Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Mar 15, 2021

2194_rns_2021-03-15_9993e76b-eb45-458b-b178-bba01da959bd.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

GILDI

Tillaga til ályktunar

á aðalfundi Eimskipafélags Íslands hf. 2021

Gildi-lífeyrissjóður óskar eftir því að eftirfarandi tillaga verði sett á dagskrá aðalfundar Eimskipafélags Íslands hf. þann 25. mars næstkomandi og borin þannig upp til samþykktar á fundinum:

„Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. haldinn þann 25. mars 2021 beinir því til stjórnar félagsins að gera breytingar á starfsreglum sínum með þeim hætti að eftirfarandi yfirstrikaður texti verði felldur út úr gr. 2.1. í starfsreglum stjórnar:

2.1 The Board of Directors consists of five Directors and two Alternate Directors, elected at each annual general meeting of the Company, and its term of office shall be until the next annual general meeting (or such earlier time as the shareholders may determine in accordance with the Company’s Articles of Assáciation or applicable law). Each Director shall nominate his Alternate Director, who shall replace him on the Board if he can’t attend a Board meeting. The chairman can also decide to call in one Alternate Director to a Board meeting even though all five Directors will attend. In such instances, the Alternate Director has the right to debate and submit proposals to the meeting, but has no voting right. The Alternate Directors shall take a seat on the Board of Directors in accordance with Article 3.2.“

Greinargerð:

Samkvæmt gildandi starfsreglum stjórnar Eimskips getur stjórnarformaður samkvæmt gr. 2.1 að eigin frumkvæði og án sérstakrar ástæðu ákveðið að kalla til einn varamann til viðbótar við þá fimm stjórnarmenn sem ætla sér að sitja stjórnarfund. Varamaður hefur þá rétt til þess að leggja fram tillögur og taka til máls en ekki atkvæðisrétt. Ákvæðið er óvenjulegt og færir að mati sjóðsins stjórnarformanni hverju sinni heldur mikið vald til þess að ákveða einhliða mætingu varamanns á stjórnarfundi. Eðlilegra er að varamaður sé kallaður til þegar aðalmaður getur af einhverjum ástæðum ekki tekið þátt í stjórnarstörfum.

Reykjavík, 15. mars 2021

img-0.jpeg

Lífeyrissjóður

[email protected]

515 4700

www.gildi.is