AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Proxy Solicitation & Information Statement 2025
Mar 4, 2025
2194_rns_2025-03-04_45c9f819-4613-4033-ba4c-225d71ba4d7a.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur
Eimskipafélags Íslands hf.
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður fimmtudaginn 27. mars 2025 kl. 15:00 í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík.
Drög að dagskrá
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári
- Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
- Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2024
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum skv. gr. 11.2 í samþykktum félagsins
-
Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
-
Kosning stjórnar félagsins
- Ákvörðun um þöknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar
- Kosning endurskoðenda
- Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd
- Önnur mál, löglega upp borin
Reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, það er fyrir kl. 15:00 þann 17. mars 2025. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu sem er að nafnverði ein króna, utan eigin bréfa sem eru án atkvæðisréttar.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má finna viðeigandi eyðublöð. Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slik umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Aðrar upplýsingar
Fundurinn fer fram á íslensku. Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur víkum fyrir fundinn á vefsíðu félagsins og liggja jafnframt frammi á skrifstofu félagsins. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst tíu dögum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 15:00 þann 17. mars 2025. Framboðstilkynningu má nálgast á fjárfestasíðu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 14:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 4. mars 2025
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
Sundabakki 2 | 104 Reykjavík | +354 525 7000 | eimskip.com
EIMSKIP