AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Hampiðjan hf.

Annual Report Mar 12, 2015

6172_10-k_2015-03-12_763044df-e362-45f5-af40-c15a9b2ddbb3.pdf

Annual Report

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Hampiðjan hf.

Ársreikningur samstæðu 2014

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra 2 - 3
Áritun óháðs endurskoðanda 4
Rekstrarreikningur 5
Yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Yfirlit yfir breytingar á eigin fé 7
Sjóðstreymi 8
Skýringar 9 - 24

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra

Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga. Dótturfélögin, sem öll eru hlutafélög, eru Hampidjan New Zealand á Nýja Sjálandi, Hampidjan USA í Bandaríkjunum, Swan Net Gundry á Írlandi, Cosmos Trawl í Danmörku, Hampidjan Canada í Kanada, Hampidjan Baltic í Litháen, Otter Ultra Low Drag á Cayman og Fjarðanet á Íslandi.

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Hampiðjunnar hf. (félagið) og dótturfélaga þess (samstæðan). Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að gengisáhætta lánsfjár sé á hverjum tíma innan skynsamlegra marka.

Rekstur og fjárhagsleg staða 2014

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu voru 54 milljónir evra en árið áður voru rekstrartekjur 50,4 milljónir evra. Unnin ársverk hjá samstæðunni voru 522, en voru 509 árið áður. Laun og launatengd gjöld námu 16,2 milljónum evra, þar af voru 2,7 milljónir evrur launatengd gjöld. Hagnaður ársins var 7,7 milljónir evrur en árið áður var hagnaður 7,6 milljónir evrur. Heildareignir samstæðunnar voru 95,1 milljónir evrur í árslok og eigið fé var 62,6 milljónir evrur en af þeirri upphæð eru 7,8 milljónir evrur hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaganna Swan Net Gundry á Írlandi, dótturfélags Cosmos Trawl í Danmörku, dótturfélags Hampidjan USA í Bandaríkjunum og Fjarðaneta á Íslandi. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er talin með eigin fé, var 65,8% í árslok

Vegna rekstrarársins 2014 leggur stjórn félagsins til að á árinu 2015 verði greiddur 0,67 kr. arður af hverjum hlut útistandandi hlutafjár til hluthafa að upphæð kr. 326 milljónir. Að öðru leyti er vísað í ársreikninginn varðandi breytingar á eigin fé félagsins.

Hlutafé og samþykktir

Útgefið hlutafé félagsins er kr. 500 milljónir í lok ársins, en félagið á eigin hluti að upphæð kr. 13,4 milljónir. Hlutaféð er í einum flokki sem er skráð á First North, hliðarmarkað Nasdaq OMX Nordic Exchange. Fjöldi hluthafa í félaginu var 253 í árslok, en var 225 í ársbyrjun. Allir hlutir njóta sömu réttinda. Tíu stærstu hluthafar í árslok voru:

31.12.2014 31.12.2013
Nafnverð Nafnverð
Hluthafi í þús. kr. Hlutd.% í þús. kr. Hlutd.%
Vogun hf 188.031 38,64% 188.031 38,64%
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. 72.929 14,99% 72.929 14,99%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 20.894 4,29% 21.401 4,40%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 17.956 3,69% 0 0,00%
Ingibjörg Björnsdóttir 17.274 3,55% 17.274 3,55%
Hlér ehf 14.850 3,05% 14.850 3,05%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 14.829 3,05% 14.964 3,08%
Sigurgeir B. Guðmannsson 12.750 2,62% 12.750 2,62%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn-Tryggingad 8.450 1,74% 0 0,00%
Súsanna Sigurðardóttir 7.850 1,61% 7.850 1,61%
Langhólmi ehf. 4.333 0,89% 4.918 1,01%
Feier ehf 0 0,00% 68.561 14,09%
380.146 78,12% 423.528 87,04%
Aðrir hluthafar 106.447 21,88% 63.065 12,96%
Útistandandi hlutafé 486.593 100,00% 486.593 100,00%
Eigin hlutir 13.407 13.407
Útgefið hlutafé 500.000 500.000

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 28. mars 2014 var stjórn félagsins heimilað að kaupa eigin hluti í félaginu þó þannig að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Stjórnunarhættir

Stjórn félagsins hefur sett sér starfsreglur í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga, þar sem valdsvið stjórnar er skilgreint og verksvið hennar gagnvart forstjóra. Í starfsreglum þessum er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku í afgreiðslu mála, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira. Hlutfall kynja í stjórn félagsins er þrír karlmenn (60%) og tveir kvenmenn (40%).

Stjórn og forstjóri Hampiðjunnar hf. staðfesta hér með ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2014 með undirritun sinni.

Reykjavík 12. mars 2015

Stjórn:

Vilhjálmur Vilhjálmsson Kristján Loftsson Auður Kristín Árnadóttir Guðmundur Ásgeirsson Sigrún Þorleifsdóttir

Forstjóri:

Hjörtur Erlendsson

Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Hampiðjunnar hf.

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2014. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnenda á ársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Samkvæmt þeim ber okkur að fara eftir settum siðareglum, skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.

Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar á fjárhæðum og öðrum upplýsingum í ársreikningnum. Val endurskoðunaraðgerða byggir á faglegu mati endurskoðandans, þar með talið á þeirri hættu að verulegir annmarkar séu á ársreikningnum, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka. Við áhættumatið er tekið tillit til þess innra eftirlits félagsins sem varðar gerð og glögga framsetningu ársreikningsins, til þess að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að gefa álit á virkni innra eftirlits fyrirtækisins. Endurskoðun felur einnig í sér mat á því hvort reikningsskilaaðferðir og matsaðferðir sem stjórnendur nota við gerð ársreikningsins séu viðeigandi sem og mat á framsetningu hans í heild og að ganga úr skugga um að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Álit

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðu Hampiðjunnar hf. á árinu 2014, efnahag 31. desember 2014 og breytingu á handbæru fé á árinu 2014, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Reykjavík 12. mars 2015

PricewaterhouseCoopers ehf

Kristinn Freyr Kristinsson

Rekstrarreikningur samstæðu

Skýringar 2014 2013
Sala
Beinn framleiðslukostnaður
54.042
(36.615)
50.441
(34.212)
Framlegð 17.427 16.229
Rekstrarkostnaður 7 (10.217) (10.327)
Rekstrarhagnaður fyrir aðrar tekjur (-gjöld) 7.210 5.902
Aðrar tekjur (-gjöld) 8 (1.562) 0
Rekstrarhagnaður 5.648 5.902
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélags
9
14
(258)
3.151
(1.021)
3.252
2.893 2.231
Hagnaður fyrir skatta 8.541 8.133
Tekjuskattur 10 (864) (493)
Hagnaður ársins 7.677 7.640
Skipting hagnaðar
Hluti hluthafa móðurfélagsins 6.998 7.291
Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga 679 349
7.677 7.640
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) 11 1,58 1,57
Yfirlit um heildarafkomu
2014 2013
Hagnaður ársins 7.677 7.640
Rekstrarliðir færðir á eigið fé
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga
Þýðingarmunur vegna hlutdeildarfélags
458
7
(168)
(182)
Heildarafkoma ársins 8.142 7.290
Skipting heildarafkomu
Hluti hluthafa móðurfélagsins 7.348 6.926
Hluti minnihluta 794 364
Heildarafkoma ársins 8.142 7.290

Skýringar á bls. 9 - 24 eru óaðskiljanlegur hluti þessara samstæðureikningsskila

Efnahagsreikningur samstæðu

Eignir Skýringar 2014 2013
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir 12 32.911 32.778
Óefnislegar eignir 13 5.164 5.048
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 14 19.314 17.700
Fjárfestingareignir 15 1.106 481
Tekjuskattsinneign 20 74 101
58.569 56.108
Veltufjármunir
Birgðir 16 19.002 16.573
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 17 11.418 10.469
Handbært fé 18 6.155 5.575
36.575 32.617
Eignir samtals 95.144 88.725
Eigið fé
Hlutafé 5.474 5.474
Yfirverðsreikningur hlutafjár 57 57
Aðrir varasjóðir 25 155 (196)
Óráðstafað eigið fé 49.112 43.805
54.798 49.140
Hlutdeild minnihluta 7.808 6.374
Eigið fé samtals 62.606 55.514
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir 19 14.505 15.365
Tekjuskattsskuldbinding 20 2.856 2.652
17.361 18.017
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 21 6.863 6.403
Skuldir við lánastofnanir 19 8.314 8.791
15.177 15.194
Skuldir samtals 32.538 33.211
Eigið fé og skuldir samtals 95.144 88.725

Yfirlit um breytingar á eigin fé samstæðu

Hlutafé Yfir
verðs-
reikn
Aðrir
vara-
sjóðir
Óráðst.
eigið fé
Hlutd.
minnihl.
Samtals
Staða 1. janúar 2013
Heildarafkoma:
5.474 57 169 37.416 5.555 48.671
Heildarafkoma ársins 2013 eftir skatta
Minnihluti, breyting
(365) 7.291 364
455
7.290
455
Eigendur: 0 0 (365) 7.291 819 7.745
Úthlutaður arður til hluthafa 0 0 0 (902)
(902)
0 (902)
(902)
Staða 31. desember 2013 / 1. janúar 2014
Heildarafkoma:
5.474 57 (196) 43.805 6.374 55.514
Heildarafkoma ársins 2014 eftir skatta
Minnihluti, breyting
351 6.998 793
641
8.142
641
Eigendur: 0 0 351 6.998 1.434 8.783
Greiddur arður til hluthafa 0 0 0 (1.691)
(1.691)
0 (1.691)
(1.691)
Staða 31. desember 2014 5.474 57 155 49.112 7.808 62.606

Sjóðstreymi samstæðu

Skýringar 2014 2013
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður 5.648 5.902
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.983 1.931
Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) 7.631 7.833
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (67) (43)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 1.029 (1.542)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 8.593 6.248
Innborgaðir vextir og arður 1.057 1.283
Greiddir vextir (1.013) (1.133)
Greiddir skattar (595) (703)
Handbært fé frá rekstri 8.042 5.695
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (1.313) (1.469)
Kaup óefnislegra eigna (160) (133)
Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum (2.497) (1.830)
Handbært fé til fjárfestinga (3.970) (3.432)
Fjármögnunarhreyfingar
Skammtímalán, breyting (184) 1.257
Tekin ný langtímalán 0 809
Afborganir langtímalána (1.694) (2.587)
Arður greiddur til hluthafa (1.692) (902)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) (3.570) (1.423)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 502 840
Handbært fé í byrjun árs 18 5.575 4.735
Handbært fé í byrjun árs frá keyptu dótturfélagi 78
Handbært fé í lok ársins 18 6.155 5.575

1. Almennar upplýsingar

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi að Skarfagörðum 4, Reykjavík.

Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Nasdaq OMX Nordic Exchange.

Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 12. mars 2015.

2. Reikningsskilaaðferðir

Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.

2.1 Grundvöllur reikningsskila

Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2014 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu (ESB).

Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð. Ársreikningurinn er birtur í evrum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru í þúsundum evra.

Gerð ársreikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að notaðar séu tilteknar aðferðir við reikningshaldslegt mat. Nánar er greint frá þeim aðferðum í skýringu nr. 4.

2.1.1 Breytingar á reikningsskilaaðferðum og framsetningu

a) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem tóku gildi 1. janúar 2014 og hafa áhrif á ársreikninginn

Það voru engir nýir IFRS staðlar eða túlkanir á stöðlum sem tóku gildi á árinu 2014 og hafa veruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.

Á árinu tóku gildi breytingar á nokkrum stöðlum, sem hafa lítil eða engin áhrif á samstæðuna.

b) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem hafa verið útgefnir en hafa ekki tekið gildi.

Eftirfarandi nýir staðlar tóku gildi í upphafi reikningsársins:

Staðall/túlkun Innihald Gildistökutími
IFRS 9 Fjármálagerningar 1. janúar 2018
IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini 1. janúar 2017

Staðallinn IFRS 9 um fjármálagerninga er orðinn endanlegur, þannig að í hann eru komnir kaflar um niðurfærslu fjáreigna á kostnaðarverði og um áhættuvarnarreikningsskil, til viðbótar við kafla um færslu og flokkun fjáreigna og fjárskulda. Nýjar reglur um niðurfærslu fjáreigna munu hafa áhrif á niðurfærslu viðskiptakrafna hjá samstæðunni, en eftir er að meta nánar hve mikil þau áhrif verða.

Staðallinn IFRS 15 um tekjur af samningum við viðskiptavini er nýr staðall um tekjur. Hann mun hafa áhrif á færslu tekna hjá samstæðunni, en eftir er að meta nánar hvernig og hve mikil þau áhrif verða.

b) Innleiðing staðla fyrir gildistökutíma þeirra.

Samstæðan innleiddi enga staðla fyrir gildistökutíma þeirra á árinu 2014.

2.2 Samstæðureikningsskil

a) Dótturfélög

Dótturfélög eru öll fyrirtæki þar sem samstæðan hefur vald til að ráða fjárhagslegri og stjórnunarlegri stefnu, sem fylgir að öðru jöfnu eignarhlut með meira en helmingi atkvæðaréttar. Dótturfélög eru að fullu hluti samstæðunnar frá þeim degi þegar yfirráð eru færð yfir til samstæðunnar. Þau eru tekin út úr samstæðunni frá þeim degi þegar yfirráðum lýkur.

Kaupaðferð í reikningshaldi er notuð við færslu kaupa samstæðunnar á dótturfélögum. Kaupverð er metið sem gangvirði tilgreindra eigna sem látnar eru af hendi, útgefinna eiginfjárgerninga og skulda sem stofnað er til eða teknar eru yfir á viðskiptadegi, auk kostnaðar sem rekja má beint til yfirtökunnar. Aðgreinanlegar eignir og skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á yfirtökudegi, án tillits til hversu mikil hlutdeild minnihluta er. Sú fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í yfirteknum aðgreinanlegum hreinum eignum er skráð sem viðskiptavild.

Viðskipti á milli fyrirtækja, innbyrðis stöður og áætlaður óinnleystur hagnaður af færslum á milli fyrirtækja samstæðunnar eru felldar niður í samstæðureikningsskilunum. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt, þar sem þörf er á, til að tryggja samræmi við aðferðir samstæðunnar.

b) Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru rekstrareiningar sem samstæðan hefur veruleg áhrif í en hefur ekki yfirráð yfir. Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð við reikningsskil og eru færðar í upphafi á kostnaðarverði. Hlutur samstæðunnar í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga eftir kaup er færður í rekstrarreikning og hlutur hennar í hreyfingum eiginfjárreikninga er færður á eigið fé. Uppsafnaðar hreyfingar eftir yfirtöku eru leiðréttar gagnvart bókfærðri fjárhæð fjárfestingarinnar. Þegar hlutur samstæðunnar í tapi hlutdeildarfélagsins er jafnmikill eða meiri en hlutdeild hennar í hlutdeildarfélaginu, þ.m.t. allar aðrar ótryggðar viðskiptakröfur, færir samstæðan ekki frekari tap nema hún hafi stofnað til skuldbindinga eða innt af hendi greiðslur fyrir hönd hlutdeildarfélagsins.

2.3 Starfsþáttaskýrslur

Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar vegna ólíkra efnislegra eða landfræðilegra þátta varðandi áhættu og afkomu en aðrir rekstrarstarfsþættir samstæðunnar. Samstæðan skilgreinir starfsemina í fjóra rekstrarþætti.

2.4 Umreikningur á erlendum gjaldmiðlum

(a) Starfrækslugjaldmiðill og reikningsskilagjaldmiðill

Í reikningsskilum fyrirtækja innan samstæðunnar eru liðir færðir í gjaldmiðli þess efnahagslega umhverfis sem þau starfa í (starfrækslugjaldmiðillinn). Samstæðureikningsskilin eru sett fram í þúsundum evra, sem er bæði starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill samstæðunnar.

(b) Viðskipti og stöður

Viðskipti í erlendum gjaldmiðli eru umreiknuð yfir í starfrækslugjaldmiðil á því gengi sem er í gildi á viðskiptadeginum. Hagnaður eða tap, sem stafa af uppgjöri slíkra viðskipta og af umreikningi á gengi peningalegra eigna og skulda í erlendri mynt í lok ársins, eru færð í rekstrarreikning.

(c) Félög samstæðunnar

Afkoma og efnahagur félaga samstæðunnar þar sem starfrækslugjaldmiðill er annar en framsetningargjaldmiðilinn, eru umreiknuð í framsetningargjaldmiðilinn með eftirfarandi hætti:

(i) eignir og skuldir efnahagsreiknings eru umreiknaðar á gengi í lok ársins

(ii) liðir rekstrarreiknings eru umreiknaðir á meðalgengi ársins

(iii) allar breytingar á gengi sem af þessu leiða eru færðar sem sérgreindur liður meðal eigin fjár

Viðskiptavild og annað yfirverð vegna kaupa á dótturfélögum eru meðhöndlað sem eignir og skuldir þeirra og umreiknað á gengi í lok ársins.

2.5 Varanlegir rekstrarfjármunir

Til fasteigna teljast fyrst og fremst verksmiðjur, netaverkstæði og skrifstofur. Varanlegir rekstrarfjármunir eru tilgreindir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum afskriftum. Upphaflegt kostnaðarverð felur í sér kostnað sem rekja má beint til kaupa á viðkomandi eignum.

Viðbótarfjárfesting sem fellur til síðar er innifalin í bókfærðu verði eignarinnar eða færð sem sérgreind eign, eftir því sem við á. Það gerist þó einungis þegar líklegt er að efnahagslegur ávinningur, sem tengist fjárfestingunni, muni í framtíðinni renna til samstæðunnar og að unnt sé að meta kostnaðarverð með öruggum hætti. Viðgerðir og viðhald eru gjaldfærðar í rekstrarreikningi á því tímabili þegar stofnað er til þeirra.

Land er ekki afskrifað. Afskriftir annarra eigna eru reiknaðar þannig að mismunur á kostnaðarverði þeirra og áætluðu hrakvirði er dreift línulega á áætlaðan nýtingartíma eignanna, sem er eftirfarandi:

Vélar og önnur framleiðslutæki 12-15 ár
Bifreiðar 5-9 ár
Fasteignir 25-67 ár
Skrifstofubúnaður, áhöld og þróunarkostnaður 3-5 ár
Einkaleyfi 5-20 ár
Hugbúnaður 2-7 ár

Meiriháttar endurbætur eru afskrifaðar á líftíma viðkomandi eignar eða þeim tíma sem líður að næstu meiriháttar endurbótum, hvort sem skemur er.

Hrakvirði eigna og nýtingartími eru endurskoðað árlega og leiðrétt, ef við á.

Söluhagnaður og -tap reiknast sem mismunur söluverðs að frádregnum kostnaði við söluna og bókfærðs verðs seldra eigna á söludegi. Söluhagnaður og -tap er fært í rekstrarreikning. Þegar endurmetnar eignir eru seldar eru fjárhæðir sem eru innifaldar í öðrum varasjóðum og þeim tengjast, færðar yfir á óráðstafað eigið fé.

2.6 Óefnislegar eignir

(a) Viðskiptavild

Viðskiptavild endurspeglar þá fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði hluta samstæðunnar í hreinum aðgreinanlegum eignum yfirtekins dótturfélags á yfirtökudegi. Viðskiptavild vegna samruna og kaupa dótturfélaga er hluti af óefnislegum eignum samstæðunnar. Viðskiptavild er metin árlega að teknu tilliti til virðisrýrnunar og er bókfærð á kostnaðarverði að frádregnu uppsöfnuðu virðisrýrnunartapi.

