AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Interim / Quarterly Report 2016
Aug 25, 2016
2194_bfr_2016-08-25_8398b6a0-f750-4a16-a201-9e7f5fdeb3db.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
EBITDA HÆKKAÐI UM 21,6% Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI 2016 Hagnaður eftir skatta hækkaði um 58,7%
- Rekstrartekjur námu 126,1 milljón evra, drógust saman um 0,5 milljónir evra eða 0,4%
- Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 9,1% og tekjur hækkuðu um 4,9 milljónir evra
- Flutningsmagn í flutningsmiðlun dróst saman um 1,2% og tekjur lækkuðu um 5,4 milljónir evra vegna áhrifa af lækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun
- EBITDA nam 16,2 milljónum evra samanborið við 13,3 milljónir evra og jókst um 21,6%
- Hagnaður nam 8,8 milljónum evra samanborið við 5,5 milljónir evra og jókst um 58,7%
- Eiginfjárhlutfall var 62,0% og nettóskuldir námu 31,4 milljónum evra í lok júní
- Afkomuspá ársins 2016 er óbreytt, eða EBITDA á bilinu 49 til 53 milljónir evra
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q2 2016 | Q2 2015 | Breyting | % | 6M 2016 | 6M 2015 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 126.102 | 126.587 | (485) | (0,4%) | 239.355 | 239.250 | 105 | 0,0% |
| Rekstrargjöld | 109.924 | 113.281 | (3.357) | (3,0%) | 213.545 | 220.160 | (6.615) | (3,0%) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 16.178 | 13.306 | 2.872 | 21,6% | 25.810 | 19.090 | 6.720 | 35,2% |
| Afskriftir | (6.797) | (5.790) | (1.007) | (17,4%) | (13.162) | (11.525) | (1.637) | (14,2%) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 9.381 | 7.516 | 1.865 | 24,8% | 12.648 | 7.565 | 5.083 | 67,2% |
| Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) | 706 | (1.661) | 2.367 | - | (659) | 509 | (1.168) | - |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | 115 | 9 4 |
21 | 22,3% | 215 | 186 | 29 | 15,6% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 10.202 | 5.949 | 4.253 | 71,5% | 12.204 | 8.260 | 3.944 | 47,7% |
| Tekjuskattur | (1.447) | (434) | (1.013) (233,4%) | (1.604) | (1.221) | (383) | (31,4%) | |
| Hagnaður tímabilsins | 8.755 | 5.515 | 3.240 | 58,7% | 10.600 | 7.039 | 3.561 | 50,6% |
| Tekjubreyting | (0,4%) | 16,2% | 0,0% | 12,2% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 12,8% | 10,5% | 10,8% | 8,0% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 7,4% | 5,9% | 5,3% | 3,2% | ||||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 0,60 | 0,99 | 0,60 | 0,99 | ||||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 30.06.2016 30.06.2015 | Breyting | % | 30.06.2016 31.12.2015 | Breyting | % | ||
| Eignir | 371.003 | 357.667 | 13.336 | 3,7% | 371.003 | 355.157 | 15.846 | 4,5% |
| Fastafjármunir | 236.271 | 226.743 | 9.528 | 4,2% | 236.271 | 233.280 | 2.991 | 1,3% |
| Veltufjármunir | 134.732 | 130.924 | 3.808 | 2,9% | 134.732 | 121.877 | 12.855 | 10,5% |
| Eigið fé | 229.928 | 219.400 | 10.528 | 4,8% | 229.928 | 228.124 | 1.804 | 0,8% |
| Skuldir | 141.075 | 138.267 | 2.808 | 2,0% | 141.075 | 127.033 | 14.042 | 11,1% |
| Langtímaskuldir | 50.957 | 41.029 | 9.928 | 24,2% | 50.957 | 55.550 | (4.593) | (8,3%) |
| Skammtímaskuldir | 90.118 | 97.237 | (7.119) | (7,3%) | 90.118 | 71.483 | 18.635 | 26,1% |
| Vaxtaberandi skuldir | 78.846 | 77.012 | 1.834 | 2,4% | 78.846 | 71.401 | 7.445 | 10,4% |
| Nettóskuldir | 31.383 | 40.001 | (8.618) | (21,5%) | 31.383 | 35.418 | (4.035) | (11,4%) |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 92,7% | 93,2% | 92,7% | 92,6% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 62,0% | 61,3% | 62,0% | 64,2% | ||||
| SJÓÐSTREYMI | Q2 2016 | Q2 2015 | Breyting | % | 6M 2016 | 6M 2015 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 15.671 | 11.811 | 3.860 | 32,7% | 28.351 | 14.894 | 13.457 | 90,4% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (4.293) | (14.963) | 10.670 | 71,3% | (14.240) | (23.458) | 9.218 | 39,3% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (11.103) | 5.929 | (17.032) | - | (2.242) | 4.562 | (6.804) | - |
| Breyting á handbæru fé | 275 | 2.777 | (2.502) | (90,1%) | 11.869 | (4.002) | 15.871 | - |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (149) | (192) | 43 | 22,4% | (389) | 1.474 | (1.863) | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 47.463 | 37.011 | 10.452 | 28,2% | 47.463 | 37.011 | 10.452 | 28,2% |
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 16,2 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2016 og hækkaði um 21,6% samanborið við sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 126,1 milljón evra og drógust saman um 0,4%. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 9,1% frá öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Tekjur af áætlunarsiglingum hækkuðu um 4,9 milljónir evra. Góður vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og Noregi, en samdráttur var í Færeyjum. Tekjur af flutningsmiðlun drógust saman um 5,4 milljónir evra vegna áhrifa af lækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Magn í flutningsmiðlun dróst saman um 1,2% samanborið við sama tímabil í fyrra. Stafar breytingin einkum af samdrætti í frystiflutningsmiðlun frá Kína, en aðrir markaðir hafa verið í vexti.
Vegna breytinga á siglingakerfi, hagræðingarverkefna, aukins kostnaðaraðhalds og lækkandi verðs í alþjóðlegri flutningsmiðlun dróst rekstrarkostnaður að meðtöldum launakostnaði saman um 3,0% á fjórðungnum og er það góður árangur í ljósi mikilla kostnaðarhækkana vegna kjarasamninga á Íslandi.
Jákvæður viðsnúningur á gengismun nam 2,1 milljón evra á fjórðungnum og var hagnaður eftir skatta 8,8 milljónir evra, sem er vöxtur um 58,7% frá öðrum ársfjórðungi 2015. Handbært fé frá rekstri nam 15,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 11,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og nam handbært fé 47,5 milljónum evra í lok júní. Þetta er besti árangur sem náðst hefur á öðrum ársfjórðungi í rekstri félagsins frá árinu 2009 hvað varðar EBITDA, EBIT, hagnað og handbært fé frá rekstri.
Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins námu 239,4 milljónum evra og voru óbreyttar á milli ára. EBITDA tímabilsins nam 25,8 milljónum evra og jókst um 6,7 milljónir eða 35,2% evra frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður tímabilsins jókst um 50,6% og nam 10,6 milljónum evra. Flutt magn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 8,6% samanborið við fyrstu sex mánuði fyrra árs og magn í flutningsmiðlun jókst um 2,2%.
Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í maí viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips. Félögin hafa frá þeim tíma unnið að því að móta og meta mögulegt samstarf um fjárfestingu í gámaskipum og samtengingu siglingakerfa. Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og gerum við ráð fyrir að ákvörðun liggi fyrir fljótlega.
Frá því í maí hefur undirbúningur fjárfestingarverkefna gengið vel og Eimskip stefnir að því að ljúka á þriðja og fjórða ársfjórðungi kaupum á nokkrum fyrirtækjum í Evrópu sem falla undir okkar kjarnastarfsemi. Félagið er nú í samstarfi við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyrirtæki til að ljúka áreiðanleikakönnunum.
Eins og áður hefur komið fram er það áfram markmið okkar að vaxa, bæði með innri vexti og með kaupum á fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Við munum halda áfram á sömu braut í að vinna að fjárfestingum í fyrirtækjum og skipum. Við munum ekki auka hlutafé til að ljúka mögulegum fjárfestingum en munum hins vegar nota handbært fé og auka lántökur til að koma skuldsetningu fyrirtækisins í eðlilegra horf, þó þannig að efnahagsreikningur félagsins verði áfram sterkur.
Horfur um þriðja ársfjórðung eru í samræmi við okkar væntingar og er afkomuspá fyrir árið 2016 óbreytt frá því sem kynnt var í maí, eða EBITDA á bilinu 49 til 53 milljónir evra."
REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips námu 126,1 milljón evra á öðrum ársfjórðungi 2016 samanborið við 126,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og drógust saman um 0,5 milljónir evra eða 0,4% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 95,9 milljónum evra samanborið við 91,0 milljón evra á öðrum fjórðungi síðasta árs og jukust um 5,4%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 9,1% samanborið við sama tímabil 2015, einkum vegna góðs vaxtar í flutningum tengdum Íslandi og Noregi. Tekjur af flutningsmiðlun námu 30,2 milljónum evra samanborið við 35,5 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2015 og drógust saman um 13,5%, aðallega vegna lækkandi verða frá alþjóðlegu skipafélögunum í þjónustu á milli Asíu og Evrópu. Magn í flutningsmiðlun, bæði frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, dróst saman um 1,2% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra, einkum vegna samdráttar í frystiflutningsmiðlun frá Kína, en aðrir markaðir hafa verið í vexti.
Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 109,9 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 113,3 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra og drógust saman um 3,0%. Þar af nam rekstrarkostnaður 80,9 milljónum evra samanborið við 89,2 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2015 og dróst saman um 9,2%. Ráðist hefur verið í ýmis hagræðingarverkefni sem hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði. Þá hefur kostnaður í flutningsmiðlun félagsins dregist saman vegna áhrifa af lægri verðum frá alþjóðlegu skipafélögunum. Laun og launatengd gjöld námu 29,0 milljónum evra á tímabilinu og jukust um 20,2% frá fyrra ári.
EBITDA fjórðungsins nam 16,2 milljónum evra samanborið við 13,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jókst um 21,6%. EBITDA hlutfall tímabilsins var 12,8% samanborið við 10,5% á öðrum ársfjórðungi 2015. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 12,9 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 10,7 milljónir á sama tímabili í fyrra og jókst um 20,6%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 13,4% samanborið við 11,7% EBITDA hlutfall á öðrum ársfjórðungi 2015. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 3,3 milljónum evra samanborið við 2,6 milljónir evra á sama tímabili 2015 og jókst um 25,4%. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 10,9% og jókst frá því að vera 7,4% á öðrum ársfjórðungi síðasta árs.
Afskriftir fjórðungsins námu 6,8 milljónum evra samanborið við 5,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist aðallega af fjárfestingum í rekstrarfjármunum, dokkunum skipa og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.
Rekstrarhagnaður fjórðungsins, EBIT, nam 9,4 milljónum evra samanborið 7,5 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2015 og jókst um 24,8%.
Nettó fjármunatekjur námu 0,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 1,7 milljóna evra nettó fjármagnsgjöld á sama tímabili í fyrra. Gengissveiflur, þar sem til dæmis gengi Bandaríkjadollars og íslenskrar krónu styrktist gagnvart evru, leiddu til 1,2 milljóna evra gengishagnaðar á fjórðungnum samanborið við 0,9 milljóna evra gengistap á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Þessi jákvæði viðsnúningur að fjárhæð 2,1 milljón evra skýrir að mestu breytinguna á fjármagnsliðum frá fyrra ári. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga nam 0,1 milljón evra og var sambærileg við sama tímabil í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 10,2 milljónum evra samanborið við 5,9 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt á öðrum ársfjórðungi 2015 og jókst um 71,5%.
Gjaldfærður tekjuskattur nam 1,5 milljónum evra samanborið við 0,4 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Virkt skatthlutfall nam 14,2% samanborið við 7,3% á sama ársfjórðungi í fyrra. Hækkunin skýrist að mestu af sveiflum á milli fjórðunga í skattalegri afkomu í einu af dótturfélögum Eimskips á árinu 2015.
Hagnaður annars ársfjórðungs jókst um 58,7% og nam 8,8 milljónum evra samanborið við 5,5 milljóna evra hagnað á sama tímabili 2015.
REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS
- Rekstrartekjur námu 239,4 milljónum evra og voru óbreyttar á milli ára
- EBITDA nam 25,8 milljónum evra og jókst um 6,7 milljónir evra eða 35,2% á milli ára
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 8,6% á milli ára
- Flutningsmagn í flutningsmiðlun jókst um 2,2% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins námu 239,4 milljónum evra samanborið við 239,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 179,2 milljónum evra samanborið við 169,6 milljónir evra og jukust um 5,6%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 8,6% frá sama tímabili 2015, einkum vegna góðs vaxtar í flutningum tengdum Íslandi og Noregi, á meðan smávægilegur samdráttur var í Færeyjum. Tekjur af flutningsmiðlun, bæði frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, námu 60,2 milljónum evra samanborið við 69,1 milljón evra á fyrstu sex mánuðum 2015 og drógust saman um 13,5%, einkum vegna lækkandi verða frá alþjóðlegu skipafélögunum í þjónustu á milli Asíu og Evrópu. Magn í flutningsmiðlun jókst um 2,2% frá sama tímabili í fyrra.
Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 213,5 milljónum evra samanborið við 220,2 milljónir evra fyrstu sex mánuðina í fyrra og drógust saman um 3,0%. Þar af nam rekstrarkostnaður 157,9 milljónum evra samanborið við 173,9 milljónir evra á sama tímabili 2015 og dróst saman um 9,2%. Siglingakerfi félagsins var breytt haustið 2015 til að auka áreiðanleika þjónustunnar og til að auðvelda reksturinn yfir vetrartímann og hafa þessar breytingar bætt reksturinn. Viðhaldskostnaður skipa var einnig lægri fyrstu sex mánuði ársins en í fyrra. Ráðist hefur verið í ýmis hagræðingarverkefni sem hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði. Þá hefur kostnaður í flutningsmiðlun félagsins dregist saman vegna áhrifa af lægri verðum frá alþjóðlegu skipafélögunum. Laun og launatengd gjöld námu 55,7 milljónum evra á tímabilinu og jukust um 20,2% frá fyrra ári. Þar af skýrast 10,5% af almennum launahækkunum, 4,0% af auknum umsvifum, 3,2% af gengisbreytingum og 2,5% af fyrirtækjum sem bættust við samstæðu Eimskips á síðasta ári.
EBITDA tímabilsins nam 25,8 milljónum evra samanborið við 19,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og jókst um 35,2%. EBITDA hlutfall tímabilsins var 10,8% samanborið við 8,0% fyrstu sex mánuðina 2015. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 20,6 milljónum evra samanborið við 15,3 milljónir á sama tímabili í fyrra og jókst um 35,0%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 11,5% samanborið við 9,0% EBITDA hlutfall á fyrra ári. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 5,2 milljónum evra samanborið við 3,8 milljónir evra á sama tímabili 2015 og jókst um 36,2%. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 8,6% og jókst frá því að vera 5,5% á fyrstu sex mánuðum síðasta árs.
Afskriftir námu 13,2 milljónum evra samanborið við 11,5 milljónir evra fyrstu sex mánuðina í fyrra. Aukningin skýrist aðallega af fjárfestingum í rekstrarfjármunum, dokkunum skipa og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.
Rekstrarhagnaður fjórðungsins, EBIT, nam 12,6 milljónum evra samanborið við 7,6 milljónir evra í fyrra og jókst um 67,2%.
Nettó fjármagnskostnaður nam 0,7 milljónum evra samanborið við 0,5 milljóna evra nettó fjármunatekjur á fyrstu sex mánuðum fyrra árs. Gengissveiflur á tímabilinu leiddu til 0,4 milljóna evra gengishagnaðar samanborið við 2,0 milljóna evra gengishagnað á sama tímabili í fyrra. Þessi 1,6 milljóna evra lækkun
gengishagnaðar skýrir að mestu breytinguna á fjármagnsliðum á milli ára. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga nam 0,2 milljón evra og var hún sambærileg við sama tímabil í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 12,2 milljónum evra samanborið við 8,3 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt á fyrstu sex mánuðum 2015 og jókst um 47,7%.
Gjaldfærður tekjuskattur tímabilsins nam 1,6 milljónum evra samanborið við 1,2 milljónir evra í fyrra. Virkt skatthlutfall var 13,1% í ár samanborið við 14,8% fyrir sama tímabil síðasta árs.
Hagnaður fyrstu sex mánaða ársins nam 10,6 milljónum evra samanborið við 7,0 milljóna evra hagnað á sama tímabili 2015. Þetta er 3,6 milljóna evra eða 50,6% aukning hagnaðar þrátt fyrir 1,6 milljóna evra lækkun gengishagnaðar.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur aukist jafnt og þétt frá árinu á undan. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Á árinu 2015 voru gerðar ýmsar breytingar á siglingakerfi félagsins til að auka afkastagetu þess og áreiðanleika þjónustu við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomum á Íslandi. Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Póllandi.
Félagið er með 20 skip í rekstri, þar af þrettán eigin skip og sjö leiguskip. Þrettán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú eru í 'spot' þjónustu, eitt er í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en á árinu 2015 var verulegur vöxtur í tekjum og EBITDA, sem og í EBITDA á fyrsta og öðrum ársfjórðungi 2016.
Myndirnar sýna hvernig rekstrartekjur og EBITDA skiptast á ársfjórðunga á árunum 2012 til 2016. Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árinu 2012. EBITDA á þriðja ársfjórðungi hefur verið hækkuð um 0,7 milljónir evra vegna kostnaðar við skráningu félagsins á markað. EBITDA á fjórða ársfjórðungi hefur einnig verið hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem framkvæmdastjórn féll frá.
Í milljónum evra
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 371,0 milljón evra í lok júní 2016
- Eiginfjárhlutfall var 62,0%
- Vaxtaberandi skuldir námu 78,8 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 31,4 milljónum evra
Heildareignir Eimskips námu 371,0 milljón evra þann 30. júní 2016. Til samanburðar námu heildareignir 357,7 milljónum evra í lok júní 2015 og 355,2 milljónum evra í árslok 2015.
Fastafjármunir námu 236,3 milljónum evra samanborið við 226,7 milljónir evra í lok júní í fyrra og 233,3 milljónir evra í árslok 2015. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 15,0 milljónum evra samanborið við 17,1 milljón evra á fyrstu sex mánuðum 2015.
Veltufjármunir námu 134,7 milljónum evra í lok júní samanborið við 130,9 milljónir evra í lok júní 2015 og 121,9 milljónir evra í árslok 2015. Breytingin skýrist einkum af breytingum á handbæru fé á tímabilinu, en handbært fé endaði í 47,5 milljónum evra í lok fjórðungsins. Til samanburðar nam handbært fé 37,0 milljónum evra í lok júní í fyrra og 36,0 milljónum evra í árslok 2015.
Eigið fé nam 229,9 milljónum evra í lok júní og var eiginfjárhlutfallið 62,0%. Arður að fjárhæð 1.213,2 milljónir króna, eða 8,6 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl 2016. Til samanburðar var eigið fé 219,4 milljónir í lok júní 2015 með 61,3% eiginfjárhlutfall og 228,1 milljón evra með 64,2% eiginfjárhlutfall í árslok 2015.
Skammtímaskuldir námu 90,1 milljón evra í lok júní samanborið við 97,2 milljónir evra í lok júní 2015 og 71,5 milljónir evra í árslok 2015. Hækkunin skýrist að mestu af skammtímalánalínu sem er á gjalddaga innan 12 mánaða.
Vaxtaberandi skuldir námu 78,8 milljónum evra í lok júní samanborið við 77,0 milljónir evra í lok júní í fyrra og 71,4 milljónir evra í lok árs 2015. Nettóskuldir í lok júní námu 31,4 milljónum evra samanborið við 40,0 milljónir evra í lok júní á síðasta ári og 35,4 milljónir evra í árslok 2015.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 28,4 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 14,2 milljónum evra
Handbært fé var 47,5 milljónir evra í lok júní
Handbært fé frá rekstri nam 28,4 milljónum evra fyrstu sex mánuði 2016 samanborið við 14,9 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 14,2 milljónum evra samanborið við 23,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 17,5 milljónum evra, en stærstu fjárfestingarnar voru gámar og hafnarkrani. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 18,6 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum 2015.
Nettó útstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga nam 2,2 milljónum evra samanborið við nettó innstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga að fjárhæð 4,6 milljónir evra fyrstu sex mánuði síðasta árs.
Sjóðsflæði var jákvætt um 11,9 milljónir evra samanborið við 4,0 milljóna evra neikvætt sjóðsflæði á sama tímabili í fyrra. Handbært fé nam 47,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 37,0 milljónir evra í lok júní í fyrra og 36,0 milljónir evra í árslok 2015.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2016
Afkomuspá félagsins fyrir árið 2016 er óbreytt frá því sem kynnt var í maí, eða EBITDA á bilinu 49 til 53 milljónir evra. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum og innviðum og kostnaður því tengdur eru ekki talin með í afkomuspá ársins.
Horfur fyrir þriðja ársfjórðung eru í samræmi við væntingar félagsins og almennt eru horfur fyrir það sem eftir lifir árs jákvæðar. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti í magni tengdu Íslandi, að magn tengt Færeyjum verði svipað og á síðasta ári og eru horfur fyrir frystiflutninga í Noregi áfram jákvæðar. Flutningsmiðlun, sem samanstendur af frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, fór vel af stað á fyrsta ársfjórðungi en smávægilegur samdráttur var á öðrum ársfjórðungi sem leiddi til 2,2% magnaukningar á fyrstu sex mánuðum ársins. Frystiflutningsmiðlun hefur verið undir væntingum vegna efnahagsástands í Kína, á meðan almenn flutningsmiðlun hefur gengið vel og reiknað er með svipuðum vexti út árið.
