Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2020

Oct 20, 2020

2194_rns_2020-10-20_d25ae716-74d2-4847-a225-cbdec8771c66.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu þriðja ársfjórðungs

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu þriðja ársfjórðungs

Í ljósi þess að afkomuspá félagsins fyrir árið 2020 hefur ekki verið endurvakin auk óvissu á mörkuðum þykir félaginu rétt að upplýsa að samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2020, sem lá fyrir fyrr í dag, lítur út fyrir að EBITDA verði á bilinu 21,5 til 22,0 milljónir evra samanborið við 20,3 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs. Þá má gera ráð fyrir að EBIT muni liggja á bilinu 10,1 til 10,6 milljónir evra samanborið við 9,2 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum jókst lítillega samanborið við sama ársfjórðung síðasta árs eftir samdrátt á fyrstu tveimur fjórðungum þessa árs. Þá var magn í frystiflutningsmiðlun á pari við sama fjórðung síðasta árs.

Áhrif COVID-19 faraldursins á alþjóðahagkerfið eru áfram óljós fyrir komandi mánuði.  

Eimskip vinnur að uppgjöri þriðja ársfjórðungs og afkoman getur tekið breytingum í uppgjörsferlinu. Félagið birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á [email protected].