AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2019
May 23, 2019
2194_rns_2019-05-23_c99ede21-e642-4e66-bff3-a9f646aad259.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Afkomutilkynning | 23. mai 2019
E IMSKIP
Afkoma af rekstri á fyrsta ársfjórðungi yfir væntingum
Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs 2019
- Tekjur námu 164 milljónum evra og hækkuðu um 8,5 milljónir eða 5,4% frá sama ársfjórðungi 2018
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,6%, drifið áfram af umtalsverðri aukningu í gámaflutningum sem jukust um 9,0% og hækkuðu tekjur um 5,1 milljón evra eða 5,0%.
-
Magn í flutningsmiðlun jókst um 1,0% en góður gangur var í frystiflutningsmiðlun sem jókst um 8,7%. Tekjur hækkuðu um 3,4 milljónir evra eða 6,2%.
-
Launakostnaður lækkar á milli tímabila en annar rekstrarkostnaður hækkar um 5,3% án áhrifa IFRS 16
- Laun og launatengd gjöld námu 32,7 milljónum evra samanborið við 33,7 milljónir á sama fjórðungi síðasta árs sem er lækkun um 3%. Á tímabilinu störfuðu að meðaltali um 1.800 starfsmenn hjá félaginu samanborið við um 1.860 starfsmenn á sama tímabili í fyrra. Um síðustu áramót var fjöldi starfsmanna 1.821.
-
Annar rekstrarkostnaður nam 115,8 milljónum evra. Án áhrifa IFRS 16 nam annar rekstrarkostnaður 120,6 milljónum evra samanborið við 114,5 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs sem er hækkuð um 6,1 milljón eða 5,3%.
-
EBITDA nam 15,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2019 en 10,6 milljónum án áhrifa IFRS 16 samanborið við 7,3 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs sem er aukning um 47%
-
Helstu ástæður fyrir hækkuð í EBITDA framlegð á milli ára eru jákvæður viðsnúningur í afkomu í Noregi, áframhaldandi vóxtur í Trans-Atlantic flutningum og í frystiflutningsmiðlun, góður gangur í starfseminni á Íslandi og þá eru hagræðingar- og skipulagsaðgerðir byrjaðar að skila sér.
-
Fjárfestingar tímabilisins námu 8,6 milljónum evra, þar af voru nýfjárfestingar 4,8 milljónir. Til samanburðar voru fjárfestingar 13,1 milljón evra og nýfjárfestingar 6,4 milljónir á sama ársfjórðungi síðasta árs
-
Handbært fé í lok tímabilisins var 26,7 milljónir evra samanborið við 21,9 milljónir í lok árs 2018 sem er aukning um 4,8 milljónir
-
Á ársfjórðungnum var tap að fjárhæð 2,5 milljónir evra samanborið við 1,6 milljóna tap á sama ársfjórðungi 2018
-
Neikvæð einskiptis skattaleg áhrif að fjárhæð 3,4 milljónir evra hafa áhrif á afkomu ársfjórðungsins. Án þessa einskiptis liðar væri hagnaður 0,9 milljónir evra.
-
Heildareignir námu 519,1 milljón evra og eigið fé 233,3 milljónum
-
Eiginfjárhlutfall var 44,9% á fyrsta ársfjórðungi 2019. Án áhrifa IFRS 16 var eiginfjárhlutfallið 48,1% samanborið við 49,3% á sama ársfjórðungi 2018.
