AI assistant
Fly Play hf. — AGM Information 2025
Apr 7, 2025
6604_rns_2025-04-07_51f4139c-26a6-46a7-9d44-c1716da468bd.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Fly Play hf: Framboð til stjórnar PLAY
Aðalfundur Fly Play hf. verður haldinn kl. 16:00 (GMT) þann 9. apríl 2025 og fer fram á Setrinu, Grand Hótel, Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 4. apríl sl. kl. 16:00 (GMT).
Í stjórn Fly Play hf. eiga sæti fimm einstaklingar. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér til setu í stjórnina. Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga og samþykktir félagsins.
Ekki bárust fleiri framboð og því er sjálfkjörrið í stjórn:
-
Elías Skúli Skúlason
Elías Skúli Skúlason er hluthafi í félaginu í gegnum FEA ehf. og er varaformaður stjórnar PLAY. Elías Skúli býr yfir rúmlega 28 ára reynslu af störfum í flugiðnaði og flugrekstri. Elías Skúli var einn af stofnendum Airport Associates (stofnað 1997) og Bluebird Cargo (stofnað 1999). Elías Skúli sinnti mörgum stjórnunarstöðum í Bluebird Cargo, þ.m.t. starfaði hann sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins 2007-2014. Elías Skúli er óháður stórum hluthöfum PLAY og daglegum stjórnendum þess en ekki félaginu. -
Guðný Hansdóttir
Guðný er hluthafi í félaginu í gegnum KG eignarhald ehf. en hún býr yfir rúmlega 15 ára reynslu af flugiðnaði. Guðný starfaði áður sem forstöðumaður flugliða Icelandair, framkvæmdastjóri mannaðssviðs Air Atlanta, framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Pennanum Officeday og framkvæmdastjóri mannaðssviðs hjá bæði Innnes og Skeljungi. Guðný er með MBA gráðu frá Florida Institute of Technology og BS gráðu í markaðsfræði frá sama skóla. Guðný hefur lokið hæfismati hjá Fjármálaeftirlitinu. Guðný starfaði sem framkvæmdastjóri mannaðssviðs hjá Inness 2014-2018 og framkvæmdastjóri mannaðssviðs hjá Skeljungi 2009-2014. Áður var hún framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Pennanum Officeday, framkvæmdastjóri mannaðssviðs Air Atlanta og forstöðumaður flugliða Icelandair. Guðný hefur setið í stjórn Parlogis og Mjallar Friggjar. Í dag situr hún í stjórn VÍS ásamt því að sitja þar einnig starfskjaraðefnd og áhættunefnd. Guðný er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum. -
María Rúnarsdóttir
María Rúnarsdóttir er sjálfstætt starfandi fjárfestir. Áður starfaði María meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins SMI ehf. og Korputorgs ehf., ráðgjafi hjá KPMG Ráðgjöf og sem fjármálastjóri Svar tækni ehf., auk þess að vera einn stofnenda MINT Solutions ehf. María situr í dag í stjórn nokkurra félaga, s.s. Arctica Finance hf., Umbra ehf., Uniconta Ísland ehf., NMR ehf., og Höfðakór ehf. María er með MBA gráðu frá MIT (Massachusetts Institution of Technology) í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólánum í Reykjavík. María er óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum. -
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigurður Kári Kristjánsson er hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður PLAY. Sigurður er einn eiganda lögmannsstofunnar LLG lögmenn ehf., sem hann hefur rekið í félagi aðra siðan 2011. Sigurður Kári hefur um langt skeið verið stjórnarformaður Náttúruhamfaratrygginga Íslands en hefur auk þess setið í fjölmörgum stjórnum og ráðum, þ. á m. bankaráði Seðlabanka Íslands. Sigurður Kári var alþingismaður Reykvikinga á árunum 2003-2009 og varaþingmaður til ársins 2011. Sigurður Kári er óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.
- Valentín Lago
Valentín Lago á að baki virtan feril í flugiðnaði sem spannar yfir 30 ár. Hann hefur sinnt fjölmörgum stjórnunarstörfum, þ.m.t. stjórnarsetu og starfað sem framkvæmdastjóri. Má þar helst nefna framkvæmdastjórn í Air Nostrum, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, bæði hjá Ibera Express og Vueling ásamt því að starfa sem framkvæmdastjóri Air Europa. Undanfarið hefur hann einbeitt sér að því að reka sína eigin ráðgjafastofu. Lago er meðal annars með PhD-gráðu í hagfræði, gráðu í flugvélaverkfræði og AMP-gráðu í viðskiptafræði. Valentín er er óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum.