AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2018
Feb 28, 2019
2194_er_2019-02-28_52448282-3004-455e-b9ad-32a6934a9b1f.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Vöxtur á helstu mörkuðum en afkoman veldur vonbrigðum
Helstu atriði í afkomu ársins 2018
- Tekjur námu 689,2 milljónum evra, hækkuðu um 25,2 milljón evra eða 3,8% frá 2017
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,2% og tekjur hækkuðu um 10,8 milljón evra eða 2,5%
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 4,3% og tekjur hækkuðu um 14,4 milljónir evra eða 6,4%, en þar af voru 10,3 milljónir evra vegna fyrirtækja sem komu inn í samstæðuna um mitt ár 2017
- EBITDA nam 49,2 milljónum evra, lækkaði um 8,0 milljónir evra eða 13,9% frá 2017
- Helstu ástæður fyrir lækkun í EBITDA framlegð á milli ára má rekja til verri afkomu í frystiflutningum í Noregi, minni framlegðar af flutningsmiðlun í Evrópu og kostnaði við að bæta við þriðja skipi á svokallaðri Ameríkuleið en þar tók lengri tíma að byggja upp magn en gert var ráð fyrir
- Hagnaður nam 7,4 milljónum evra samanborið við 16,8 milljóna evra hagnað 2017
- Eiginfjárhlutfall var 49,1% samanborið við 53,2% árið áður
- Skuldsetningarhlutfall var 2,8 samanborið við 1,8 árið 2017 sem skýrist af lækkun í EBITDA og fjárfestingum sem voru að hluta til fjármagnaðar með nýjum lántökum
- Handbært fé frá rekstri nam 29,0 milljónum evra samanborið við 37,4 milljónir árið 2017
- Fjöldi fastráðinna starfsmanna var í árslok 1821 og fækkaði um 32 á árinu
- Stjórn félagsins leggur til 3,50 króna arðgreiðslu á hlut, alls um 653,2 milljónir króna eða um 4,8 milljónir evra sem nemur 64,8% af hagnaði ársins og er við efri mörk arðgreiðslustefnu félagsins
Helstu atriði í afkomu á fjórða ársfjórðungi 2018
- Tekjur námu 178,8 milljónum evra, hækkuðu um 2,9 milljónir eða 1,7% frá árinu 2017
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 5,9% en tekjur lækkuðu um 0,5 milljónir evra eða 0,4%
- Magn í flutningsmiðlun dróst saman um 5,9% en tekjur hækkuðu um 3,4 milljónir evra eða 5,7%
- EBITDA að teknu tilliti til einskiptisliða hækkaði um 1.1 milljónir evra frá árinu 2017
- Á fjórða ársfjórðungi 2017 var jákvæður einskiptisliður að fjárhæð 2,5 milljónir evra, vegna endurskipulagningar á dótturfélagi
- Á fjórða ársfjórðungi 2018 var neikvæður einskiptiskostnaður að fjárhæð 1,0 milljón evra vegna breytinga og hagræðingaraðgerða
- Á ársfjórðungnum var tap að fjárhæð 1,9 milljónir evra samanborið við 2,9 milljón evra hagnað á sama tímabili árið 2017
VILHELM ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI
"Afkoma Eimskips á árinu 2018 var undir væntingum. Nokkur tekjuaukning varð bæði í siglingakerfi félagsins sem og í flutningsmiðlun sem er jákvætt en á móti kemur að minnkandi framlegð, hærri kostnaður og afskriftir draga afkomu niður á milli ára. Lítilsháttar aukning varð á tekjum á fjórða ársfjórðungi sbr. sama ársfjórðung 2017 en engu að síður er rekstrarniðurstaða fjórðungsins tap, að hluta til vegna óreglulegra liða.
Samdráttur í rekstrarniðurstöðu á milli ára skýrist af nokkrum megin þáttum umfram aðra. Í grunninn gengur siglingastarfsemin til og frá Íslandi og Færeyjum, ásamt annarri starfsemi í þessum löndum, vel en rekstrarafkoma í frystiflutningum í Noregi var langt undir væntingum og eins átti hluti af flutningsmiðlun í Evrópu undir högg að sækja á árinu, sérstaklega framan af ári. Starfsemin í Noregi hefur fengið sérstaka athygli og t.a.m. verið fækkað um tvö skip í rekstri, það síðara nú í janúar. Lengri tíma tók að byggja upp magn fyrir þriðja skipið á Norður-Ameríku leið félagsins en áætlað var sem hafði áhrif á afkomu ársins en á síðustu mánuðum hefur orðið jákvæð þróun í magni í Trans-Atlantic þjónustu. Óvissa í efnahagsmálum á Íslandi m.a. tengdum kjaraviðræðum höfðu einnig áhrif á síðasta fjórðung ársins en hægt hefur á vexti í innflutningi og samdráttur í ákveðnum vöruflokkum.
Töluverðar breytingar voru gerðar á skipulagi félagsins í upphafi árs 2019 sem eru til þess fallnar að skýra áherslur til muna, bæta reksturinn og auka arðsemina til lengri tíma litið. Siglingakerfi félagsins er endurskoðað með reglulegu millibili með tilliti til þróunar markaða, þarfa viðskiptavina og hagkvæmni. Áhersla er lögð á að samþætta vinnu og verkferla á milli eininga í allri starfsemi félagsins til að ná fram aukinni skilvirkni, m.a. með aukinni sjálfvirknivæðingu.
Eimskip stendur á ákveðnum tímamótum þegar horft er til reksturs og framtíðar. Seinni hluta árs 2019 gerum við ráð fyrir að taka á móti tveimur nýjum skipum, 2.150 gámaeiningar að stærð hvort um sig sem nú eru í smíðum í Kína og er fjárfesting í þeim hluti af væntanlegu samstarfi við Royal Arctic Line. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum ytri vexti og er það nú sameiginlegt verkefni þess öfluga og samhenta hóps sem hjá Eimskip starfar að byggja á þeim grunni, halda skýrri sýn, skerpa á áherslum í rekstri og hámarka árangur."
LYKILTÖLUR
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q4 2018 | Q4 2017 | Breyting | % | 2018 | 2017 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 178.827 | 175.884 | 2.943 | 1,7% | 689.154 | 663.973 | 25.181 | 3,8% |
| Rekstrargjöld | 169.387 | 163.986 | 5.401 | 3,3% | 639.916 | 606.775 | 33.141 | 5,5% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 9.440 | 11.898 | (2.458) | (20,7%) | 49.238 | 57.198 | (7.960) | (13,9%) |
| Afskriftir | (8.927) | (7.731) | (1.196) | 15,5% | (32.548) | (30.148) | (2.400) | 8,0% |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 513 | 4.167 | (3.654) | (87,7%) | 16.690 | 27.050 | (10.360) | (38,3%) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (1.577) | (1.240) | (337) | 27,2% | (4.923) | (7.236) | 2.313 | (32,0%) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (568) | (146) | (422) | - | (1.753) | (339) | (1.414) | - |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | (1.632) | 2.781 | (4.413) | - | 10.014 | 19.475 | (9.461) | (48,6%) |
| Tekjuskattur | (264) | 104 | (368) | - | (2.612) | (2.671) | 59 | (2,2%) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (1.896) | 2.885 | (4.781) | - | 7.402 | 16.804 | (9.402) | (56,0%) |
| (Tap) hagnaður á hlut í evrum | (0,0110) | 0,0152 | 0,0378 | 0,0885 | ||||
| Tekjubreyting | 1,7% | 25,2% | 3,8% | 29,2% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 5,3% | 6,8% | 7,1% | 8,6% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 0,3% | 2,4% | 2,4% | 4,1% | ||||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 2,80 | 1,80 | 2,80 | 1,80 | ||||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 31.12.2018 31.12.2017 | Breyting | % | 31.12.2018 31.12.2017 | Breyting | % | ||
| Eignir | 486.296 | 459.515 | 26.781 | 5,8% | 486.296 | 459.515 | 26.781 | 5,8% |
| Fastafjármunir | 335.172 | 313.529 | 21.643 | 6,9% | 335.172 | 313.529 | 21.643 | 6,9% |
| Veltufjármunir | 151.124 | 145.986 | 5.138 | 3,5% | 151.124 | 145.986 | 5.138 | 3,5% |
| Eigið fé | 238.926 | 244.610 | (5.684) | (2,3%) | 238.926 | 244.610 | (5.684) | (2,3%) |
| Skuldir | 247.370 | 214.905 | 32.465 | 15,1% | 247.370 | 214.905 | 32.465 | 15,1% |
| Langtímaskuldir | 140.753 | 117.614 | 23.139 | 19,7% | 140.753 | 117.614 | 23.139 | 19,7% |
| Skammtímaskuldir | 106.617 | 97.291 | 9.326 | 9,6% | 106.617 | 97.291 | 9.326 | 9,6% |
| Vaxtaberandi skuldir | 159.593 | 125.984 | 33.609 | 26,7% | 159.593 | 125.984 | 33.609 | 26,7% |
| Nettóskuldir | 137.652 | 102.815 | 34.837 | 33,9% | 137.652 | 102.815 | 34.837 | 33,9% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 86,0% | 85,4% | 86,0% | 85,4% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 49,1% | 53,2% | 49,1% | 53,2% | ||||
| SJÓÐSTREYMI | Q4 2018 | Q4 2017 | Breyting | % | 2018 | 2017 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 8.375 | 10.596 | (2.221) | (21,0%) | 29.029 | 37.420 | (8.391) | (22,4%) |
| Fjárfestingarhreyfingar | (13.683) | (25.123) | 11.440 | (45,5%) | (51.905) | (75.139) | 23.234 | (30,9%) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 7.522 | 13.412 | (5.890) | (43,9%) | 20.631 | 22.581 | (1.950) | (8,6%) |
| Breyting á handbæru fé | 2.214 | (1.115) | 3.329 | (298,6%) | (2.245) | (15.138) | 12.893 | (85,2%) |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 19.330 | 24.545 | (5.215) | (21,2%) | 23.169 | 39.543 | (16.374) | (41,4%) |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 397 | (261) | 658 | - | 1.017 | (1.236) | 2.253 | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 21.941 | 23.169 | (1.228) | (5,3%) | 21.941 | 23.169 | (1.228) | (5,3%) |
REKSTUR ÁRSINS 2018
Rekstrartekjur Eimskips árið 2018 námu 689,2 milljónum evra samanborið við 664,0 milljónir evra á árinu 2017 og hækkuðu um 25,2 milljón evra eða 3,8%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,2% drifið áfram af 7,0% vexti í gámaskipakerfinu tengt Trans-Atlantic flutningum, Íslandi og Færeyjum en móti var samdráttur í Noregi 13,6%. Magnaukning í flutningsmiðlun var 4,3% drifin áfram af 23,7% vexti í þurrflutningum en 1,9% samdráttur var í frystiflutningsmiðlun
Rekstrargjöld félagsins námu 640,0 milljónum evra samanborið við 606,8 milljónir evra árið á undan og jukust um 33,2 milljónir evra eða 5,5%. Aukningin skýrist af aukinni afkastagetu siglingakerfisins, hærri olíukostnaði, almennum launahækkunum, auknum umsvifum, hærri verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun og vegna óvæntra bilana frystiskipa.
EBITDA ársins nam 49,2 milljónum evra samanborið við 57,2 milljónir evra á árinu 2017 og lækkaði um 8,0 milljónir evra eða 13,9%. Helstu ástæður fyrir lækkun í EBITDA má rekja til lakari afkomu af starfsemi félagsins í Noregi og samdrætti í frystiflutningsmiðlun. Þá hafði aukning á afkastagetu gámasiglingakerfisins sem tengist Trans-Atlantic og Short-Sea þjónustu í för með sér lægri afkomu á fyrri hluta ársins en jákvæð þróun varð bæði í magni og afkomu á síðari hluta ársins.
Afskriftir ársins námu 32,5 milljón evra samanborið við 30,1 milljón evra á árinu 2017 og hækkuðu um 8,0%. Hækkunin stafar einkum af fjárfestingum í innviðum s.s. gámum og tækjum.
Hagnaður ársins nam 7,4 milljónum evra samanborið við 16,8 milljónir evra á árinu 2017 og dróst saman um 9,4 milljónir evra.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt á árunum 2013 til 2018 samanborið við sama tímabil árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
ÁÆTLUNARSIGLINGAR FLUTNINGSMIÐLUN
Tekjur félagsins hafa vaxið á undanförnum árum eins og sjá má á myndinni hér að neðan til vinstri. Vöxtur í EBITDA fylgdi eftir tekjuvexti á árunum 2013-2016 en á því varð breyting á árinu 2017 og enn frekar á árinu 2018.
* 2,3 milljóna evra einskiptisliðum vegna kostnaðar var bætt við í Q1 2018, 2,5 milljóna evra einskiptistekjur eru innifaldar í Q4 2018 og 1,0 milljón evra einskiptiskostnaður var bætt við í Q4 2018
REKSTUR FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips á fjórða ársfjórðungi 2018 námu 178,8 milljónum evra samanborið við 175,9 milljónir evra á sama tímabili árið áður og hækkuðu um 2,9 milljónir evra eða 1,7%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 5,9%, einkum vegna 10.0% vaxtar í gámaskipakerfinu tengt Trans-Atlantic flutningum, Íslandi og Færeyjum en samdráttur í Noregi var 18,1%. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 116,2 milljónum evra og lækkuðu um 0,4%. Samdráttur í magni í flutningsmiðlun nam 5,9% sem skýrist að mestu af minni þurrvörumiðlun í Asíu en hætt var sérhæfðri miðlun sem fól í sér litla framlegð en óhagstæða bindingu veltufjár. Þrátt fyrir samdráttinn jukust tekjur flutningsmiðlunar á fjórða ársfjórðungi úr 59,2 milljónum evra árið 2017 í 62,6 milljónir evra árið 2018 eða um 5,7%. Tekjuaukningin skýrist af hærri flutningsverðum auk þess sem magn í frystiflutningsmiðlun var í takt við síðasta ár. Á meðal tekna síðasta ársfjórðungs 2017 voru einskiptistekjur að fjárhæð 2,5 milljónir evra tengdar endurskipulagningu á dótturfélagi.
Rekstrargjöld félagsins námu 169,4 milljónum evra samanborið við 164,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2017 og jukust um 5,4 milljónir evra eða 3,3%. Rekstrargjöld áætlunarsiglinga námu 106,9 milljónum evra og hækkuðu um 2,5%. Hækkunin skýrist af kostnaði tengdum aukningu á afkastagetu siglingakerfisins og hærri olíukostnaði auk einskiptiskostnaðar vegna breytinga og hagræðingaraðgerða. Rekstrargjöld flutningsmiðlunar námu 62,5 milljónum evra og hækkuðu um 4,7%. Hækkun rekstrargjalda í flutningsmiðlun skýrist, eins og tekjuvöxturinn, einkum af hærri flutningsverðum hjá á alþjóðlegum flutningamörkuðum.
EBITDA ársfjórðungsins nam 9,4 milljónum evra samanborið við 11,9 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2017 og lækkaði um 2,5 milljónir evra eða 20,7%. EBITDA að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar nam 10,4 milljónum evra samanborið við 9,4 milljónir evra 2017, að teknu tilliti til 2,5 milljóna evra einskiptistekna vegna endurskipulagningar á dótturfélagi. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 7,0 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 8,8 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2017. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 2,4 milljónum evra samanborið við 3,1 milljón evra á sama tímabili 2017.
Afskriftir fjórðungsins námu 8,9 milljónum evra og hækkuðu um 1,2 milljónir evra á milli ára eða 15,5%.
Tap á fjórða ársfjórðungi nam 1,9 milljónum evra samanborið við 2,9 milljónir evra hagnað á sama tímabili 2017.
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 486,3 milljónum evra í lok árs 2018
- Eiginfjárhlutfall var 49,1%
- Vaxtaberandi skuldir námu 159,6 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 137,7 milljónum evra
Fastafjármunir námu 335,2 milljónum evra í árslok 2018 samanborið við 313,5 milljónir evra í árslok 2017. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 44,8 milljónum evra samanborið við 58,5 milljónir evra á árinu 2017.
