Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Major Shareholding Notification 2020

Oct 21, 2020

2194_iss_2020-10-21_035b29ca-5a9f-45b2-a364-519853764032.html

Major Shareholding Notification

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 387855

Eimskipafélag Íslands hf. - Innherjaupplýsingar

Samherji Holding ehf. eykur hlut sinn í Eimskip

Eimskip hefur móttekið tilkynningu frá Samherja Holding ehf. sem óskað er eftir að birtist í kjölfar flöggunartilkynningar:

"Samherji Holding ehf., félag tengt Samherja hf., jók í dag hlut sinn í Eimskipafélagi Íslands hf. (Eimskip) um 0,29% og á 30,28% hlutafjár í félaginu eftir viðskiptin.

Samherji Holding hyggst nú gera öðrum hluthöfum í Eimskip tilboð í hluti þeirra eins og lög áskilja.

Með flöggun hinn 10. mars á þessu ári kom fram að Samherji Holding hefði aukið hlut sinn í Eimskip um 3,05% og ætti 30,11% hlut í fyrirtækinu eftir kaupin. Samherji Holding óskaði síðan eftir undanþágu frá tilboðsskyldu vegna þeirra sérstöku og óvenjulegu aðstæðna sem voru uppi í þjóðfélaginu vegna útbreiðslu Covid-19 og þeirrar röskunar sem faraldurinn hafði fyrir íslenskt efnahagslíf á þeim tíma. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Samherja Holding slíka undanþágu hinn 31. mars síðastliðinn og seldi Samherji Holding hlutabréf í Eimskip samdægurs þannig að hlutafjáreign félagsins í Eimskip fór niður fyrir 30%.

Tilgangur Samherja Holding með hlutafjárkaupunum í dag er fyrst og fremst að ljúka tilboðsskyldu sinni gagnvart öðrum hluthöfum sem undanþága fékkst fyrir í mars síðastliðnum. Kaupin endurspegla þá trú sem stjórnendur Samherja Holding hafa á rekstri Eimskips. Starfsfólk félagsins um allan heim hefur verið mjög samhent í þeirri umfangsmiklu endurskipulagningu sem fram hefur farið að undaförnu og á þakkir skildar fyrir þann góða árangur sem náðst hefur. Með svo samhentan hóp að verki er það trú okkar að batnandi afkoma eigi eftir að koma enn betur í ljós á næstu misserum.

Eimskip er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða sem saman fara með rúmlega helming hlutafjár. Samherji Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hlutabréfamarkað og stjórnendur Samherja Holding binda vonir við að eiga áfram gott samstarf við aðra hluthafa Eimskips.

f.h. Samherja Holding ehf.,

Þorsteinn Már Baldvinsson"