AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2022
Jul 6, 2022
2194_rns_2022-07-06_c1f15351-a541-4734-8f34-44c0da09a26b.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu annars ársfjórðungs
Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu annars ársfjórðungs
Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir apríl og maí ásamt nýrri spá fyrir júní sem nú liggur fyrir lítur út fyrir að EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2022 verði umtalsvert hærri en EBITDA á sama ársfjórðungi í fyrra.
Áætlað er að EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2022 verði á bilinu 43,5 - 47 milljónir evra samanborið við 29,7 milljónir evra (aðlagað fyrir áhrifum af sátt við Samkeppniseftirlitið að fjárhæð 10,2 milljónir evra) á sama ársfjórðungi 2021. Þá er áætlað er að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 28,5 - 32 milljónir evra samanborið við 17,5 milljónir evra (aðlagað) á öðrum ársfjórðungi 2021.
Ýmsar ástæður eru fyrir aukningu EBITDA en helstu drifkraftarnir eru góð frammistaða í alþjóðlegu flutningsmiðluninni sem nýtur áfram góðs af markaðsaðstæðum á alþjóðamörkuðum og mjög góð nýting í siglingakerfum félagsins. Þá er afkoma af Trans-Atlantic flutningum mun betri en á sama tímabili síðasta árs vegna góðs magns og flutningsverða sem endurspegla mikla eftirspurn eftir flutningum yfir Atlantshafið. Að auki hefur magn í innflutningi til Íslands verið sterkt.
Horfur fyrir komandi mánuði eru almennt góðar þrátt fyrir mikla óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi og mögulegum áhrifum vaxandi verðbólgu á heimsviðskipti.
Eimskip vinnur enn að uppgjöri fyrir júní og annan ársfjórðung 2022 og geta niðurstöður tekið breytingum í uppgjörsferlinu.
Eimskip birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða fimmtudaginn 18. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á [email protected].
