AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Hampiðjan hf.

Annual / Quarterly Financial Statement Mar 22, 2013

6172_10-k_2013-03-22_46361ccb-e356-43dc-8eae-c9e906de19b9.pdf

Annual / Quarterly Financial Statement

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Hampiðjan hf.

Ársreikningur samstæðu 2012

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra 2
Áritun óháðs endurskoðanda 3
Rekstrarreikningur 4
Yfirlit um heildarafkomu 4
Efnahagsreikningur 5
Yfirlit yfir breytingar á eigin fé 6
Sjóðstreymi 7
Skýringar 8 - 26

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra

Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga. Dótturfélögin, sem öll eru hlutafélög, eru Hampidjan New Zealand á Nýja Sjálandi, Hampidjan USA í Bandaríkjunum, Swan Net Gundry á Írlandi, Cosmos Trawl í Danmörku, Hampidjan Canada í Kanada, Hampidjan Baltic í Litháen, Otter Ultra Low Drag á Cayman og Fjarðanet á Íslandi.

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.

Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að gengisáhætta lánsfjár sé á hverjum tíma innan skynsamlegra marka.

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu voru 45,2 milljónir evra en árið áður voru rekstrartekjur 42,4 milljónir evra. Unnin ársverk hjá samstæðunni voru 460, en voru 430 árið áður. Laun og launatengd gjöld námu 11,5 milljónum evra, þar af voru 1,9 milljónir evra launatengd gjöld. Hagnaður ársins var 5,5 milljónir evra en árið áður var hagnaður 7,3 milljónir evrur.

Heildareignir samstæðunnar voru 81,6 milljónir evra í árslok. Eigið fé var 48,7 milljónir evra í árslok en af þeirri upphæð eru 5,6 milljónir evra hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaganna Swan Net Gundry á Írlandi og Fjarðaneta á Íslandi. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er talin með eigin fé, var 60% í árslok. Útgefið hlutafé félagsins er kr. 500 milljónir en útistandandi hlutafé er kr. 486,6 milljónir. Hlutaféð er í einum flokki, sem er skráður á First North, sem er hliðarmarkaður Nasdaq OMX Nordic Exchange. Allir hlutir njóta sömu réttinda. Síðasta skráða viðskiptagengi með hlutabréf félagsins á sl. ári var 9,4.

Fjöldi hluthafa í félaginu var 238 í árslok, en var 235 í ársbyrjun. Í árslok áttu þrír hluthafar yfir 10% eignarhlut af útistandandi hlutafé í félaginu, en það eru Vogun hf. sem átti 38,6%, Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. sem átti 15% og Feier ehf. sem átti 14,1%.

Stjórn Hampiðjunnar hf. hefur sett sér starfsreglur í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga, þar sem valdsvið stjórnar er skilgreint og verksvið hennar gagnvart forstjóra. Í starfsreglum þessum er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku í afgreiðslu mála, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira.

Stjórn Hampiðjunnar hf. leitast við að fylgja Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þó er ekki ljóst hvort stjórn félagsins uppfyllir skilyrði í greinum 2.5 og 2.6, en það er mat stjórnar að viðmið þeirra orki tvímælis.

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2013 verði vegna rekstrarársins 2012 greiddur 30% arður af nafnverði hlutafjár til hluthafa, en vísar að öðru leyti í ársreikninginn varðandi breytingar á eigin fé félagsins.

Stjórn og forstjóri Hampiðjunnar hf. staðfesta hér með ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2012 með undirritun sinni.

Reykjavík 22. mars 2013

Stjórn:

Bragi Hannesson Kristján Loftsson Auður Kristín Árnadóttir Jón Guðmann Pétursson

Forstjóri:

Jón Guðmann Pétursson

Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Hampiðjunnar hf.

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2012. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu,efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnenda á ársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Samkvæmt þeim ber okkur að fara eftir settum siðareglum, skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.

Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar á fjárhæðum og öðrum upplýsingum í ársreikningnum. Val endurskoðunaraðgerða byggir á faglegu mati endurskoðandans, þar með talið á þeirri hættu að verulegir annmarkar séu á ársreikningnum, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka. Við áhættumatið er tekið tillit til þess innra eftirlits félagsins sem varðar gerð og glögga framsetningu ársreikningsins, til þess að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að gefa álit á virkni innra eftirlits fyrirtækisins. Endurskoðun felur einnig í sér mat á því hvort reikningsskilaaðferðir og matsaðferðir sem stjórnendur nota við gerð ársreikningsins séu viðeigandi sem og mat á framsetningu hans í heild og að ganga úr skugga um að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Álit

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðu Hampiðjunnar hf. á árinu 2012, efnahag 31. desember 2012 og breytingu á handbæru fé á árinu 2012, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Reykjavík 22. mars 2013

PricewaterhouseCoopers ehf

Kristinn Freyr Kristinsson Ómar H. Björnsson

Rekstrarreikningur samstæðu

Skýringar 2012 2011
Sala
Beinn framleiðslukostnaður
45.159
(30.238)
42.447
(28.896)
Framlegð 14.921 13.551
Rekstrarkostnaður 8 (8.821) (8.383)
Rekstrarhagnaður fyrir aðrar tekjur (-gjöld) 6.100 5.168
Aðrar tekjur (-gjöld) 6 0 1.405
Rekstrarhagnaður 6.100 6.573
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélags
9
15
(951)
1.359
408
(1.569)
3.452
1.883
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi fyrir skatta 6.508 8.456
Tekjuskattur 10 (991) (962)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi eftir skatta 5.517 7.494
Aflögð starfsemi eftir skatta 11 0 (227)
Hagnaður ársins 5.517 7.267
Skipting hagnaðar
Hluti hluthafa móðurfélagsins
Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga
5.254
263
5.517
6.983
284
7.267
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) 12 1,12 1,46
Yfirlit um heildarafkomu
2012 2011
Hagnaður ársins 5.517 7.267
Rekstrarliðir færðir á eigið fé
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga
Þýðingarmunur vegna aflagðrar starfsemi, færður út
Þýðingarmunur vegna hlutdeildarfélags
Þýðingarmunur vegna skattaáhrifa
(106)
0
95
(54)
(194)
292
(90)
(35)
Heildarafkoma ársins 5.452 7.240
Skipting heildarafkomu
Hluti hluthafa móðurfélagsins
Hluti minnihluta
5.316
136
6.977
263
Heildarafkoma ársins 5.452 7.240

