Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hampiðjan hf. AGM Information 2015

Mar 13, 2015

6172_rns_2015-03-13_768fa892-638e-418c-a59d-9f606c9ab51e.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. 27. mars 2015

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. 27. mars 2015

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 27. mars 2015 og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins verða:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.

  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
    hlutafélagalaga.

  3. Breytingar á samþykktum félagsins en nýjar samþykktir verða bornar upp í
    heild sinni því breytingarnar eru margþættar. Þær miða aðalega að því að
    auka möguleika á rafrænum samskiptum og skráningu ásamt því að fella inn
    ákvæði um kynjahlutföll og starfskjarastefnu og tryggja samræmi milli
    samþykktana og núverandi lagaákvæða.

  4. Önnur mál, löglega upp borin.

Dagskrá, endanlegar tillögur, tillaga að nýjum samþykktum, svo og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
tveimur vikum fyrir aðalfund.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar.

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.

Stjórn Hampiðjunnar hf.

Viðhengi: