AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2019
Nov 21, 2019
2194_10-q_2019-11-21_30dcef8e-758c-4e71-b456-4c4ace5fe9bf.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Afkoma af rekstri fyrstu níu mánuði ársins í samræmi við væntingar
Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs 2019
- Tekjur námu 172,5 milljónum evra og lækkuðu um 9,6 milljónir evra eða 5,3% frá sama ársfjórðungi 2018
- Magn í áætlunarsiglingum minnkaði um 5,1% vegna minni innflutnings til Íslands og minni útflutnings í júlí og ágúst frá Íslandi og Færeyjum. Á móti kemur að vöxtur í Trans-Atlantic flutningum var sterkur.
- Magn í flutningsmiðlun minnkaði um 10,3% en engu að síður jókst afkoma af flutningsmiðlun miðað við fyrra ár vegna aukinnar framlegðar, samþættingar og skipulagsbreytinga.
- Launakostnaður lækkar á milli tímabila um 5,3% og annar rekstrarkostnaður lækkaði um 6,0% án áhrifa IFRS 16.
- EBITDA nam 22,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2019 eða 17,7 milljónum evra (án áhrifa IFRS 16) samanborið við 17,6 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs.
- EBITDA á ársfjórðungnum var í samræmi við væntingar.
- Hagnaður á ársfjórðungnum nam 7,1 milljón evra samanborið við 6,3 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs og nam hækkunin um 0,8 milljónum evra.
- Handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins (án áhrifa IFRS16) minnkaði og nam -1,7 milljónum evra samanborið við 10,6 milljónir í lok sama ársfjórðungs 2018, aðallega vegna árstíðabundinna breytinga veltufjár.
Helstu atriði í afkomu fyrstu níu mánaða ársins
- Tekjur námu 504,0 milljónum evra og lækkuðu um 6,3 milljónir evra eða 1,2% frá sama tímabili 2018.
- o Tekjur lækkuðu meðal annars vegna lægra flutningsmagns í gámasiglingum og lægri verða á alþjóðlegum flutningamörkuðum
- EBITDA nam 56,7 milljónum evra eða 41,4 milljónum evra (án áhrifa IFRS 16) samanborið við 39,8 milljónir evra fyrir sama tímabil á síðasta ári sem er aukning um 4,1%.
- Hagnaður tímabilsins nam 7,2 milljónum evra samanborið við 9,3 milljónir evra fyrir sama tímabil 2018.
- Einskiptis skattaleg áhrif að fjárhæð 3,4 milljónir evra hafa neikvæð áhrif á afkomu tímabilsins. Án þessa einskiptisliðar væri hagnaður 10,6 milljónir evra eða 1,3 milljónum evra hærri hagnaður en fyrir sama tímabil síðasta árs.
- Fjárfestingar tímabilsins námu 32,7 milljónum evra samanborið við 34,2 milljónir evra fyrstu níu mánuði ársins 2018. Fjárfestingum að fjárhæð 36 milljónir evra sem voru á áætlun ársins 2019 var frestað til ársins 2020, einkum vegna seinkunar á afhendingu tveggja nýrra skipa.
- Handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins (án áhrifa IFRS 16) jókst og nam 26,7 milljónum evra samanborið við 20,7 milljónir evra fyrir sama tímabil 2018.
- Eigið fé nam 237,1 milljón evra í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfallið nam 45,1%. Eiginfjárhlutfallið var 48,0% (án áhrifa IFRS 16), en til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 49,1% í árslok 2018.
- Arður að fjárhæð 4,7 milljónir evra var greiddur á öðrum ársfjórðungi og endurkaupa áætlun var virkjuð og henni lokið á þriðja ársfjórðungi. Félagið keypti hlutabréf að fjárhæð 3,6 milljónir evra að markaðsvirði.
- Skuldsetningarhlutfall var 2,6 í lok þriðja ársfjórðungs 2019, samanborið við 2,80 í lok árs 2018 sem er jákvæð þróun á milli tímabila.
- Framtíðar fjármagnsskipan félagsins og þriggja ára áætlun fyrir viðhaldsfjárfestingar kynnt.
- Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2019 er þrengd niður á bilið EBITDA 52-55 milljónir evra.
VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI
"Ég er heilt yfir sáttur við afkomu Eimskips á þriðja ársfjórðungi og fyrstu níu mánuðum ársins sem eru í samræmi við væntingar, þrátt fyrir minni innflutning til Íslands. Ég er ánægður að sjá EBITDA og hagnað af flutningsmiðlunarstarfseminni aukast milli ára þrátt fyrir að magn hafi dregist saman vegna aflagðrar starfsemi og spennu í alþjóðaviðskiptum.
