Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hampiðjan hf. Earnings Release 2016

Aug 25, 2016

6172_rns_2016-08-25_549f0a48-0a31-4fd6-951a-c5f7e2f6c9c4.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sex mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2016

Sex mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2016

Í upphafi ársins gekk Hampiðjan hf. frá kaupum á P/F Von í Færeyjum. Kaupin
hafa mikil áhrif á samstæðuna enda P/F Von stórt og öflugt félag í framleiðslu
og sölu á veiðarfærum og íhlutum þeirra ásamt framleiðslu á fiskeldiskvíum og
annarri þjónustu við fiskeldi. Megin markaðir P/F Von eru Færeyjar, Noregur og
Grænland en félagið starfar einnig í Danmörku, Íslandi, Kanada, Nýja Sjálandi
og Litháen. Kaupin voru fjármögnuð með lántöku og sölu á hluta af eign
Hampiðjunnar í HB Granda hf. Rekstur P/F Von kemur að fullu inn í
samstæðureikning Hampiðjunnar frá áramótum.

Lykiltölur

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

-- Rekstrartekjur jukust um 101% og voru 59,5 m€ (29,6 m€).
-- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 8,5 m€ (4,7 m€).
-- Hagnaður tímabilsins var 11,1 m€ (5,4 m€).
-- Heildareignir voru 192 m€ (102 m€ í lok 2015).
-- Vaxtaberandi skuldir voru 78 m€ (21,7 m€ í lok 2015).
-- Eiginfjárhlutfall var 47% (69% í lok 2015).

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 59,5 m€ og rúmlega tvöfölduðust eða um 101%
frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga
var 11,3% af rekstrartekjum eða 6,7 m€ en var 12,5% fyrir sama tímabil á fyrra
ári eða 3,7 m€.

EBITDA félagsins var 8,5 m€ en var 4,7 m€ fyrir sama tímabil á fyrra ári.

Hagnaður tímabilsins var 11,1 m€ en var 5,4 m€ sama tímabil fyrra árs.

Efnahagur

Heildareignir voru 192,1 m€ í lok tímabilsins. Eigið fé nam 90,2 m€, og er
eiginfjárhlutfall samstæðunnar því 47% í lok júní.

Vaxtaberandi skuldir námu í lok júní 78 m€ en skuldirnar í byrjun árs voru 21,7
m€.

Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

„Reksturinn hefur verið mjög góður og framar vonum á flestum mörkuðum nema í
sölu á ofurtógi á olíuiðnaðarmarkaði sem skýrist einkum af lækkun olíuverðs.
Félagið réðst í mjög metnaðarfullt verkefni með kaupunum á P/F Von í Færeyjum.
Kaupin styrkja félagið og gera því kleift að bjóða meira úrval veiðarfæra á
fleiri mörkuðum og auka þjónustu við útgerðaraðila, sérstaklega við
N-Atlantshaf. Þekking á fiskeldistækni er nú innan samstæðunnar sem nýtist
öllum fyrirtækjum innan hennar. Á næstu árum mun síðan nást fram mikil samlegð
í framleiðslu á veiðarfæraefnum og í innkaupum á vörum til
veiðarfæraframleiðslu og endursölu.“

Reykjavík 25. ágúst 2016

Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf. www.hampidjan.is.

Viðhengi: