Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Fly Play hf. Remuneration Information 2007

Dec 28, 2007

6604_dirs_2007-12-28_56404073-2809-4a1e-af44-28126e915a98.html

Remuneration Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 250633

FL GROUP hf. - Viðskipti stjórnenda

28.12.2007

„Þann 27. Desember var samþykkt ný kaupréttaráætlun hjá FL Group hf. (FL). Tekur áætlunin til allt að 361 milljón hluta að nafnverði. Á sama tíma eru felldir niður áður útgefnir kaupréttir að 136 milljón hlutum. Kaupréttarsamningar á grundvelli áætlunarinnar eru til þriggja ára og verður heimilt að innleysa 1/3 heildarkaupréttarins árlega. Eru þeir innleysanlegir 1. mars á árunum 2009-2011. Kaupréttargengi skv. samningunum er í samræmi við viðskiptaverð með hluti í FL. á þeim degi sem samningarnir eru gerðir. Á grundvelli áætlunarinnar hafa í dag verið gerðir kaupréttarsamningar að 342 milljónum nafnverðshluta á genginu 14,7. Á meðal þeirra starfsmanna sem kaupréttarsamningar hafa verið gerðir við eru eftirtaldir: Jón Sigurðsson, forstjóri, 150 milljónir nafnverðshluta. Fyrir á Jón kauprétt að 51,5 milljónum hluta í félaginu. Hvorki Jón eða aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga eignarhluti í FL. Benedikt Gíslason, framkvæmdastjóri, 35 milljónir nafnverðshluta. Benedikt á ekki fyrir kauprétt að hlutum í félaginu. Hvorki Benedikt eða aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga eignarhluti í FL. Örvar Kærnested, framkvæmdastjóri, 80 milljónir nafnverðshluta. Fyrir á Örvar kauprétt að 0 hlutum í félaginu. Örvar á ekki hluti í FL Group en aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga 5.000 nafnverðshluti í FL. Eftir útgáfu framangreindra kauprétta er heildarnafnverð útgefinna kauprétta til starfsmanna FL Group hf. kr. 501 milljón að nafnverði og er vegið meðalgengi útgefinna kauprétta kr. 15,29 á hlut.