Interim / Quarterly Report • Aug 31, 2012
Interim / Quarterly Report
Open in ViewerOpens in native device viewer
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2012
| Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra | 2 |
|---|---|
| Könnunaráritun óháðs endurskoðanda | 3 |
| Samandreginn rekstrarreikningur | 4 |
| Yfirlit um heildarafkomu | 4 |
| Samandreginn efnahagsreikningur | 5 |
| Samandregið yfirlit um breytingar á eigin fé | 6 |
| Samandregið sjóðstreymi | 7 |
| Skýringar | 8 - 9 |
Hampiðjan hf. kt. 590169-3079 Skarfagörðum 4 Reykjavík
Samandreginn árshlutareikningur Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2012 er samstæðureikningur Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga.
Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður félagsins á tímabilinu 2.204 þúsund evrur og eigið fé í lok þess 47.370 þúsund evrur en af þeirri upphæð eru 5.575 þúsund evrur hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um rekstur félagsins á tímabilinu og fjárhagsstöðu í lok þess.
Stjórn og forstjóri Hampiðjunnar hf. staðfesta hér með samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið janúar til júní 2012 með undirritun sinni.
Reykjavík 31. ágúst 2012
Stjórn:
Bragi Hannesson
Auður Krístín Árnadóttir Jón Guðmann Pétursson
Árni Vilhjálmsson Kristján Loftsson
Forstjóri:
Jón Guðmann Pétursson
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2012. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samandregni árshlutareikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.
Reykjavík 31. ágúst 2012
Ómar H. Björnsson Kristinn F. Kristinsson
| Skýringar | 1.1. - 30.6 2012 |
1.1. - 30.6 2011 |
|
|---|---|---|---|
| Sala | 23.888 | 19.953 | |
| Beinn framleiðslukostnaður | (16.180) | (13.207) | |
| Framlegð | 7.708 | 6.746 | |
| Rekstrarkostnaður | (4.373) | (4.221) | |
| Rekstrarhagnaður | 3.335 | 2.525 | |
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | (464) | (1.001) | |
| Áhrif af rekstri hlutdeildarfélags | 4 | (158) | 1.431 |
| (622) | 430 | ||
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi fyrir skatta | 2.713 | 2.955 | |
| Tekjuskattur | (509) | (307) | |
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi eftir skatta | 2.204 | 2.648 | |
| Aflögð starfsemi eftir skatta | 0 | (23) | |
| Hagnaður tímabilsins | 2.204 | 2.625 | |
| Skipting hagnaðar | |||
| Hluti hluthafa móðurfélagsins | 2.049 | 2.563 | |
| Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga | 155 | 62 | |
| 2.204 | 2.625 | ||
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) | 0,44 | 0,53 | |
| Yfirlit um heildarafkomu | |||
| 2012 | 2011 | ||
| Hagnaður tímabilsins | 2.204 | 2.625 | |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé | |||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga | 145 | (314) | |
| Þýðingarmunur vegna hlutdeildarfélags | 99 | (91) | |
| Þýðingarmunur vegna skattaáhrifa | 19 | (101) | |
| Heildarafkoma tímabilsins | 2.467 | 2.119 | |
| Skipting heildarafkomu | |||
| Hluti hluthafa móðurfélagsins | 2.311 | 2.083 | |
| Hluti minnihluta | 156 | 36 | |
| Heildarafkoma tímabilsins | 2.467 | 2.119 |
| Eignir | Skýringar | 30/06 2012 | 31/12 2011 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 32.065 | 32.623 | |
| Óefnislegar eignir | 4.200 | 4.269 | |
| Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi | 4 | 15.847 | 16.291 |
| Fjárfestingareignir | 476 | 476 | |
| Tekjuskattsinneign | 120 | 137 | |
| 52.708 | 53.796 | ||
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 14.451 | 13.665 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 9.402 | 8.780 | |
| Handbært fé | 4.267 | 3.305 | |
| 28.120 | 25.750 | ||
| Eignir samtals | 80.828 | 79.546 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 5.474 | 5.536 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár Aðrir varasjóðir |
57 55 |
521 (207) |
|
| Óráðstafað eigið fé | 36.209 | 34.924 | |
| 41.795 | 40.774 | ||
| Hlutdeild minnihluta | 5.575 | 5.419 | |
| Eigið fé samtals | 47.370 | 46.193 | |
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir | |||
| Langtímaskuldir | 17.367 | 18.433 | |
| Tekjuskattsskuldbinding | 2.181 | 2.042 | |
| 19.548 | 20.475 | ||
| Skammtímaskuldir | |||
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 6.775 | 5.635 | |
| Skuldir við lánastofnanir | 7.135 | 7.243 | |
| 13.910 | 12.878 | ||
| Skuldir samtals | 33.458 | 33.353 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 80.828 | 79.546 |
| Hlutafé | Yfir verðs- reikn |
Aðrir vara- sjóðir |
Óráðst. eigið fé |
Hlutd. minnihl. |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Staða 1. janúar 2011 Heildarafkoma janúar til júní 2011 Arður til hluthafa |
5.536 | 521 | (201) (480) |
28.391 2.563 (450) |
5.990 36 |
40.237 2.119 (450) |
| Keypt af minnihluta | (834) | (834) | ||||
| Staða 30. júní 2011 / 1. júlí 2011 | 5.536 | 521 | (681) | 30.504 | 5.192 | 41.072 |
| Heildarafkoma júlí til desember 2011 | 474 | 4.420 | 227 | 5.121 | ||
