AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Interim / Quarterly Report 2018
May 17, 2018
2194_er_2018-05-17_d2c60899-5753-48e1-a479-a0fda6ea0130.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
VÖXTUR Í TEKJUM OG MAGNI EN AFKOMA UNDIR VÆNTINGUM
- Tekjur námu 155,5 milljónum evra, hækkuðu um 12,0 milljónir evra eða 8,4% frá Q1 2017
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,0% og tekjur hækkuðu um 8,5 milljónir evra eða 9,3%
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 10,0% og tekjur hækkuðu um 3,5 milljónir evra eða 6,8%
- EBITDA nam 7,3 milljónum evra, dróst saman um 2,1 milljón evrur eða 22,1% frá Q1 2017
- Tap nam 1,6 milljónum evra samanborið við 0,2 milljóna evra hagnað Q1 2017
- Eiginfjárhlutfall var 49,3% og nettóskuldir námu 115,8 milljónum evra í lok mars
- Afkomuspá fyrir árið 2018 er 57-63 milljónir evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q1 2018 | Q1 2017 | Breyting | $\%$ | 12M 2017 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 155.532 | 143.499 | 12.033 | 8,4% | 663.973 |
| Rekstrargjöld | 148.281 | 134.189 | 14.092 | 10,5% | 606.775 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 7.251 | 9.310 | (2.059) | $(22, 1\%)$ | 57.198 |
| Afskriftir | (7.807) | (7.371) | (436) | (5,9% | (30.148) |
| Rekstrar(tap) hagnaður - EBIT | (556) | 1.939 | (2.495) | 27,050 | |
| Hrein fjármagnsgjöld | (1.114) | (1.510) | 396 | 26,2% | (7.236) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (670) | (108) | (562) | $(520, 4\%)$ | (339) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | (2.340) | 321 | (2.661) | 19.475 | |
| Tekjuskattur | 754 | (128) | 882 | (2.671) | |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (1.586) | 193 | (1.779) | ä | 16.804 |
| (Tap) hagnaður á hlut í evrum | (0,0087) | 0.0003 | (0,0090) | 0.0885 | |
| Tekjubreyting | 8,4% | 26.7% | 29.2% | ||
| EBITDA / rekstrartekjur | 4,7% | 6.3% | 8,6% | ||
| EBIT / rekstrartekjur | (0,4% ) | 1.3% | 4.1% | ||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 2,10 | 0,95 | 1.80 | ||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 31.03.2018 | 31.03.2017 | Breyting | % | 31.12.2017 |
| Eignir | 468.781 | 414.652 | 54.129 | 13.1% | 459.515 |
| Fastafjármunir | 321.701 | 265.160 | 56.541 | 21,3% | 313.529 |
| Veltufjármunir | 147.080 | 149.492 | (2.412) | $(1,6\%)$ | 145.986 |
| Eigið fé | 231.016 | 234.879 | (3.863) | (1,6%) | 244.610 |
| Skuldir | 237.765 | 179.773 | 57.992 | 32,3% | 214.905 |
| Langtímaskuldir | 128.179 | 69.933 | 58.246 | 83,3% | 117.614 |
| Skammtímaskuldir | 109.586 | 109.840 | (254) | $(0,2\%)$ | 97.291 |
| Vaxtaberandi skuldir | 137.410 | 91.733 | 45.677 | 49,8% | 125.984 |
| Nettóskuldir | 115.796 | 50.377 | 65419 | 129.9% | 102.815 |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 85.9% | 86.6% | 85.4% | ||
| Eiginfjárhlutfall | 49.3% | 56,6% | 53.2% | ||
| SJÓÐSTREYMI | Q1 2018 | Q1 2017 | Breyting | % | 12M 2017 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.988 | 7.535 | (5.547) | (73,6%) | 37.420 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (13.841) | (17.479) | 3.638 | 20,8% | (75.139) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 10.532 | 11.633 | (1.101) | 9,5% | 22.581 |
| Breyting á handbæru fé | (1.321) | 1.689 | (3.010) | ÷. | (15.138) |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 23.169 | 39.543 | (16.374) | $(41, 4\%)$ | 39.543 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (234) | 124 | (358) | (1.236) | |
| Handbært fé í lok tímabils | 21.614 | 41.356 | (19.742) | (47,7%) | 23.169 |
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Fyrsti ársfjórðungur ársins 2018 var krefjandi þar sem EBITDA nam 7,3 milljónum evra og tap á fjórðungnum nam 1,6 milljónum evra. Félagið er að fara í gegnum umbreytingarferli með fjárfestingum til framtíðar í nýju vikulegu siglingakerfi. Það mun taka tíma að byggja upp magn fyrir vikulega þjónustu en við erum bjartsýn á áætlanir okkar og útlitið varðandi bókanir er jákvætt. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 155,5 milljónir evra samanborið við 143,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, eða aukning um 12,0 milljónir evra eða 8,4%. Tekjuvöxturinn skýrist aðallega vegna aukins flutningsmagns í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi og í flutningsmiðlun.
