AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Interim / Quarterly Report 2012
Nov 29, 2012
2194_ip_2012-11-29_367a943b-9a4a-4464-8334-d186808fa865.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
AFKOMA Á ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGI 2012 í SAMRÆMI VIÐ VÆNTINGAR
- Rekstrartekjur fjórðungsins námu 110,7 milljónum evra
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 10,8 milljónir evra
- Hagnaður eftir skatta var 5,7 milljónir evra
- Eiginfjárhlutfall var 62,8% í lok þriðja ársfjórðungs
Fjárhæðir í þúsundum evra
| Rekstrarreikningur | Q3 2012 | Q3 2011 Breyting | 9M 2012 | 9M 2011 Breyting | ||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 110.744 | 98.053 | 12,9% | 308.822 | 284.590 | 8,5% |
| Rekstrargjöld | 99.905 | 87.074 | 14,7% | 278.941 | 250.028 | 11,6% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 10.839 | 10.979 | (1,3%) | 29.881 | 34.562 | (13,5%) |
| Afskriftir | (5.026) | (6.143) | (18,2%) | (16.318) | (17.996) | (9,3%) |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 5.813 | 4.836 | 20,2% | 13.563 | 16.566 | (18,1%) |
| Fjármagnsliðir | 104 | 890 | (88,3%) | (1.934) | (2.552) | (24,2%) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 5.917 | 5.726 | 3,3% | 11.629 | 14.014 | (17,0%) |
| Tekjuskattur | (169) | (655) | (74,2%) | 2.095 | (1.484) | (241,2%) |
| Hagnaður tímabilsins | 5.748 | 5.071 | 13,4% | 13.724 | 12.530 | 9,5% |
| Tekjubreyting | 12,9% | 2,3% | 8,5% | 2,4% | ||
| EBITDA / rekstrartekjur | 9,8% | 11,2% | 9,7% | 12,1% | ||
| EBIT / rekstrartekjur | 5,2% | 4,9% | 4,4% | 5,8% | ||
| Nettóskuldir / LTM EBITDA | 0,9 | 0,7 | 0,9 | 0,7 | ||
| Efnahagsreikningur | 30.09.2012 31.12.2012 Breyting | 30.09.2012 31.12.2012 Breyting | ||||
| Eignir | 303.077 | 283.224 | 7,0% | 303.077 | 283.224 | 7,0% |
| Fastafjármunir | 204.436 | 176.946 | 15,5% | 204.436 | 176.946 | 15,5% |
| Eigið fé | 190.415 | 176.509 | 7,9% | 190.415 | 176.509 | 7,9% |
| Skuldir | 112.662 | 106.715 | 5,6% | 112.662 | 106.715 | 5,6% |
| Nettóskuldir | 33.245 | 18.689 | 77,9% | 33.245 | 18.689 | 77,9% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 93,7% | 93,5% | 93,7% | 93,5% | ||
| Eiginfjárhlutfall | 62,8% | 62,3% | 62,8% | 62,3% | ||
| Sjóðstreymi | Q3 2012 | Q3 2011 Breyting | 9M 2012 | 9M 2011 Breyting | ||
| Handbært frá rekstri | 7.333 | 5.271 | 39,1% | 24.123 | 13.969 | 72,7% |
| Fjárfestingahreyfingar | (6.308) | (10.888) | (42,1%) | (38.784) | (18.894) | 105,3% |
| Fjármögnunarhreyfingar | 514 | (2.471) | (120,8%) | (450) | (8.077) | (94,4%) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 1.539 | (8.088) | (119,0%) | (15.111) | (13.002) | 16,2% |
| Áhrif gjaldmiðla á handbært fé | 7 6 |
150 | (49,3%) | 410 | (299) | (237,1%) |
| Handbært fé í lok tímabils | 28.816 | 37.032 | (22,2%) | 28.816 | 37.032 | (22,2%) |
GYLFI SIGFÚSSON, FORSTJÓRI
"Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir á þriðja ársfjórðungi 2012 er að aukast á milli ára og er í samræmi við væntingar félagsins að teknu tilliti til kostnaðar að fjárhæð 0,7 milljónir evra vegna undirbúnings skráningar félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar 16. nóvember síðastliðinn.
Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 6,3% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil 2011 og er það ánægjuleg þróun. Á árinu 2011 var ákveðið að bæta við öðru skipi á Ameríkuleið og tengja þannig Norður-Ameríku við Norður-Noreg. Viðbótarskipið er nú að skila auknu magni og tekjum. Magn í frystiflutningsmiðlun á þriðja ársfjórðungi dróst saman um 12,7% frá fyrra ári sem endurspeglast í þróun markaða í Asíu, en þrátt fyrir að magnið sé að minnka þá hefur framlegðin í frystiflutningsmiðlun ekki lækkað að sama skapi. Helstu ástæður fyrir minnkandi magni tengjast ekki flutningi á frystum sjávarafurðum heldur minnkandi flutningum á öðrum afurðum frá Asíu til Evrópu.
Horfur í flutningum á Norður-Atlantshafi eru ágætar en töluverður vöxtur hefur verið í flutningum frá Noregi og Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Flutningar til og frá Íslandi hafa verið að vaxa en ákveðin óvissa er um útflutning sjávarafurða vegna mikillar birgðasöfnunar og lækkandi afurðaverðs á ákveðnum mörkuðum. Enn er óvissa um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi sem haft geta áhrif á flutningamagn á næstu misserum. Eimskip leggur áfram áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu, en það hefur meðal annars verið gert með því að styrkja skipa-, gáma- og tækjakost félagsins með fjárfestingum fyrir 38,8 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins. Gert er ráð fyrir að gámaskipin tvö sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína verði afhent á árinu 2013, en þau munu styrkja siglingakerfi og þjónustuframboð Eimskips."
REKSTUR ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGS
- Rekstrartekjur námu 110,7 milljónum evra og jukust um 12,9% á milli ára
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 10,8 milljónum evra
- Flutningsmagn í áætlanakerfum félagsins jókst um 4,3% á milli ára
- Flutningsmagn í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun dróst saman um 12,7% á milli ára
Rekstrartekjur félagsins á þriðja ársfjórðungi námu 110,7 milljónum evra samanborið við 98,1 milljón evra árið 2011, en það samsvarar 12,9% aukningu á milli ára. Aukning var í flutningum á helstu markaðssvæðum félagsins og nam aukning í áætlanasiglingum félagsins á Norður Atlantshafi um 4,3% á milli ára. Magn í frystiflutningsmiðlun hefur hinsvegar dregist saman um 12,7% frá fyrra ári, einkum vegna flutnings á grænmeti frá mörkuðum í Asíu til Evrópu. Þrátt fyrir samdrátt í magni hafa tekjur aukist með hækkandi verði á sjóflutningum á alþjóðlegum flutningamörkuðum.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 10,8 milljónir evra samanborið við 11,0 milljónir evra árið 2011. Í því sambandi er vert að benda á að áfallinn kostnaður við skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland á þriðja ársfjórðungi nam um 0,7 milljónum evra. Að teknu tilliti til þess jókst rekstrarafkoma þriðja ársfjórðungs um 0,5 milljónir evra, eða í sem nemur 11,5 milljónum evra, sem er 4,5% aukning á milli ára.
Rekstrarhagnaður (EBIT) var 5,8 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við 4,8 milljónir evra árið 2011. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 0,1 milljón evra samanborið við 0,9 milljóna evra jákvæða fjármagnsliði árið 2011, en félagið var með 0,9 milljóna evra
gengishagnað á þriðja ársfjórðungi 2012 samanborið við 1,6 milljóna evra gengishagnað á þriðja ársfjórðungi árið 2011. Reiknaðir skattar námu 0,2 milljónum evra samanborið við 0,9 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi 2011. Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 5,7 milljónum evra samanborið við 5,1 milljón árið 2011 sem er 13,4% aukning á milli ára.
REKSTUR FYRSTU NÍU MÁNAÐA ÁRSINS
- Rekstrartekjur námu 308,8 milljónum evra og jukust um 8,5% á milli ára
- Rekstrarafkoma fyrir afskriftir (EBITDA) nam 29,9 milljónum evra
- Flutningsmagn í kerfum félagsins jókst um 6,3% á milli ára
- Flutningsmagn í frysti flutningsmiðlun dróst saman um 5,4% á milli ára
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu níu mánuði ársins námu 308,8 milljónum evra samanborið við 284,6 milljónir evra árið 2011 og jukust um 8,5% á milli ára. Meðal tekna ársins 2011 eru einskiptistekjur að fjárhæð 6,4 milljónir evra sem hafa áhrif á samanburð á milli ára og að teknu tilliti til þess er aukningin 11,0%. Aukning var í flutningum á helstu markaðssvæðum félagsins og nam aukning í áætlanasiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi um 6,3% á milli ára. Magn í frystiflutningsmiðlun hefur hinsvegar dregist saman um 5,4% frá fyrra ári og þá helst vegna minnkandi flutnings á grænmeti á mörkuðum félagsins í Asíu.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 29,9 milljónir evra samanborið við 34,6 milljónir evra árið 2011, en að teknu tilliti til ofangreindra einskiptistekna var EBITDA ársins 2011 28,2 milljónir evra. Áfallinn kostnaður við skráningu félagsins á NASDAQ OMX á árinu 2012 nemur um 0,7 milljónum evra en á móti kemur að kostnaður félagsins við strand Goðafoss í febrúar 2011 var sömuleiðis 0,7 milljónir evra. Að teknu tilliti til þessara einskiptisliða jókst rekstrarafkoma um 1,7 milljónir evra eða 6% á milli ára.
Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 13,6 milljónum evra samanborið við 16,6 milljónir evra árið 2011. Að teknu tilliti til áðurnefndra einskiptistekna nam aukning rekstrarhagnaðar 3,4 milljónum evra á milli ára eða sem nemur 5,9%. Nettó fjármagnskostnaður félagsins nam 1,9 milljónum evra samanborið við 2,6 milljónir evra árið 2011, en félagið var með 0,5 milljóna evra gengishagnað á árinu 2012 samanborið við 0,5 milljóna evra gengistap á árinu 2011.
Reiknaðir skattar voru jákvæðir um 2,1 milljón evra sem endurspeglast í því að félagið eignfærði yfirfæranlegt skattalegt tap í erlendu dótturfélagi að fjárhæð 2,8 milljónir á tímabilinu. Virkt tekjuskattshlutfall á tímabilinu er 12,7%. Hagnaður eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins nam 13,7 milljónum evra samanborið við 12,5 milljónir árið 2011 sem er 9,5% aukning á milli ára.
Rekstur félagsins hefur verið stöðugur undanfarin ár eins og sjá má myndunum á næstu blaðsíðu, en þær sýna hvernig rekstrartekjur og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) skiptast á ársfjórðunga á árunum 2010-2012.
Í myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum. Rekstrartekjur og EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2011 hafa verið lækkaðar um 6,4 milljónir evra vegna innheimtu á áður afskrifaðri kröfu. EBITDA hefur hins vegar verið hækkuð um 0,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011 vegna strands Goðafoss og um 0,7 milljónir á þriðja ársfjórðungi 2012 vegna kostnaðar við undirbúning skráningar félagsins á NASDAQ OMX Iceland.
Í milljónum evra
EFNAHAGUR Í LOK ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGS
- Heildareignir námu 303,1 milljón evra
- Vaxtaberandi skuldir námu 62,1 milljón evra
- Eiginfjárhlutfall var 62,8%
Í lok september námu heildareignir Eimskips 303,1 milljónum evra samanborið við 283,2 milljónir evra í lok árs 2011. Fastafjármunir hafa aukist um 27,5 milljónir evra og munar þar mestu um fjárfestingar í skipum á árinu 2012 fyrir samtals 22,9 milljónir evra, en félagið keypti þrjú frystiskip í febrúar 2012 og er með í smíðum tvö ný gámaskip í Kína sem gert er ráð fyrir að verði afhent á næsta ári.
Veltufjármunir félagsins námu 98,6 milljónum evra samanborið við 106,3 milljónir í árslok 2011. Handbært fé félagsins nam 28,8 milljónum evra og hefur lækkað um 14,7 milljónir evra frá áramótum sem skýrist einkum af fjárfestingum í skipum og öðrum tækjabúnaði. Eigið fé í lok tímabilsins nam 190,4 milljónum evra samanborið við 176,5 milljónum í árslok 2011 og var eiginfjárhlutfallið 62,8%.
Vaxtaberandi skuldir voru 62,1 milljón og nema nettóskuldir þar af leiðandi 33,2 milljónum evra.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri var 24,1 milljón evra fyrstu níu mánuði ársins
- Fjárfestingahreyfingar námu 38,8 milljónum evra á sama tímabili
Handbært fé frá rekstri fyrstu níu mánuði ársins nam 24,1 milljónum evra samanborið við 14,0 milljónir árið 2011. Fjárfestingahreyfingar námu 38,8 milljónum evra og skiptast þær fjárfestingar þannig að fjárfest hefur verið í skipum fyrir 22,9 milljónir evra, í fasteignum fyrir 1,8 milljónir evra og í gámum og öðrum tækjabúnaði fyrir 14,1 milljónir evra. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 0,5 milljónir evra samanborið við 8,1 milljón árið 2011. Neikvætt sjóðsflæði var því 15,1 milljón evra og handbært fé í lok tímabilsins nam 28,8 milljónum evra.
ATBURÐIR EFTIR REIKNINGSSKILADAG
Nokkur atriði hafa áhrif á fjárhagsstöðu Eimskips eftir lokun reikningsskila þann 30. september 2012. Hlutbréf félagsins voru skráð á NASDAQ OMX Iceland þann 16 nóvember. Í tengslum við skráninguna var ákveðið að selja 6.000.000 hluti af eigin bréfum félagsins. Söluverðmæti bréfanna nam EUR 7,5 milljónum og mun salan hafa jákvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins á fjórða ársfjórðungi 2012.
Í tengslum við skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland féll framkvæmdastjórn Eimskips einhliða frá kaupréttarsamningum á hlutabréfum í félaginu. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla ber að gjaldfæra að fullu reiknað virði samninga þegar þeir eru felldir niður. Reiknað virði þeirra kaupréttarsamninga sem stjórnendur féllu frá eru samkvæmt svokölluðum "Black-Scholes" útreikningum metnir á 3,6 milljónir evra sem hefðu gjaldfærst á líftíma samninganna. Í lok september 2012 hafa 0,7 milljónir evra verið gjaldfærðar og þar af leiðandi gætu allt að 2,9 milljónir evra verið gjaldfærðar á fjórða ársfjórðungi 2012. Þess ber þó að geta að slík gjaldfærsla hefur áhrif á rekstrarafkomu og hagnað á hlut en hefur hvorki áhrif á sjóðstreymi félagsins né á heildarstöðu eigin fjár. Kaupréttaráætlun félagsins var samþykkt af hluthöfum á aðalfundi árið 2010 og ákvörðun hluthafafundar þarf til að fella hana niður.
HLUTHAFAR
- Eimskip var tekið til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland 16. nóvember 2012
- Markaðsvirði félagsins var 43,8 milljarðar íslenskra króna þann 29. nóvember
Viðskipti með bréf Eimskips hófust á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn. Markaðsvirði félagsins nam 43,8 milljörðum króna, eða um 267,8 milljónum evra, miðað við lokagengi þann 29. nóvember 2012. Lokagengi dagsins nam kr. 225,50 á hlut. Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000 og er fjöldi útistandandi hluta 194.081.180.
UM EIMSKIP
Eimskip rekur 49 starfsstöðvar í 17 löndum og er með 17 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.320 starfsmönnum, þar af um 760 á Íslandi. Um helmingur af tekjum félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.
KYNNINGARFUNDUR 30. NÓVEMBER 2012
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 30. nóvember 2012 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna afkomu félagsins. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á heimasíðu félagsins, www.eimskip.is.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning vegna tímabilsins 1. janúar - 30. september 2012 á stjórnarfundi þann 29. nóvember 2012. Árshlutareikningurinn er óendurskoðaður.
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.