára og nema 94,8 m. evra samanborið við 87,6 m. evra á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) félagsins lækkaði á milli tímabila um 7,5% og nemur 14,6 m. evra samanborið við 15,7 m. evra árið áður. Hagnaður félagsins lækkaði einnig á milli tímabila og nam 8,3 m. evra samanborið við 9,0 m. evra á sama tímabili árið 2021.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samandreginn árshlutareikningur Hampiðjunnar hf. gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2022, rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022.

Það er jafnframt álit okkar að samandregni árshlutareikningurinn geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar í lok tímabilsins og lýsi helstu áhættuþáttum sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri hafa í dag farið yfir samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík 25. ágúst 2022

Stjórn:

Vilhjálmur Vilhjálmsson

Kristján Loftsson Auður Kristín Árnadóttir

Guðmundur Ásgeirsson Sigrún Þorleifsdóttir

Forstjóri:

Hjörtur Erlendsson

Könnunaráritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar Hampiðjunnar hf.

Inngangur

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2022. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samandregni árshlutareikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.

Reykjavík 25. ágúst 2022

PricewaterhouseCoopers ehf

Kristinn F. Kristinsson

Rekstrarreikningur samstæðu

1.1. - 30.6
2022
1.1. - 30.6
2021
Sala
Beinn framleiðslukostnaður
94.801
(67.239)
87.567
(61.196)
Framlegð 27.562 26.371
Rekstrarkostnaður (16.739) (14.091)
Rekstrarhagnaður 10.823 12.280
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga
(756)
75
(681)
(1.120)
45
(1.075)
Hagnaður fyrir skatta 10.142 11.205
Tekjuskattur (1.850) (2.230)
Hagnaður tímabilsins 8.292 8.975
Skipting hagnaðar
Hluti hluthafa móðurfélagsins
Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga
7.372
920
8.292
8.013
962
8.975
EBITDA 14.556 15.740
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) 1,69 1,83
Yfirlit um heildarafkomu samstæðu
1.1. - 30.6
2022
1.1. - 30.6
2021
Hagnaður tímabilsins 8.292 8.975
Rekstrarliðir færðir á eigið fé
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga 434 1.029
Matsbreyting fjárfestingareigna (2) 1.101
Heildarafkoma tímabilsins 8.724 11.105
Skipting heildarafkomu
Hluti hluthafa móðurfélagsins 7.584 9.934
Hluti minnihluta 1.140 1.171
Heildarafkoma tímabilsins 8.724 11.105

Skýringar á bls. 8 - 10 eru óaðskiljanlegur hluti þessara samstæðureikningsskila

Efnahagsreikningur samstæðu

Eignir 30/06 2022 31/12 2021
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir 106.886 100.270
Óefnislegar eignir 47.625 47.438
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 1.178 1.163
Fjárfestingareignir 2.275 2.278
Skuldabréf og langtímakröfur 93 96
158.057 151.245
Veltufjármunir
Birgðir 84.430 72.888
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 36.529 34.104
Handbært fé 14.269 14.805
135.228 121.797
Eignir samtals 293.285 273.042
Eigið fé og skuldir 2022 2021
Eigið fé
Hlutafé og yfirverðsreikningur 6.455 6.455
Aðrir varasjóðir 614 400
Matsbreyting fjárfestingareigna 1.886 1.888
Annað bundið eigið fé 47.337 45.626
Óráðstafað eigið fé 75.359 76.052
131.651 130.421
Hlutdeild minnihluta 14.478 13.870
Eigið fé samtals 146.129 144.291
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir 80.237 78.977
Tekjuskattsskuldbinding 5.496 5.673
85.733 84.650
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 27.106 24.668
Ógreiddir skattar 3.049 2.517
Skuldir við lánastofnanir 31.268 16.916
61.423 44.101
Skuldir samtals 147.156 128.751
Eigið fé og skuldir samtals 293.285 273.042

Yfirlit um breytingar á eigin fé samstæðu

Hlutafé
og yfir-
verðsreikn.
Aðrir
vara-
sjóðir
Matsbr.
fjárf.
eigna
Annað
bundið
eigið fé
Óráðst.
eigið fé
Hlutd.
minnihl.
Samtals
Staða 1. janúar 2021
Heildarafkoma:
6.455 (901) 0 35.988 74.720 12.673 128.935
Heildarafkoma janúar til júní 2021 eftir skatta
Minnihluti, breyting
820 1.101 8.013 1.171
(53)
11.105
(53)
Hl. í afk. dótturfélaga umfram móttekinn arð 0 820 1.101 3.159
3.159
(3.159)
4.854
1.118 0
11.052
Eigendur:
Úthlutaður arður til eigenda
(4.167) (591) (4.758)
0 0 0 0 (4.167) (591) (4.758)
Staða 30. júní 2021 / 1. júlí 2021
Heildarafkoma:
6.455 (81) 1.101 39.147 75.407 13.200 135.229
Heildarafkoma júlí til des. 2021 eftir skatta
Minnihluti, breyting
481 787 0 7.124 917
(27)
9.309
(27)
Hl. í afk. dótturfélaga umfr. móttekinn arð 0 481 787 6.479
6.479
(6.479)
645
890 0
9.282
Eigendur:
Arður til hluthafa
0 (220) (220)
0 0 0 0 0 (220) (220)
Staða 31. desember 2021 / 1. janúar 2022
Heildarafkoma:
Heildarafkoma janúar til júní 2022 eftir skatta
Hl. í afk. dótturfélaga umfram móttekinn arð
Eigendur:
6.455 400 1.888 45.626 76.052 13.870 144.291
214 (2) 0
1.711
7.372
(1.711)
1.140 8.724
0
0 214 (2) 1.711 5.661 1.140 8.724
Úthlutaður arður til eigenda 0 0 0 0 (6.354)
(6.354)
(532)
(532)
(6.886)
(6.886)
Staða 30. júní 2022 6.455 614 1.886 47.337 75.359 14.478 146.129

Innborgað hlutafé er samtals 6.455 þúsund evrur og greinist þannig að innborgað nafnverð er 5.498 þúsund evrur og innborgað yfirverð er 957 þúsund evrur. Fjöldi hluta eru 500 milljónir, hvert að nafnverði 1. kr, óbreytt frá 31/12 2021. Allt hlutafé er greitt. Félagið átti eigin hluti í lok tímabilsins að nafnverði 10,4 millj. kr (31/12 2021: 10,4 millj. kr.).

Matsbreyting fjárfestingareigna

Fjárfestingareignir eru færðar á markaðsvirði m.v. matsdag í efnahagsreikningi, liggi það fyrir. Liggi markaðsvirði ekki fyrir þá er notast við kostnaðarverð að frádreginni niðurfærslu vegna virðisrýrnunar.

Annað bundið eigið fé

Samkvæmt 41. gr. ársreikningalaga ber félögum að færa hlutdeild í rekstri dótturfélaga og hlutdeildarfélaga umfram því sem nemur mótteknum arði eða þeim arði sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn reikning meðal eigin fjár.

Sjóðstreymi samstæðu

1.1. - 30.6
2022
1.1. - 30.6
2021
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
10.823 12.280
Afskriftir 3.733 3.460
EBITDA 14.556 15.740
Sölutap (-hagnaður) varanlegra rekstrarfjármuna (95) (534)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (8.768) (5.041)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 5.693 10.165
Innborgaðir vextir 76 166
Innborgaður arður 43 76
Greiddir vextir (1.281) (1.571)
Greiddir skattar (2.986) (2.182)
Handbært fé frá rekstri 1.545 6.654
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (6.645) (1.620)
Kaup og sala óefnislegra eigna (328) (458)
Fjárfesting í dótturfélögum að frádregnu handbæru fé (96) (698)
Fjárfesting og sala í öðrum félögum 1 (2)
Handbært fé frá fjárfestingum (til fjárfestinga) (7.068) (2.778)
Fjármögnunarhreyfingar
Bankalán, breyting 11.710 (497)
Arður greiddur til hluthafa (6.354) (4.167)
Arður greiddur til minnihluta (532) (591)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) 4.824 (5.255)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé (699) (1.379)
Handbært fé í byrjun árs 14.805 17.531
Gengismunur vegna handbærs fjár 163 185
Handbært fé í lok tímabilsins 14.269 16.337

Skýringar

1. Almennar upplýsingar

Meginstarfsemi samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga er framleiðsla og sala á fullbúnum veiðarfærum og íhlutum þeirra. Félagið er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi. Heimilisfang er skráð að Skarfagörðum 4 í Reykjavík.

Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Kauphallar OMX á Íslandi.

Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 25. ágúst 2022.

2. Reikningsskilaaðferðir

Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.

2.1 Grundvöllur reikningsskila

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2022 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandiu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga. Samandregni árshlutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti því að lesa með hliðsjón af ársreikningi samstæðunnar fyrir árið 2021.

3. Mikilvæg atriði sem varða reikningshaldslegt mat

Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Stöðugt er farið yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er í eðli sínu sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.

4. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Samstæðan skiptist í fimm starfsþætti eftir félögum innan samstæðunnar:

  • Starfsþáttur 1. Starfsemi Hampiðjunnar sem er veiðarfæragerð, endursala og fjárfestingar. Starfsemi Hampidjan Baltic í Litháen, sem er verksmiðjuframleiðsla á netum, köðlum og ofurtógi.
  • Starfsþáttur 2. Starfsemi veiðarfærafélagana í Swan Net Gundry á Írlandi og tengdra félaga ásamt Jackson Trawls og Jackson Offshore Supply í Skotlandi.
  • Starfsþáttur 3. Starfsemi veiðarfærafélagsins Cosmos Trawl og dótturfélaganna Nordsötrawl og Strandby Net.
  • Starfsþáttur 4. Starfsemi veiðarfærafélaganna Hampidjan New Zealand, Hampidjan Canada, Hampidjan USA og dótturfélagsins Swan net USA, Hampidjan Australia, Hampiðjan Ísland, Voot, Fasteignafélagsins Miðhúsa, Hampiðjan TorNet og Hampiðjan Offshore.
  • Starfsþáttur 5. Starfsemi veiðarfærafélagsins P/F Von og dótturfélaganna P/F Vónin, Vónin Refa, Qalut Vónin, Vónin Lithuania, Vónin Canada, Vónin Ísland og Volu Ventis.
Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Milli
Janúar til júní 2022 (1) (2) (3) (4) (5) viðskipti Samtals
Rekstrartekjur 26.182 12.813 9.446 36.458 39.929 (30.027) 94.801
Beinn framl.kostn (23.150) (9.405) (6.826) (28.417) (28.627) 29.186 (67.239)
3.032 3.408 2.620 8.041 11.302 27.562
Rekstrarkostnaður (2.883) (1.813) (1.285) (5.519) (6.082) 843 (16.739)
Rekstrarhagnaður 149 1.595 1.335 2.522 5.220 10.823
Sem hlutfall af rekstrartekjum 1% 12% 14% 7% 13% 11%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (255) (40) (12) (289) (160) (756)
Hlutdeildarafkoma 75 0 0 0 0 75
Tekjuskattur 138 (265) (272) (440) (1.011) (1.850)
Hagnaður tímabilsins 107 1.290 1.051 1.793 4.049 8.292
Afskriftir fastafjármuna 940 248 328 768 1.449 3.733
Kaup/sala fastafjármuna (2.977) (174) (79) (922) (2.821) (6.973)
EBITDA 1.092 1.843 1.663 3.289 6.669 14.556

Skýringar

Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Milli
Janúar til júní 2021 (1) (2) (3) (4) (5) viðskipti Samtals
Rekstrartekjur 22.654 11.596 8.910 32.176 36.162 (23.931) 87.567
Beinn framl.kostn (19.069) (8.252) (6.723) (24.519) (25.821) 23.188 (61.196)
3.585 3.344 2.187 7.657 10.341 26.371
Rekstrarkostnaður (2.654) (1.545) (1.198) (4.382) (5.056) 744 (14.091)
Rekstrarhagnaður 931 1.799 989 3.275 5.285 12.280
Sem hlutfall af rekstrartekjum 4% 16% 11% 10% 15% 14%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (556) 29 (33) (248) (312) (1.120)
Hlutdeildarafkoma 45 0 0 0 0 45
Tekjuskattur 21 (391) (193) (690) (977) (2.230)
Hagnaður tímabilsins 441 1.437 763 2.337 3.996 8.975
Afskriftir fastafjármuna 858 266 313 758 1.265 3.460
Kaup/s. fastafjármuna (922) 1.672 168 (874) (2.122) (2.078)
EBITDA 1.791 2.065 1.302 4.032 6.550 15.740
Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Milli-
(1) (2) (3) (4) (5) viðskipti Samtals
2022
Heildareignir starfsþáttar
30. júní 2022 92.295 32.089 21.822 71.353 115.662 (39.936) 293.285
31. desember 2021 81.356 31.407 18.459 63.176 110.805 (32.161) 273.042
2021
Heildarskuldir starfsþáttar
30. júní 2022 90.850 4.381 10.318 41.892 39.559 (39.844) 147.156
31. desember 2021 78.420 3.980 7.325 35.635 35.274 (31.883) 128.751

