AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Report Publication Announcement 2025
Aug 19, 2025
2194_rns_2025-08-19_bf2b8349-590f-4676-a23e-4e935f2cb569.html
Report Publication Announcement
Open in viewerOpens in your device viewer
Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025
Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025
Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 26. ágúst 2025.
**Kynningarfundur 27. ágúst 2025
**Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 27. ágúst nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.
Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.
Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið [email protected].
Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: [email protected]
