Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Fly Play hf. Board/Management Information 2025

Jul 31, 2025

6604_rns_2025-07-31_7d60aef5-400b-4c25-bd19-5ddeae0e2d73.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fly Play hf.: Sonja lætur af störfum

Fly Play hf.: Sonja lætur af störfum

Sonja Arnórsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri tekna- og þjónustusviðs (CCO).  Verkefni sem heyrðu undir Sonju munu færast yfir á skrifstofu forstjóra og heyra þá undir forstjóra fyrirtækisins, Einar Örn Ólafsson.

„Sonja hefur haft yfirumsjón með að leiða inn sölu- og þjónustuferla innan fyrirtækisins. Í dag stöndum við uppi með kröftug sölukerfi sem munu reynast fyrirtækinu vel. Þar að auki hafa verið innleidd öflug þjónustuviðmið sem sést hvað best í þeirri einkunn sem við fáum í þjónustukönnunum. NPS-skorið okkar hefur hækkað hratt undanfarið og stendur nú í 54, sem er eitthvað sem við getum verið virkilega stolt af. Nú þegar við stígum inn nýja tíma hjá PLAY sáum við fram á að þurfa að gera ákveðnar skipulagsbreytingar þar sem markmiðið er að sameina svið og einfalda reksturinn. Ég vil þakka Sonju fyrir hennar góða framlag til fyrirtækisins og óska henni velfarnaðar í komandi verkefnum,” segir Einar Örn Ólafsson. 

„Það hefur verið einstök vegferð að taka þátt í PLAY ævintýrinu og þetta er reynsla sem ég mun ávallt búa að. Við höfum náð að skapa mjög góðan sölu- og þjónustugrunn mun reynast mikilvægur fyrir PLAY að byggja á til framtíðar. Nú þegar ég hverf á önnur mið vil ég þakka starfsfólki PLAY fyrir frábæran tíma og óska þeim alls hins besta,” segir Sonja.