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar í því skyni að meta hana með tilliti til virðisrýrnunar. Virðisrýrnun viðskiptavildar, byggð á virðisrýrnunarprófum í samræmi við IAS-staðal 36, er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

(b) Einkaleyfi

Einkaleyfi er tilkomið vegna kaupa á útgefnum einkaleyfum og umsóknum á öðrum einkaleyfum er tengjast framleiðsluvörum samstæðunnar. Einkaleyfin er færð á kaupverði eða áætluðu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

(c) Hugbúnaður

Hugbúnaðarleyfi sem hafa verið keypt eru eignfærð miðað við þann kostnað sem stofnað var til við að kaupa og koma í notkun þessum tiltekna hugbúnaði. Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

2.7 Virðisrýrnun eigna

Eignir sem hafa óskilgreindan líftíma og eru ekki afskrifaðar á kerfisbundinn hátt eru metnar árlega með tilliti til virðisrýrnunar. Eignir sem eru afskrifaðar eru skoðaðar með tilliti til virðisrýrnunar þegar breytingar á umhverfi eða atburðir benda til þess að bókfært verð þeirra sé lægra en endurheimtanlegt virði þeirra. Sérstök niðurfærsla er færð ef endurheimtanlegt virði þeirra, sem er hærra af nettó söluverði og notkunarvirði, er lægra en kostnaðarverð þeirra að frádregnum afskriftum. Í virðisrýrnunarprófi eru eignir flokkaðar eins og mögulegt er svo hægt sé að mæla áætlað sjóðstreymi þeirra.

2.8 Fjárfestingar

Eignarhlutir í öðrum félögum en dóttur- og hlutdeildarfélögum eru flokkaðir sem fjárfestingareignir og færðir á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu vegna virðisrýrnunar.

2.9 Birgðir Kaup og sala fjárfestinga er færð á viðskiptadegi - þann dag sem samstæðan skuldbindur sig til að kaupa eða selja

Hráefni eru metin á innkaupsverði. Kostnaðarverð vara í framleiðslu og fullunninna vara samanstendur af beinum launaog efniskostnaði ásamt öðrum kostnaði sem beint eða óbeint tengist framleiðslu varanna. Kostnaðarverð er ákvarðað með því að nota "fyrst inn-, fyrst út" aðferðina (FIFO-aðferðina). Birgðir samanstanda af netum, köðlum, járnavörum, veiðarfærum, vörum í vinnslu og hráefnum til neta, kaðla og hleraframleiðslu. Niðurfærsla er færð á móti vörum sem hreyfast hægt.

2.10 Verk í vinnslu

Umsamin verk í vinnslu eru metin miðað við söluverð að teknu tilliti til framgangs þeirra. Ef ljóst er að tap verður á verkinu þá er það innleyst strax.

2.11 Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að frádreginni niðurfærslu til að mæta þeim kröfum sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati á tapsáhættu gagnvart einstökum kröfum. Kröfur sem eru endanlega tapaðar eru færðar út úr bókum samstæðunnar.

2.12 Handbært fé og ígildi þess

Handbært fé innifelur reiðufé, inneignir í bönkum og aðrar skammtímafjárfestingar sem auðvelt er að skipta í reiðufé og eru með binditíma allt að þrem mánuðum. Yfirdráttur í banka er sýndur í lántöku meðal skammtímaskulda í efnahagsreikningi.

2.13 Hlutafé

Almennir hlutir eru flokkaðir sem eigið fé.

Ef eitthvert félag samstæðunnar kaupir eigið hlutafé félagsins (eigin hlutabréf) er endurgjaldið sem greitt er, að meðtöldum öllum viðbótarkostnaði sem rekja má beint til kaupanna (að frádregnum tekjusköttum), dregið frá eigin fé þar til hlutirnir eru afskrifaðir, endurútgefnir eða þeim ráðstafað. Þegar slíkir hlutir eru síðan seldir eða endurútgefnir er hvers kyns endurgjald sem móttekið er, að frádregnum öllum viðbótarkostnaði við viðskiptin sem má rekja beint til kaupanna og tengdra áhrifa vegna tekjuskatta, innifalið í eigin fé.

2.14 Lántökur

Lántaka er færð í upphafi á gangvirði. Allur lántökukostnaður er gjaldfærður um leið og hann fellur til.

Lán eru flokkuð meðal skammtímaskulda ef þau gjaldfalla innan 12 mánaða annars eru þau flokkuð meðal langtímaskulda.

2.15 Frestaður tekjuskattur

Frestaður tekjuskattur af tímabundnum mismunum milli skattverðs eigna og skulda og bókfærðra fjárhæða þeirra í samstæðureikningsskilunum er færður að fullu til skuldar. Frestaður tekjuskattur er hins vegar ekki færður ef hann myndast vegna upphaflegrar færslu eignar eða skuldar í öðrum viðskiptum en sameiningu fyrirtækja sem hefur hvorki áhrif á reikningshaldslegan né skattskyldan hagnað eða tap. Frestaður tekjuskattur er ákvarðaður með því að nota skatthlutföll sem hafa verið lögleidd fyrir dagsetningu efnahagsreiknings eða fyrir liggur að verði lögleidd og vænst er að verði í gildi þegar tengd frestuð skattinneign er innleyst eða frestaða tekjuskattskuldbindingin er gerð upp.

Frestaður tekjuskattur vegna tímabundinna mismuna sem stafa af fjárfestingum í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum er færður nema þegar samstæðan stjórnar því hvenær tímabundni mismunurinn er bakfærður og líklegt er að tímabundni mismunurinn muni ekki snúast við í fyrirsjáanlegri framtíð.

Frestaðar skattinneignir eru færðar að því marki sem líklegt er að unnt verði að nýta tímabundna mismuni á móti skattalegum framtíðarhagnaði.

2.16 Starfsmannasamningar

Ágóðahlutir og bónusgreiðslur

Undir vissum kringumstæðum er færð skuldbinding vegna lykilstarfsmanna vegna áunninna réttinda til ágóðahluta. Til þess að svo sé þarf ákvörðun um greiðslu að liggja fyrir áður en reikningsskilin eru gefin út.

2.17 Aðrar skuldbindingar

Aðrar skuldbindingar eru færðar þegar samstæðan hefur tekið á sig skuldbindingu vegna liðinna atburða, líkur eru taldar á að til greiðslu þeirra komi og hægt er að mæla þær með ábyggilegum hætti. Samstæðan veitir ábyrgð á vissum vörum og skuldbindur sig til þess að gera við vörur sem vinna ekki með eðlilegum hætti.

2.18 Innlausn tekna

Tekjur samanstanda af gangvirði vegna sölu á vörum og þjónustu, að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti og eftir að innbyrðis sala innan samstæðunnar hefur verið felld niður.

(a) Sala á vöru og þjónustu

Sala á vöru er færð á því reikningsskilatímabili sem varan er afhent og sala á þjónustu er færð á því reikningstímabili sem þjónustan er innt af hendi með áfangaaðferð. Þjónustutekjur eru hluti af sölutekjum í rekstrarreikningi.

(b) Vaxtatekjur

Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning með aðferð virkra vaxta vegna allra fjármálagerninga sem færðir eru á kostnaðarverði.

(c) Arðstekjur

Arðstekjur eru færðar þegar réttur til að taka á móti greiðslu er fastsettur.

2.19 Leigusamningar

Fjárhæðir vegna kaup- og rekstrarleiga eru óverulegar hjá samstæðunni.

2.20 Úthlutun arðs

Úthlutun arðs til hluthafa félagsins er færð sem skuld í reikningsskil samstæðunnar á því tímabili sem hluthafar félagsins samþykkja arðgreiðslurnar.

3. Fjárhagsleg áhættustjórnun

Samstæðan starfar í umhverfi með ýmiss konar fjárhagsáhættu, þar með talið lánsáhættu, lausafjáráhættu og markaðsáhættu. Heildaráætlun samstæðunnar um áhættustjórnun beinist fyrst og fremst að ófyrirséðri hegðun fjármálamarkaða og með henni er reynt að draga sem mest úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum á rekstrarárangur samstæðunnar.

Stjórn móðurfélagsins ber ábyrgð á að innleiða og hafa eftirlit með áhættustýringu samstæðunnar. Stjórnin hefur falið forstjóra móðurfélagsins umsjón með daglegri áhættustýringu samstæðunnar.

(a) Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna.

Margir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna.

Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna.

Ábyrgðir

Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum eða móðurfélagi ábyrgðir. Þann 31. desember 2014 voru engar umtalsverðar ábyrgðir í gildi.

Mesta mögulegt tap vegna lánsáhættu án tillits til veða

Eftirfarandi tafla sýnir mesta mögulega tap vegna lánsáhættu án tillits til veða þann 31. desember 2014 og 2013. Fyrir efnahagsliði er mesta mögulega tapið byggt á bókfærðu verði eignanna á uppgjörsdegi.

Mesta mögulega tap
Lánsáhætta tengd efnahagsliðum 2014 2013
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 11.418 10.469
Handbært fé 6.155 5.575
Samtals mesta mögulega tap vegna lánsáhættu 17.573 16.044

b) Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla.

Taflan hér að neðan greinir skuldir samstæðunnar í flokka eftir gjalddögum þeirra. Upphæðir í töflunni eru ónúvirtar samningsbundnar greiðslur.

Staða 31. desember 2014 Sjóðstreymi
Bókfært
verð
skv.
samningum
Innan
1 árs
1 - 2 ár 2 - 5 ár Yfir 5 ár
Lántökur 22.819 25.308 8.898 1.295 14.241 874
Viðskiptaskuldir 6.863 6.863 6.863 0 0 0
29.682 32.171 15.761 1.295 14.241 874

b) Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla, vaxta og gengi hlutabréfa hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum.

Gjaldmiðlagengisáhætta

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðlum einstakra samstæðufélaga. Helstu starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru evrur (EUR) og íslenskar krónur (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru ISK.

Lítilsháttar lántaka samstæðunnar í öðrum gjaldmiðlum en evrum myndar gengisáhættu sem ekki er varin.

Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru að stærstum hluta með breytilegum vöxtum. Hækkun á vöxtum á uppgjörsdegi um eitt prósentustig hefði lækkað afkomu samstæðunnar fyrir tekjuskatt um 230 þúsund evrur. Árið 2013 hefði lækkunin orðið 240 þúsund evrur. Útreikningurinn miðast við rekstraráhrif á ársgrundvelli. Þessi greining byggir á því að allar aðrar breytur, sérstaklega gengi gjaldmiðla, haldist óbreyttar.

Önnur markaðsverðsáhætta

Önnur markaðsverðsáhætta samstæðunnar er aðallega fólgin í fjárfestingu í hlutdeildarfélaginu HB Granda hf.

3.1 Áhættustýring eiginfjár

Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að viðhalda getu hennar til áframhaldandi reksturs til að greiða eigendum sínum arð.

Félagið getur breytt arðgreiðslustefnu, endurgreitt hlutafé, gefið út nýtt hlutafé eða selt eignir til að minnka skuldir til að viðhalda eða lagfæra skipulag fjármögnunar.

Eftirfarandi tafla sýnir fjármögnun samstæðunnar og eiginfjárhlutfall (fjárhæðir í þúsundum evra):

2014 2013
Lántökur, langtíma 14.505 15.365
Lántökur, skammtíma 8.314 8.791
Frádregið: Handbært fé (6.155) (5.575)
Skuldir nettó 16.664 18.581
Eigið fé 62.606 55.514
Fjármögnun samtals 79.270 74.095
Eiginfjárhlutfall 66% 63%

4. Mikilvæg atriði sem varða reikningshaldslegt mat

Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Farið er yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.

5. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Samstæðan skiptist í fjóra starfsþætti eftir félögum innan samstæðunnar:

og Fjarðanets.

Starfsþáttur 1. Starfsemi Hampiðjunnar sem er veiðarfæragerð,
endursala og fjárfestingar.
Starfsemi
Hampidjan Baltic
í Litháen, sem er verksmiðjuframleiðsla á netum, köðlum og ofurtógi.
Starfsemi Otter sem er eignarhald á einkaleyfum.
Starfsþáttur 2. Starfsemi veiðarfærafélagsins Swan Net Gundry.
Starfsþáttur 3. Starfsemi veiðarfærafélagsins Cosmos Trawl.
Starfsþáttur 4. Starfsemi veiðarfærafélaganna Hampidjan New Zealand, Hampidjan Canada, Hampidjan USA

Starfsþáttur 4.

Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ.
2014 (1) (2) (3) (4) Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 42.219 11.225 10.266 13.469 (23.137) 54.042
Beinn framl.kostn (33.489) (8.149) (8.076) (10.038) 23.137 (36.615)
8.730 3.076 2.190 3.431 17.427
Rekstrarkostnaður (5.926) (2.026) (1.295) (2.532) (11.779)
2.804 1.050 895 899 5.648
7% 9% 9% 7% 10%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (85) (81) (101) 9 (258)
Hlutdeildarafkoma 3.151 0 0 0 3.151
Tekjuskattur (435) (109) (168) (152) (864)
Hagnaður ársins 5.435 860 626 756 7.677
Fastafjármunir 51.254 8.108 4.528 1.589 (6.910) 58.569
Veltufjármunir 25.456 7.392 4.190 10.256 (10.719) 36.575
Langtímaskuldir 15.145 625 1.395 196 17.361
Skammtímaskuldir 23.192 1.800 2.820 4.919 (17.554) 15.177
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.348 273 200 162 1.983
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (854) (417) (21) (181) (1.473)
EBITDA 4.152 1.324 1.094 1.061 7.631
Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ.
2013 (1) (2) (3) (4) Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 42.972 9.323 11.628 9.531 (23.013) 50.441
Beinn framl.kostn (34.068) (6.840) (8.957) (7.360) 23.013 (34.212)
8.904 2.483 2.671 2.171 16.229
Rekstrarkostnaður (5.106) (1.879) (1.572) (1.770) (10.327)
3.798 604 1.099 401 5.902
9% 6% 9% 4% 12%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (845) (42) (150) 16 (1.021)
Hlutdeildarafkoma 3.252 0 0 0 3.252
Tekjuskattur (178) (19) (196) (100) (493)
Hagnaður ársins 6.027 543 753 317 7.640
Fastafjármunir 47.832 7.791 4.686 916 (5.117) 56.108
Veltufjármunir 25.500 6.370 4.435 6.253 (9.941) 32.617
Langtímaskuldir 15.472 708 1.628 209 18.017
Skammtímaskuldir 23.257 1.207 3.617 2.116 (15.003) 15.194
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.279 227 340 85 1.931
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (701) (521) (226) (154) (1.602)
EBITDA 5.078 830 1.440 485 7.833

6. Laun og launatengd gjöld

Starfsmannamál 2014 2013
Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
Laun 13.523 12.017
Launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður 2.704
16.227
2.366
14.383
Meðalfjöldi starfsmanna á árinu. 522 509
Félagið hefur ekki gert neina samninga við starfsmenn eða stjórnendur um lífeyris- eða eftirlaunagreiðslur.
Laun og launatengd gjöld skiptast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi 2014 2013
Framleiðslukostnaður 9.764 8.847
Annar rekstrarkostnaður 6.463 5.536
16.227 14.383
7. Rekstrarkostnaður 2014 2013
Keyptar vörur og þjónusta 3.173 4.074
Laun og launatengd gjöld 6.463 5.536
Afskrifaðar viðskiptakröfur 2 111
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna 579 606
10.217 10.327
8. Aðrar tekjur (-gjöld) 2014 2013
Aðrar tekjur (-gjöld) greinast þannig:
Uppgjör við forstjóra vegna starfsloka (bónusar, starfslokagr. og tengd gjöld) (1.562) 0
(1.562) 0
9. Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 2014 2013
Vaxtatekjur 269 123
Vaxtagjöld (1.025) (1.082)
Gengismunur 380 (175)
Fenginn arður 118 113
(258) (1.021)
10. Tekjuskattur 2014 2013
Tekjuskattur til greiðslu 618 248
Frestaður tekjuskattur (Skýring 20) 246 245
864 493
Reiknaður tekjuskattur af hagnaði samstæðunnar fyrir skatta (virkur tekjuskattur) er frábrugðinn þeirri fjárhæð sem kæmi út
ef tekjuskattshlutfall er notað til útreikningsins sem hér greinir:
Hagnaður fyrir skatta 8.541 8.133
Reiknaður tekjuskattur með tekjuskattshlutfalli viðkomandi lands 1.061 937
Varanlegir mismunir (198) (442)
Nýting á yfirfæranlegu tapi sem ekki hefur verið tekið tillit til 1 (2)
Tekjuskattur samkvæmt rekstrarreikningi 864 493

11. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila þeim hagnaði sem skipta má á hluthafa í móðurfélaginu með vegnu meðaltali almennra hluta sem gefnir eru út á árinu, að undanskildum almennum hlutum sem félagið hefur keypt og heldur sem eigin hlutum.

2014 2013
Hagnaður á árinu (þúsundir evra)
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta (í þúsundum)
7.677
486.593
7.640
486.593
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent) 1,58 1,57

Heildarfjöldi hluta nemur 500 milljónum, þar af eru eigin hlutir 13,4 milljón, hver að nafnverði 1 ISK. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Engin breyting varð á fjölda hluta á árinu.

12. Varanlegir rekstrarfjármunir

Vélar, áhöld
Fasteignir og tæki Samtals
Staða 1. janúar 2013
Kostnaðarverð 26.948 16.662 43.610
Uppsafnaðar afskriftir (3.247) (8.114) (11.361)
Bókfært verð 23.701 8.548 32.249
Hreyfingar árið 2013
Bókfært verð í byrjun árs 2013 23.701 8.548 32.249
Gengismunir (70) 74 4
Viðbætur 661 1.440 2.101
Selt og aflagt 0 (82) (82)
Afskriftir (334) (1.160) (1.494)
Bókfært verð í lok árs 2013 23.958 8.820 32.778
Staða 1. janúar 2014
Kostnaðarverð 27.571 17.856 45.427
Uppsafnaðar afskriftir (3.613) (9.036) (12.649)
Bókfært verð 23.958 8.820 32.778
Hreyfingar árið 2014
Bókfært verð í byrjun árs 2014 23.958 8.820 32.778
Gengismunir 29 48 77
Viðbætur vegna kaupa á dótturfélagi 49 228 277
Viðbætur 222 1.339 1.561
Selt og aflagt (66) (115) (181)
Afskriftir (345) (1.256) (1.601)
Bókfært verð í lok árs 2014 23.847 9.064 32.911
Staða 31. desember 2014
Kostnaðarverð 27.828 19.155 46.983
Uppsafnaðar afskriftir (3.980) (10.092) (14.072)
Bókfært verð í lok árs 2014 23.848 9.063 32.911
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2014 2013
Framleiðslukostnaður 1.232 1.131
Annar rekstrarkostnaður 369 363
1.601 1.494

Alþjóðleg fjármálakreppa hefur óvíða valdið jafn miklum erfiðleikum og í þeim þrem löndum þar sem meginhluti samstæðu Hampiðjunnar er staðsettur, þ.e. á Íslandi, Írlandi og í Litháen. Þó svo almenn rekstrarskilyrði fyrir framleiðsluiðnað hafi á ýmsan hátt batnað, m.a. vegna lækkunar á raungengi íslensku krónunnar og minni kostnaðarþenslu í viðkomandi löndum, hefur skarpur samdráttur í eftirspurn dregið verulega úr markaðsverðmæti ýmissa eigna samstæðunnar, ekki síst atvinnuhúsnæði. Þá hefur aðgengi samstæðunnar að samkeppnishæfri lánsfjármögnun minnkað.

13. Óefnislegar eignir

Viðskipta Hug
vild Einkaleyfi búnaður Samtals
Staða 1. janúar 2013
Kostnaðarverð 2.397 2.890 1.262 6.549
Uppsafnaðar afskriftir (229) (1.499) (676) (2.404)
Bókfært verð 2.168 1.391 586 4.145
Hreyfingar árið 2013
Bókfært verð í byrjun árs 2013 2.168 1.391 586 4.145
Viðbætur 1.119 0 221 1.340
Afskriftir 0 (189) (248) (437)
Bókfært verð í lok árs 2013 3.287 1.202 559 5.048
Staða 1. janúar 2014
Kostnaðarverð 3.516 2.890 1.481 7.887
Uppsafnaðar afskriftir (229) (1.688) (922) (2.839)
Bókfært verð 3.287 1.202 559 5.048
Hreyfingar árið 2014
Bókfært verð í byrjun árs 2014 3.287 1.202 559 5.048
Gengismunir 41 1 1 43
Viðbætur 295 0 160 455
Afskriftir 0 (189) (193) (382)
Bókfært verð í lok árs 2014 3.623 1.014 527 5.164
Staða 31. desember 2014
Kostnaðarverð 3.974 2.890 1.426 8.290
Uppsafnaðar afskriftir (351) (1.876) (899) (3.126)
Bókfært verð í lok árs 2014 3.623 1.014 527 5.164
Afskriftir óefnislegra eigna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2014 2013
Framleiðslukostnaður 171 194
Annar rekstrarkostnaður 211 243
382 437

Virðisrýrnunarpróf vegna viðskiptavildar:

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar samstæðunnar (CGU) og er skilgreind eftir því í hvaða landi (félagi) reksturinn er.

Endurheimtanleg fjárhæð fjárskapandi rekstrareininga er ákvörðuð miðað við útreikning á notkunarvirði. Tekið er tillit til skilgreiningar á hinni fjárskapandi einingu sem viðskiptavildinni fylgir við mat á virðisrýrnun hennar og undirliggjandi fastafjármuna og veltufjármuna. Útreikningar byggja á áætluðu fjárstreymi fyrir næstu 2 ár, ásamt eilífðarvirði út frá þeim tíma. Gert er ráð fyrir 2,5% nafnverðsvexti á fjárflæði í eilífðarvexti. Gerð er 8 - 10% vegin nafnverðskrafa á fjárflæði. Um er að ræða ávöxtunarkröfu sem til samræmis við uppruna fjárstreymisins, er gert miðað við mynd þess fjárstreymis sem um ræðir.

Áætluð framlegð er eins og stjórnendur hafa ákvarðað hana miðað við fyrri árangur og væntingar þeirra um markaðsþróun. Afvöxtunarstuðlarnir endurspegla sérstaka áhættu sem tengist tengdum starfsþáttum.

Útreikningar á endurheimtanlegri fjárhæð leiddi ekki til virðisrýrnunartaps á árunum 2014 og 2013.

14. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig: Eignarhluti Hlutdeild
í hagnaði
Bókfært
verð
HB Grandi hf 8,83% 3.151 19.314
Samandregnar fjárhagsupplýsingar um hlutdeildarfélag í þús. evra: 2014 2013
Eignir samtals 366.684 336.258
Skuldir samtals 147.855 135.714
Eigið fé hluthafa móðurfélagsins 218.829 200.544
Hagnaður hluthafa móðurfélagsins 35.703 35.616

Hampiðjan, ásamt þremur öðrum félögum, keypti í ágúst 1988 eignarhlut Reykjavíkurborgar í Granda hf., sem var þá 78% af útgefnu hlutafé þess félags. Frá þeim tíma hafa þrjú þessara félaga, Hampiðjan hf., Hvalur hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus ehf. verið kjölfestueigendur félagsins. Hampiðjan hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. og Vogun, dótturfélag Hvals hf., áttu í árslok 2014 samtals 43% af útistandandi hlutafé HB Granda hf. Hampiðjan hefur haft aðkomu að stefnumótun HB Granda og lykilákvörðunum þess. Skv. IAS 28 skilgreinir félagið HB Granda sem hlutdeildarfélag og færir hlutabréfaeign sína í ársreikninginn samkvæmt því. Síðasta skráða viðskiptagengi ársins með hluti í HB Granda hf. var 33,8 og er markaðsvirði eignarhluta Hampiðjunnar, ef miðað er við það gengi, 35 milljónir evra sem er 15,7 milljónum evra hærra en bókfært er í ársreikningnum.

15. Fjárfestingareignir

Fjárfestingareignir á kostnaðarverði greinast þannig: 2014 2013
Síldarvinnslan hf 175 175
P/F Von 115 115
Thyboron Skibssmedie A/S 182 182
SP/F Sílnet 484 0
Önnur félög 150 9
1.106 481

16. Birgðir

Birgðir greinast þannig: 2014 2013
Net, kaðlar, járnavara, veiðarfæri og aðrar afurðir 16.044 14.019
Vörur í vinnslu 1.119 896
Hráefni fyrir hlera, neta- og kaðlaframleiðslu 1.839 1.658
19.002 16.573

Birgðir eru færðar niður vegna aldurs um 874 þúsund evrur í efnahagsreikningi samstæðunnar. Árið áður voru birgðir færðar niður um 720 þúsund evrur.

17. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur greinast þannig: 2014 2013
Viðskiptakröfur 10.920 10.317
Niðurfærsla viðskiptakrafna (465) (474)
Viðskiptakröfur nettó í árslok 10.455 9.843
Skuldabréf og aðrar kröfur 963 626
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur í árslok 11.418 10.469
Viðskiptakröfur
eru
færðar
niður
um
465
þúsund
evrur
í
efnahagsreikningi
niðurfærslureikningurinn á eftirfarandi hátt:
samstæðunnar og
greinist
2014 2013
Niðurfærsla í byrjun árs 474 367
Endanlega tapaðar kröfur á árinu (11) (4)
Breyting niðurfærslu á árinu 2 111
465 474
18. Handbært fé
2014 2013
Handbært fé í banka sem reiðufé og aðrar skammtímafjárfestingar 6.155 5.575
6.155 5.575
19. Lántökur
Langtímaskuldir greinast þannig í efnahagsreikningi:
Skuldir í erlendum gjaldmiðlum 15.223
Skuldir í íslenskum krónum 79
15.302
Lántökur eru tryggðar með lóðum, fasteignum og birgðum í eigu samstæðunnar. Eignir sem keyptar hafa verið með
kaupleigu eru veðsettar með viðkomandi eignum til tryggingar eftirstöðvum skulda.
Langtímaskuldir greinast þannig eftir gengistryggingarákvæðum: Hlutfall Staða
ISK 0,5% 79
EUR 87,0% 13.308
USD 4,4% 666
DKK 8,2% 1.249
100% 15.302
Afborganir af langtímaskuldum félagsins í lok ársins samkvæmt lánasamningum frá lánastofnunum, greinast þannig á næstu
ár:
Árið 2015 797
Árið 2016 744
Árið 2017 704
Árið 2018
Síðar
691
12.366
Skuldir við lánastofnanir koma þannig fram í efnahagsreikningi: 15.302
Afborganir með gjalddaga eftir eitt ár eða síðar meðal langtímaskulda 14.505
Afborganir næstu 12 mánaða, færðar á meðal skammtímaskulda
Bankalán til skammtíma færðar meðal skammtímaskulda
797
7.517

20. Frestaður tekjuskattur

Frestuð tekjuskattsskuldbinding nettó greinist þannig á eftirfarandi liði: 2014 2013
Tekjuskattskuldbinding í ársbyrjun 2.551 2.311
Tekjuskattur á tímabilinu 864 493
Tekjuskattur til greiðslu (618) (248)
Tekjuskattur færður yfir eigið fé (15) (5)
Tekjuskattskuldbinding í lok ársins 2.782 2.551
Frestuð tekjuskattsskuldbinding greinist þannig á eftirfarandi liði: 2014 2013
Varanlegir rekstrarfjármunir 2.789 2.675
Aðrir efnahagsliðir 67 (3)
Yfirfæranlegt skattalegt tap 0 (20)
2.856 2.652
Frestuð tekjuskattsinneign greinist þannig á eftirfarandi liði: 2014 2013
Yfirfæranlegt skattalegt tap, nýtist til ársins 2018 (74) (101)
21. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 2014 2013
Viðskiptaskuldir 5.460 5.413
Aðrar skammtímaskuldir 1.403 990
6.863 6.403

22. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila:

Dótturfélög, hlutdeildarfélög, stjórnarmenn og stjórnendur teljast vera tengdir aðilar samstæðunnar.

