AI assistant
Hampiðjan hf. — Capital/Financing Update 2012
Jun 5, 2012
6172_rns_2012-06-05_997d6222-2f57-4577-a73a-198eb5421a73.html
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Disclosure 300361
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)
Landsbankinn selur 2% hlut í Hampiðjunni hf.
Að undangengnu útboði sem lauk í dag, mánudaginn 4. júní 2012, hefur Landsbankinn selt 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni hf. á genginu 8,50 kr. á hlut. Útboðið fór fram dagana 25. maí til 4. júní 2012 og var fjárfestum boðið að gera tilboð í að lágmarki 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni á lágmarksgenginu 8,00 krónur á hlut. Viðskiptadagur er 4. júní 2012 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er fimmtudagurinn 7. júní 2012. Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi þann 24. maí 2012. Í útboðinu var nýtt undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið. 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.