Skýringar á bls. 8 - 26 eru óaðskiljanlegur hluti þessara samstæðureikningsskila

Efnahagsreikningur samstæðu

Eignir 2012 2011
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir
13
32.249 32.623
Óefnislegar eignir
14
4.145 4.269
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi
15
15.677 16.291
Fjárfestingareignir
16
474 476
Tekjuskattsinneign
21
111 137
52.656 53.796
Veltufjármunir
Birgðir
17
15.075 13.665
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
18
9.156 8.780
Handbært fé
19
4.735 3.305
28.966 25.750
Eignir samtals 81.622 79.546
Eigið fé
Hlutafé 5.474 5.536
Yfirverðsreikningur hlutafjár 57 521
Aðrir varasjóðir 169 (207)
Óráðstafað eigið fé 37.416 34.924
43.116 40.774
Hlutdeild minnihluta 5.555 5.419
Eigið fé samtals 48.671 46.193
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir
20
16.185 18.433
Tekjuskattsskuldbinding
21
2.422 2.042
18.607 20.475
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
22
6.031 5.635
Skuldir við lánastofnanir
20
8.313 7.243
14.344 12.878
Skuldir samtals 32.951 33.353
Eigið fé og skuldir samtals 81.622 79.546

Yfirlit um breytingar á eigin fé samstæðu

Hlutafé Yfir
verðs-
reikn
Aðrir
vara-
sjóðir
Óráðst.
eigið fé
Hlutd.
minnihl.
Samtals
Staða 1. janúar 2011
Heildarafkoma:
5.536 521 (201) 28.391 5.990 40.237
Heildarafkoma ársins 2011
Eigendur:
(6) 6.983 263 7.240
Greiddur arður til hluthafa
Keypt af minnihluta
(450) (834) (450)
(834)
0 0 0 (450) (834) (1.284)
Staða 31. desember 2011 / 1. janúar 2012
Heildarafkoma:
5.536 521 (207) 34.924 5.419 46.193
Heildarafkoma ársins 2012
Lr. tekjuskattsskuldb. úr ársreikn. hlutdeildarfél.
62 5.254
(1.683)
136 5.452
(1.683)
Þýðingarmunur breyting 314 (314) 0
Eigendur: 0 0 376 3.257 136 3.769
Greiddur arður til hluthafa (765) (765)
Keypt eigin hlutabréf (62) (464) (526)
(62) (464) 0 (765) 0 (1.291)
Staða 31. desember 2012 5.474 57 169 37.416 5.555 48.671

Sjóðstreymi samstæðu

Skýringar 2012 2011
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður 6.100 6.573
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.657 1.709
Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) 7.757 8.282
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (20) (1.405)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (1.343) 1.050
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 6.394 7.927
Innborgaðir vextir og arður 616 379
Greiddir vextir (1.227) (1.545)
Greiddir skattar (507) (111)
Handbært fé frá rekstri 5.276 6.650
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (980) (614)
Kaup óefnislegra eigna (188) (114)
Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum 2 39
Handbært fé til fjárfestinga (1.166) (689)
Fjármögnunarhreyfingar
Skammtímalán, breyting 949 (5.325)
Afborganir langtímalána (2.338) (3.004)
Breyting á hlutafé (526) 0
Arður greiddur til hluthafa (765) (450)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) (2.680) (8.779)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 1.430 (2.818)
Handbært fé í byrjun árs 19 3.305 6.123
Handbært fé í lok ársins 19 4.735 3.305

1. Almennar upplýsingar

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi að Skarfagörðum 4, Reykjavík.

Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Nasdaq OMX Nordic Exchange.

Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 22. mars 2013.

2. Reikningsskilaaðferðir

Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.

2.1 Grundvöllur reikningsskila

Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2012 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu.

Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð. Ársreikningurinn er birtur í evrum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru í þúsundum evra.

Gerð ársreikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að notaðar séu tilteknar aðferðir við reikningshaldslegt mat. Nánar er greint frá þeim aðferðum í skýringu nr. 4.

2.1.1 Breytingar á reikningsskilaaðferðum og framsetningu

a) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem tóku gildi 1. janúar 2012 og hafa áhrif á ársreikninginn

Engir nýjir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar eða túlkanir tóku gildi 1. janúar 2012 sem talið er að hafi áhrif á ársreikning ársins 2012.

b) Útgefnir staðlar og túlkanir sem ekki hafa tekið gildi.

Eftirfarandi staðlar og túlkanir á gildandi stöðlum hafa verið gefnir út en höfðu ekki tekið gildi í upphafi reikningsársins þann 1. janúar 2012 og höfðu ekki verið innleiddir fyrir gildistíma sinn:

Staðall/túlkun Innihald Gildistökutími
IFRS 9 Fjármálagerningar: Flokkun og mat 1. janúar 2015
IFRS 10 Samstæðurreikningsskil 1. janúar 2013
IFRS 11 Sameiginleg tilhögun 1. janúar 2013
IFRS 12 Skýringar við eignarhluti í öðrum fyrirtækjum 1. janúar 2013
IFRS 13 Mat á markaðsvirði 1. janúar 2013

c) Innleiðing staðla fyrir gildistökutíma þeirra.

Samstæðan innleiddi enga staðla fyrir gildistökutíma þeirra á árinu 2012.

2.2 Samstæðureikningsskil

a) Dótturfélög

Dótturfélög eru öll fyrirtæki þar sem samstæðan hefur vald til að ráða fjárhagslegri og stjórnunarlegri stefnu, sem fylgir að öðru jöfnu eignarhlut með meira en helmingi atkvæðaréttar. Dótturfélög eru að fullu hluti samstæðunnar frá þeim degi þegar yfirráð eru færð yfir til samstæðunnar. Þau eru tekin út úr samstæðunni frá þeim degi þegar yfirráðum lýkur.

Kaupaðferð í reikningshaldi er notuð við færslu kaupa samstæðunnar á dótturfélögum. Kaupverð er metið sem gangvirði tilgreindra eigna sem látnar eru af hendi, útgefinna eiginfjárgerninga og skulda sem stofnað er til eða teknar eru yfir á viðskiptadegi, auk kostnaðar sem rekja má beint til yfirtökunnar. Aðgreinanlegar eignir og skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á yfirtökudegi, án tillits til hversu mikil hlutdeild minnihluta er. Sú fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í yfirteknum aðgreinanlegum hreinum eignum er skráð sem viðskiptavild.

Viðskipti á milli fyrirtækja, innbyrðis stöður og áætlaður óinnleystur hagnaður af færslum á milli fyrirtækja samstæðunnar eru felldar niður í samstæðureikningsskilunum. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt, þar sem þörf er á, til að tryggja samræmi við aðferðir samstæðunnar.

b) Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru rekstrareiningar sem samstæðan hefur veruleg áhrif í en hefur ekki yfirráð yfir. Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð við reikningsskil og eru færðar í upphafi á kostnaðarverði. Hlutur samstæðunnar í hagnaði eða töpum hlutdeildarfélaga eftir kaup er færður í rekstrarreikning og hlutur hennar í hreyfingum eiginfjárreikninga er færður á eigið fé. Uppsafnaðar hreyfingar eftir yfirtöku eru leiðréttar gagnvart bókfærðri fjárhæð fjárfestingarinnar. Þegar hlutur samstæðunnar í tapi hlutdeildarfélagsins er jafnmikill eða meiri en hlutdeild hennar í hlutdeildarfélaginu, þ.m.t. allar aðrar ótryggðar viðskiptakröfur, færir samstæðan ekki frekari tap nema hún hafi stofnað til skuldbindinga eða innt af hendi greiðslur fyrir hönd hlutdeildarfélagsins.

2.3 Starfsþáttaskýrslur

Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar vegna ólíkra efnislegra eða landfræðilegra þátta varðandi áhættu og afkomu en aðrir rekstrarstarfsþættir samstæðunnar. Samstæðan skilgreinir starfsemina í fjóra rekstrarþætti.

2.4 Umreikningur á erlendum gjaldmiðlum

(a) Starfrækslugjaldmiðill og reikningsskilagjaldmiðill

Í reikningsskilum fyrirtækja innan samstæðunnar eru liðir færðir í gjaldmiðli þess efnahagslega umhverfis sem þau starfa í (starfrækslugjaldmiðillinn). Samstæðureikningsskilin eru sett fram í þúsundum evra, sem er bæði starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill samstæðunnar.

(b) Viðskipti og stöður

Viðskipti í erlendum gjaldmiðli eru umreiknuð yfir í starfsrækslugjaldmiðil á því gengi sem er í gildi á viðskiptadeginum. Hagnaður eða tap, sem stafa af uppgjöri slíkra viðskipta og af umreikningi á gengi peningalegra eigna og skulda í erlendri mynt í lok ársins, eru færð í rekstrarreikning.

(c) Félög samstæðunnar

Afkoma og efnahagur félaga samstæðunnar þar sem starfrækslugjaldmiðill er annar en framsetningargjaldmiðilinn, eru umreiknuð í framsetningargjaldmiðilinn með eftirfarandi hætti:

(i) eignir og skuldir efnahagsreiknings eru umreiknaðar á gengi í lok ársins

(ii) liðir rekstrarreiknings eru umreiknaðir á meðalgengi ársins

(iii) allar breytingar á gengi sem af þessu leiða eru færðar sem sérgreindur liður meðal eigin fjár

Viðskiptavild og annað yfirverð vegna kaupa á dótturfélögum eru meðhöndlað sem eignir og skuldir þeirra og umreiknað á gengi í lok ársins.

2.5 Varanlegir rekstrarfjármunir

Til fasteigna teljast fyrst og fremst verksmiðjur, netaverkstæði og skrifstofur. Varanlegir rekstrarfjármunir eru tilgreindir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum afskriftum. Upphaflegt kostnaðarverð felur í sér kostnað sem rekja má beint til kaupa á viðkomandi eignum.

Viðbótarfjárfesting sem fellur til síðar er innifalin í bókfærðu verði eignarinnar eða færð sem sérgreind eign, eftir því sem við á. Það gerist þó einungis þegar líklegt er að efnahagslegur ávinningur, sem tengist fjárfestingunni, muni í framtíðinni renna til samstæðunnar og að unnt sé að meta kostnaðarverð með öruggum hætti. Viðgerðir og viðhald eru gjaldfærðar í rekstrarreikningi á því tímabili þegar stofnað er til þeirra.

Land er ekki afskrifað. Afskriftir annarra eigna eru reiknaðar þannig að mismunur á kostnaðarðverði þeirra og áætluðu hrakvirði er dreift línulega á áætlaðan nýtingartíma eignanna, sem er eftirfarandi:

Vélar og önnur framleiðslutæki 12-15 ár
Bifreiðar 5-9 ár
Fasteignir 25-67 ár
Skrifstofubúnaður, áhöld og þróunarkostnaður 3-5 ár
Einkaleyfi 5-20 ár
Hugbúnaður 5-10 ár

Meiriháttar endurbætur eru afskrifaðar á líftíma viðkomandi eignar eða þeim tíma sem líður að næstu meiriháttar endurbótum, hvort sem skemur er.

Hrakvirði eigna og nýtingartími eru endurskoðað árlega og leiðrétt, ef við á.

Söluhagnaður og -tap reiknast sem mismunur söluverðs að frádregnum kostnaði við söluna og bókfærðs verðs seldra eigna á söludegi. Söluhagnaður og -tap er fært í rekstrarreikning. Þegar endurmetnar eignir eru seldar eru fjárhæðir sem eru innifaldar í öðrum varasjóðum og þeim tengjast, færðar yfir á óráðstafað eigið fé.

2.6 Óefnislegar eignir

(a) Viðskiptavild

Viðskiptavild endurspeglar þá fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði hluta samstæðunnar í hreinum aðgreinanlegum eignum yfirtekins dótturfélags á yfirtökudegi. Viðskiptavild vegna samruna og kaupa dótturfélaga er hluti af óefnislegum eignum samstæðunnar. Viðskiptavild er metin árlega að teknu tilliti til virðisrýrnunar og er bókfærð á kostnaðarverði að frádregnu uppsöfnuðu virðisrýrnunartapi.

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar í því skyni að meta hana með tilliti til virðisrýrnunar. Virðisrýrnun viðskiptavildar, byggð á virðisrýrnunarprófum í samræmi við IAS-staðal 36, er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

(b) Einkaleyfi

Einkaleyfi er tilkomið vegna kaupa á útgefnum einkaleyfum og umsóknum á öðrum einkaleyfum er tengjast framleiðsluvörum samstæðunnar. Einkaleyfin er færð á kaupverði eða áætluðu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

(c) Hugbúnaður

Hugbúnaðarleyfi sem hafa verið keypt eru eignfærð miðað við þann kostnað sem stofnað var til við að kaupa og koma í notkun þessum tiltekna hugbúnaði. Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

2.7 Virðisrýrnun eigna

Eignir sem hafa óskilgreindan líftíma og eru ekki afskrifaðar á kerfisbundinn hátt eru metnar árlega með tilliti til virðisrýrnunar. Eignir sem eru afskrifaðar eru skoðaðar með tilliti til virðisrýrnunar þegar breytingar á umhverfi eða atburðir benda til þess að bókfært verð þeirra sé lægra en endurheimtanlegt virði þeirra. Sérstök niðurfærsla er færð ef endurheimtanlegt virði þeirra, sem er hærra af nettó söluverði og notkunarvirði, er lægra en kostnaðarverð þeirra að frádregnum afskriftum. Í virðisrýrnunarprófi eru eignir flokkaðar eins og mögulegt er svo hægt sé að mæla áætlað sjóðstreymi þeirra.

2.8 Fjárfestingar

Eignarhlutir í öðrum félögum en dóttur- og hlutdeildarfélögum eru flokkaðir sem fjárfestingareignir og færðir á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu vegna virðisrýrnunar.

