AGM Information • Mar 21, 2016
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 331476
Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 18. mars 2016, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2015 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Rvk. Meðstjórnendur Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Rvk. Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfirði. Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagarðar 12, Seltjarnarnesi Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, Kópavogi Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 18. mars 2016 samþykkir að greiddar verði 0,84 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 410 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 19. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 18. mars 2016, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 22. mars. Arðleysisdagurinn er 21. mars. Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 1.450.000, formaður fái þrefaldan hlut. Tillaga um endurskoðunarfélag Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 18. mars 2016 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.