AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Interim / Quarterly Report 2014
Aug 28, 2014
2194_er_2014-08-28_8cac2d28-0c78-4b4b-815f-3f016dbfa1d9.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
EBITDA VAR 11,0 MILLJÓNIR EVRA, HÆKKAÐI UM 1,2 MILLJÓNIR EVRA EÐA 12,3% FRÁ Q2 2013
- Rekstrartekjur námu 109,0 milljónum evra og hækkuðu um 0,9 milljónir evra frá Q2 2013
- EBITDA nam 11,0 milljónum evra og hækkaði um 1,2 milljónir evra frá Q2 2013
- Hagnaður eftir skatta nam 4,6 milljónum evra og jókst um 2,6 milljónir evra frá Q2 2013
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 7,1% frá Q2 2013
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 4,9% frá Q2 2013
- Eiginfjárhlutfall var 65,4% og nettóskuldir námu 32,0 milljónum evra í lok júní
- Áætluð EBITDA fyrir árið 2014 er áfram óbreytt, á bilinu 37 til 41 milljón evra
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q2 2014 | Q2 2013 | Breyting | % | 6M 2014 | 6M 2013 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 108.978 | 108.112 | 866 | 0,8% | 213.178 | 213.425 | (247) | (0,1%) |
| Rekstrargjöld | 97.929 | 98.273 | (344) | (0,4%) | 196.111 | 196.369 | (258) | (0,1%) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 11.049 | 9.839 | 1.210 | 12,3% | 17.067 | 17.056 | 11 | 0,1% |
| Afskriftir | (5.903) | (5.028) | (875) | (17,4%) | (11.559) | (10.162) | (1.397) | (13,7%) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 5.146 | 4.811 | 335 | 7,0% | 5.508 | 6.894 | (1.386) | (20,1%) |
| Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) | 8 6 |
(2.067) | 2.153 | - | (770) | (1.118) | 348 | 31,1% |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 115 | 0 | 115 | - | 8 8 |
0 | 88 | - |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 5.347 | 2.744 | 2.603 | 94,9% | 4.826 | 5.776 | (950) | (16,4%) |
| Tekjuskattur | (754) | (706) | (48) | (6,8%) | (1.026) | (1.206) | 180 | 14,9% |
| Hagnaður tímabilsins | 4.593 | 2.038 | 2.555 | 125,4% | 3.800 | 4.570 | (770) | (16,8%) |
| Leiðrétt fyrir einskiptisliðum: | ||||||||
| Tekjubreyting | 0,8% | 1,2% | (0,1%) | 5,1% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 10,1% | 9,1% | 8,0% | 8,0% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 4,7% | 4,5% | 2,6% | 3,2% | ||||
| Nettóskuldir / LTM EBITDA | 0,86 | 0,85 | 0,86 | 0,85 | ||||
| Efnahagsreikningur | 30.06.2014 30.06.2013 | Breyting | % | 30.06.2014 31.12.2013 | Breyting | % | ||
| Eignir | 315.897 | 314.051 | 1.846 | 0,6% | 315.897 | 314.365 | 1.532 | 0,5% |
| Fastafjármunir | 214.497 | 213.335 | 1.162 | 0,5% | 214.497 | 216.096 | (1.599) | (0,7%) |
| Veltufjármunir | 101.400 | 100.716 | 684 | 0,7% | 101.400 | 98.269 | 3.131 | 3,2% |
| Eigið fé | 206.588 | 200.656 | 5.932 | 3,0% | 206.588 | 205.771 | 817 | 0,4% |
| Skuldir | 109.309 | 113.395 | (4.086) | (3,6%) | 109.309 | 108.594 | 715 | 0,7% |
| Vaxtaberandi skuldir | 56.841 | 60.549 | (3.708) | (6,1%) | 56.841 | 59.398 | (2.557) | (4,3%) |
| Nettóskuldir | 32.023 | 33.087 | (1.064) | (3,2%) | 32.023 | 33.028 | (1.005) | (3,0%) |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 93,7% | 93,4% | 93,7% | 93,4% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 65,4% | 63,9% | 65,4% | 63,9% | ||||
| Sjóðstreymi | Q2 2014 | Q2 2013 | Breyting | % | 6M 2014 | 6M 2013 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 8.225 | 8.226 | (1) | - | 13.922 | 5.945 | 7.977 | 134,2% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (5.952) | (6.486) | 534 | 8,2% | (8.776) | (14.531) | 5.755 | 39,6% |
| Fjármögnunarhreyfingar | (5.103) | 2.001 | (7.104) | - | (6.947) | (553) | (6.394) | - |
| Breyting á handbæru fé | (2.830) | 3.741 | (6.571) | - | (1.801) | (9.139) | 7.338 | 80,3% |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 161 | (256) | 417 | - | 249 | (703) | 952 | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 24.818 | 27.462 | (2.644) | (9,6%) | 24.818 | 27.462 | (2.644) | (9,6%) |
GYLFI SIGFÚSSON, FORSTJÓRI
"Rekstrarafkoma annars ársfjórðungs er í samræmi við okkar væntingar. Rekstrartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 109,0 milljónum evra samanborið við 108,1 milljón evra fyrir sama tímabil í fyrra. EBITDA á öðrum ársfjórðungi jókst um 12,3% á milli ára og nam 11,0 milljónum evra. Vöxturinn skýrist meðal annars af auknu flutningsmagni og aukinni hagkvæmni í siglingakerfinu eftir breytingar á rauðu leiðinni og eftir að gráu leiðinni var bætt við á fyrsta ársfjórðungi á þessu ári. Hagnaður eftir skatta meira en tvöfaldaðist á milli ára, nam 4,6 milljónum evra og jókst um 2,6 milljónir evra frá öðrum ársfjórðungi 2013, einkum vegna gengisbreytinga.
Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru þær sömu og á sama tímabili í fyrra og námu 213,2 milljónum evra. EBITDA fyrir fyrstu sex mánuðina hélst einnig óbreytt á milli ára og nam 17,1 milljón evra. Flutningsmagn á fyrstu sex mánuðum ársins í kerfum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 9,1% frá sama tímabili í fyrra. Innflutningur til Íslands hefur aukist sem af er þessu ári og ánægjulegt er að sjá jákvæða þróun í vöruflokkum eins og bifreiðum og byggingavörum eftir stöðnun undanfarinna ára. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 9,2% samanborið við sama tímabil í fyrra, einkum vegna aukinna viðskipta við móttakanda vöru þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning gáma alla leið, svokallaðra "door-to-door" flutninga.
Fyrra skipið af gámaskipunum tveimur sem félagið hefur verið með í smíðum í Kína, Lagarfoss sem er 875 gámaeiningar að stærð, var afhent í Kína þann 24. júní. Skipið, sem kom til Reykjavíkur 17. ágúst, er nú þegar komið í þjónustu og leysir Selfoss af á gulu leiðinni. Lagarfoss mun auka afkastagetu þeirrar leiðar um 151 gámaeiningu, auk þess að vera hraðskreiðara, hagkvæmara í rekstri á hverja gámaeiningu og umhverfisvænna skip. Selfoss mun leysa af hólmi leiguskipið Horst B á rauðu leiðinni í september. Gert er ráð fyrir að þessar tilfærslur á skipum muni auka núverandi EBITDA um 2-3% á ársgrundvelli. Lagarfoss mun auka áreiðanleika þjónustunnar, sem er mjög mikilvægt fyrir útflutning á sjávarafurðum frá Íslandi og Færeyjum til Bretlands og meginlands Evrópu. Koma Lagarfoss gefur auk þess tækifæri á að bæta við fleiri viðkomuhöfnum til að auka þjónustu við viðskiptavini okkar. Við erum mjög stolt af því að Lagarfoss skuli loks vera kominn í rekstur.
Ákveðið hefur verið að ganga frá samningum um að ljúka við smíði Bakkafoss, systurskips Lagarfoss. Skipasmíðastöðin hefur boðið frekari afslátt af kaupverði skipsins sem nemur 0,8 milljónum dollara og er gert ráð fyrir afhendingu þess á fjórða ársfjórðungi 2015. Eftir afsláttinn mun umsamið kaupverð Bakkafoss nema 18,0 milljónum dollara.
Enn er óvissa á vinnumarkaði á Íslandi og fyrirtækið er með opna samninga við hluta af íslenskum áhöfnum gámaskipa og Herjólfs. Þá er einnig óvissa á alþjóðamörkuðum, sérstaklega varðandi innflutningsbann á matvælum til Rússlands sem tóku gildi nú í ágúst. Óvíst er hvaða áhrif viðskiptabannið mun hafa á rekstur Eimskips, en gert er ráð fyrir að það hafi áhrif á flutninga á sjávarafurðum frá Nýfundnalandi og Noregi til Rússlands. Ísland er ekki meðal þeirra landa sem viðskiptabann Rússa nær til.
Varðandi rannsókn Samkeppniseftirlitsins þá hefur Eimskip enn ekki fengið í hendur umbeðnar upplýsingar um bakgrunn málsins til að öðlast betri skilning á rannsókninni. Félagið ákvað að senda inn kæru til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála í kjölfar frekari gagnaöflunar eftirlitsins í júní á þessu ári. Félagið bíður nú síðari úrskurðar Áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Eimskip vinnur áfram að því að meta tækifæri til ytri vaxtar til að styrkja núverandi stöðu sína á mörkuðum utan Íslands, tækifæri sem falla að stefnu félagsins um að vera leiðandi flutningafélag á Norður-Atlantshafi. Áfram er unnið að því að skoða tvíhliða skráningu félagsins í tengslum við þessi mögulegu fjárfestingarverkefni.
Við höldum afkomuspá okkar fyrir árið óbreyttri og gerum ráð fyrir að EBITDA ársins 2014 verði áfram á bilinu 37 til 41 milljón evra."
REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur annars ársfjórðungs námu 109,0 milljónum evra samanborið við 108,1 milljón evra á sama tímabili 2013 og jukust um 0,8% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum á öðrum ársfjórðungi námu 82,1 milljón evra og jukust um 1,6% á milli ára. Nam heildaraukningin í magni í áætlunarsiglingum félagsins 7,1% á milli ára. Tekjur af flutningsmiðlun námu 26,9 milljónum evra og drógust saman um 1,6% frá öðrum ársfjórðungi 2013. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 4,9% á milli ára, einkum vegna breyttrar samsetningar á lengd flutningsleiða og aukinna viðskipta við móttakanda vöru þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning gáma alla leið, þ.e. "door-to-door" flutninga. Rekstrargjöld drógust saman um 0,4%, eða úr 98,3 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi síðasta árs í 97,9 milljónir evra í ár. Rekstrarkostnaður lækkaði meðal annars með breytingum á siglingakerfi félagsins í febrúar þegar dregið var úr afkastagetu rauðu leiðarinnar með fækkun úr tveim skipum í eitt skip með því að færa Reykjafoss á grænu leiðina og bæta við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, með minna skipi en Reykjafossi.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 11,0 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 9,8 milljónir evra á sama tímabili 2013 og jókst um 12,3%. EBITDA hlutfall var 10,1% samanborið við 9,1% EBITDA hlutfall á öðrum ársfjórðungi 2013.
Innflutningur til Íslands jókst verulega á fjórðungnum, en þar var einkum um að ræða aukinn innflutning á bifreiðum og byggingavörum eftir ákveðna stöðnun undanfarin ár. Útflutningur frá Íslandi dróst hins vegar saman á fjórðungnum samanborið við sama tíma í fyrra, meðal annars vegna lélegrar loðnuvertíðar. Það var verulegur vöxtur í flutningum til og frá Færeyjum á fjórðungnum, en á sama tíma hafa flutningar tengdir Noregi dregist saman, aðallega vegna minnkandi flutninga norður til Rússlands en árið áður.
Afskriftir tímabilsins námu 5,9 milljónum evra en voru 5,0 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2013. Hækkun afskrifta stafar einkum af endurnýjun á gámum og öðrum tækjabúnaði og reglubundnu viðhaldi og endurbótum skipa.
Rekstrarhagnaður, EBIT, nam 5,1 milljón evra samanborið við 4,8 milljóna evra rekstrarhagnað á öðrum ársfjórðungi 2013. EBIT hlutfallið nam 4,7% samanborið við 4,5% á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjármunatekjur námu 0,1 milljón evra á fjórðungnum samanborið við nettó fjármagnsgjöld að fjárhæð 2,1 milljón evra á öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Skýrist breytingin einkum af 0,5 milljóna evra gengishagnaði í ár samanborið við 1,4 milljóna evra gengistap á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 5,3 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 2,7 milljóna evra hagnað á öðrum ársfjórðungi 2013.
Gjaldfærðir skattar námu 0,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við 0,7 milljónir evra á sama tímabili 2013. Virkt skatthlutfall var hærra á öðrum ársfjórðungi 2013 en í ár þar sem skattalegt tap af einu dótturfélaga Eimskips var ekki eignfært á öðrum ársfjórðungi 2013.
Hagnaður fjórðungsins eftir skatta nam 4,6 milljónum evra á samanborið við 2,0 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra.
REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS
- Rekstrartekjur námu 213.2 milljónum evra og voru óbreyttar frá fyrra ári
- EBITDA var 17,1 milljón evra og breyttist ekki á milli ára
- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 9,1% á milli ára
- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 9,2% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins námu 213,2 milljónum evra samanborið við 213,4 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Tekjur af áætlunarsiglingum þessa sex fyrstu mánuði ársins námu 158,8 milljónum evra og jukust um 2,2% frá fyrra ári. Heildaraukning í magni í áætlunarsiglingum nam 9,1% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur af flutningsmiðlun námu 54,3 milljónum evra og drógust saman um 6,3% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs, einkum vegna breyttrar samsetningar á flutningum þar sem vöxtur var á styttri leggjum og aukin viðskipti við móttakanda vöru þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning vörunnar alla leið. Þrátt fyrir samdrátt í tekjum af flutningsmiðlun hækkaði EBITDA af flutningsmiðlun um 9,3% frá sama tímabili í fyrra. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst á sama tíma um 9,2%.
EBITDA nam 17,1 milljón evra og og var óbreytt á milli ára með 8,0% EBITDA hlutfalli bæði árin. Góð afkoma á öðrum ársfjórðungi bætti upp lélega afkomu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en fyrsti ársfjórðungur var erfiður vegna óhagstæðra veðurskilyrða og dýrara siglingakerfis en á fyrra ári.
Afskriftir tímabilsins námu 11,6 milljónum evra samanborið við 10,2 milljónir evra fyrstu sex mánuði síðasta árs. Hækkunin stafar af endurnýjun á gámum og öðrum tækjabúnaði og reglubundnu viðhaldi og endurbótum skipa.
Rekstrarhagnaður fyrir fyrstu sex mánuði ársins, EBIT, nam 5,5 milljónum evra og lækkaði úr 6,9 milljónum evra á sama tímabili í fyrra.
Nettó fjármagnsgjöld tímabilsins námu 0,8 milljónum evra samanborið við 1,1 milljón evra á fyrstu sex mánuðum 2013. Breytingin á milli ára skýrist aðallega af 0,3 milljóna evra gengishagnaði í ár samanborið við 0,1 milljónar evra gengishagnað í fyrra.
Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 4,8 milljónum evra samanborið við 5,8 milljónir evra fyrir sama tímabil í fyrra.
Gjaldfærðir skattar tímabilsins námu 1,0 milljón evra samanborið við 1,2 milljónir evra fyrir sama tímabil 2013. Virkt skatthlutfall fyrir fyrstu sex mánuðina 2014 og 2013 var sambærilegt.
Hagnaður eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins nam 3,8 milljónum evra samanborið við 4,6 milljónir evra fyrir sama tímabil í fyrra.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má á eftirfarandi myndum, en þær sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, skiptast á ársfjórðunga á árunum 2010 til 2014.
Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árunum 2011 og 2012. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2012 vegna kostnaðar við skráningu félagsins. Að lokum var EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2012 hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar vegna kauprétta sem fallið var frá.
Miklar breytingar voru gerðar á siglingakerfi félagsins í mars 2013 sem jók afkastagetu þess og í febrúar 2014 var ráðist í aðlögun á kerfinu, meðal annars vegna þess að slæm veðurskilyrði til siglinga settu áætlunarkerfið úr skorðum. Bætt var við nýrri siglingaleið, gráu leiðinni, á milli Færeyja og Skotlands til að auka sveigjanleika kerfisins og áreiðanleika þjónustunnar við viðskiptavini.
Eftir afhendingu Lagarfoss er félagið með 16 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og fjögur leiguskip. Tólf skipanna eru í áætlunarsiglingum, tvö eru í "spot" þjónustu, eitt er í stórflutningum og eitt er ferja.
EFNAHAGUR
- Heildareignir í lok júní námu 315,9 milljónum evra
- Eiginfjárhlutfall var 65,4%
- Vaxtaberandi skuldir námu 56,8 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 32,0 milljónum evra
Heildareignir Eimskips námu 315,9 milljónum evra þann 30. júní 2014. Til samanburðar námu heildareignir 314,1 milljón evra í lok annars árfjórðungs 2013 og 314,4 milljónum evra í árslok 2013.
Fastafjármunir námu 214,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 213,3 milljónir evra í lok júní 2013 og 216,1 milljón evra í árslok 2013. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 9,8 milljónum evra á fyrri hluta ársins, en þar af námu fjárfestingar í nýjum skipum 2,7 milljónum evra. Sambærilegar tölur fyrir síðasta ár voru nettó fjárfestingar að fjárhæð 14,5 milljónir evra og þar af 6,1 milljón evra vegna nýrra skipa.
Veltufjármunir félagsins námu 101,4 milljónum evra í lok júní samanborið við 100,7 milljónir evra í lok júní 2013 og 98,3 milljónir evra í árslok 2013. Handbært fé nam 24,8 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs samanborið við 27,5 milljónir evra í lok júní 2013 og 26,4 milljónir evra í lok ársins.
Eigið fé nam 206,6 milljón evra í lok annars ársfjórðungs og var eiginfjárhlutfallið 65,4%. Arður að fjárhæð 3,1 milljón evra var greiddur hluthöfum í lok apríl. Til samanburðar var eigið fé 200,7 milljónir evra í lok júní 2013 og eiginfjárhlutfallið 63,9% og 205,8 milljónir evra í árslok og eiginfjárhlutfallið 65,5%.
Vaxtaberandi skuldir námu 56,8 milljónum evra í lok júní samanborið við 60,5 milljónir evra í lok júní 2013 og 59,4 milljónir evra í árslok 2013.
Nettóskuldir námu 32,0 milljónum evra í lok júní samanborið við 33,1 milljón evra í lok annars ársfjórðungs 2013 og 33,0 milljónir evra í árslok 2013. Stafar breytingin frá áramótum af því að skuldir lækkuðu um 2,6 milljónir evra og handbært fé dróst saman um 1,6 milljónir evra.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 13,9 milljónum evra
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 8,8 milljónum evra
- Handbært fé var 24,8 milljónir evra í lok júní
Handbært fé frá rekstri nam 13,9 milljónum evra á fyrri hluta ársins samanborið við 5,9 milljóna evra handbært fé frá rekstri á sama tímabili 2013.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 8,8 milljónum evra á fyrri hluta ársins samanborið við 14,5 milljóna evra nettó fjárfestingarhreyfingar á sama tímabili 2013. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 10,2 milljón evra á tímabilinu, en þar af voru fjárfestingar fyrir 1,0 milljón evra sem ekki hafði áhrif á sjóðstreymi. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar 14,7 milljónum evra á fyrri hluta 2013, en fjárfestingar í skipum námu þá 6,1 milljón evra samanborið við 2,7 milljónir evra á sama tímabili í ár.
Nettó fjármögnunarhreyfingar námu 6,9 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 3,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
Sjóðsflæði var neikvætt um 1,8 milljónir evra samanborið við neikvætt sjóðsflæði að fjárhæð 9,1 milljón evra á fyrri árshelmingi 2013. Handbært fé í lok júní 2014 nam 24,8 milljónum evra samanborið við 27,5 milljóna evra handbært fé í lok júní í fyrra.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2014
Áætluð afkoma ársins 2014 er óbreytt frá því sem kynnt var með uppgjöri Eimskips fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 þann 22. maí 2014, eða EBITDA á bilinu 37 til 41 milljón evra. Áætlunin felur ekki í sér væntingar um ytri vöxt.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| Rekstrarreikningur | Q2 2014 | Q1 2014 | Q4 2013 | Q3 2013 | Q2 2013 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 108.978 | 104.200 | 106.875 | 113.524 | 108.112 |
| Rekstrargjöld | 97.929 | 98.182 | 98.996 | 101.405 | 98.273 |
| EBITDA | 11.049 | 6.018 | 7.879 | 12.119 | 9.839 |
| EBIT | 5.146 | 362 | 2.392 | 6.625 | 4.811 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 4.593 | (793) | 1.168 | 5.079 | 2.038 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 10,1% | 5,8% | 7,4% | 10,7% | 9,1% |
| EBIT / rekstrartekjur | 4,7% | 0,3% | 2,2% | 5,8% | 4,5% |
| Efnahagsreikningur | 30.06.2014 | 31.03.2014 | 31.12.2013 | 30.09.2013 | 30.06.2013 |
| Eignir | 315.897 | 314.772 | 314.365 | 321.099 | 314.051 |
| Eigið fé | 206.588 | 202.124 | 205.771 | 205.077 | 200.656 |
| Skuldir | 109.309 | 112.648 | 108.594 | 116.022 | 113.395 |
| Vaxtaberandi skuldir | 56.841 | 57.990 | 59.398 | 60.540 | 60.549 |
| Nettóskuldir | 32.023 | 30.503 | 33.028 | 33.864 | 33.087 |
| Eiginfjárhlutfall | 65,4% | 64,2% | 65,5% | 63,9% | 63,9% |
| Sjóðstreymi | Q2 2014 | Q1 2014 | Q4 2013 | Q3 2013 | Q2 2013 |
| Handbært frá rekstri | 8.225 | 5.697 | 7.172 | 7.420 | 8.226 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (5.952) | (2.824) | (4.980) | (7.090) | (6.486) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (5.103) | (1.844) | (2.049) | (956) | 2.001 |
| Handbært fé í lok tímabils | 24.818 | 27.487 | 26.370 | 26.676 | 27.462 |
Fjárhæðir í þúsundum evra
HLUTHAFAR
- Verð hlutabréfa í Eimskip hefur hækkað um 7,0% frá skráningu félagsins
- Markaðsvirði félagsins var 41,5 milljarðar króna þann 27. ágúst 2014
Viðskipti með bréf Eimskips hófust á NASDAQ OMX Iceland þann 16. nóvember 2012. Útboðsgengi var 208,00 kr. á hlut og var lokaverð í árslok 2012 230,00 kr. á hlut. Á árinu 2013 fór lokaverð hæst í 281,00 kr. á hlut og lægst í 221,00 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð ársins 255,05 á hlut. Lokaverð á hlut í árslok 2013 var 262,00 kr.
Það sem af er þessu ári hefur lokaverð lægst farið í 222,50 kr. á hlut og hæst í 268,50 kr. á hlut og var meðaltalslokaverð tímabilsins 238,77 kr. á hlut. Lokaverð þann 27. ágúst 2014 var 222,50 kr. á hlut sem jafngildir 7,0% hækkun frá útboðsgengi við skráningu félagsins. Markaðsvirði félagsins þann 27. ágúst 2014 var 41,5 milljarðar króna sem jafngildir 269,6 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000 og er fjöldi útistandandi hluta 186.639.230. Fjöldi hluthafa þann 27. ágúst 2014 var 1.126. Félagið á 13.360.770 eigin hluti, en þeim hefur fjölgað um 7.441.950 hluti eða 125,7% samanborið við sama tíma í fyrra.
UM EIMSKIP
Eimskip rekur 51 starfsstöð í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.400 starfsmönnum, þar af 800 á Íslandi. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 29. ÁGÚST 2014
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 29. ágúst 2014 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2014. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors, og í fréttakerfi NASDAQ OMX Nordic.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti kannaðan árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2014 á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2014.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2014 verður birt 20. nóvember 2014
- Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2014 verður birt 26. febrúar 2015
- Aðalfundur verður haldinn 26. mars 2015
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.