2.9 Birgðir

Hráefni eru metin á innkaupsverði. Kostnaðarverð vara í framleiðslu og fullunninna vara samanstendur af beinum launa- og efniskostnaði ásamt öðrum kostnaði sem beint eða óbeint tengist framleiðslu varanna. Kostnaðarverð er ákvarðað með því að nota "fyrst inn-, fyrst út" aðferðina (FIFO-aðferðina). Birgðir samanstanda af netum, köðlum, járnavörum, veiðarfærum, vörum í vinnslu og hráefnum til neta, kaðla og hleraframleiðslu. Niðurfærsla er færð á móti vörum sem hreyfast hægt.

2.10 Verk í vinnslu

Umsamin verk í vinnslu eru metin miðað við söluverð að teknu tilliti til framgangs þeirra. Ef ljóst er að tap verður á verkinu þá er það innleyst strax.

2.11 Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að frádreginni niðurfærslu til að mæta þeim kröfum sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati á tapsáhættu gagnvart einstökum kröfum. Kröfur sem eru endanlega tapaðar eru færðar út úr bókum samstæðunnar.

2.12 Handbært fé og ígildi þess

Handbært fé innfelur reiðufé, inneignir í bönkum og aðrar skammtímafjárfestingar sem auðvelt er að skipta í reiðufé og eru með binditíma allt að þrem mánuðum. Yfirdráttur í banka er sýndur í lántöku meðal skammtímaskulda í efnahagsreikningi.

2.13 Hlutafé

Almennir hlutir eru flokkaðir sem eigið fé.

Ef eitthvert félag samstæðunnar kaupir eigið hlutafé félagsins (eigin hlutabréf) er endurgjaldið sem greitt er, að meðtöldum öllum viðbótarkostnaði sem rekja má beint til kaupanna (að frádregnum tekjusköttum), dregið frá eigin fé þar til hlutirnir eru afskrifaðir, endurútgefnir eða þeim ráðstafað. Þegar slíkir hlutir eru síðan seldir eða endurútgefnir er hvers kyns endurgjald sem móttekið er, að frádregnum öllum viðbótarkostnaði við viðskiptin sem má rekja beint til kaupanna og tengdra áhrifa vegna tekjuskatta, innifalið í eigin fé.

2.14 Lántökur

Lántaka er færð í upphafi á gangvirði. Allur lántökukostnaður er gjaldfærður um leið og hann fellur til.

Lán eru flokkuð meðal skammtímaskulda ef þau gjaldfalla innan 12 mánaða annars eru þau flokkuð meðal langtímaskulda.

2.15 Frestaður tekjuskattur

Frestaður tekjuskattur af tímabundnum mismunum milli skattverðs eigna og skulda og bókfærðra fjárhæða þeirra í samstæðureikningsskilunum er færður að fullu til skuldar. Frestaður tekjuskattur er hins vegar ekki færður ef hann myndast vegna upphaflegrar færslu eignar eða skuldar í öðrum viðskiptum en sameiningu fyrirtækja sem hefur hvorki áhrif á reikningshaldslegan né skattskyldan hagnað eða tap. Frestaður tekjuskattur er ákvarðaður með því að nota skatthlutföll sem hafa verið lögleidd fyrir dagsetningu efnahagsreiknings eða fyrir liggur að verði lögleidd og vænst er að verði í gildi þegar tengd frestuð skattinneign er innleyst eða frestaða tekjuskattskuldbindingin er gerð upp.

Frestaður tekjuskattur vegna tímabundinna mismuna sem stafa af fjárfestingum í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum er færður nema þegar samstæðan stjórnar því hvenær tímabundni mismunurinn er bakfærður og líklegt er að tímabundni mismunurinn muni ekki snúast við í fyrirsjáanlegri framtíð.

Frestaðar skattinneignir eru færðar að því marki sem líklegt er að unnt verði að nýta tímabundna mismuni á móti skattalegum framtíðarhagnaði.

2.16 Starfsmannasamningar Ágóðahlutir og bónusgreiðslur

Undir vissum kringumstæðum er færð skuldbinding vegna lykilstarfsmanna vegna áunninna réttinda til ágóðahluta. Til þess að svo sé þarf ákvörðun um greiðslu að liggja fyrir áður en reikningsskilin eru gefin út.

2.17 Aðrar skuldbindingar

Aðrar skuldbindingar eru færðar þegar samstæðan hefur tekið á sig skuldbindingu vegna liðinna atburða, líkur eru taldar á að til greiðslu þeirra komi og hægt er að mæla þær með ábyggilegum hætti. Samstæðan veitir ábyrgð á vissum vörum og skuldbindur sig til þess að gera við vörur sem vinna ekki með eðlilegum hætti.

2.18 Innlausn tekna

Tekjur samanstanda af gangvirði vegna sölu á vörum og þjónustu, að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti og eftir að innbyrðis sala innan samstæðunnar hefur verið felld niður.

(a) Sala á vöru og þjónustu

Sala á vöru er færð á því reikningsskilatímabili sem varan er afhent og sala á þjónustu er færð á því reikningstímabili sem þjónustan er innt af hendi með áfangaaðferð. Þjónustutekjur eru hluti af sölutekjum í rekstrarreikningi.

(b) Vaxtatekjur

Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning með aðferð virkra vaxta vegna allra fjármálagerninga sem færðir eru á kostnaðarverði.

(c) Arðstekjur

Arðstekjur eru færðar þegar réttur til að taka á móti greiðslu er fastsettur.

2.19 Leigusamningar

Fjárhæðir vegna kaup- og rekstrarleiga eru óverulegar hjá samstæðunni.

2.20 Úthlutun arðs

Úthlutun arðs til hluthafa félagsins er færð sem skuld í reikningsskil samstæðunnar á því tímabili sem hluthafar félagsins samþykkja arðgreiðslurnar.

3. Fjárhagsleg áhættustjórnun

Samstæðan starfar í umhverfi með ýmiss konar fjárhagsáhættu, þar með talið lánsáhættu, lausafjáráhættu og markaðsáhættu. Heildaráætlun samstæðunnar um áhættustjórnun beinist fyrst og fremst að ófyrirséðri hegðun fjármálamarkaða og með henni er reynt að draga sem mest úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum á rekstrarárangur samstæðunnar.

Stjórn móðurfélagsins ber ábyrgð á að innleiða og hafa eftirlit með áhættustýringu samstæðunnar. Stjórnin hefur falið forstjóra móðurfélagsins umsjón með daglegri áhættustýringu samstæðunnar.

(a) Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna.

Margir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna.

Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna.

Ábyrgðir

Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum eða móðurfélagi ábyrgðir. Þann 31. desember 2012 voru engar umtalsverðar ábyrgðir í gildi.

Mesta mögulegt tap vegna lánsáhættu án tillits til veða

Eftirfarandi tafla sýnir mesta mögulega tap vegna lánsáhættu án tillits til veða þann 31. desember 2012 og 2011. Fyrir efnahagsliði er mesta mögulega tapið byggt á bókfærðu verði eignanna á uppgjörsdegi.