Afkoma af alþjóðlegri starfsemi félagins var í samræmi við væntingar. Starfsemin okkar í Noregi hélt áfram að bæta afkomu sína í kjölfar ýmissa hagræðingaraðgerða fyrr á árinu og Trans-Atlantic flutningar hafa vaxið um tveggja stafa tölur á árinu 2019 sem hefur haft jákvæð áhrif t.d. á starfsemi okkar í Norður Ameríku. Á þriðja ársfjórðungi var tekin ákvörðun um að loka skrifstofu Eimskips í Belgíu og sameina hluta af starfseminni við skrifstofu Eimskips í Rotterdam. Þessi aðgerð leiðir af sér fækkun um 11 starfsmenn. Einskiptisgreiðsla fellur til vegna þessa á fjórða ársfjórðungi 2019, en áætlað er að breytingarnar leiði til lækkunar rekstrarkostnaðar um 0,3-0,4 milljónir evra á ársgrundvelli þegar til framtíðar er litið. Skrifstofu okkar í Murmansk var lokað á þriðja ársfjórðungi og ábyrgð á þjónustu við svæðið var færð til Sortland í Noregi. Að auki höfum við sameinað nokkrar aðrar skrifstofur á árinu 2019. Þetta er í samræmi við vegferð félagsins um aukna samþættingu og áherslu á kjarnastarfsemi.
Minni innflutningur til Íslands vegna kólnunar íslenska hagkerfisins hefur áfram áhrif á afkomu í gámasiglingum. Útflutningur drógst saman yfir sumartímann, bæði frá Íslandi og Færeyjum, en jókst síðan í síðari hluta ágústmánaðar. Þegar á heildina er litið hefur magn til og frá Færeyjum verið í samræmi við áætlanir það sem af er ári.
Mér finnst ánægjulegt að sjá góðan árangur á Innanlandssviði á Íslandi þrátt fyrir minna magn í innflutningi og krefjandi umhverfi.
Samþættingar og skipulagsbreytingar eru að skila sér í hagræðingu sem sést t.d. bæði í lægri kostnaði stjórnunareininga og í starfseminni almennt. Launakostnaður lækkaði um 4,7 milljónir evra samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2018, en þar af eru 3,4 milljónir evra vegna samþættingarverkefna. Starfsmönnum hefur fækkað um 55 á árinu og eru nú 1750 talsins.
Nýtt gámasiglingakerfi var kynnt í október. Með einfaldara siglingakerfi og stærri skipum munum við geta bætt þjónustu og áreiðanleika siglingakerfisins ásamt því að lækka fastan rekstrarkostnað. Markmiðið um lækkun rekstrarkostnaðar með nýju siglingakerfi, þar með talið með samstarfinu við Royal Arctic Line, er á bilinu 7-9 milljónir evra á ársgrundvelli.
Eins og áður hefur verið tilkynnt um kom upp bilun í Brúarfossi, annarri nýsmíðinni, þegar ásrafall skemmdist í prufusiglingu. Af því leiðir að upphaf samstarfsins við Royal Arctic Line mun frestast frekar og er gert ráð fyrir að það hefjist á öðrum ársfjórðungi 2020. Við búumst við því að fá Dettifoss afhentan á fyrsta ársfjórðungi og Brúarfoss á þriðja ársfjórðungi 2020. Félagið á í samningaviðræðum við skipasmíðastöðina í Kína varðandi næstu skref og tafabætur vegna seinkunar á afhendingu.
Að lokum má nefna að við kynnum nú markmið um framtíðar fjármagnsskipan félagsins og þriggja ára fjárfestingaáætlun. Okkar markmið er að viðhalda eiginfjárhlutfalli nálægt 40% og hóflegu skuldsetningarhlutfalli sem væri 2-3 sinnum nettó vaxtaberandi skuldir á móti EBITDA. Markmiðið með þessu er að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika og þar með auka þjónustu við fjárfesta og greinendur á markaði."
LYKILTÖLUR
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q3 2019 | Q3 2018 | Breyting | % | 9M 2019 | 9M 2018 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 172.522 | 182.164 | (9.642) | (5,3%) | 504.045 | 510.327 | (6.282) | (1,2%) |
| Rekstrargjöld | 149.804 | 164.530 | (14.726) | (9,0%) | 447.313 | 470.529 | (23.216) | (4,9%) |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 22.718 | 17.634 | 5.084 | 28,8% | 56.732 | 39.798 | 16.934 | 42,5% |
| Afskriftir | (13.693) | (7.896) | (5.797) | 73,4% | (40.162) | (23.621) | (16.541) | 70,0% |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 9.025 | 9.738 | (713) | (7,3%) | 16.570 | 16.177 | 393 | 2,4% |
| Hrein fjármagnsgjöld | 102 | (1.331) | 1.433 | - | (2.802) | (3.346) | 544 | (16,3%) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (84) | (170) | 86 | (50,6%) | (83) | (1.185) | 1.102 | - |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 9.043 | 8.237 | 806 | 9,8% | 13.685 | 11.646 | 2.039 | 17,5% |
| Tekjuskattur | (1.990) | (1.968) | (22) | - | (6.494) | (2.348) | (4.146) | 176,6% |
| Hagnaður tímabilsins | 7.053 | 6.269 | 784 | 12,5% | 7.191 | 9.298 | (2.107) | (22,7%) |
| Hagnaður (tap) á hlut í evrum | 0,0375 | 0,0328 | 0,0371 | 0,0483 | ||||
| Tekjubreyting | (5,3%) | 4,8% | (1,2%) | 4,6% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 13,2% | 9,7% | 11,3% | 7,8% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 5,2% | 5,3% | 3,3% | 3,2% | ||||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 2,57 | 2,57 | 2,57 | 2,57 | ||||
| LTM Arðsemi eiginfjár | 2,2% | 5,1% | 2,2% | 5,0% | ||||
| IFRS 16 aðlagað: | ||||||||
| Rekstrargjöld | 154.870 | 164.530 | (9.660) | (5,9%) | 462.611 | 470.529 | (7.918) | (1,7%) |
| EBITDA | 17.652 | 17.634 | 18 | 0,1% | 41.434 | 39.798 | 1.636 | 4,1% |
| Afskriftir | (8.601) | (7.896) | (705) | 8,9% | (25.123) | (23.621) | (1.502) | 6,4% |
| EBIT | 9.051 | 9.738 | (687) | (7,1%) | 16.311 | 16.177 | 134 | 0,8% |
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 30.09.2019 | 30.09.2018 | Breyting | % | 30.09.2018 | 31.12.2018 | Breyting | % |
| Eignir | 526.093 | 487.944 | 38.149 | 7,8% | 526.093 | 486.296 | 39.797 | 8,2% |
| Fastafjármunir | 372.137 | 332.808 | 39.329 | 11,8% | 372.137 | 335.172 | 36.965 | 11,0% |
| Veltufjármunir | 153.956 | 155.136 | (1.180) | (0,8%) | 153.956 | 151.124 | 2.832 | 1,9% |
| Eigið fé | 237.100 | 242.538 | (5.438) | (2,2%) | 237.100 | 238.926 | (1.826) | (0,8%) |
| Skuldir | 288.993 | 245.406 | 43.587 | 17,8% | 288.993 | 247.370 | 41.623 | 16,8% |
| Langtímaskuldir | 186.233 | 132.217 | 54.016 | 40,9% | 186.233 | 140.753 | 45.480 | 32,3% |
| Skammtímaskuldir | 102.760 | 113.189 | (10.429) | (9,2%) | 102.760 | 106.617 | (3.857) | (3,6%) |
| Vaxtaberandi skuldir | 201.588 | 152.219 | 49.369 | 32,4% | 201.588 | 159.593 | 41.995 | 26,3% |
| Nettóskuldir | 182.915 | 132.889 | 50.026 | 37,6% | 182.915 | 137.652 | 45.263 | 32,9% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 87,3% | 85,9% | 87,3% | 86,0% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 45,1% | 49,7% | 45,1% | 49,1% | ||||
| SJÓÐSTREYMI | Q3 2019 | Q3 2018 | Breyting | % | 9M 2019 | 9M 2018 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 3.935 | 10.647 | (6.712) | (63,0%) | 41.866 | 20.654 | 21.212 | 102,7% |
| Fjárfestingarhreyfingar | (10.569) | (13.467) | 2.898 | (21,5%) | (30.724) | (38.222) | 7.498 | (19,6%) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (2.218) | 708 | (2.926) | - | (14.163) | 13.109 | (27.272) | - |
| Breyting á handbæru fé | (8.852) | (2.112) | (6.740) | - | (3.021) | (4.459) | 1.438 | (32,2%) |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 26.973 | 21.517 | 5.456 | 25,4% | 21.941 | 23.169 | (1.228) | (5,3%) |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 552 | (75) | 627 | - | (247) | 620 | (867) | - |
| Handbært fé í lok tímabils | 18.673 | 19.330 | (657) | (3,4%) | 18.673 | 19.330 | (657) | (3,4%) |
REKSTUR ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGS 2019
Rekstrartekjur Eimskips á þriðja ársfjórðungi 2019 námu 172,5 milljónum evra samanborið við 182,2 milljónir á sama tímabili 2018 og lækkuðu um 9,6 milljón eða 5,3%. Flutt magn í áætlunarsiglingum lækkaði um 5,1% vegna minni innflutnings til Íslands og minni útflutnings í sumar sem jókst síðan aftur í lok ágúst. Magn í flutningsmiðlun
lækkaði um 10,3% á milli tímabila, en hagnaðurinn var samt sem áður hærri en á sama tímabili í fyrra vegna aukinnar framlegðar og hagræðingaraðgerða.
Rekstrargjöld félagsins námu 149,8 milljónum evra samanborið við 164,5 milljónir á sama tímabili 2018 sem er lækkun um 14,7 milljónir. Eimskip tók upp nýja reikningsskilastaðalinn IFRS 16, um meðhöndlun rekstrarleiguskuldbindinga, frá og með 1. janúar 2019. Ef leiðrétt er fyrir áhrifum IFRS 16 námu rekstrargjöld 154,9 milljónum evra sem er lækkun um 6,0% frá sama tíma 2018. Laun og launatengd gjöld lækkuðu um 1,8 milljón evra á milli ára eða um 5,3%.
EBITDA fjórðungsins nam 22,7 milljónum evra eða 17,7 milljónir evra ef leiðrétt er fyrir áhrifum IFRS 16, samanborið við 17,6 milljónir á sama tíma 2018 sem er hækkun um 0,1 milljónir. EBITDA fjórðungsins var í samræmi við væntingar en minna magn í gámaflutningum var vegið upp með áhrifum af rekstrarúrbótum og hagræðingaraðgerðum.
Afskriftir námu 13,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2019 samanborið við 7,9 milljónir á sama tíma 2018. Án áhrifa IFRS 16 voru afskriftir 8,6 milljón evra sem er aukning um 0,7 milljónir.
Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 7,1 milljónum evra samanborið við 6,3 milljónir evra á sama tíma 2018.
REKSTUR FYRSTU 9 MÁNUÐI ÁRSINS 2019
Rekstrartekjur Eimskips á tímabilinu námu 504,0 milljónum evra samanborið við 510,3 milljónir á sama tímabili 2018 og lækkuðu um 6,3 milljónir eða 1,2%. Flutt magn í áætlunarsiglingum lækkaði um 1,9% þar sem Trans-Atlantic flutningar frá Íslandi jukust og útflutningur frá Íslandi var góður fyrir meiri hluta tímabilsins en magn í innflutningum til Íslands dróst saman. Magn í flutningsmiðlun lækkaði um 8,1% á milli tímabila sem skýrist að mestu á samdrætti í flutningsmiðlun á þurrvöru í Asíu, hins vegar eru áhrifin óveruleg vegna betri framlegðar og hagræðingaraðgerða.
Rekstrargjöld félagsins námu 447,3 milljónum evra samanborið við 470,5 milljónir á sama tímabili 2018 sem er lækkun um 23,2 milljónir. Rekstrargjöld án áhrifa IFRS 16 námu 462,6 milljónum evra sem er hækkun um 1,7% frá sama tímabili 2018. Laun og launatengd gjöld lækkuðu um 4,7 milljónir evra á milli ára eða um 4,5%.
EBITDA fyrstu níu mánuði ársins nam 56,7 milljónum evra samanborið við 39,8 milljónir á sama tíma 2018 og hækkaði um 16,9 milljónir. Ef leiðrétt er fyrir áhrifum IFRS 16 var EBITDA tímabilsins 41,4 milljónir evra sem er hækkun um 1,6 milljónir. Helstu ástæður fyrir hækkun í EBITDA á milli ára eru viðsnúningur í afkomu í Noregi, áframhaldandi vöxtur í Trans-Atlantic flutningum, jákvæður vöxtur í frystiflutningsmiðlun og hagræðingar- og skipulagsaðgerðir.
Afskriftir námu 40,2 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 23,6 milljónir á sama tíma 2018. Án áhrifa IFRS 16 voru afskriftir 25,1 milljónir evra sem er aukning um 1,5 milljónir evra.
Á fyrsta ársfjórðungi 2019 var einskiptis skattakostnaður gjaldfærður að fjárhæð 3,4 milljónir evra í kjölfar úrskurðar Yfirskattanefndar. Fyrirtækið hefur vísað málinu til dómstóla.
Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 7,2 milljón evra samanborið við 9,3 milljónir evra á sama tíma 2018. Ef horft er framhjá einskiptis skattakostnaði væri hagnaður 10,6 milljónir evra.
EFNAHAGUR
Heildareignir námu 526,0 milljónum evra í lok þriðja ársfjórðungs 2019 samanborið við 486,3 milljónir í lok árs 2018. Fastafjármunir námu 372,1 milljónum evra samanborið við 335,2 milljónir evra í lok síðasta árs. Vegna áhrifa IFRS 16 kom inn nýr eignaliður undir fastafjármuni vegna nýtingarréttar leigueigna og nemur sú fjárhæð 32,1 milljónum evra í lok tímabilsins.
Veltufjármunir námu 154,0 milljónum evra samanborið við 151,1 milljón evra í árslok 2018. Handbært fé nam 18,7 milljónum evra samanborið við 21,9 milljónir evra í árslok 2018. Viðskiptakröfur hækkuðu úr 124,1 milljón evra í árslok 2018 í 129,7 milljónir evra.
Eigið fé nam 237,1 milljónum evra í lok tímabilsins sem er lækkun um 1,9 milljónir sem skýrist af stærstum hluta af arðgreiðslu að fjárhæð ISK 653,2 milljónum eða um 4,7 milljónum evra sem var greidd í apríl og endurkaupaáætlun hlutabréfa en félagið keypti 3,6 milljónir evra á markaðsvirði. Eiginfjárhlutfallið var 45,1% en til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 49,1% í árslok 2018. Eiginfjárhlutafall án áhrifa IFRS 16 var 48,0%.
Vaxtaberandi skuldir námu 201,6 milljónum evra í lok tímabilsins og hækkuðu úr 159,6 milljónum í árslok 2018. Án áhrifa IFRS 16 námu vaxtaberandi skuldir 174,7 milljónum evra.
Skammtímaskuldir námu 102,8 milljónum evra í lok tímabilsins samanborið við 106,6 milljónir í árslok 2018.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
Handbært fé frá rekstri nam 41,9 milljónum evra á tímabilinu samanborið við 20,7 milljónir evra miðað sama tímabil 2018. Án áhrifa IFRS 16 var handbært fé frá rekstri 26,7 milljónir evra.
Nettó fjárfestingahreyfingar námu 30,7 milljónum evra samanborið við 38,2 milljónir evra miðað við sama tímabil 2018. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 32,7 milljónum evra og þar af voru viðhaldsfjárfestingar 12,1 milljón evra. Stærstu fjárfestingar tímabilsins voru í nýjum Gantry gámakrana við Sundahöfn, standsetningu á hafnaraðstöðu Sundabakka og nýsmíði tveggja skipa.
Nettó fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 14,2 milljónir evra samanborið við 13,1 milljónir evra jákvæðar fjármögnunarhreyfingar á sama tímabili 2018.
Handbært fé var 18,7 milljónir evra í lok tímabilsins samanborið við 21,9 milljónir í árslok 2018.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2019
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2019 er þrengd niður á bilið EBITDA 52 til 55 milljónir evra.
Íslenska hagkerfið er að kólna og áætlað er að magn í innflutningi verði áfram lægra en á síðasta ári. Útflutningur frá Íslandi og Færeyjum, sem minnkaði í júní og júlí eftir sterka fyrstu fimm mánuði ársins, byrjaði að taka við sér seinni hluta ágúst og áætlað er að hann verði svipaður og á síðasta ári út árið 2019. Nýtt gámasiglingakerfi var kynnt í október til að aðlaga fyrir lægra flutningsmagni, sérstaklega í innflutningi til Íslands, með það að markmiði að lækka fastan rekstrarkostnað og til að ryðja brautina fyrir samstarfi við Royal Arctic Line. Trans-Atlantic flutningar hafa verið að skila góðri afkomu og væntingar standa til þess að það haldi áfram. Gert er ráð fyrir áframhaldandi ábata af hagræðingu í frystiflutningum í Noregi miðað við fyrra ár. Einnig er gert ráð fyrir hóflegum afkomubata í alþjóða flutningsmiðlun á síðasta ársfjórðungi 2019.