Veltufjármunir námu 151,1 milljónum evra í lok ársins samanborið við 146,0 milljónir evra í árslok 2017. Handbært fé nam 21.9 milljónum evra samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017. Viðskiptakröfur jukust úr 118,9 milljónum evra í árslok 2017 í 124,1 milljón evra í lok árs 2018 í takt við veltuaukningu.
Eigið fé nam 238,9 milljónum evra í árslok 2018 og var eiginfjárhlutfallið 49,1%. Til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 53,2% í árslok 2017. Arður að fjárhæð 1.269,1 milljón krónur, eða 10,4 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl 2018.
Skammtímaskuldir námu 106,6 milljónum evra í lok ársins samanborið við 97,3 milljónir evra í árslok 2017. Hækkunin skýrist af aukningu í næsta árs afborgunum.
Vaxtaberandi skuldir námu 159,6 milljónum evra í lok árs 2018 og hækkuðu úr 126,0 milljón evra í árslok 2017. Eimskip gekk frá endurfjármögnun á stórum hluta lána við Íslandsbanka og Landsbanka Íslands á síðari hluta ársins. Jafnframt hefur félagið tryggt sér langtíma fjármögnun á fjármögnunarleigu sem er á gjalddaga á árinu 2019 að fjárhæð um 8.0 milljónir evra og tryggt sér langtíma fjármögnun tengdri fjárfestingu í nýsmíði tveggja skipa. Nettóskuldir námu 137,7 milljónum evra samanborið við 102,8 milljónir evra í árslok 2017.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 29,0 milljón evra á árinu 2018
- Nettó fjárfestingahreyfingar námu 51,9 milljón evra
- Handbært fé var 21,9 milljónir evra í lok árs 2018
Handbært fé frá rekstri nam 29,0 milljónum evra á árinu 2018 samanborið við 37,4 milljónir evra árið áður.
Nettó fjárfestingahreyfingar námu 51,9 milljón evra samanborið við 75,1 milljónir evra á árinu 2017. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 47,4 milljónum evra, þar af voru viðhaldsfjárfestingar 28,4 milljónum evra. Stærstu fjárfestingarnar ársins voru í gámum, innágreiðslur á skipasmíðasamninga, slipptöku skipa ásamt tækjabúnaði fyrir hafnarstarfsemi á Húsavík og í Sundahöfn
Nettó fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 20,6 milljónir evra samanborið við 22,6 milljóna evra jákvæðar fjármögnunarhreyfingar á árinu 2017.
Handbært fé var 21,9 milljónir evra í lok ársins 2018 samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2019
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2019 er EBITDA á bilinu 49 til 57 milljónir evra.
Horfur fyrir árið 2019 eru ágætar í áætlunarsiglingum til og frá Íslandi og Færeyjum þó vissulega hafi fyrirséður loðnu brestur áhrif á útflutningsmagn og minnkandi umsvif og óvissa í íslenska hagkerfinu áhrif á magn í innflutningi. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti á árinu í Trans-Atlantic flutningum sem tóku vel við sér á seinni
hluta síðasta árs og áframhald hefur verið á því það sem af er ári. Samkeppni er áfram hörð í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi. Reiknað er með bata í afkomu af frystiflutningastarfsemi í Noregi þó áfram sé gert ráð fyrir krefjandi rekstrarumhverfi. Gert er ráð fyrir að alþjóðleg flutningsmiðlun skili betri afkomu á árinu 2019 en árið 2018 en þar hafa t.d. skilyrði fyrir flutningsmiðlun á milli Evrópu og Afríku batnað.
Stjórnskipulagi félagsins var breytt í upphafi árs 2019 með það að markmiði að skerpa á áherslum í rekstri og auka arðsemina til lengri tíma litið. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum ytri vexti en nú verður aukin áhersla lögð á að bæta arðsemi í núverandi starfsemi. Með aukinni samþættingu verkferla á milli eininga í starfsemi félagsins og frekari sjálfvirknivæðingu mun nást fram meiri skilvirkni. Áfram verður leitast við að ná fram hagræðingu í siglingakerfi félagsins.
Á árinu 2019 verður langtíma fjárfesting mikil með kaupum á tveimur nýjum skipum, stórum hafnarkrana og breytingum á hafnarsvæði í Sundahöfn því tengdu. Fjárstreymi frá rekstri ásamt nýjum lántökum fjármagnar þá innviðauppbyggingu.