| Staða 31. desember 2011 / 1. janúar 2012 Heildarafkoma janúar til júní 2012 |
5.536 | 521 | (207) 262 |
34.924 2.049 |
5.419 156 |
46.193 2.467 |
| Arður til hluthafa Keypt eigin hlutabréf |
(62) | (464) | (764) | (764) (526) |
||
| Staða 30. júní 2012 | 5.474 | 57 | 55 | 36.209 | 5.575 | 47.370 |
| Skýringar | 1.1. - 30.6 2012 |
1.1. - 30.6 2011 |
|
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Rekstrarhagnaður | 3.335 | 2.525 | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: Afskriftir |
867 | 859 | |
| Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) | 4.202 | 3.384 | |
| Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna | (7) | (2) | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (317) | (613) | |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 3.878 | 2.769 | |
| Innborgaðir vextir og arður | 463 | 302 | |
| Greiddir vextir | (567) | (727) | |
| Greiddir skattar | (42) | (41) | |
| Handbært fé frá rekstri | 3.732 | 2.303 | |
| Fjárfestingahreyfingar | |||
| Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna | (131) | (230) | |
| Kaup óefnislegra eigna | (88) | (33) | |
| Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum | 0 | (834) | |
| Handbært fé til fjárfestinga | (219) | (1.097) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Bankalán, breyting | (1.261) | (1.784) | |
| Breyting á hlutafé | (526) | 0 | |
| Arður greiddur til hluthafa | (764) | (450) | |
| Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) | (2.551) | (2.234) | |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 962 | (1.028) | |
| Handbært fé í byrjun árs | 3.305 | 6.123 | |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 4.267 | 5.095 |
Meginstarfsemi samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga er framleiðsla og sala á fullbúnum veiðarfærum og íhlutum þeirra. Félagið er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi. Heimilisfang er skráð að Skarfagörðum 4 í Reykjavík.
Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Kauphallar OMX á Íslandi.
Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 31. ágúst 2012.
Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2012 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Samandregni árshlutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í ársreikningi og ætti því að lesa með hliðsjón af ársreikningi félagsins fyrir árið 2011.
Gerð árshlutareikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að notaðar séu tilteknar aðferðir við reikningshaldslegt mat. Stjórnendur félagsins þurfa jafnframt að ákvarða notkun tiltekinna reikningsskilaaðferða. Sérstaklega er greint frá þessum aðferðum í skýringu nr. 3.
Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar sem fæst við að útvega tiltekna vöru eða þjónustu sem er háð ólíkum þáttum varðandi áhættu og afkomu en þá sem tengist öðrum rekstrarstarfsþáttum samstæðunnar. Samstæðan skilgreinir starfsemina sem einn starfsþátt.
Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Stöðugt er farið yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er í eðli sínu sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.
| Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig: | Eignarhluti | Hlutdeild í tapi |
Bókfært verð |
|---|---|---|---|
| HB Grandi hf | 9,43% | (158) | 15.847 |
| Samandregnar fjárhagsupplýsingar um hlutdeildarfélag í þús. evra: | 30/06 2012 | 31/12 2011 | |
| Eignir samtals Skuldir samtals Eigið fé hluthafa móðurfélagsins (Tap) hagnaður hluthafa móðurfélagsins |
296.776 128.783 167.993 (158) |
322.892 150.187 172.705 36.596 |
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:
| jan.-jún. 2012 |
júlí - des. 2011 |
jan.-jún. 2011 |
júlí - des. 2010 |
jan.-jún. 2010 |
|
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 23.888 | 23.899 | 19.953 | 17.874 | 21.127 |
| Rekstrargjöld án afskrifta | (19.686) | (19.001) | (16.569) | (16.032) | (16.928) |
| Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) | 4.202 | 4.898 | 3.384 | 1.842 | 4.199 |
| Afskriftir | (867) | (850) | (859) | (951) | (914) |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 3.335 | 4.048 | 2.525 | 891 | 3.285 |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | (622) | 1.226 | 430 | 308 | (1.345) |
| Hagnaður fyrir skatta | 2.713 | 5.274 | 2.955 | 1.199 | 1.940 |
| Tekjuskattur | (509) | (655) | (307) | (171) | (322) |
| Hagnaður árshelminga | 2.204 | 4.619 | 2.648 | 1.028 | 1.618 |
Tölur í árshelmingayfirliti eru óendurskoðaðar
| Eignarhluti | Staðsetning | |
|---|---|---|
| Hampidjan Baltic UAB | 100% | Litháen |
| Hampidjan New Zealand LTD | 100% | Nýja Sjálandi |
| Hampidjan Canada LTD | 100% | Kanada |
| Hampidjan USA Inc | 100% | Bandaríkjunum |
| OTTER Ultra Low Drag LTD | 100% | Cayman Island |
| Cosmos Trawl A/S | 100% | Danmörku |
| Swan Net Gundry LTD | 55,6% | Írlandi |
| Fjarðanet hf. | 51,0% | Íslandi |
Dótturfélaginu Hampidjan HiTec Ropes AS í Noregi var formlega lokað á árinu.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.