AI assistant
Sending…
Eimskipafélag Íslands — Remuneration Information 2018
Mar 22, 2018
2194_cp_2018-03-22_75f8c9a3-43fd-4786-85a8-67d84d6a13da.pdf
Remuneration Information
Open in viewerOpens in your device viewer
BÓKUN
Gildis-lífeyrissjóðs á aðalfundi Eimskipafélags Íslands hf. 22.3.2018
Gildi-lífeyrissjóður óskar eftir því að eftirfarandi verði fært til bókar í fundargerð hluthafafundarins:
-
- Samkvæmt hluthafastefnu Gildis telur sjóðurinn rétt við ákvörðun launa forstjóra að líta til innri þátta félags, launadreifingar innan þess og launa sem ætla má að forstjóra bjóðist á þeim markaði sem félagið starfar á. Í þessu samhengi leggur sjóðurinn áherslu á heildarlaun. Ef félög ákveða að notast við árangurstengd launakerfi er eðlilegt að föst laun séu að sama skapi lægri, samanborið við félög þar sem slík árangurstengd kerfi eru ekki til staðar. Sérstaklega er mikilvægt í tilfelli Eimskipafélags Íslands hf. að stjórn félagsins upplýsi nánar um það með hvaða hætti heildarlaun stjórnenda eru mótuð og við hvaða samanburð þau miða.
-
- Samkvæmt hluthafastefnu Gildis er lögð áhersla á að starfskjarastefnur greini hvernig þær styðji við langtímahagsmuni og sjálfbærni félaga og að sett séu fram skýr skilyrði og forsendur fyrir föstum og árangurstengdum launagreiðslum. Mikilvægt er í því samhengi að helstu mælikvarðar komi fram í stefnunni og að þeir séu viðeigandi og á grundvelli þátta sem stjórnendur geta haft áhrif á og/eða stýrt í störfum sínum. Jafnframt er gert ráð fyrir að greint sé frá því hversu háar árangurstengdar launagreiðslur geta orðið, þannig að hámörk og takmörk komi fram í stefnunni sjálfri. Því er beint til stjórnar félagsins að taka starfskjarastefnu félagsins til endurskoðunar með þessi atriði í huga með það að markmiði að lýsa með greinargóðum hætti því launakerfi sem notast er við innan félagsins.
-
- Mikilvægt er að stjórn félagsins rökstyðji hverju sinni starfskjör stjórnenda og fjárhæð þeirra, þ.m.t. breytilega launaliði og breytingar á milli ára ásamt sundurliðun á föstum og breytilegum greiðslum. Af þessum sökum er mikilvægt að gerð sé skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu og að hún sé birt með góðum fyrirvara fyrir aðalfund. Því er beint til stjórnar félagsins að sundurliða framvegis greiðslur til stjórnenda þannig að greiðslur samkvæmt árangurstengdu launakerfi komi fram og að skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu verði útbúin og hér eftir birt með góðum fyrirvara fyrir aðalfund félagsins.
Reykjavík, 22. mars 2018
Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri
More from Eimskipafélag Íslands
Regulatory Filings
2026
May 25
Regulatory Filings
2026
May 25
Board/Management Information
2026
May 22
Board/Management Information
2026
May 22
Regulatory Filings
2026
May 21
Regulatory Filings
2026
May 21
Regulatory Filings
2026
May 17
Regulatory Filings
2026
May 17
Interim / Quarterly Report
2026
May 5
Interim / Quarterly Report
2026
May 5