Enn er óvissa varðandi kjarasamninga við hluta íslenskra áhafna á skipum félagsins, auk almennrar óvissu varðandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði félagsins var 53,6 milljarðar króna þann 24. ágúst 2016
Lokaverð bréfa Eimskips hefur farið hækkandi á árinu 2016. Lokaverð ársins 2015 var 235,50 krónur á hlut og meðaltalslokaverð sem af er 248,39 krónur á hlut. Lokaverð þann 24. ágúst 2016 var 287,00 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 53,6 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 406,4 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2015 var 955 og voru hluthafar 829 talsins þann 24. ágúst 2016.
Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var 17. mars 2016, samþykkti arðgreiðslu sem nam 6,50 krónum á hlut. Heildararðgreiðslan nam 1.213,2 milljónum króna eða 8,6 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 14. apríl 2016.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| REKSTUR | Q2 2016 | Q1 2016 | Q4 2015 | Q3 2015 | Q2 2015 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 126.102 | 113.253 | 130.610 | 129.721 | 126.587 |
| Rekstrargjöld | 109.924 | 103.621 | 120.863 | 113.361 | 113.281 |
| EBITDA | 16.178 | 9.632 | 9.747 | 16.360 | 13.306 |
| EBIT | 9.381 | 3.267 | 2.476 | 10.427 | 7.516 |
| Hagnaður tímabilsins | 8.755 | 1.845 | 2.289 | 8.474 | 5.515 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 12,8% | 8,5% | 7,5% | 12,6% | 10,5% |
| EBIT / rekstrartekjur | 7,4% | 2,9% | 1,9% | 8,0% | 5,9% |
| EFNAHAGUR | 30.06.2016 | 31.03.2016 | 31.12.2015 | 30.09.2015 | 30.06.2015 |
| Eignir | 371.003 | 368.468 | 355.157 | 370.650 | 357.667 |
| Eigið fé | 229.928 | 220.796 | 228.124 | 225.958 | 219.400 |
| Skuldir | 141.075 | 147.672 | 127.033 | 144.692 | 138.267 |
| Vaxtaberandi skuldir | 78.846 | 80.764 | 71.401 | 81.769 | 77.012 |
| Nettóskuldir | 31.383 | 33.427 | 35.418 | 52.519 | 40.001 |
| Eiginfjárhlutfall | 62,0% | 59,9% | 64,2% | 61,0% | 61,3% |
| SJÓÐSTREYMI | Q2 2016 | Q1 2016 | Q4 2015 | Q3 2015 | Q2 2015 |
| Handbært frá rekstri | 15.671 | 12.680 | 15.574 | 6.889 | 11.811 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (4.293) | (9.947) | 4.032 | (15.780) | (14.963) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (11.103) | 8.861 | (11.611) | 1.876 | 5.929 |
| Handbært fé í lok tímabils | 47.463 | 47.337 | 35.983 | 29.250 | 37.011 |
RANNSÓKNIR SAMKEPPNISYFIRVALDA
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Íslandi stendur enn yfir og hefur Eimskip engar frekari upplýsingar um hana en þegar hafa verið birtar. Inntak rannsóknarinnar liggur ekki fyrir og því ótímabært að fara nánar út í hugsanlegar niðurstöður hennar. Það er fyrirtækinu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
Í ársreikningi Eimskips fyrir árið 2015 var upplýst um að eignarhaldsfélag innan samstæðunnar hafi gjaldfært 0,9 milljónir evra vegna sektar sem tilkomin var vegna eignarhalds þess á fyrirtæki sem varð gjaldþrota fyrir haustið 2009. Þessu máli er nú lokið og hefur sektin verið lækkuð í 0,4 milljónir evra. Eignarhaldsfélagið hafði aldrei beina aðkomu að málefnum fyrirtækisins og áttu engir af starfsmönnum Eimskips hlut að máli.
UM EIMSKIP
Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.600 starfsmönnum. Um það bil helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 26. ÁGÚST 2016
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 26. ágúst 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2016. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016 á stjórnarfundi þann 25. ágúst 2016.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016 verður birt 17. nóvember 2016
- Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2016 verður birt 23. febrúar 2017
- Aðalfundur 2017 verður haldinn 23. mars 2017
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.