Skipulagsbreytingar sem ráðist var í, í byrjun árs með það að markmiði að bæta rekstur og auka arðsemi til lengri tíma hafa skilað sér í lækkun launakostnaðar og færri stöðugildum ásamt því að annar rekstrarkostnaður hefur lækkað. Samþættingar- og hagræðingaraðgerðir sem farið var í á Íslandi og Rotterdam í apríl byrjuðu að skila sér á þriðja ársfjórðungi. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum ytri vexti en nú er áhersla lögð á að bæta arðsemi í núverandi starfsemi.
Fjárfestingar sem áætlaðar voru á árinu 2019 að fjárhæð 36 milljónir evra í tveimur nýjum skipum hefur verið seinkað til fyrsta ársfjórðungs og þriðja ársfjórðungs á árinu 2020.
Fjöldi utanaðkomandi þátta getur haft áhrif á horfur fyrir árið 2019, þar á meðal spenna í alþjóðaviðskiptum, flutningamagn, flutningskostnaður og olíuverð. Einnig geta sértækir þættir hér heima haft áhrif á horfur ársins s.s. gengis- og vaxtaþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var um 219,4 milljónir evra eða 30,0 milljarðar króna við lok viðskipta þann 21. nóvember 2019.
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2018 var 228,0 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2018 220,1 krónu á hlut. Lokaverð þann 21. nóvember 2019 var 163,0 krónur á hlut, sem jafngildir 28,5% lækkun frá áramótum.
Fjöldi útgefinna hluta er 187.000.000, þar af eru 183.961.921 útistandandi hlutir og 3.038.079 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2018 var 703 en hluthafar voru 676 talsins þann 21. nóvember 2019.
Endurkaupaáætlun var virkjuð á Q2 og henni lauk snemma á Q3. Eimskip keypti samtals 2.677.309 hluti í félaginu að fjárhæð 500 milljónum króna eða 3,6 milljónum evra. Bréfin eru skilgreind sem eigin hlutir.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| Q3 2019 | Q2 2019 | Q1 2019 | Q4 2018 | Q3 2018 | |
|---|---|---|---|---|---|
| 172.522 | 167.535 | 163.988 | 178.827 | 182.164 | |
| 149.804 | 149.043 | 148.466 | 169.387 | 164.530 | |
| 22.718 | 18.492 | 15.522 | 9.440 | 17.634 | |
| 9.025 | 5.101 | 2.444 | 513 | 9.738 | |
| 7.053 | 2.651 | (2.513) | (1.896) | 6.269 | |
| 13,2% | 11,0% | 9,5% | 5,3% | 9,7% | |
| 5,2% | 3,0% | 1,5% | 0,3% | 5,3% | |
| 30.09.2019 | 30.06.2019 | 31.03.2019 | 31.12.2018 | 30.09.2018 | |
| 526.093 | 527.021 | 519.068 | 486.296 | 487.944 | |
| 237.100 | 232.856 | 233.301 | 238.926 | 242.538 | |
| 288.993 | 294.165 | 285.767 | 247.370 | 245.406 | |
| 201.588 | 197.734 | 194.537 | 159.593 | 152.219 | |
| 182.915 | 170.761 | 167.853 | 137.652 | 132.889 | |
| 45,1% | 44,2% | 44,9% | 49,1% | 49,7% | |
| Q3 2019 | Q2 2019 | Q1 2019 | Q4 2018 | Q3 2018 | |
| 3.935 | 22.537 | 15.394 | 8.375 | 10.647 | |
| (10.569) | (12.290) | (7.865) | (13.683) | (13.467) | |
| (2.218) | (8.756) | (3.189) | 7.522 | 708 | |
| 18.673 | 26.973 | 26.684 | 21.941 | 19.330 | |
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 56 starfsstöðvar í 18 löndum í fjórum heimsálfum, er með 19 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.750 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 22. NÓVEMBER 2019
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 22. nóvember 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör félagsins fyrir þriðja ársfjórðung 2019. Fundinum verður streymt beint á www.eimskip.com/investors. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.com/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir þriðja ársfjórðung 2019 á stjórnarfundi þann 21. nóvember 2019.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Q4 2019: Uppgjör birt 27. febrúar 2020
- Aðalfundur: 27. mars 2020
- Q1 2020: Uppgjör birt 19. maí 2020
- Q2 2020: Uppgjör birt 27. ágúst 2020
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Egill Örn Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sími: 525 7202
- Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri, sími: 825 3399, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.