-
Skuldsetningarhlutfall var 2,92 á fyrsta ársfjórðungi 2019 en án áhrifa IFRS 16 var hlutfallið 2,55 samanborið við 2,80 í lok árs 2018 sem er jákvæð þróun á milli tímabila
VILHELM MÁR PORSTEINSSON, FORSTJÓRI
„Afkoma af rekstri Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2019 var yfir væntingum og EBITDA niðurstæða fjórðungsins er sú besta á fyrsta ársfjórðungi frá árinu 2009. Ágætis vóxtur var í tekjum og flutningsmagni milli fjórðunga og ánægjulegt að sjá 9% aukningu í magni í gámaflutningum. Jákvæður viðsnúningur var í afkomu félagsins í Noregi þrátt fyrir minna flutningsmagn þar, sem skýrist m.a. af lægri rekstrarkostnaði en félagið rekur nú tveimur færri skip í Noregi miðað við sama tímabil í fyrra. Áframhaldandi vóxtur hefur verið í Trans-Atlantic flutningum og skipti félagið út einu skipi fyrir stærra skip á siglingaleið félagsins til Norður-Ameríku á tímabilinu til að svara aukinni eftirspurn. Enn fremur var góður vóxtur í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun en afkoma af henni olli nokkrum vonbrigðum á síðasta ári. Góður gangur var í innanlands starfseminni á Íslandi og lokus eru hagræðingar- og skipulagsaðgerðir síðustu mánaða byrjaðar að skila sér í batnandi afkomu. Eftir mikinn ytri vóxt síðustu ár hafa verkefni þessa ársfjórðungs m.a. verið að skerpa á áherslum í rekstri og samþætta aðskildar einingar í sömu starfsemi með það að markmiði að auka skilvirkni og arðsemi.
Afkomutilkynning
E IMSKIP
Prätt fyrir bætta afkomu af rekstri er engu að síður tap eftir skatt á tímabilinu. Par spilar stærst einskiptis skattaleg gjaldfærsla að fjárhæð 3,4 milljónir evra. Eins og kom fram í tilkynningu í mars síðastliðnum tapaði félagið kærumáli fyrir Yfirskattanefnd. Málið fjallaði um hvort skattleggja skyldi afkomu erlendra eignarhaldsfélaga skipa félagsins í móðurfélaginu á Íslandi samkvæmt svokölluðum CFC reglum. Úrskurður Yfirskattanefndar er félaginu mikil vonbrigði og skekkir enn frekar samkeppnisstöðu kaupskipaútgerðar íslenskra félaga og er á skjön við þá umgjörð sem búin er kaupskipaútgerðum í löndunum í kringum okkur.
Við erum ánægð með að hafa fengið formlegt samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir samstarfi Eimskips og Royal Arctic Line sem er búið að vera í undirbúningi í nokkur ár. Með samstarfinu opnast nýir möguleikar fyrir hagkvæmara siglingakerfi fyrir Eimskip sem og nýjar leiðir í flutningum til og frá Grænlandi með vikulegum siglingum. Pannig skapast tækifæri fyrir okkar viðskiptavini meðal annars til aukinna viðskipta við Grænland. Í tengslum við fyrirhugað samstarf er Eimskip með tvö 2.150 gámaeininga skip í smíðum sem gert er ráð fyrir að verði komin í rekstur undir lok þessa árs. Það er mikilvægr líður í því að endurnýja skipaflota félagsins með umhverfisvæni og hagkvæmari skipum.
Stjórnendur og starfsfólk munu halda áfram á þeirri vegferð að samþætta og skerpa á áherslum í rekstri með það að markmiði að bæta rekstrarafkomu félagsins."
Afkomutilkynning
E IMSKIP
LYKILTÖLUR
Fjärhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q1 2019 | Q1 2018 | Breyting | % | 12M 2018 | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Með áhrifum IFRS 16 | Áhrif IFRS 16 | Án áhrifa IFRS 16 | |||||
| Rekstrartekjur | 163.988 | 163.988 | 155.532 | 8.456 | 5,4% | 689.154 | |
| Rekstrargjöld | 148.466 | 4.890 | 153.356 | 148.281 | 185 | 0,1% | 639.916 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 15.522 | 4.890 | 10.632 | 7.251 | 8.271 | 114,1% | 49.238 |
| Afskriftir | (13.078) | (4.691) | (8.387) | (7.807) | (5.271) | 67,5% | (32.548) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 2.444 | 199 | 2.245 | (556) | 3.000 | (539,6%) | 16.690 |
| Hrein fjármagnsgjöld | (1.298) | 187 | (1.111) | (1.114) | (184) | 16,5% | (4.923) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (84) | (84) | (670) | 586 | - | (1.753) | |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjustkatt | 1.062 | (12) | 1.050 | (2.340) | 3.402 | - | 10.014 |
| Tekjustkattur | (3.575) | 2 | (3.573) | 754 | (4.329) | - | (2.612) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (2.513) | (10) | (2.523) | (1.586) | (927) | - | 7.402 |
| (Tap) hagnaður á hlut í evrum | (0,0138) | (0,0136) | (0,0087) | 0,0378 | |||
| Tekjubreyting | 5,4% | 5,4% | 8,4% | 3,8% | |||
| EBITDA / rekstrartekjur | 9,5% | 6,5% | 4,7% | 7,1% | |||
| EBIT / rekstrartekjur | 1,5% | 1,4% | (0,4%) | 2,4% | |||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 2,92 | 2,55 | 2,10 | 2,80 | |||
| LTM Arðsemi eigintjár | 2,8% | 2,8% | 6,4% | 3,1% | |||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 31.3.2019 | 31.03.2018 | Breyting | % | 31.12.2018 | ||
| Með áhrifum IFRS 16 | Áhrif IFRS 16 | Án áhrifa IFRS 16 | |||||
| Eignir | 519.068 | (33.612) | 485.456 | 468.781 | 50.287 | 10,7% | 486.296 |
| Fastafjármunir | 366.833 | (33.612) | 333.221 | 321.701 | 45.132 | 14,0% | 335.172 |
| Veltufjármunir | 152.235 | 152.235 | 147.080 | 5.155 | 3,5% | 151.124 | |
| Eigið fé | 233.301 | (10) | 233.291 | 231.016 | 2.285 | 1,0% | 238.926 |
| Skuldir | 285.767 | (33.602) | 252.165 | 237.765 | 48.002 | 20,2% | 247.370 |
| Langtimaskuldir | 165.785 | (23.591) | 142.194 | 128.179 | 37.606 | 29,3% | 140.753 |
| Skammtímaskuldir | 119.982 | (10.011) | 109.971 | 109.586 | 10.396 | 9,5% | 106.617 |
| Vaxtaberandi skuldir | 194.537 | (33.602) | 160.935 | 137.410 | 57.127 | 41,6% | 159.593 |
| Nettóskuldir | 167.853 | (33.602) | 134.251 | 115.796 | 52.057 | 45,0% | 137.652 |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 87,0% | 87,0% | 85,9% | 86,0% | |||
| Eiginfjárhlutfall | 44,9% | 48,1% | 49,3% | 49,1% | |||
| SJÓDSTREYMI | Q1 2019 | Q1 2018 | Breyting | % | 12M 2018 | ||
| Með áhrifum IFRS 16 | Áhrif IFRS 16 | Án áhrifa IFRS 16 | |||||
| Handbært fé frá rektí | 15.394 | (4.359) | 11.035 | 1.988 | 13.406 | 674,3% | 29.029 |
| Fjärfestingarhreýtingar | (7.865) | (7.865) | (13.841) | 5.976 | (43,2%) | (51.905) | |
| Fjármögnunarhreýtingar | (3.189) | 4.359 | 1.170 | 10.532 | (13.721) | (130,3%) | 20.631 |
| Breyting á handbæru fé | 4.340 | 4.340 | (1.321) | 5.661 | - | (2.245) | |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 21.941 | 21.941 | 23.169 | (1.228) | (5,3%) | 23.169 | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 403 | 403 | (234) | 637 | - | 1.017 | |
| Handbært fé í lok tímabils | 26.684 | 26.684 | 21.614 | 5.070 | 23,5% | 21.941 | |
| FLUTNINGSMAGN | Q1 2019 | Q1 2018 | Breyting | % | 12M 2018 | ||
| Magn í áætlunarsiglingum (þús. tonn) | 507,0 | 485,0 | 22,0 | 4,5% | 2.081,0 | ||
| Magn í flutningsmiðlun (þús. TEUS) | 50,6 | 50,2 | 0,4 | 0,8% | 226,8 |
REKSTUR FYRSTA ÁRSFJÓRDUNGS 2019
Rekstrartekjur Eimskips á fyrsta ársfjörðungi 2019 námu 164,0 milljónum evra samanborið við 155,5 milljónir á sama tímabili 2018 og hækkuðu um 8,5 milljónir eða 5,4%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,6% drifið áfram af 9,0% vexti í gámaskipakerfinu tengt Trans-Atlantic flutningum og Færeyjum. Hins vegar var 23% samdráttur í frystiskipaflutningum í Noregi en félagið fækkaði um tvö skip í rekstri á milli tímabila og eru þau nú
Afkomutilkynning
E IMSKIP
fimm talsins. Vöxtur í flutningsmiðlun nam 1,0% á milli tímabila. Góður vöxtur var í frystiflutningsmiðlun eða 8,7% en hins vegar var 16,7% samdráttur í flutningsmiðlun á þurrvöru sem skýrist að mestu leyti af sérhæfðum viðskiptum í Kína sem félagið hætti að sinna á seinni helmingi ársins 2018.
