AI assistant
Hampiðjan hf. — AGM Information 2020
May 14, 2020
6172_rns_2020-05-14_621fc0fe-d8ce-43e8-886f-ee8088f22458.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 29. maí 2020, kl. 16:00
Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 29. maí 2020, kl. 16:00
Dagskrá
-
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2019.
-
Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2019.
-
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
-
Kosning stjórnar félagsins.
-
Kosning endurskoðunarfélags.
-
Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
-
Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Tillögur
Um greiðslu arðs:
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2020 vegna rekstrarársins 2019 verði greiddar 1,15 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 563 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 30.
Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 29. maí 2020, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 3. júní.
Arðleysisdagurinn er 2. júní.
Um þóknun til stjórnarmanna:
Þókunun til stjórnarmanna verði 210.000 kr. á mánuði árið 2020, formaður fái þrefaldan hlut.
Um endurskoðunarfélag:
PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.
Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 29. maí 2020 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Viðhengi: