Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2022

Jan 18, 2023

2194_iss_2023-01-18_8d2b93b7-0d2c-4ae3-b565-843892bbbc18.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 417154

Eimskipafélag Íslands hf. - Innherjaupplýsingar

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu fjórða ársfjórðungs

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung sem nú liggur fyrir er áætlað að EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2022 verði á bilinu 37,2 – 38,7 milljónir evra samanborið við 31,5 milljónir evra á sama ársfjórðungi 2021. Þá er áætlað að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 20,9 – 22,9 milljónir evra samanborið við 17,5 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2021.

Þrátt fyrir hefðbundin árstíðaráhrif, var afkoma af alþjóðlegri starfsemi félagsins góð og nýting í siglingarkerfi félagsins var góð á fjórðungnum.

Eimskip vinnur enn að uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung 2022 og geta niðurstöður tekið breytingum í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör fyrir fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudag 14. febrúar 2023.

Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, Fjármálastjóri í síma 774-0604 eða á [email protected].