AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Interim / Quarterly Report 2015
Aug 27, 2015
2194_er_2015-08-27_5be99b1e-3d68-4ba4-b408-912d04c940dd.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
EIMSKIP KYNNIR AFKOMU ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS 2015
- Rekstrartekjur voru 126,6 milljónir evra, jukust um 17,6 milljónir evra eða 16,2% frá Q2 2014
- EBITDA nam 13,3 milljónum evra, jókst úr 11,0 milljónum evra eða um 20,4% frá Q2 2014
- Hagnaður nam 5,5 milljónum evra, jókst úr 4,6 milljónum evra eða um 20,1% frá Q2 2014
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 6,9% frá Q2 2014
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 20,5% frá Q2 2014
- Eiginfjárhlutfall var 61,3% og nettóskuldir námu 40,0 milljónum evra í lok júní
- Áætluð EBITDA ársins 2015 hefur verið endurskoðuð og er nú á bilinu 41 til 45 milljónir evra
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q2 2015 | Q2 2014 | Breyting | % | 6M 2015 | 6M 2014 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 126.587 | 108.978 | 17.609 | 16,2% | 239.250 | 213.178 | 26.072 | 12,2% |
| Rekstrargjöld | 113.281 | 97.929 | 15.352 | 15,7% | 220.160 | 196.111 | 24.049 | 12,3% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 13.306 | 11.049 | 2.257 | 20,4% | 19.090 | 17.067 | 2.023 | 11,9% |
| Afskriftir | (5.790) | (5.903) | 113 | 1,9% | (11.525) | (11.559) | 34 | 0,3% |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 7.516 | 5.146 | 2.370 | 46,1% | 7.565 | 5.508 | 2.057 | 37,3% |
| Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) | (1.661) | 8 6 |
(1.747) | - | 509 | (770) | 1.279 | - |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | 9 4 |
115 | (21) | (18,3%) | 186 | 8 8 |
98 | 111,4% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 5.949 | 5.347 | 602 | 11,3% | 8.260 | 4.826 | 3.434 | 71,2% |
| Tekjuskattur | (434) | (754) | 320 | 42,4% | (1.221) | (1.026) | (195) | (19,0%) |
| Hagnaður tímabilsins | 5.515 | 4.593 | 922 | 20,1% | 7.039 | 3.800 | 3.239 | 85,2% |
| Leiðrétt fyrir einskiptisliðum: | ||||||||
| Tekjubreyting | 16,2% | 0,8% | 12,2% | (0,1%) | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 10,5% | 10,1% | 8,0% | 8,0% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 5,9% | 4,7% | 3,2% | 2,6% | ||||
| Nettóskuldir / LTM EBITDA | 0,99 | 0,86 | 0,99 | 0,86 | ||||
| Efnahagsreikningur | 30.06.2015 30.06.2014 | Breyting | % | 30.06.2015 31.12.2014 | Breyting | % | ||
| Eignir | 357.667 | 315.897 | 41.770 | 13,2% | 357.667 | 332.040 | 25.627 | 7,7% |
| Fastafjármunir | 226.743 | 214.497 | 12.246 | 5,7% | 226.743 | 214.278 | 12.465 | 5,8% |
| Veltufjármunir | 130.924 | 101.400 | 29.524 | 29,1% | 130.924 | 117.762 | 13.162 | 11,2% |
| Eigið fé | 219.400 | 206.588 | 12.812 | 6,2% | 219.400 | 216.472 | 2.928 | 1,4% |
| Skuldir | 138.267 | 109.309 | 28.958 | 26,5% | 138.267 | 115.568 | 22.699 | 19,6% |
| Langtímaskuldir | 41.029 | 49.576 | (8.547) | (17,2%) | 41.029 | 49.904 | (8.875) | (17,8%) |
| Skammtímaskuldir | 97.237 | 59.733 | 37.504 | 62,8% | 97.237 | 65.664 | 31.573 | 48,1% |
| Vaxtaberandi skuldir | 77.012 | 56.841 | 20.171 | 35,5% | 77.012 | 64.432 | 12.580 | 19,5% |
| Nettóskuldir | 40.001 | 32.023 | 7.978 | 24,9% | 40.001 | 24.893 | 15.108 | 60,7% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 93,2% | 93,7% | 93,2% | 94,2% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 61,3% | 65,4% | 61,3% | 65,2% | ||||
| Sjóðstreymi | Q2 2015 | Q2 2014 | Breyting | % | 6M 2015 | 6M 2014 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 11.811 | 8.225 | 3.586 | 43,6% | 14.894 | 13.922 | 972 | 7,0% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (14.963) | (5.952) | (9.011) (151,4%) | (23.458) | (8.776) | (14.682) (167,3%) | ||
| Fjármögnunarhreyfingar | 5.929 | (5.103) | 11.032 | - | 4.562 | (6.947) | 11.509 | - |
| Breyting á handbæru fé | 2.777 | (2.830) | 5.607 | - | (4.002) | (1.801) | (2.201) (122,2%) | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (192) | 161 | (353) | - | 1.474 | 249 | 1.225 | 492,0% |
| Handbært fé í lok tímabils | 37.011 | 24.818 | 12.193 | 49,1% | 37.011 | 24.818 | 12.193 | 49,1% |
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Rekstrartekjur og EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2015 eru þær hæstu á einum ársfjórðungi frá endurskipulagningu félagsins árið 2009. Rekstrartekjur jukust um 16,2% frá öðrum ársfjórðungi á fyrra ári og EBITDA nam 13,3 milljónum evra sem er 20,4% hækkun frá árinu 2014. Hagnaður eftir skatta nam 5,5 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 4,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra sem er 20,1% hækkun.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 6,9% á öðrum ársfjórðungi, en mikill vöxtur var í flutningum til og frá Íslandi. Einnig var vöxtur í flutningum í Noregi á öðrum ársfjórðungi eins og við reiknuðum með eftir mjög erfiðan fyrsta ársfjórðung þar sem veðurfar og aflabrestur höfðu mikil áhrif. Flutningar til og frá Færeyjum drógust lítillega saman. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 20,5% á öðrum ársfjórðungi, aðallega vegna aukinna umsvifa á Nýfundnalandi og í Hollandi.
Tekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins námu 239,3 milljónum evra samanborið við 213,2 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, en það samsvarar 12,2% vexti. EBITDA fyrstu sex mánuðina nam 19,1 milljón evra sem er aukning um 11,9% frá fyrra ári og hagnaður eftir skatta nam 7,0 milljónum evra samanborið við 3,8 milljónir evra á árinu 2014 sem er 85,2% hækkun. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 1,9% frá sama tímabili í fyrra og magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,9%.
Eimskip metur stöðu sína varðandi smíði á seinna skipinu í Kína sem ekki hefur gengið samkvæmt áætlun. Eins og áður hefur komið fram var afhending áætluð í síðasta lagi á fjórða ársfjórðungi þessa árs og er ákvörðunar varðandi skipið að vænta á næstu dögum.
Kaup Eimskips á Sæferðum ehf. hafa verið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu, en þeim er á grundvelli samkeppnislaga sett skilyrði sem Eimskip hefur skuldbundið sig til að fylgja. Skilyrðunum er ætlað að tryggja sjálfstæði Sæferða og að jafnræðis og hlutlægni sé gætt gagnvart viðskiptavinum Sæferða. Rekstur Sæferða kemur þar með inní afkomu samstæðunnar frá og með 1. ágúst.
Framkvæmdir við byggingu 10 þúsund tonna frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði eru í fullum gangi en félagið gerir ráð fyrir að geta tekið fyrsta áfanga geymslunnar í notkun í október.
Stjórn og stjórnendur Eimskips halda áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri og yfirtökur til vaxtar í samræmi við framtíðarsýn félagsins.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins hefur vaxið umfram væntingar það sem af er þriðja ársfjórðungi. Rekstur félagsins tengdur Íslandi hefur verið góður það sem af er ári og er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti. Afkoma af starfsemi Eimskips í Noregi var undir væntingum á fyrsta ársfjórðungi vegna veðurfars og aflabrests en afkoman var mun betri á öðrum ársfjórðungi og er áfram gert ráð fyrir vexti. Viðskiptabann Rússa á innflutning frá Íslandi frá og með ágústmánuði í ár veldur óvissu, en gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum innflutningsbannsins á rekstur Eimskips þar sem félagið hefur aðeins flutt óverulegan hluta af heildarmagni uppsjávarfisks til Rússlands, en uppsjávarfiskurinn hefur að mestu verið fluttur með erlendum frystiskipum beint til Rússlands. Félagið hefur ákveðið að breyta afkomuspá sinni fyrir árið 2015 í það að EBITDA verði á bilinu 41 til 45 milljónir evra í stað þess að vera á bilinu 39 til 44 milljónir evra eins og kynnt var í febrúar 2015."
REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips námu 126,6 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2015 samanborið við 109,0 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jukust um 16,2%. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 91,0 milljón evra samanborið við 82,1 milljón evra á öðrum ársfjórðungi í fyrra og jukust um 10,9% á milli ára. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 6,9% á fjórðungnum frá sama tímabili í fyrra, en verulegur vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og nokkur vöxtur í Noregi en samdráttur í magni til og frá Færeyjum. Tekjur af flutningsmiðlun námu 35,5 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 26,9
milljónir á sama tímabili 2014, en það samsvarar 32,1% vexti. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 20,5% frá öðrum ársfjórðungi 2014. Aukningu í tekjum umfram flutt magn má að miklu leyti skýra með fjárfestingum í nýjum flutningsmiðlunarfyrirtækjum, samsetningu flutninga og gengisþróun, en evra veiktist töluvert á milli ára gagnvart helstu viðskiptamyntum félagsins.
EBITDA nam 13,3 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 11,0 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og er það 20,4% hækkun. EBITDA hlutfall fjórðungsins nam 10,5% samanborið við 10,1% á sama fjórðungi fyrra árs. Hækkun EBITDA á milli ára má að mestu skýra með auknu flutningsmagni í áætlunarkerfum félagsins, gengisþróun og fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum í flutningsmiðlun. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 10,7 milljónum evra samanborið við 9,5 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2014 og er það 12,1% hækkun. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi nam 2,6 milljónum evra samanborið við 1,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og er það 72,2% vöxtur.
Afskriftir námu 5,8 milljónum evra samanborið við 5,9 milljónir evra í öðrum ársfjórðungi 2014.
Rekstrarhagnaður fjórðungsins, EBIT, nam 7,5 milljónum evra samanborið við 5,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og er það aukning um 46,1%.
Nettó fjármagnsgjöld námu 1,7 milljónum evra samanborið við 0,1 milljónar evra nettó fjármunatekjur á öðrum ársfjórðungi 2014. Breytingin á milli ára skýrist aðallega af 0,9 milljóna evra gengistapi á öðrum ársfjórðungi í ár samanborið við 0,5 milljóna evra gengishagnað á sama tímabili í fyrra. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 0,1 milljón evra á fjórðungnum og var sú sama og á öðrum ársfjórðungi fyrra árs.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 5,9 milljónum evra samanborið við 5,3 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt á öðrum ársfjórðungi 2014.
Gjaldfærðir skattar tímabilsins námu 0,4 milljónum evra samanborið við 0,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Lækkun virks skatthlutfalls skýrist að mestu af skattalegum hagnaði í einu af dótturfélögum Eimskips á öðrum ársfjórðungi 2015 samanborið við skattalegt tap í því félagi á árinu 2014, en það ár hafði dótturfélagið ekki eignfært allt skattalega tapið vegna óvissu um nýtingu.
Hagnaður annars ársfjórðungs eftir skatta nam 5,5 milljónum evra samanborið við 4,6 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra og samsvarar það 20,1% hækkun.
REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS
- Rekstrartekjur námu 239,3 milljónum evra og jukust um 26,1 milljón evra eða 12,2% á milli ára
- EBITDA var 19,1 milljón evra og jókst um 2,0 milljónir evra eða 11,9% á milli ára
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 1,9% á milli ára
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,9% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins námu 239,3 milljónum evra samanborið við 213,2 milljónir evra á sama tímabili í fyrra sem er aukning um 12,2%. Tekjur af áætlunarsiglingum þessa fyrstu sex mánuði námu 169,6 milljónum evra og jukust þær um 6,8%. Heildaraukning í magni í áætlunarsiglingum nam 1,9% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur af flutningsmiðlun námu 69,6 milljónum evra og jukust þær um 28,1% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs, einkum vegna fjárfestinga í nýjum fyrirtækjum í samstæðu Eimskips, aukningar í magni, samsetningar flutninga og gengisþróunar. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,9% frá fyrstu sex mánuðum 2014.
EBITDA nam 19,1 milljón evra fyrstu sex mánuði ársins samanborið við 17,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og samsvarar það 11,9% aukningu. EBITDA hlutfall tímabilsins nam 8,0% og er óbreytt frá sama tímabili í fyrra. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 15,3 milljónum evra samanborið við 14,2 milljónir evra fyrstu sex mánuðina 2014 sem er aukning um 7,5%. EBITDA af
flutningsmiðlunarstarfsemi nam 3,8 milljónum evra samanborið við 2,9 milljóna evra EBITDA á sama tímabili í fyrra og jókst um 33,3%.
Afskriftir tímabilsins námu 11,5 milljónum evra samanborið við 11,6 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður tímabilsins, EBIT, nam 7,6 milljónum evra samanborið við 5,5 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum síðasta árs og jókst um 37,3%.
Nettó fjármunatekjur námu 0,5 milljónum evra samanborið við 0,8 milljóna evra nettó fjármagnsgjöld fyrstu sex mánuði fyrra árs. Breytingin skýrist að mestu af 2,0 milljóna evra gengishagnaði í ár samanborið við 0,3 milljóna evra gengishagnað á sama tímabili 2014. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 0,2 milljónum evra samanborið við 0,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 8,3 milljónum evra samanborið við 4,8 milljóna evra hagnað fyrir tekjuskatt fyrstu sex mánuði fyrra árs og er það hækkun um 3,4 milljónir evra eða 71,2%.
Gjaldfærðir skattar tímabilsins námu 1,2 milljónum evra samanborið við 1,0 milljón evra á sama tímabili í fyrra. Lækkun virks skatthlutfalls skýrist að mestu af skattalegum hagnaði í einu af dótturfélögum Eimskips á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 samanborið við skattalegt tap í því félagi á árinu 2014, en það ár hafði dótturfélagið ekki eignfært allt skattalega tapið vegna óvissu um nýtingu.
Hagnaður eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins nam 7,0 milljónum evra samanborið við 3,8 milljóna evra hagnað á sama tímabili 2014 og er það hækkun um 3,2 milljónir evra eða 85,2%.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en þær sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjórðunga á árunum 2011 til 2015.
Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem fallið var frá.
Miklar breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í mars 2013 sem juku afkastagetu þess og í febrúar 2014 var ráðist í aðlögun á kerfinu, meðal annars vegna þess að slæm veðurskilyrði til siglinga settu áætlunarkerfið úr skorðum. Bætt var við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, á milli Færeyja og Skotlands til að auka sveigjanleika kerfisins og áreiðanleika þjónustunnar við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja
græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomum á Íslandi.
Félagið er með 16 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og fjögur leiguskip. Tólf skipanna eru í áætlunarsiglingum, tvö eru í "spot" þjónustu, eitt er í stórflutningum og eitt er í ferjusiglingum.
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 357,7 milljónum evra í lok júní 2015
- Eiginfjárhlutfall var 61,3%
- Vaxtaberandi skuldir námu 77,0 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 40,0 milljónum evra
Heildareignir Eimskips námu 357,7 milljónum evra þann 30. júní 2015. Til samanburðar námu heildareignir 315,9 milljónum evra í lok júní 2014 og 332,0 milljónum evra í árslok 2014.
Fastafjármunir námu 226,7 milljónum evra í lok júní samanborið við 214,5 milljónir evra í lok júní í fyrra og 214,3 milljónir evra í árslok 2014. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 17,1 milljón evra samanborið við 9,8 milljónir evra á fyrri hluta ársins 2014.
Veltufjármunir félagsins námu 130,9 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs samanborið við 101,4 milljónir evra í lok júní 2014 og 117,8 milljónir evra í árslok 2014. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur hækkuðu frá árslokum 2014 vegna aukinna tekna, gengisþróunar og vegna nýrra fyrirtækja í samstæðunni. Handbært fé nam 37,0 milljónum evra í lok júní samanborið við 24,8 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs 2014 og 39,5 milljónir evra í lok árs 2014.
Eigið fé nam 219,4 milljónum evra í lok júní og var eiginfjárhlutfallið 61,3%. Arður að fjárhæð 933,2 milljónir króna, eða 6,3 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl. Til samanburðar nam eigið fé 216,5 milljónum evra í árslok 2014 og eiginfjárhlutfallið var 65,2%.
Skammtímaskuldir námu 97,2 milljónum evra í lok júní samanborið við 59,7 milljónir evra í lok júní 2014 og 65,7 milljónir evra í lok árs 2014. Hækkunin á árinu skýrist að mestu af 7,6 milljóna evra brúarláni vegna nýbyggingar skipa sem kemur til greiðslu á fyrsta ársfjórðungi 2016 og nýju láni vegna fjárfestingar í nýrri frystigeymslu í Hafnarfirði, en félagið hefur tryggt sér langtímafjármögnun til 20 ára þegar byggingunni lýkur. Félagið hefur einnig undirritað lánalínu vegna fjárfestinga í tveim gámakrönum og öðrum búnaði. Þá hafa viðskiptaskuldir aukist vegna aukinna umsvifa, gengisþróunar og fyrirtækja sem bæst hafa við samstæðu Eimskips á þessu ári.
Vaxtaberandi skuldir námu 77,0 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 56,8 milljónir evra í lok júní 2014 og 64,4 milljónir evra í árslok 2014.
Nettóskuldir námu 40,0 milljónum evra í lok júní samanborið við 32,0 milljónir evra í lok júní 2014 og 24,9 milljónir evra í árslok 2014.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 14,9 milljónum evra á fyrri hluta ársins
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 23,5 milljónum evra
- Handbært fé var 37,0 milljónir evra í lok júní
Handbært fé frá rekstri nam 14,9 milljónum evra á fyrri hluta ársins samanborið við 13,9 milljónir evra á sama tímabili 2014.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 23,5 milljónum evra samanborið við 8,8 milljónir evra á sama tímabili 2014. Þar af námu fjárfestingarhreyfingar tengdar kaupum á nýjum fyrirtækjum 7,3 milljónum evra. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 18,6 milljónum evra, en þar af voru fjárfestingar fyrir 0,8 milljónir evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 10,2 milljónum evra á fyrri árshelmingi 2014, þar af fjárfestingar að fjárhæð 1,0 milljón evra sem ekki höfðu áhrif á sjóðstreymi.
Nettó innstreymi fjármagns vegna fjármögnunarhreyfinga nam 4,6 milljónum evra samanborið við 6,9 milljóna evra útstreymi á sama tímabili í fyrra. Breytingin skýrist einkum af nýjum lánum að fjárhæð 15,7 milljónir evra vegna fjárfestinga.
Sjóðsflæði var neikvætt um 4,0 milljónir evra samanborið við neikvætt sjóðsflæði að fjárhæð 1,8 milljónir evra á fyrri árshelmingi 2014. Handbært fé í lok júní nam 37,0 milljónum evra samanborið við 24,8 milljóna evra handbært fé í lok júní 2014 og 39,5 milljónir evra í árslok 2014.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2015
Ákveðið hefur verið að breyta afkomuspá Eimskips fyrir árið 2015 og er gert er ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 41 til 45 milljónir evra í stað þess að vera á bilinu í 39 til 44 milljónir evra eins og kynnt var í febrúar 2015.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins hefur vaxið umfram væntingar það sem af er þriðja ársfjórðungi. Rekstur félagsins tengdur Íslandi hefur verið góður það sem af er ári og er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti. Afkoma af starfsemi Eimskips í Noregi var undir væntingum á fyrsta ársfjórðungi vegna veðurfars og aflabrests en afkoman var mun betri á öðrum ársfjórðungi og er áfram gert ráð fyrir vexti. Viðskiptabann Rússa á innflutning frá Íslandi frá og með ágústmánuði í ár veldur óvissu, en gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum innflutningsbannsins á rekstur Eimskips þar sem félagið hefur aðeins flutt óverulegan hluta af heildarmagni uppsjávarfisks til Rússlands, en uppsjávarfiskurinn hefur að mestu verið fluttur með erlendum frystiskipum beint til Rússlands.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði félagsins var 43,6 milljarðar króna þann 26. ágúst 2015
Viðskipti með bréf Eimskips hófust á Nasdaq Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 kr. á hlut og var lokaverð í árslok 2012 230,00 kr. á hlut. Á árinu 2013 fór lokaverð hæst í 281,00 kr. á hlut og lægst í 221,00 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð ársins 255,05 kr. á hlut. Lokaverð á hlut í árslok 2013 var 262,00 kr.
Á árinu 2014 var lokaverðið á bilinu 218,50 kr. til 268,50 kr. á hlut með meðaltalslokaverði ársins 234,69 kr. á hlut og lokaverði ársins 237,00 kr. Lokaverð þann 26. ágúst 2015 var 233,50 kr. og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útstandandi hluta því 43,6 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 297,0 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000 og er fjöldi útistandandi hluta 186.639.230. Félagið á 13.360.770 eigin hluti. Fjöldi hluthafa í árslok 2014 var 1.101 og voru þeir 1.001 þann 26. ágúst 2015.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q2 2015 | Q1 2015 | Q4 2014 | Q3 2014 | Q2 2014 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 126.587 | 112.663 | 118.794 | 119.583 | 108.978 |
| Rekstrargjöld | 113.281 | 106.879 | 109.953 | 106.949 | 97.929 |
| EBITDA | 13.306 | 5.784 | 8.841 | 12.634 | 11.049 |
| EBIT | 7.516 | 4 9 |
2.789 | 7.050 | 5.146 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 5.515 | 1.524 | 2.290 | 7.517 | 4.593 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 10,5% | 5,1% | 7,4% | 10,6% | 10,1% |
| EBIT / rekstrartekjur | 5,9% | 0,0% | 2,3% | 5,9% | 4,7% |
| Efnahagsreikningur | 30.06.2015 | 31.03.2015 | 31.12.2014 | 30.09.2014 | 30.06.2014 |
| Eignir | 357.667 | 341.538 | 332.040 | 336.749 | 315.897 |
| Eigið fé | 219.400 | 214.879 | 216.472 | 215.659 | 206.588 |
| Skuldir | 138.267 | 126.659 | 115.568 | 121.090 | 109.309 |
| Vaxtaberandi skuldir | 77.012 | 64.703 | 64.432 | 66.448 | 56.841 |
| Nettóskuldir | 40.001 | 30.277 | 24.893 | 32.275 | 32.023 |
| Eiginfjárhlutfall | 61,3% | 62,9% | 65,2% | 64,0% | 65,4% |
| Sjóðstreymi | Q2 2015 | Q1 2015 | Q4 2014 | Q3 2014 | Q2 2014 |
| Handbært frá rekstri | 11.811 | 3.083 | 12.713 | 4.968 | 8.225 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (14.963) | (8.495) | (4.382) | (5.153) | (5.952) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 5.929 | (1.367) | (2.108) | 8.483 | (5.103) |
| Handbært fé í lok tímabils | 37.011 | 34.426 | 39.539 | 34.173 | 24.818 |
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Enn ríkir óvissa varðandi yfirstandandi rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Þann 17. júlí sl. staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 30. mars 2015 um að veita félaginu ekki aðgang að umbeðnum upplýsingum varðandi rannsóknina.
Félagið mun áfram leita lögfræðiráðgjafar vegna rannsóknarinnar en mikilvægt er að niðurstaða þeirra yfirvalda sem málið varðar liggi fyrir sem fyrst þar sem óvissa vegna rannsóknarinnar skaðar fyrirtækið, hluthafa þess og aðra hagsmunaaðila.
UM EIMSKIP
Eimskip rekur 55 starfsstöðvar í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.530 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 28. ÁGÚST 2015
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 28. ágúst 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör
félagsins fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2015. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi Nasdaq Nordic.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2015 á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2015.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015 verður birt 19. nóvember 2015
- Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2015 verður birt 25. febrúar 2016
- Aðalfundur 2016 verður haldinn 17. mars 2016
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.