Mesta mögulega tap
Lánsáhætta tengd efnahagsliðum 2012 2011
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 9.156 8.780
Handbært fé 4.735 3.305
Samtals mesta mögulega tap vegna lánsáhættu 13.891 12.085

b) Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla.

Taflan hér að neðan greinir skuldir samstæðunnar í flokka eftir gjalddögum þeirra. Upphæðir í töflunni eru ónúvirtar samningsbundnar greiðslur.

Staða 31. desember 2012 Sjóðstreymi
Bókfært
verð
skv.
samningum
Innan
1 árs
1 - 2 ár 2 - 5 ár Yfir 5 ár
Lántökur 24.498 25.947 8.961 14.606 939 1.441
Viðskiptaskuldir 6.031 6.031 6.031 0 0 0
30.529 31.978 14.992 14.606 939 1.441

b) Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla, vaxta og gengi hlutabréfa hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum.

Gjaldmiðlagengisáhætta

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðlum einstakra samstæðufélaga. Helstu starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru evrur (EUR) og íslenskar krónur (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru ISK.

Lítilsháttar lántaka samstæðunnar í öðrum gjaldmiðlum en evrum myndar gengisáhættu sem ekki er varin.

Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru að stærstum hluta með breytilegum vöxtum.

Önnur markaðsverðsáhætta

Önnur markaðsverðsáhætta samstæðunnar er aðallega fólgin í fjárfestingu í hlutdeildarfélaginu HB Granda hf.

3.1 Áhættustýring eiginfjár

Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að viðhalda getu hennar til áframhaldandi reksturs til að greiða eigendum sínum arð.

Félagið getur breytt aðrgreiðslustefnu, endurgreitt hlutafé, gefið út nýtt hlutafé eða selt eignir til að minnka skuldir til að viðhalda eða lagfæra skipulag fjármögnunar.

Eftirfarandi tafla sýnir fjármögnun samstæðunnar og eiginfjárhlutfall (fjárhæðir í þúsundum evra):

2012 2011
Lántökur, langtíma 16.185 18.433
Lántökur, skammtíma 8.313 7.243
Frádregið: Handbært fé (4.735) (3.305)
Skuldir nettó 19.763 22.371
Eigið fé 48.671 46.193
Fjármögnun samtals 68.434 68.564
Eiginfjárhlutfall 60% 58%

4. Mikilvæg atriði sem varða reikningshaldslegt mat

Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Farið yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er í eðli sínu sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.

5. Starfsþáttayfirlit Rekstrarstarfsþættir

Samstæðan skiptist í fjóra starfsþætti eftir félögum innan samstæðunnar:

Starfsþáttur 1. Starfsemi móðurfélagsins á Íslandi og Otter, sem er veiðarfæragerð, endursala og fjárfestingar, ásamt starfsemi Hampidjan Baltic í Litháen, sem er verksmiðjuframleiðsla neta, kaðla og ofurtógs.

Starfsþáttur 2. Starfsemi veiðarfærfélagsins Swan Net Gundry.

Starfsþáttur 3. Starfsemi veiðarfærafélagsins Cosmos Trawl.

Starfsþáttur 4. Starfsemi veiðarfærafélaganna Hampidjan New Zealand, Hampidjan Canada, Hampidjan USA og Fjarðaneta.

2012 Starfsþ.
(1)
Starfsþ.
(2)
Starfsþ.
(3)
Starfsþ.
(4)
Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 41.272 9.217 6.950 8.993 (21.274) 45.159
Beinn framl.kostn (32.355) (6.729) (5.552) (6.876) 21.274 (30.238)
8.917 2.488 1.399 2.117 14.921
Rekstrarkostnaður (4.234) (1.948) (837) (1.799) (8.821)
4.683 540 562 317 6.100
11% 6% 8% 4% 14%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (725) (52) (111) (65) (952)
Hlutdeildarafkoma 1.359 0 0 0 1.359
Tekjuskattur (809) (16) (114) (52) (991)
Hagnaður ársins 4.508 472 337 200 5.516
Fastafjármunir 45.545 7.493 3.074 858 (4.315) 52.656
Veltufjármunir 24.491 6.317 2.697 6.229 (10.768) 28.966
Langtímaskuldir 16.158 799 1.361 288 18.607
Skammtímaskuldir 24.276 1.310 1.735 2.103 (15.081) 14.344
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.230 215 162 50 1.657
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (816) (178) (116) (57) (1.168)
EBITDA 5.913 755 724 367 7.757
Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ.
2011 (1) (2) (3) (4) Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 36.563 8.865 6.546 9.531 (19.058) 42.447
Beinn framl.kostn (28.916) (6.391) (5.270) (7.377) 19.058 (28.896)
7.647 2.474 1.276 2.154 13.551
Rekstrarkostnaður (3.915) (1.944) (808) (1.716) (8.383)
3.732 530 468 438 5.168
10% 6% 7% 5% 12%
Aðrar tekjur 1.405 1.405
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (1.340) (55) (125) (49) (1.569)
Hlutdeildarafkoma 3.452 0 0 0 3.452
Tekjuskattur (826) (15) (87) (34) (962)
Aflögð starfsemi e. skatta 0 0 0 (227) (227)
Hagnaður ársins 6.423 460 256 128 7.267
Fastafjármunir 46.576 7.513 3.127 898 (4.318) 53.796
Veltufjármunir 20.808 6.192 2.164 6.616 (10.030) 25.750
Langtímaskuldir 17.837 895 1.356 387 20.475
Skammtímaskuldir 21.768 1.509 1.587 2.362 (14.348) 12.878
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.152 263 174 120 1.709
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (435) (231) (22) (40) (728)
EBITDA 6.291 793 642 556 8.282
6. Aðrar tekjur (-gjöld) 2012 2011
Aðrar tekjur (-gjöld) greinast þannig:
Hagnaður (tap) vegna sölu varanlegra rekstrarfjármuna og einkaleyfa 0 1.405
7. Laun og launatengd gjöld
Starfsmannamál 2012 2011
Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
Laun 9.600 8.758
Launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður 1.910 1.775
11.510 10.533
Meðalfjöldi starfsmanna á árinu. 460 430
Félagið hefur ekki gert neina samninga við starfsmenn eða stjórnendur um lífeyris- eða eftirlaunagreiðslur.
Laun og launatengd gjöld skiptast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi 2012 2011
Framleiðslukostnaður 7.455 6.828
Annar rekstrarkostnaður 4.055 3.705
11.510 10.533
8. Rekstrarkostnaður sundurliðast þannig 2012 2011
Sölu -stjórnunar og markaðskostnaður 7.861 7.542
Afskrifaðar viðskiptakröfur 86 (60)
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna 486 503
Annar kostnaður 388 398
8.821 8.383
9. Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 2012 2011
Vaxtatekjur 150 173
Vaxtagjöld (1.184) (1.518)
Gengismunur 0 (204)
Söluhagnaður (-tap) hlutabréfa, fenginn arður 83 (20)
(951) (1.569)
10. Tekjuskattur 2012 2011
Tekjuskattur til greiðslu 593 573
Frestaður tekjuskattur (Skýring 21) 398 389
991 962
Reiknaður tekjuskattur af hagnaði samstæðunnar fyrir skatta (virkur tekjuskattur) er frábrugðinn þeirri fjárhæð sem kæmi út ef
tekjuskattshlutfall er notað til útreikningsins sem hér greinir:
Hagnaður fyrir skatta
6.508 8.456
Reiknaður tekjuskattur með tekjuskattshlutfalli viðkomandi lands 957 891
Varanlegir mismunir 44 92
Nýting á yfirfæranlegu tapi sem ekki hefur verið tekið tillit til (10) (21)
Tekjuskattur samkvæmt rekstrarreikningi 991 962

