Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Proxy Solicitation & Information Statement 2015

Jun 1, 2015

2196_rns_2015-06-01_d550d37b-9fea-4fe0-8e4f-880df32bdc85.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf. - Framboð til stjórnar á aðalfundi 4. júní 2015

Hagar hf. - Framboð til stjórnar á aðalfundi 4. júní 2015

Aðalfundur Haga hf. verður haldinn fimmtudaginn 4. júní 2015. Fundurinn fer
fram á Hilton Reykjavík Nordica (VOX club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og
hefst hann kl. 09:00.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 30. maí sl. Eftirtaldir
einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Stjórnarmenn:

  1. Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
  2. Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
  3. Salvör Nordal, kt. 211162-5119
  4. Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529
  5. Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því
sjálfkjörið. Önnur framboð bárust ekki. Er það mat stjórnar að öll framboð séu
gild.

Erna Gísladóttir

Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. mars 2010. Hún er menntuð MBA
frá IESE Barcelona og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri
og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri
Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en
hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna
félaga: EGG ehf., EGG fasteignir ehf., Eldhúsvörur ehf., Hregg ehf., BL ehf.,
BLIH eignarhald hf., SF1 slhf., SF1 GP ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd
Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf.

Kristín Friðgeirsdóttir

Kristín var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 11. maí 2011. Hún er Ph.D. í
rekstrarverkfræði frá Stanford University, M.Sc. í rekstrarverkfræði frá
Stanford University og B.Sc. í véla- og iðnaðarverk-fræði frá Háskóla Íslands.
Kristín kennir við London Business School og stundar ráðgjöf, rannsóknir og
kennslu á sviði ákvarðanatöku, áhættustýringar, verðlagningar og
tekjustýringar. Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, AMD, Yahoo
og öðrum internet- og fjármálafyrirtækjum og kennir stjórnendum erlendra
fyrirtækja ákvarðanatöku, s.s. Mars, Sanofi, Oman Oil og Lloyds. Kristín situr
í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf., Distica hf. og Háskólaráðs Háskólans í
Reykjavík ehf. Hvorki Kristín né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga
hlutabréf í Högum hf.

Salvör Nordal

Salvör var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 5. júní 2014. Hún er Ph.D. í
heimspeki frá Háskólanum í Calgary, M.Phil í Social Justice frá Háskólanum í
Stirling og B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands. Salvör er forstöðumaður
Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og hefur sinnt því starfi frá árinu 2001.
Salvör hefur starfað sem háskólakennari frá árinu 1998, var í vinnuhópi um
siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis um fall
bankanna, formaður Stjórnlagaráðs 2011, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins
1989-1994 og framkvæmdastjóri Listahátíðar 1986. Auk þess hefur Salvör setið í
Fjölmiðlanefnd frá árinu 2011 og sinnt margs konar fjölmiðla- og
trúnaðarstörfum. Salvör situr í stjórn sjóðs Samtaka sparifjáreigenda, fyrir
hönd samtakanna. Hvorki Salvör né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga
hlutabréf í Högum hf.

Sigurður Arnar Sigurðsson

Sigurður Arnar var fyrst kjörinn í stjórn þann 5. júní 2014. Hann er menntaður
Cand. Oecon frá Háskóla Íslands. Sigurður Arnar er forstjóri eigin fyrirtækis
sem sinnir ráðgjafa- og fjárfestingastarfsemi. Sigurður Arnar var áður
forstjóri Húsamiðjunnar 2010-2013, forstjóri Kaupáss 2004-2006,
framkvæmdastjóri verslunarsviðs Byko 2000-2004 og framkvæmdastjóri Elko
1997-2000. Á árunum 1993-1996 var Sigurður Arnar eigandi og framkvæmdastjóri
fyrirtækis í matvælaiðnaði og 1990-1993 starfaði hann við endurskoðun hjá
Arthur Andersen og KPMG ehf. Sigurður Arnar situr í stjórnum Cibus ehf.,
Framsýnar ehf. og Metex ehf. Hvorki Sigurður Arnar né aðilar honum fjárhagslega
tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

Stefán Árni Auðólfsson

Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 7. júní 2013. Hann er
menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með
framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi
sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem
lögmaður hjá Lögmönnum Bárugötu slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á Nefndasviði Alþingis 2003-2005
og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2005. Stefán Árni situr í stjórnum
eftirtalinna félaga: Eik fasteignafélag hf., Hváll ehf., Egla hf. og Síminn hf.
Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum
hf.