Tengdir aðilar með veruleg áhrif:

Samstæðan átti viðskipti á árinu við hlutdeildarfélagið HB Granda hf. og voru viðskiptin við félagið eins og um ótengdan aðila væri að ræða.

Viðskipti við stjórnendur:

Laun og hlunnindi til stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir þeirra í félaginu greinast þannig:

Fjöldi hluta
Laun í árslok*
Fráfarandi forstjóri, greidd föst laun og hlunnindi 107 56
Fráfarandi forstjóri, greiðslur tengdar starfslokum 1.656
Núverandi forstjóri, greidd föst laun og hlunnindi 174
Sjö framkvæmdastjórar: Greidd föst laun og hlunnindi 626
Greiddir árangurstengdir bónusar til stjórnenda 678
Samtals 3.241
Greidd stjórnarlaun og hlutafjáreign stjórnarmanna Hampiðjunnar hf 54 1.642

*Hlutir eru að nafnverði í þúsundum IKR

23. Vátryggingar

Samstæðan hefur keypt rekstrarstöðvunartryggingar sem ætlað er að bæta tjón vegna rekstrarstöðvunar í allt að 12 mánuði á grundvelli skilmála um eignatryggingar. Tryggingarfjárhæðin nemur allt að 23,2 milljónum evra. Vátryggingarverðmæti fasteigna samstæðunnar nemur 33,8 milljónum evra, framleiðsluvéla og -tækja, ásamt hug- og skrifstofubúnaðar 33,3 milljónum evra og vörubirgða 20,6 milljónum evra.

24. Árshelmingayfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:

júlí - des.
2014
jan.-jún.
2014
júlí - des.
2013
jan.-jún.
2013
júlí - des.
2012
Rekstrartekjur 27.686 26.356 23.862 26.579 21.271
Rekstrargjöld án afskrifta (23.266) (23.145) (20.620) (21.988) (17.716)
Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) 4.420 3.211 3.242 4.591 3.555
Afskriftir (1.014) (969) (963) (968) (790)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 3.406 2.242 2.279 3.623 2.765
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 2.338 555 1.198 1.033 1.030
Hagnaður fyrir skatta 5.744 2.797 3.477 4.656 3.795
Tekjuskattur (682) (182) (4) (489) (482)
Hagnaður árshelminga 5.062 2.615 3.473 4.167 3.313

Fjárhæðir í árshelmingayfirliti eru óendurskoðaðar

25. Aðrir varasjóðir Lögbundinn
varasjóður
Þýðingar
munur
Samtals
Staða 1. janúar 2013
Þýðingamunur ársins
1.384 (1.215)
(365)
169
(365)
Staða 31. desember 2013 1.384 (1.580) (196)
Staða 1. janúar 2014
Þýðingamunur ársins
1.384 (1.580)
351
(196)
351
Staða 31. desember 2014 1.384 (1.229) 155

Lögbundinn varasjóður

Fært er í lögbundinn varasjóð samkvæmt íslenskum hlutafélagalögum. Ekki er heimilt að greiða lögbundinn varasjóð til hluthafa í formi arðs. Samkvæmt hlutafélagalögum skal leggja í varasjóðinn þar til hann hefur náð 25% af hlutafé.

Þýðingarmunur

Á þýðingarmun er færður allur gengismunur sem verður til vegna umreiknings reikningsskila félaga innan samstæðunar sem er aðskiljanlegur hluti af rekstri móðurfélagsins.

26. Yfirlit yfir dótturfélög

Eignarhluti
í eigu
Eignarhluti
í eigu
Eignarhluti
í eigu
Nafn félags Staðsetning Starfsemi móðurf. samstæðu minnihluta
Hampidjan Baltic UAB Litháen Veiðaf. framl. 100% 100% -
Hampidjan New Zealand LTD Nýja Sjálandi Veiðafærag. 100% 100% -
Hampidjan Canada LTD Kanada Veiðafærag. 100% 100% -
Hampidjan USA Inc Bandaríkin Veiðafærag. 100% 65% 35%
OTTER Ultra Low Drag LTD Cayman Is Eignarh.f. 100% 100% -
Cosmos Trawl A/S Danmörku Veiðafærag. 100% 80% 20%
Swan Net Gundry LTD Írlandi Veiðafærag. 56% 56% 44%
Fjarðanet hf. Íslandi Veiðafærag. 51% 51% 49%

Hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga í lok ársins er 7,8 milljónir evra. Af þeirri fjárhæð er hluti minnihluta í Swan Net Gundry ltd. 5,7 milljónir evra. Aðrir hlutar minnihluta eru í Hampidjan USA, Cosmos Trawl A/S og Fjarðanetum hf.

Swan Net Gundry ltd á írlandi er eina félagið innan samstæðunnar sem telst vera með minnihluta sem er verulegur fyrir samstæðuna. Upplýsingar um efnahag og rekstur félagsins koma fram í skýringu nr. 5 um starfsþætti, starfsþáttur 2.

Í maí mánuði á árinu 2014 keypti Hampidjan USA í Seattle, sem er dótturfélag í 100% eigu Hampiðjunnar, 65% hlut í netaverkstæðinu Swan Net L.L.C í Seattle USA í þeim tilgangi að styrkja starfsemi samstæðunnar á vesturströnd Bandaríkjanna.

Eftirfarandi tafla sýnir kaupverð Hampidjan USA á rekstri Swan Net USA og gangvirði þeirra eigna og skulda sem voru keyptar.

Swan net L.L.C í Seattle USA:

65% eignarhlutur, Hampidjan USA, greitt með peningum 1.651
Ráðstöfun:
Varanlegir rekstrarfjármunir 277
Viðskiptakröfur 926
Aðrir veltufjármunir 1.472
Viðskiptavild, mismunur á kaupverði og gangvirði eigna og skulda 295
Skammtímaskuldir (588)
35% eignarhlutur minnihluta (731)
1.651

Mat eigna á kaupdegi var byggt á bókfærðu virði eignanna þann 31.12.2013. Viðskiptavild var samningsbundin greiðsla fyrir rekstur fyrirtækisins og tók mið af umfangi og verðmæti hans. Meðeigandi Hampidjan USA er framkvæmdastjóri Swan net USA og einn af stofnendum.

Í samstæðureikninginn koma á árinu tekjur frá Swan net USA að fjárhæð 5.190 þús. evrur og hagnaður að fjárhæð 679 þús. evrur.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.