11. Aflögð starfsemi eftir skatta

Á árinu 2011 var dótturfélagið Hampidjan Namibia ltd selt f. EUR 1.030 þúsund. Einnig var dótturfélaginu Balmar Fios lda í Portúgal formlega lokað á því ári.

Tekjur og (gjöld) vegn aflagðrar starfsemi greinast þannig: 2012 2011
Rekstrartekjur 0 851
Rekstrargjöld 0 (829)
Tekjuskattur 0 (8)
0 14
Hagnaður af sölu eigna 0 51
Uppsafnaður þýðingarmunur færður út 0 (292)
0 (227)

12. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila þeim hagnaði sem skipta má á hluthafa í móðurfélaginu með vegnu meðaltali almennra hluta sem gefnir eru út á árinu, að undanskildum almennum hlutum sem félagið hefur keypt og heldur sem eigin hlutum.

2012 2011
Hagnaður á árinu (þúsundir evra) 5.517 7.267
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta (í þúsundum) 491.593 496.746
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent) 1,12 1,46

Heildarfjöldi hluta nemur 500 milljónum, þar af eru eigin hlutir 13,4 milljón, hver að nafnverði 1 ISK. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Engin breyting varð á fjölda hluta á árinu.

13. Varanlegir rekstrarfjármunir

Vélar, áhöld
Fasteignir og tæki Samtals
Staða 1. janúar 2011
Kostnaðarverð 26.986 15.386 42.372
Uppsafnaðar afskriftir (2.656) (7.462) (10.118)
Bókfært verð 24.330 7.924 32.254
Miðað við 31. desember 2011
Bókfært verð í 1. janúar 2011 24.330 7.924 32.254
Gengismunir 43 (64) (21)
Viðbætur 160 1.989 2.149
Selt og aflagt (338) (41) (379)
Afskriftir (318) (1.062) (1.380)
Bókfært verð 31. desember 2011 23.877 8.746 32.623
Staða 1. janúar 2012
Kostnaðarverð
26.854 17.161 44.015
Uppsafnaðar afskriftir (2.977) (8.415) (11.392)
Bókfært verð 23.877 8.746 32.623
Miðað við 31. desember 2012
Bókfært verð í byrjun árs 23.877 8.746 32.623
Gengismunir (24) (7) (31)
Viðbætur 167 911 1.078
Selt og aflagt 0 (77) (77)
Afskriftir (317) (1.027) (1.344)
Bókfært verð 31. desember 2012 23.703 8.546 32.249
Staða 31. desember 2012
Kostnaðarverð 26.948 16.662 43.610
Uppsafnaðar afskriftir (3.247) (8.114) (11.361)
Bókfært verð 31. desember 2012 23.701 8.548 32.249
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2012 2011
Framleiðslukostnaður 1.026 1.054
Annar rekstrarkostnaður 318 326
1.344 1.380

Alþjóðleg fjármálakreppa hefur óvíða valdið jafn miklum erfiðleikum og í þeim þrem löndum þar sem meginhluti samstæðu Hampiðjunnar er staðsettur, þ.e. á Íslandi, Írlandi og í Litháen. Þó svo almenn rekstrarskilyrði fyrir framleiðsluiðnað hafi á ýmsan hátt batnað, m.a. vegna lækkunar á raungengi íslensku krónunnar og minni kostnaðarþenslu í viðkomandi löndum, hefur skarpur samdráttur í eftirspurn dregið verulega úr markaðsverðmæti ýmissa eigna samstæðunnar, ekki síst atvinnuhúsnæði. Þá hefur aðgengi samstæðunnar að samkeppnishæfri lánsfjármögnun minnkað.

14. Óefnislegar eignir

vild
Einkaleyfi Hug-búnaður
Samtals
Staða 1. janúar 2011
Kostnaðarverð
2.397
2.976
1.614
6.987
Uppsafnaðar afskriftir
(230)
(1.142)
(1.019)
(2.391)
Bókfært verð
2.167
1.834
595
4.596
Miðað við 31. desember 2011
Bókfært verð í 1. janúar 2011
2.167
1.834
595
4.596
Viðbætur
0
63
50
113
Selt og aflagt
0
(111)
0
(111)
Afskriftir
0
(206)
(123)
(329)
Bókfært verð 31. desember 2011
2.167
1.580
522
4.269
Staða 1. janúar 2012
Kostnaðarverð
2.397
2.890
1.246
6.533
Uppsafnaðar afskriftir
(230)
(1.310)
(724)
(2.264)
Bókfært verð
2.167
1.580
522
4.269
Miðað við 31. desember 2012
Bókfært verð í byrjun árs
2.167
1.580
522
4.269
Viðbætur
0
0
189
189
Afskriftir
0
(189)
(124)
(313)
Bókfært verð 31. desember 2012
2.167
1.391
587
4.145
Staða 31. desember 2012
Kostnaðarverð
2.397
2.890
1.333
6.620
Uppsafnaðar afskriftir
(228)
(1.499)
(748)
(2.475)
Bókfært verð 31. desember 2012
2.169
1.391
585
4.145
Afskriftir óefnislegra eigna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2012
2011
Framleiðslukostnaður
144
152
Annar rekstrarkostnaður
169
177
313
329
Viðskipta

Virðisrýrnunarpróf vegna viðskiptavildar:

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar samstæðunnar (CGU) og er skilgreind eftir því í hvaða landi (félagi) reksturinn er.

Endurheimtanleg fjárhæð fjárskapandi rekstrareininga er ákvörðuð miðað við útreikning á notkunarvirði. Tekið er tillit til skilgreiningar á hinni fjárskapandi einingu sem viðskiptavildinni fylgir við mat á virðisrýrnun hennar og undirliggjandi fastafjármuna. Útreikningar byggja á áætluðuð fjárstreymi fyrir næstu 2 ár, ásamt eilífðarvirði út frá þeim tíma. Gert er ráð fyrir 2,5% nafnverðsvexti á fjárflæði í eilífðarvexti. Gerð er 7,0% vegin nafnverðskrafa á fjárflæði fyrir skatta. Um er að ræða ávöxtunarkröfu sem til samræmis við uppruna fjárstreymisins, er gert miðað við mynd þess fjárstreymis sem um ræðir.

Áætluð framlegð er eins og stjórnendur hafa ákvarðað hana miðað við fyrri árangur og væntingar þeirra um markaðsþróun. Veginn meðalvaxtarhraði sem notaður er miðast við spár sem fram koma í atvinnugreinaskýrslum. Afvöxtunarstuðlarnir eru fyrir tekjuskatt og endurspegla sérstaka áhættu sem tengist tengdum starfsþáttum.

Útreikningar á endurheimtanlegri fjárhæð leiddi ekki til virðisrýrnunartaps á árunum 2012 og 2011.

15. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig: Hlutdeild Bókfært
Eignarhluti í hagnaði verð
HB Grandi hf 9,43% 1.359 15.677
Samandregnar fjárhagsupplýsingar um hlutdeildarfélag í þús. evra: 2012 2011
Eignir samtals 304.393 322.892
Skuldir samtals 138.196 150.187
Eigið fé hluthafa móðurfélagsins 166.197 172.705
Hagnaður hluthafa móðurfélagsins 14.419 36.596

Hampiðjan, ásamt þremur öðrum félögum, keypti í ágúst 1988 eignarhlut Reykjavíkurborgar í Granda hf., sem var þá 78% af útgefnu hlutafé þess félags. Frá þeim tíma hafa þrjú þessara félaga, Hampiðjan hf., Hvalur hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus ehf. verið kjölfestueigendur félagsins. Hampiðjan hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. og Vogun, dótturfélag Hvals hf., áttu í árslok 2012 samtals 53,2% af útistandandi hlutafé HB Granda hf. Hampiðjan hefur haft aðkomu að stefnumótun HB Granda og lykilákvörðunum þess. Skv. IAS 28 skilgreinir félagið HB Granda sem hlutdeildarfélag og færir hlutabréfaeign sína í ársreikninginn samkvæmt því. Síðasta skráða viðskiptagengi ársins með hluti í HB Granda hf. var 15 og er markaðsvirði eignarhluta Hampiðjunnar, ef miðað er við það gengi, 14,1 milljón evra sem er 1,6 milljónum evra lægra en bókfært er í ársreikningnum.

16. Fjárfestingareignir

Fjárfestingareignir á kostnaðarverði greinast þannig:

2012 2011
Síldarvinnslan hf 175 175
P/F Von 115 115
Thyboron Skibssmedie A/S 182 182
Önnur félög 2 4
474 476

17. Birgðir

Birgðir greinast þannig: 2012 2011
Net, kaðlar, járnavara, veiðarfæri og aðrar afurðir 12.752 11.881
Vörur í vinnslu
Hráefni fyrir hlera, neta- og kaðlaframleiðslu
1.032
1.291
1.068
716
15.075 13.665

Birgðir eru færðar niður vegna aldurs um 800 þúsund evrur í efnahagsreikningi samstæðunnar. Árið áður voru birgðir færðar niður um 870 þúsund evrur.

18. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur greinast þannig: 2012 2011
Viðskiptakröfur 8.983 8.508
Niðurfærsla viðskiptakrafna (367) (363)
Viðskiptakröfur nettó í árslok 8.616 8.145
Skuldabréf og aðrar kröfur 540 635
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur í árslok 9.156 8.780

Viðskiptakröfur eru færðar niður um 367 þúsund evrur í efnahagsreikningi samstæðunnar og greinist niðurfærslureikningurinn á eftirfarandi hátt:

2012 2011
Niðurfærsla í byrjun árs 363 385
Endanlega tapaðar kröfur á árinu (82) 38
Breyting niðurfærslu á árinu 86 (60)
367 363
19. Handbært fé
2012 2011
Handbært fé í banka sem reiðufé og aðrar skammtímafjárfestingar 4.735 3.305

20. Lántökur

Langtímaskuldir greinast þannig í efnahagsreikningi:

Skuldir í erlendum gjaldmiðlum 18.345
Skuldir í íslenskum krónum 85
18.430

Lántökur eru tryggðar með lóðum, fasteignum og birgðum í eigu samstæðunnar. Eignir sem keyptar hafa verið með kaupleigu eru veðsettar með viðkomandi eignum til tryggingar eftirstöðvum skulda.

Langtímaskuldir greinast þannig eftir gengistryggingarákvæðum: Hlutfall Staða
ISK 0,5% 85
EUR 84,5% 15.573
USD 4,3% 797
CHF 3,6% 659
DKK 7,1% 1.316
100% 18.430
Afborganir af langtímaskuldum félagsins í lok ársins samkvæmt lánasamningum frá lánastofnunum, greinast þannig á næstu
ár:
Árið 2013 2.245
Árið 2014 14.247
Árið 2015 225
Árið 2016 229
Síðar 1.484
18.430
Skuldir við lánastofnanir koma þannig fram í efnahagsreikningi:
Afborganir með gjalddaga eftir eitt ár eða síðar meðal langtímaskulda 16.185
Afborganir næstu 12 mánaða, færðar á meðal skammtímaskulda 2.245
Bankalán til skammtíma færðar meðal skammtímaskulda 6.068
8.313

21. Frestaður tekjuskattur

Frestuð tekjuskattsskuldbinding nettó greinist þannig á eftirfarandi liði: 2012 2011
Tekjuskattskuldbinding í ársbyrjun 1.905 1.537
Tekjuskattur á tímabilinu 991 962
Tekjuskattur til greiðslu (593) (573)
Tekjuskattur færður yfir eigið fé 8 (21)
Tekjuskattskuldbinding í lok ársins 2.311 1.905
Frestuð tekjuskattsskuldbinding greinist þannig á eftirfarandi liði: 2012 2011
Varanlegir rekstrarfjármunir 2.604 2.370
Aðrir efnahagsliðir (56) (116)
Yfirfæranlegt skattalegt tap (126) (212)
2.422 2.042
Frestuð tekjuskattsinneign greinist þannig á eftirfarandi liði: 2012 2011
Yfirfæranlegt skattalegt tap (111) (137)
22. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 2012 2011
Viðskiptaskuldir 4.397 4.117
Aðrar skammtímaskuldir 1.634 1.518
6.031 5.635

23. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila:

Dótturfélög, hlutdeildarfélög, stjórnarmenn og stjórnendur teljast vera tengdir aðilar samstæðunnar.

Tengdir aðilar með veruleg áhrif:

Samstæðan átti viðskipti á árinu við hlutdeildarfélagið HB Granda hf. og voru viðskiptin við félagið eins og um ótengdan aðila væri að ræða.

Viðskipti við stjórn og stjórnendur:

Laun til stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir þeirra í félaginu greinast þannig:

Laun Fjöldi hluta
í árslok*
Forstjóri, greidd laun og hlunnindi 200 56
Sjö framkvæmdastjórar: Greidd laun og hlunnindi 588
Árangurstengdir bónusar til stjórnenda 575
Samtals 1.363
Greidd stjórnarlaun og hlutafjáreign stjórnarmanna 30 51.720

*Hlutir eru að nafnverði í þúsundum IKR Samningur er við forstjóra félagsins um bónusgreiðslur sem taka mið af gengi hlutabréfa Hampiðjunnar á hlutabréfamarkaði. Bónusinn nemur 4% af verðmætaaukningu félagsins umfram það sem gengið 9,4 gefur.

24. Vátryggingar

Samstæðan hefur keypt rekstrarstöðvunartryggingar sem ætlað er að bæta tjón vegna rekstrarstöðvunar í allt að 12 mánuði á grundvelli skilmála um eignatryggingar. Tryggingarfjárhæðin nemur allt að 16,6 milljónum evra. Vátryggingarverðmæti fasteigna samstæðunnar nemur 30,8 milljónum evra, framleiðsluvéla og -tækja, ásamt hug- og skrifstofubúnaðar 28,9 milljónum evra og vörubirgða 15,7 milljónum evra.

25. Árshelmingayfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:

júlí - des.
2012
jan.-jún.
2012
júlí - des.
2011
jan.-jún.
2011
júlí - des.
2010
Rekstrartekjur 21.271 23.888 23.899 19.953 17.874
Rekstrargjöld án afskrifta (17.716) (19.686) (19.001) (16.569) (16.032)
Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) 3.555 4.202 4.898 3.384 1.842
Afskriftir (790) (867) (850) (859) (951)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 2.765 3.335 4.048 2.525 891
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 1.030 (622) 1.226 430 308
Hagnaður fyrir skatta 3.795 2.713 5.274 2.955 1.199
Tekjuskattur (482) (509) (655) (307) (171)
Hagnaður árshelminga 3.313 2.204 4.619 2.648 1.028

Tölur í árshelmingayfirliti eru óendurskoðaðar

26. Aðrir varasjóðir

26. Aðrir varasjóðir Lögbundinn
varasjóður
Þýðingar
munur
Samtals
Staða 1. janúar 2011 1.384 (1.585) (201)
Þýðingamunur ársins (298) (298)
Þýðingamunur vegna aflagðrar starfsemi færður út 292 292
Staða 31. desember 2011 1.384 (1.591) (207)
Staða 1. janúar 2012 1.384 (1.591) (207)
Þýðingamunur ársins 61 61
Þýðingamunur færður út 315 315
Staða 31. desember 2012 1.384 (1.215) 169

Lögbundinn varasjóður

Fært er í lögbundinn varasjóð samkvæmt íslenskum hlutafélagalögum. Ekki er heimilt að greiða lögbundinn varasjóð til hluthafa í formi arðs. Samkvæmt hlutafélagalögum skal leggja í varasjóðinn þar til hann hefur náð 25% af hlutafé.

Þýðingarmunur

Á þýðingarmun er færður allur gengismunur sem verður til vegna umreiknings reikningsskila félaga innan samstæðunar sem er aðskiljanlegur hluti af rekstri móðurfélagsins.

27. Yfirlit yfir dótturfélög

Hluti í afk. Eignarhluti Eignarhluti Staðsetning
Hampidjan Baltic UAB 962 9.313 100% Litháen
Hampidjan New Zealand LTD 42 1.375 100% Nýja Sjálandi
Hampidjan Canada LTD 82 857 100% Kanada
Hampidjan USA Inc (41) 1.577 100% Bandaríkjunum
OTTER Ultra Low Drag LTD 8 1.244 100% Cayman Island
Cosmos Trawl A/S 337 2.675 100% Danmörku
Swan Net Gundry LTD 265 6.579 56,3% Írlandi
Fjarðanet hf. 59 451 51,0% Íslandi
1.715 24.071

Dótturfélaginu Hampidjan HiTec Ropes AS í Noregi var formlega lokað á árinu.

28. Rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og sjóðstreymi móðurfélagsins

Rekstrarreikningur 2012 2011
Sala 25.217 22.918
Beinn framleiðslukostnaður (18.687) (17.081)
Framlegð 6.530 5.837
Rekstrarkostnaður (3.123) (2.817)
Rekstrarhagnaður fyrir aðrar tekjur (-gjöld) 3.406 3.020
Aðrar tekjur (-gjöld) 0 1.409
Rekstrarhagnaður 3.406 4.429
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (686) (1.555)
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga 1.359 3.452
Hlutdeild í hagnaði dótturfélaga 1.715 1.339
Hagnaður fyrir skatta 5.795 7.665
Tekjuskattur (540) (682)
Hagnaður ársins 5.254 6.983
Efnahagsreikningur 2012 2011
Eignir
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir 11.731 11.645
Óefnislegar eignir 1.169 1.222
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 15.677 16.291
Eignarhlutir í öðrum félögum 472 472
Eignarhlutir í dótturfélögum 24.071 22.582
Lán til dótturfélaga 4.315 4.318
57.435 56.530
Veltufjármunir
Birgðir 4.388 4.203
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.966 2.804
Viðskiptakröfur á dótturfélög 6.872 7.119
Handbært fé 1.036 534
16.262 14.660
Eignir samtals 73.697 71.190
Eigið fé
Hlutafé
Yfirverðsreikningur hlutafjár
Aðrir varasjóðir
Óráðstafað eigið fé
5.474
57
169
37.416
5.536
521
(207)
34.924
Skuldir 43.116 40.774
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir 15.261 17.220
Tekjuskattsskuldbinding 1.747 1.536
17.008 18.756
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 2.488 2.622
Skuldir við lánastofnanir 7.966 6.850
Skuld við dótturfélög 3.119 2.188
13.573 11.660
Skuldir samtals 30.581 30.416
Eigið fé og skuldir samtals 73.697 71.190
Sjóðstreymi 2012 2011
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður 3.517 4.429
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir
456 453
Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) 3.973 4.882
Sölutap varanlegra rekstrarfjármuna 0 (1.409)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (133) (2.165)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 3.839 1.308
Innborgaðir vextir og arður 504 288
Greiddir vextir (921) (1.299)
Greiddir skattar (398) (124)
Handbært fé frá rekstri 3.024 173
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (335) 1.362
Kaup óefnislegra eigna (154) (114)
Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum 247 3.133
Skuldabréf og langtímakröfur, breyting 3 9
Handbært fé frá fjárfestingum (til fjárfestinga) (239) 4.390
Fjármögnunarhreyfingar
Skammtímalán, breyting 949 (5.058)
Afborganir langtímalána (1.941) (1.918)
Breyting á hlutafé (526) 0
Arður greiddur til hluthafa (765) (451)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) (2.282) (7.427)
Lækkun á handbæru fé 503 (2.864)
Handbært fé í byrjun árs 534 3.398
Handbært fé í lok ársins 1.036 534

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.