Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Fly Play hf. Proxy Solicitation & Information Statement 2022

Mar 11, 2022

6604_rns_2022-03-11_151bfe58-16ac-4507-b756-b0f3abe69561.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

PLAY

Aðalfundur Fly Play hf.

Aðalfundur Fly Play hf. verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl 2022 kl. 16:00 í lðnó, menningarhúsi við Tjörnina, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.

DRÖG AÐ DAGSKRÁ:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi liðins starfsárs
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýringum endurskoðanda, lagður fram til sambykktar
  3. Atkvæðagreiðsla um hvernig fara skuli með rekstrarniðurstöðu félagsins á árinu
  4. Kosning í stjórn félagsins
  5. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu
  6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar
  7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
  8. Önnur mál, löglega upp borin

Þáttaka á fundinum verður bundin við þá sem mæta á staðinn en vefstreymi verður frá fundinum af vefsíðu félagsins: https://www.flyplay.com/corporate-governance

Reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum

Eitt atkvæði er fyrir hvern einnar krónu hlut. Á hluthafafundi ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í landslögum eða sambykktum.

Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um dagskrármál bréflega. Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um slíka atkvæðagreiðslu að berast félaginu á netfangið [email protected].

Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá og leggja fram ályktunartillögur. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en fyrir kl. 12:00 þann 23. mars 2022.

Hluthafi getur veitt umboðsmanni skriflegt umboð sem skal dagsett. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Umboð má hvenær sem er afturkalla. Slík umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Umboðseyðublöð verða aðgengileg á vefsíðu félagsins.

Aðrar upplýsingar

Endanleg dagskrá, tillögur stjórnar og fundarskjöl verða birt eigi síðar en 21. mars á vefsíðu félagsins: https://www.flyplay.com/corporate-governance.

Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:00.

Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá.

Samkvæmt 63. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 þann 1. apríl 2022. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afgreidd frá kl. 15:00 á aðalfundardegi.

Reykjavík, 11. mars 2022
Stjórn Fly Play hf.

Suðurlandsbraut 14
[email protected]
108 Reykjavík
Iceland
flyPLAY.com