Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hampiðjan hf. Earnings Release 2018

Mar 21, 2019

6172_rns_2019-03-21_1605e084-00f3-41e4-9627-413c78766727.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hampiðjan – Ársreikningur 2018

Hampiðjan – Ársreikningur 2018

Lykilstærðir

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  • Rekstrartekjur voru 152,9 m€ (126,9m€).
  • EBITDA af reglulegri starfsemi var 20,5 m€ (16,5 m€).  
  • Hagnaður tímabilsins nam 11,6 m€ (24,8 m€.)
  • Heildareignir voru 213,4 m€ (186,9 m€ í lok 2017).
  • Vaxtaberandi skuldir voru 73,9 m€ (64 m€ í lok 2017).
  • Eiginfjárhlutfall var 51,5% (54,7% í lok 2017).
  • Meðalfjöldi starfsmanna á árinu var 1.099 en var 967 árið þar á undan.

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 152,9 m€ og jukust um 21% frá fyrra ári.  

Kaup félagsins á dótturfélögunum North Atlantic Marines Supply and Services (NAMSS) og Tor-Net LP juku veltu samstæðunnar um 5,2 m€.

EBITDA félagsins hækkaði um 24,5% á milli ára eða úr 16,5 m€ á árinu 2017 í 20,5 m€ á árinu 2018.

Á árinu 2017 nam innleystur söluhagnaður fjárfestingaeigna og hlutabréfa 16 m€. Var þar um að ræða söluhagnað hlutabréfa í HB Granda að fjárhæð 14,9 m€ og söluhagnaður af hlutabréfum í Thyborøn Skibssmedie A/S að fjárhæð 1,2 m€. Félagið fékk einnig á fyrri hluta ársins 2017 arð af hlutum þess í HB Granda að fjárhæð 0,6 m€. Á árinu 2018 var engin sala á hlutabréfum í eigu félagsins og þar sem hlutabréfaeignin í HB Granda var seld á árinu 2017 var ekki um að ræða neinar arðstekjur frá HB Granda.

Hagnaður ársins var 11,6 m€ en var 24,8 m€ á árinu 2017 og skýrist lækkunin af söluhagnaði fjárfestingaeigna og hlutabréfa að fjárhæð 16,1 m€ og arðgreiðslu að fjárhæð 0,6 m€ frá HB Granda á árinu 2017. Sé leiðrétt fyrir þessum liðum nam hagnaður ársins 2017 um 8,1 m€. Hagnaður af reglulegri starfsemi samstæðunnar er því að aukast um rúm 43% á milli ára.

Efnahagur

Heildareignir voru 213,4 m€  og hafa hækkað úr 186,9 m€ frá árslokum 2017.

Eigið fé nam 110 m€, en af þeirri upphæð eru 11 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. 

Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok tímabilsins 52% af heildareignum samstæðunnar samanborið við 55% í árslok 2017.

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 73,9 m€ samanborið við 64,0 m€ í ársbyrjun. 

Helstu tölur í íslenskum krónum

Miðað við meðalgengi krónunnar gagnvart evru á árinu 2018 þá er velta samstæðunnar um 19,5 milljarðar,  EBITDA 2,6 milljarðar og hagnaður 1,5 milljarðar.  Miðað við gengi krónunnar gagnvart evru í lok árs 2018 þá eru heildareignir 28,4 milljarðar, skuldir 13,8 milljarðar og eigið fé 14,7 milljarðar.

Aðalfundur

Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 5. apríl 2019 í fundarsal félagsins að Skarfagörðum 4 í Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 16:00.

Tillaga stjórnar um arðgreiðslu

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2019 vegna rekstrarársins 2018 verði greidd 1 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 490 milljónir ISK.  Arðurinn verði greiddur í viku 23.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 5. apríl 2019, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 9. apríl.  Arðleysisdagurinn er 8. apríl.

Samþykkt ársreiknings

Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Hampiðjunnar hf. þann 21. mars 2019. Ársreikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards) og hefur verið endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.

Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

“Síðastliðið ár var sérstaklega gott ár fyrir samstæðu Hampiðjunnar og söluaukningin frá árinu á undan, sem einnig var afar gott ár, var 21%.  Aukningin er bæði tilkomin vegna innri og ytri vaxtar og þannig skiluðu kaup á fyrirtækjum um 41% söluaukningarinnar en 59% má rekja til innri vaxtar bæði hér á Íslandi og erlendis. 

Efnahagsreikningurinn stækkaði um 14% milli ára vegna kaupa á fyrirtækjum og fjárfestingum í framleiðslutækjum. Þrátt fyrir kaup á fyrirtækjum þá náðist að auka  veltuhraða birgða milli ára.

Eins og stefnt hefur verið að þá jókst EBITDA milli ára vegna samlegðar í kjölfar kaupa á fyrirtækjum.  Það er enn umtalsverða samlegð að sækja innan samstæðunnar og þeir möguleikar verða markvisst nýttir í ár og á næstu árum.

Starfsmannafjöldi Hampiðjunnar jókst umtalsvert á liðnu ári og meðalfjöldi starfsmanna fór úr 967 í 1.099 starfsmenn.  Þar af eru 82 starfandi á Íslandi.

Á Íslandi var gengið frá kaupum á eign minnhluta í dótturfélaginu Fjarðaneti og á Hampiðjan því félagið nú að fullu. Í byrjun þessa árs var starfsemi veiðarfæradeildar Hampiðjunnar flutt til Fjarðaneta og nafni félagsins samhliða því breytt í Hampiðjan Ísland.  Nýtt netaverkstæði á Neskaupstað hefur verið í byggingu frá síðastliðnu sumri og verður það væntanlega fullbúið nú í sumar.  Mikill vélbúnaður verður á verkstæðinu til að auðvelda meðferð veiðarfæra, létta störfin, hraða vinnunni og auka framleiðni.

Erlendis var gengið frá kaupum á tveim fyrirtækjum í veiðarfæragerð.  Annað þeirra er North Atlantic Marine Supply and Services (NAMSS) á Nýfundnalandi í Kanada. Um áramótin var NAMSS síðan sameinað Hampiðjunni Canada og eru netaverkstæði Hampiðjunnar þar nú orðin 5 talsins.  Hitt fyrirtækið er spænska netaverkstæðið Tor-Net LP  í Las Palmas á Kanaríeyjum en það sinnir bæði heimamarkaðnum og uppsjávarskipum á vesturströnd Afríku.

Fyrir utan þessi kaup hefur verið stofnað fyrirtæki á Hjaltlandseyjum, SNG Aqua, til að sinna þjónustu við fiskeldi sem aðallega felst í þvotti á fiskeldiskvíum og viðhaldi þeirra.  Fiskeldisþjónusta er mikilvægur og vaxandi þáttur í starfsemi samstæðu Hampiðjunnar.   

Í Danmörku var opnað netaverkstæði í Hanstholm undir merkjum Cosmos Trawl sem er dótturfélag Hampiðjunnar og eru netaverkstæðin á Jótlandi því orðin fimm talsins.

Undanfarin tvö ár hefur verið fjárfest myndarlega í auknum vélakosti í Hampidjan Baltic í Litháen en það er stærsta framleiðslueining Hampiðjunnar og þar eru framleidd net og kaðlar fyrir starfsemi samstæðunnar. Á þessu ári lýkur því átaki og verður verksmiðjan afar vel í stakk búin til að sinna þörfum samstæðunnar fyrir efni í veiðarfæri, fiskeldiskvíar, djúpsjávarverkefni og þungalyftur. 

Fyrirtækjakaupin samhliða stofnun nýrra starfsstöðva ásamt markvissum vélafjárfestingum undanfarið hafa enn frekar styrkt stöðu Hampiðjunnar sem leiðandi veiðarfæraframleiðanda á heimsvísu.”

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361.

Viðurkenndur ráðgjafi

Viðurkenndur ráðgjafi Hampiðjunnar á Nasdaq First North er PwC.

Viðhengi: