AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Remuneration Information 2022
Mar 10, 2022
2194_agm-r_2022-03-10_36688536-8420-4123-9192-37acc63da1f1.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer

Eimskipafélag Íslands hf. b.t. stjórnar félagsins Sundabakka 2 104 Reykjavík
Reykjavík, 10. mars 2022
Breytingartillaga á aðalfundi Eimskipafélags Íslands hf. 17. mars 2022
Með vísan til fundarboðs stjórnar félagsins um aðalfund Eimskipafélags Íslands hf. óskar Gildi-lífeyrissjóður, sem hluthafi í félaginu, eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin til umfjöllunar á aðalfundinum.
Dagskrárliður 6: Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
Breytingartillaga: Kaupréttarkerfi (5.2.)
Lögð er til eftirfarandi breyting á skilgreiningu nýtingarverðs í tillögu um kaupréttarkerfi í starfskjarastefnu (sjá undirstrikaðan texta sem er viðbót við fyrirliggjandi tillögu):
Nýtingarverð: Meðalgengi hlutabréfa í félaginu síðustu 10 viðskiptadaga eins og það er skráð á Nasdaq Iceland í íslenskum krónum fyrir úthlutunardag. Nýtingarverð skal leiðrétt (til lækkunar) fyrir framtíðar arðgreiðslum og samsvarandi úthlutun til hluthafa af eignum félagsins, krónu fyrir krónu. Nýtingarverð skal einnig leiðrétt með 3% ársvöxtum ofan á áhættulausa vexti fram að nýtingardegi.
Skilmálar kaupréttarkerfis verði að öðru leyti óbreyttir miðað við tillögu stjórnar.
Greinargerð með tillögu:
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. leggur til að komið verði á fót kaupréttarkerfi fyrir forstjóra, framkvæmdastjóra og lykilstarfsmenn félagsins sem ætlað er að tengja hagsmuni rétthafa við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess. Í tillögu stjórnar er gert er ráð fyrir því að nýtingarverð kaupréttarsamninga hækki um 3% árlega. Þá er gert ráð fyrir að forstjóra og æðstu stjórnendum verði gert skylt að halda eftir ákveðnum fjölda hluta þar til ákveðnu margfeldi af grunnlaunum er náð, þegar skattar hafa verið dregnir frá, allt til starfsloka hjá félaginu.
Gildi-lífeyrissjóður leggur áherslu á mikilvægi framangreindra atriða í afstöðu sinni varðandi kaupréttarkerfið, þ.e. að nýtingarverð kerfisins hækki yfir tíma og að stjórnendur haldi eftir ákveðnum eignarhlut í félaginu. Þá skiptir máli fyrir Gildi sem hluthafa að umfang kerfisins sé viðeigandi. Á hinn bóginn telur sjóðurinn rétt að nýtingarverð kerfisins hækki meira en sem nemur 3% árlegum vöxtum. Sjóðurinn leggur til að nýtingarverð hækki sem nemur áhættulausum vöxtum til viðbótar við 3% árlega vexti. Þetta er lagt til í því skyni að tengja betur saman

hagsmuni kaupréttarhafa og hluthafa með því að færa nýtingarverðið nær þeirri ávöxtunarkröfu sem gerð er til hlutabréfa. Það felur í sér að ekki sé forsenda til að umbuna stjórnendum með þessum hætti ef hluthafar fá ekki viðunandi arðsemi á sína fjárfestingu í félaginu. Þá er breytingartillagan eðlileg að mati sjóðsins í ljósi núverandi heildarlauna stjórnenda félagsins og annarra möguleika þeirra á árangurstengdum greiðslum. Ætti þessi viðbót jafnframt að mati sjóðsins að leiða til þess að minni þörf verði á almennum hækkunum á launum stjórnenda horft fram í tímann.
Að lokum vill Gildi benda á að núverandi markaðsaðstæður geta verið erfiður tímapunktur til innleiðingar á kaupréttarkerfum þannig að þau þjóni tilgangi sínum og tengi raunverulega saman langtímahagsmuni stjórnenda og hluthafa. Telur sjóðurinn eðlilegt, verði tillagan samþykkt, að tímapunktur úthlutunar og upphafsgengi verði vandlega ígrundað af stjórn félagsins með hagsmuni félagsins, stjórnenda og hluthafa að leiðarljósi.
Gildi óskar eftir því að stjórn Eimskipafélags Íslands hf. upplýsi aðra hluthafa félagsins hið fyrsta um þessa breytingartillögu, s.s. með tilkynningu í fréttakerfi kauphallar.
Reykjavík, 10. mars 2022 Gildi-lífeyrissjóður