Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2022

Apr 8, 2022

2194_iss_2022-04-08_9f38bd5a-b643-415f-b0ff-0abfce8bd041.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Disclosure 406908

Eimskipafélag Íslands hf. - Innherjaupplýsingar

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu fyrsta ársfjórðungs

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir janúar og febrúar 2022 og áætlun fyrir mars sem nú liggur fyrir lítur út fyrir að EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2022 verði umtalsvert hærri en EBITDA á sama ársfjórðungi í fyrra. Fyrsti ársfjórðungur byrjaði vel, bæði í gámaflutningum og alþjóðlegri flutningsmiðlun, samanborið við síðastliðið ár.

Áætlað er að EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2022 verði á bilinu 27-30 milljónir evra samanborið við 16,3 milljónir evra á sama ársfjórðungi 2021. Áætlað er að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 11,7-14,7 milljónir evra samanborið við 4,5 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Eimskip vinnur enn að uppgjöri fyrir marsmánuð og fyrsta ársfjórðung 2022 og geta niðurstöður tekið breytingum í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. maí 2022.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á [email protected].