5. Árshelmingayfirlit*

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:

jan.-jún.
2022
júlí - des.
2021
jan.-jún.
2021
júlí - des.
2020
jan.-jún.
2020
júlí - des.
2019
Rekstrartekjur 94.801 85.152 87.567 81.184 80.651 76.515
Rekstrargjöld án afskrifta (80.245) (70.909) (71.827) (67.711) (66.629) (64.421)
Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) 14.556 14.243 15.740 13.473 14.022 12.094
Afskriftir (3.733) (3.434) (3.460) (2.892) (3.153) (2.604)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 10.823 10.809 12.280 10.581 10.869 9.490
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (681) (1.198) (1.075) (1.378) (1.128) (1.066)
Hagnaður fyrir skatta 10.142 9.611 11.205 9.203 9.741 8.424
Tekjuskattur (1.850) (1.719) (2.230) (2.027) (1.795) (1.400)
Hagnaður árshelminga 8.292 7.892 8.975 7.176 7.946 7.024

*Fjárhæðir í árshelmingayfirlitum eru óendurskoðaðar

Skýringar

6. Yfirlit yfir félög í samstæðu

Eignarhluti Eignarhluti
í eigu í eigu
Nafn félags Staðsetning Starfsemi samstæðu minnihluta
Hampidjan Baltic UAB Litháen Veiðarfæraefnisfrl. 100%
Hampidjan Australia Ltd Ástralía Veiðarfæragerð 80% 20%
Hampidjan New Zealand Ltd Nýja Sjáland Veiðarfæragerð 100%
Hampidjan Canada Ltd Kanada Veiðarfæragerð 100%
Hampidjan USA Inc Bandaríkin Eignarhaldsfélag 75%
Swan Net USA, dótturfélag Hampidjan USA Inc Bandaríkin Veiðarfæragerð 75% 25%
Cosmos Trawl A/S Danmörk Veiðarfæragerð 100%
Nordsötrawl, dótturfélag Cosmos Trawl A/S Danmörk Veiðarfæragerð 80% 20%
Strandby Net A/S, dótturfélag Cosmos Trawl A/S Danmörk Veiðarfæragerð 80% 20%
Swan Net Gundry Ltd (SNG) Írland Veiðarfæragerð 64% 36%
Costal Cages, dótturf. SNG Írland Veiðarfæragerð 64% 36%
Swan Net East Coast Services, dótturfélag SNG Bandaríkin Veiðarfæragerð 64% 36%
SNG Aqua, dótturfélag SNG Írland Veiðarfæragerð 64% 36%
Hampiðjan Ísland ehf Ísland Veiðarfæragerð 100%
Hampiðjan Russia Ltd Rússland Sölufélag 60% 40%
Voot ehf. Ísland Sölufélag 68% 32%
Fasteignafélagið Miðhús ehf Ísland Fasteignafélag 53% 47%
Hampidjan TorNet SA Spánn Veiðarfæragerð 100%
P/F Von Færeyjar Eignarhaldsfélag 99% 1%
P/F Vónin, dótturfélag P/F Von Færeyjar Veiðarfæragerð 100%
Vonin Canada Ltd, dótturfélag P/F Vónin Kanada Veiðarfæragerð 100%
Qalut Vonin, dótturfélag P/F Vónin Grænland Veiðarfæragerð 75% 25%
Vónin Ísland ehf, dótturfélag P/F Vónin Ísland Veiðarfæragerð 100%
Volu Ventis ApS, dótturfélag P/F Vónin Danmörk Vöruþróun 100%
Vónin Refa AS, dótturfélag P/F Von Noregur Veiðarfæragerð 100%
Heroy Terminal AS, dótturfélag Vónin Refa AS Noregur Fasteignafélag 100%
UAB Vónin Lithuania, dótturfélag P/F Von Litháen Veiðarfæragerð 100%
Jackson Trawls Ltd Skotland Veiðarfæragerð 80% 20%
Jackson Offshore Supply Ltd Skotland Sölufélag 80% 20%
Hampiðjan Offshore ehf. Ísland Sölufélag 100%

Hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga í lok tímabilsins er 14,5 milljónir evra. Af þeirri fjárhæð er hluti minnihluta í Swan Net Gundry ltd. 6,5 milljónir evra. Aðrir hlutar minnihluta eru í Hampidjan USA, Cosmos Trawl A/S, P/F Von, Hampidjan Australia, Voot ehf, Fasteignafélaginu Miðhús ehf., Jackson Trawls Ltd og Jackson Offshore Supply Ltd.

Swan Net Gundry Ltd á Írlandi er eina félagið innan samstæðunnar sem telst vera með minnihluta sem er verulegur fyrir samstæðuna. Upplýsingar um efnahag og rekstur félagsins koma fram í skýringu nr. 4 um starfsþætti, starfsþáttur 2.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.