Rekstrargjöld félagsins námu 148,3 milljónum evra samanborið við 134,2 milljónir evra á fyrsta fjórðungi 2017 og jukust um 14,1 milljón evrur. Megin ástæða þess að rekstrargjöld eru að hækka umfram aukningu í tekjum er til komin vegna kostnaðar tengdum aukningu á afkastagetu siglingakerfisins en félagið bætti við tveimur skipum í flotann samanborið við sama tímabil í fyrra. Kostnaður tengdur aukinni afkastagetu siglingakerfisins jókst um 2,5 milljónir evra. Hækkun rekstrargjalda má einnig rekja til aukins olíukostnaðar, hærri launakostnaðar og kostnaðar í tengslum við skil á leigugámum. Á öðrum ársfjórðungi er gert ráð fyrir að flutningsmagn aukist í tengslum við samning við CMA CGM á grænu leiðinni á milli Halifax og Portland, Maine. Á öðrum ársfjórðungi er einnig gert ráð fyrir að flutningar hefjist á vöru fyrir nýja verksmiðju PCC á Húsavík.
Magn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 4% á fyrsta ársfjórðungi 2018. Innflutningur til Íslands var hins vegar undir áætlunum, aðallega vegna samdráttar í innflutningi á bílum. Útflutningur frá Íslandi hefur farið vaxandi vegna aukins flutningsmagns á ferskum og frosnum fiski, þrátt fyrir slaka loðnuvertíð. Flutningsmagn í Trans-Atlantic hefur aukist jafnt og þétt en meira þarf til að vinna upp kostnað tengdum aukningu í afkastagetu. Eimskip vinnur stöðugt að því að fínstilla siglingakerfið og finna leiðir til að skera niður kostnað.
Innflutningur til Færeyja jókst á tímabilinu en útflutningur var undir væntingum og Noregur var í samræmi við fyrsta ársfjórðung 2017 með smávægilegum vexti á norðurleiðinni.
Magn í flutningsmiðlun jókst um 10% sem skýrist af auknu flutningsmagni af þurrvöru á meðan kæli- og frystivaran dróst saman sem stafar aðallega af erfiðum aðstæðum á Afríku landssvæðinu.
16% lækkun dollars gagnvart evru samanborið við fyrsta ársfjórðung í fyrra hafði neikvæð áhrif á afkomuna.
Fyrsti ársfjórðungur er sá fjórðungur sem skilar að jafnaði lægstri framlegð í rekstri félagsins, líkt og á almennt við um skipafélög á heimsvísu. Undanfarin fimm ár hefur fyrsti ársfjórðungur í rekstri félagsins skilað að meðaltali 16,5% af afkomu ársins. Félagið vinnur að fjölda umbótaverkefna með það að markmiði að bæta rekstur félagsins og arðsemi. Afkomuspá félagsins er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra."
REKSTUR FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2018 námu 155,5 milljónum evra samanborið við 143,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017 og hækkuðu um 12 milljónir evra eða 8,4%. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 100,6 milljónum evra og jukust um 8,5 milljónir evra samanborið við sama tímabil í fyrra eða 9,3%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,0%, aðallega vegna aukins útflutnings frá Íslandi og Trans-Atlantic flutningum. Tekjur af flutningsmiðlun námu 54,9 milljónum evra og jukust um 3,5 milljónir evra eða 6,8%. Vöxturinn í flutningsmiðlun var drifinn áfram af þurrvöru en magnið í kæli- og frystiflutningum dróst saman.
Heildar rekstrarkostnaður félagsins nam 148,3 milljónum evra samanborið við 134,2 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs og jókst um 10,5%. Rekstrargjöld námu 114,5 milljónum evra samanborið við 102,3
milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017 og jukust um 11,9%. Aukningin skýrist af auknu umfangi starfseminnar, nýjum fyrirtækjum og aukinni afkastagetu siglingakerfisins. Laun og launatengd gjöld fyrir fjórðunginn námu 33,7 milljónum evra, aukning um 5,9% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2017.
EBITDA fjórðungsins nam 7,3 milljónum evra samanborið við 9,3 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017, lækkun um 2,1 milljón evra eða 22,1%. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 4,2 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 5,3 milljónir evra á fyrsta fjórðungi síðasta árs og lækkaði um 1,1 milljón evrur. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 3,1 milljón evrum, sem er lækkun um 0,9 milljónir evra.
Afskriftir fjórðungsins námu 7,8 milljónum evra, jukust um 0,4 milljónir evra eða 5,9% frá fyrsta fjórðungi síðasta árs. Hækkunin stafar einkum af auknum fjárfestingum í fastafjármunum, óefnislegum eignum og nýjum félögum í samstæðunni.
Hrein fjármagnsgjöld námu 1,1 milljón evrum á fjórðungnum samanborið við 1,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017. Fjármagnsgjöld námu 1,0 milljón evra samanborið við 1,1 milljón evrur á fyrsta ársfjórðungi 2017, þrátt fyrir aukna lántöku og skýrist það af hagstæðari vaxtakjörum. Nettó gengistap nam 0,2 milljónum evra samanborið við 0,6 milljóna evra gengistap á fyrsta ársfjórðungi 2017.
Tap á ársfjórðungnum nam 1,6 milljónum evra samanborið við 0,2 milljóna evra hagnað á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt á árunum 2014 til 2018 samanborið við sama tímabil árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Eimskip breytti siglingakerfinu á síðasta ári með því að bæta tveimur skipum við þjónustu grænu og gráu leiðarinnar. Vikulegum strandsiglingum var bætt við til að styðja við aukin umsvif á Íslandi og í Færeyjum.
Eimskip er með 22 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og tíu leiguskip. Í skipaflotanum eru 11 gámaskip, sjö frystiskip, þrjár ferjur og eitt skip í stórflutningum.
Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum sem sýna hvernig tekjur og EBITDA skiptast á fjórðunga á árunum 2014 til 2018.
Í milljónum evra REKSTRARTEKJUR EBITDA 0 20 40 60 80 100 120 140 160 180 Q1 Q2 Q3 Q4 2014 2015 2016 2017 2018
* 2,3 milljóna evra einskiptisliðum vegna kostnaðar var bætt við í Q1 2017 og 2,5 milljóna evra einskiptistekjur eru innifaldar í Q4 2017
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 468,8 milljónum evra í lok mars 2018
- Eiginfjárhlutfall var 49,3%
- Vaxtaberandi skuldir námu 137,4 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 115,8 milljónum evra
Fastafjármunir námu 321,7 milljónum evra í lok mars 2018 samanborið við 313,5 milljónir evra í árslok 2017. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 12,4 milljónum evra samanborið við 3,6 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017.
Veltufjármunir námu 147,1 milljón evra í lok fjórðungsins samanborið við 146,0 milljónir evra í árslok 2017. Handbært fé nam 21,6 milljónum evra samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur jukust úr 118,9 milljónum evra í árslok í 120,6 milljónir evra í lok mars 2018.
Eigið fé nam 231,0 milljón evrum í lok mars og var eiginfjárhlutfallið 49,3%. Til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 53,2% í árslok 2017. Á aðalfundi félagsins þann 22. mars sl. var samþykkt að greiða arð til hluthafa þann 18. apríl að fjárhæð 1.269,1 milljón króna, eða 10,4 milljónir evra sem lækkaði eigið fé og jók skammtímaskuldir í lok fjórðungsins.
Skammtímaskuldir námu 109,6 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 97,3 milljónir evra í árslok 2017. Vaxtaberandi skuldir námu 137,4 milljónum evra í lok mars og hækkuðu úr 126,0 milljónum evra í árslok 2017.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 2,0 milljónum evra
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 13,8 milljónum evra
- Handbært fé var 21,6 milljónir evra í lok mars
Handbært fé frá rekstri nam 2,0 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2018 samanborið við 7,5 milljónir evra árið áður. Skýrist það af lægri afkomu og breytingum í veltufjármunum.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 13,8 milljónum evra samanborið við 17,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 13,1 milljón evra en stærstu fjárfestingarnar voru í gámum og tækjabúnaði fyrir höfnina á Húsavík.
Nettó fjármögnunarhreyfingar námu 10,5 milljónum evra samanborið við 11,6 milljónir evra árið áður.
Handbært fé í lok mars var 21,6 milljónir evra samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2018
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2018 er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra. Fyrsti ársfjórðungur er venjulega sá fjórðungur sem skilar lægstri framlegð í rekstri félagsins en hann var undir væntingum. Búist er við vexti í innog útflutningi til og frá Íslandi. Gert er ráð fyrir að reksturinn í Færeyjum og Noregi verði stöðugur.
Í flutningsmiðlunarstarfsemi dróst flutningsmagn í kæli- og frysti flutningum dragast saman á fyrsta ársfjórðungi en gert er ráð fyrir að það aukist á ný á næstu ársfjórðungum en gert er ráð fyrir áframhaldandi góðum gangi í magni á þurrvöru eins og reyndin var á fyrsta ársfjórðungi.
Heilt yfir er gert ráð fyrir að verð á alþjóðlegum flutningamörkuðum verði stöðugt en að olíuverð fari hækkandi. Samkeppni er áfram hörð á markaðssvæðum félagsins, sérstaklega í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi. Aukning hefur verið í Trans-Atlantic flutningum eftir að félagið jók afkastagetu sína til og frá Norður-Ameríku.
Almenn óvissa er varðandi pólitíska áhættu á alþjóðavettvangi, spennu á ákveðnum viðskiptasvæðum, efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var 306,0 milljónir evra eða 37,7 milljarðar króna þann 17. maí 2018
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2017 var 250,50 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2017 296,83 krónum á hlut. Lokaverð þann 17. maí 2018 var 202,00 krónur á hlut, sem jafngildir 19,4% lækkun frá áramótum og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 37,7 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 306,0 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2017 var 712, en hluthafar voru 774 talsins þann 16. maí 2018.
Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var þann 22. mars 2018, samþykkti arðgreiðslu sem nam 6,80 krónum á hlut. Nam heildararðgreiðslan 1.269,1 milljón króna eða 10,4 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 18. apríl 2018.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| REKSTUR | Q1 2018 | Q4 2017 | Q3 2017 | Q 2 2017 | Q1 2017 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 155.532 | 175.884 | 173.868 | 170.722 | 143.499 |
| Rekstrargjöld | 148.281 | 163.986 | 154.581 | 154.019 | 134.189 |
| EBITDA | 7.251 | 11.898 | 19.287 | 16.703 | 9.310 |
| EBIT | (556) | 4.167 | 11.726 | 9.218 | 1.939 |
| Hagnaður tímabilsins | (1.586) | 2.885 | 8.792 | 4.934 | 193 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 4.7% | 6.8% | 11.1% | 9.8% | 6.5% |
| EBIT / rekstrartekjur | (0,4% | 2,4% | 6,7% | 5,4% | 1,4% |
| EFNAHAGUR | 31.03.2018 | 31.12.2017 | 30.09.2017 | 30.06.2017 | 31.03.2017 |
| Eignir | 468,781 | 459.515 | 445.663 | 434.390 | 414.652 |
| Eigið fé | 231.016 | 244.610 | 242.703 | 236.706 | 234.879 |
| Skuldir | 237.765 | 214.905 | 202.960 | 197.684 | 179.773 |
| Vaxtaberandi skuldir | 137.410 | 125.984 | 112.960 | 114.376 | 91.733 |
| Nettóskuldir | 115.796 | 102.815 | 88.415 | 77.768 | 50.377 |
| Eiginfjárhlutfall | 49,3% | 53,2% | 54,5% | 54,5% | 56,6% |
| SJÓÐSTREYMI | Q1 2018 | Q4 2017 | Q3 2017 | Q 2 2017 | Q1 2017 |
| Handbært frá rekstri | 1.988 | 10.596 | 7.669 | 11.779 | 7.535 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (13.841) | (25.123) | (9.965) | (24.989) | (17.479) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 10.532 | 13.412 | (9.382) | 9.176 | 11.633 |
| Handbært fé í lok tímabils | 21.614 | 23.169 | 24.545 | 36.608 | 41.356 |
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Þann 10. september 2013 framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit á starfsstöðvum Samskipa og Eimskips. Húsleitin var gerð vegna rannsóknar á meintum brotum gegn 10. og 11. gr. samkeppnislaga.
Frá því að húsleitin var gerð hefur Eimskip ítrekað óskað eftir upplýsingum um grundvöll málsins, með takmörkuðum árangri. Félagið hefur sent frá sér fjölda fréttatilkynninga um málið. Ítarleg fréttatilkynning var birt þann 23. október 2014 í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar.
Starfsmenn hjá Eimskip hafa verið boðaðir til skýrslutöku af embætti héraðssaksóknara og meðal þeirra yfirstjórnendur þ.m.t. forstjóri félagsins, sem hefur stöðu sakbornings. Eins og áður hefur félagið takmarkaðar upplýsingar um grundvöll málsins, en m.v. þær upplýsingar sem félaginu eru kunnar hafnar félagið sem fyrr ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Það er von félagsins að rannsókninni fari senn að ljúka og fagnar því, nú næstum fimm árum síðar, að loksins virðist sjá fyrir endann á rannsókninni.
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20 löndum í fjórum heimsálfum, er með 22 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.850 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 18. MAÍ 2018
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 18. maí 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2018. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2018 á stjórnarfundi þann 17. maí 2018.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Q2 2018: Uppgjör birt 30. ágúst 2018
- Q3 2018: Uppgjör birt 20. nóvember 2018
- Q4 2018: Uppgjör birt 21. febrúar 2019
- Aðalfundur 2019: 21. mars 2019
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, sími: 525 7202
- Hallgrímur Björnsson, fjárfestatengsl, sími: 825 7212, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.