Almenn óvissa er varðandi almenna kjarasamninga á Íslandi, efnahagsaðstæður á heimsvísu s.s. Brexit og tollastríð, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengis- og vaxtaþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var 267,9 milljónir evra eða 36,5 milljarðar króna þann 28. febrúar 2019
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2018 var 228,0 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2018 220,1 krónum á hlut. Lokaverð þann 28. febrúar 2019 var 195,0 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 36,5 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 267,9 milljónum evra.
Fjöldi útgefinna hluta er 187.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2018 var 703, en hluthafar voru 682 talsins þann 27.febrúar 2019.
Arðgreiðslustefna félagsins er að árleg arðgreiðsla jafngildi 10-65% af hagnaði eftir skatta. Ákvörðun um arðgreiðslu og nákvæma fjárhæð er háð áætlun félagsins um fjárfestingar, horfum á markaði og fullnægjandi fjármagnsskipan á hverjum tíma. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2019 sem nemur 3,50 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 653,2 milljónum króna eða um 4,8 milljónum evra, sem samsvarar um 64,8% af hagnaði ársins 2018.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTUR | Q4 2018 | Q3 2018 | Q2 2018 | Q1 2018 | Q4 2017 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 178.827 | 182.164 | 172.631 | 155.532 | 175.884 |
| Rekstrargjöld | 169.387 | 164.530 | 157.718 | 148.281 | 163.986 |
| EBITDA | 9.440 | 17.634 | 14.913 | 7.251 | 11.898 |
| EBIT | 513 | 9.738 | 6.995 | (556) | 4.167 |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (1.896) | 6.269 | 4.615 | (1.586) | 2.885 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 5,3% | 9,7% | 8,6% | 4,7% | 6,8% |
| EBIT / rekstrartekjur | 0,3% | 5,3% | 4,1% | -0,4% | 2,4% |
| EFNAHAGUR | 31.12.2018 | 30.09.2018 | 30.06.2018 | 31.03.2018 | 31.12.2017 |
| Eignir | 486.296 | 487.944 | 477.105 | 468.781 | 459.515 |
| Eigið fé | 238.926 | 242.538 | 237.086 | 231.016 | 244.610 |
| Skuldir | 247.370 | 245.406 | 240.019 | 237.765 | 214.905 |
| Vaxtaberandi skuldir | 159.593 | 152.219 | 150.347 | 137.410 | 125.984 |
| Nettóskuldir | 137.652 | 132.889 | 128.830 | 115.796 | 102.815 |
| Eiginfjárhlutfall | 49,1% | 49,7% | 49,7% | 49,3% | 53,2% |
| SJÓÐSTREYMI | Q4 2018 | Q3 2018 | Q2 2018 | Q1 2018 | Q4 2017 |
| Handbært frá rekstri | 8.375 | 10.647 | 8.019 | 1.988 | 10.596 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (13.683) | (13.467) | (10.914) | (13.841) | (25.123) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 7.522 | 708 | 1.869 | 10.532 | 13.412 |
| Handbært fé í lok tímabils | 21.941 | 19.330 | 21.517 | 21.614 | 23.169 |
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Eimskip hefur frest til 29. mars 2019 til að koma á framfæri andmælum sínum við andmælaskjali I. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 65 starfsstöðvar í 20 löndum í fjórum heimsálfum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.820 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 1. MARS 2019
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 1.mars 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Vilhelm Þorsteinsson forstjóri og Egill Örn Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2018 og fjórða ársfjórðung.
Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti endurskoðaðan ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2018 á stjórnarfundi þann 28.febrúar 2019.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Aðalfundur 2019: 28. mars 2019
- Q1 2019: Uppgjör birt 23. maí 2019
- Q2 2019: Uppgjör birt 29. ágúst 2019
- Q3 2019: Uppgjör birt 21. nóvember 2019
- Q4 2019: Uppgjör birt 27. febrúar 2020
- Aðalfundur 2019: 27. mars 2020
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Vilhelm Þorsteinsson forstjóri, sími: 525 7202
- Egill Örn Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sími: 525 7202
- Árni Sigurðsson, forstöðumaður, sími: 525 7319, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.