Rekstrargjöld félagsins námu 148,5 milljónum evra samanborið við 148,3 milljónir á sama tímabili 2018 sem er aukning um 0,2 milljónir. Eimskip tók upp nýja reikningsskilastaðalinn IFRS 16, um meðhöndlun rekstrarleiguskuldbindinga, frá og með 1. janúar 2019. Ef leiðrétt er fyrir áhrifum IFRS 16 námu rekstrargjöld 153,4 milljónum evra sem er aukning um 3,4% frá sama tíma 2018. Laun og launatengd gjöld lækkuðu um 1,0 milljón evra á milli ára eða um 3,0%.
EBITDA fjórðungsins nam 15,5 milljónum evra samanborið við 7,3 milljónir á sama tíma 2018 og hækkæði um 8,2 milljónir. Ef leiðrétt er fyrir áhrifum IFRS 16 var EBITDA tímabilsins 10,6 milljónir evra sem er aukning um 3,3 milljónir. Helstu ástæður fyrir hækkun í EBITDA framlegð á milli ára eru viðsnúningur í afkomu í Noregi, áframhaldandi vöxtur í Trans-Atlantic flutningum og flutningum til og frá Færeyjum, jákvæður vöxtur í frystiflutningsmiðlun, góður gangur í starfseminni á Íslandi og þá eru hagræðingar- og skipulagsaðgerðir byrjaðar að skila sér.
Afskriftir ársins námu 13,1 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi 2019 samanborið við 7,8 milljónir á sama tíma 2018. Án áhrifa IFRS 16 voru afskriftir 8,4 milljónir evra sem er aukning um 0,6 milljónir.
Á fyrsta ársfjórðungi 2019 var gjaldfærður einskiptis skattakostnaður að fjárhæð 3,4 milljónir evra í kjólfar úrskurðar Yfirskattanefndar líkt og félagið tilkynnti um í fréttatilkynningu þann 15. mars 2019.
Tap tímabilsins eftir skatta nam 2,5 milljónum evra samanborið við 1,6 milljónir evra tap á sama tíma 2018. Ef horft er framhjá einskiptis skattakostnaði væri hagnaður 0,9 milljónir evra.
EFNAHAGUR
Heildareignir námu 519,1 milljón evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2019 samanborið við 486,3 milljónir í lok árs 2018. Fastafjármunir námu 366,8 milljónum evra samanborið við 335,2 milljónir í lok síðasta árs. Vegna áhrifa IFRS 16 kom inn nýr eignarliður undir fastafjármuni vegna nýtingarréttar leigueigna og nemur sú fjárhæð 33,6 milljónum evra í lok tímabilsins.
Veltufjármunir námu 152,2 milljónum evra samanborið við 151,1 milljón í árslok 2018. Handbært fé nam 26,7 milljónum evra samanborið við 21,9 milljónir í árslok 2018. Viðskiptakröfur lækkuðu úr 124,1 milljón evra í árslok 2018 í 120,3 milljónir.
Eigið fé nam 233,3 milljónum evra í lok tímabilsins sem er lækkun um 5,6 milljónir sem skýrist af stærstum hluta af arðgreiðslu að fjárhæð ISK 653,2 milljónum eða um 4,8 milljónum evra sem var til greiðslu í apríl. Eiginfjárhlutfallið var 44,9% en til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 49,1% í árslok 2018. Eiginfjárhlutafall án áhrifa IFRS 16 var 48,1%.
Vaxtaberandi skuldir námu 194,5 milljónum evra í lok fjórðungsins og hækkæði úr 159,6 milljónum í árslok 2018. Án áhrifa IFRS 16 námu vaxtaberandi skuldir 160,9 milljónum evra. Félagið hefur tryggt sér langtíma fjármögnun í stað útistandandi fjármögnunarleigu sem er á gjaldaga í lok annars ársfjórðungs að fjárhæð 8,3 milljónum evra og jafnframt tryggt sér langtíma fjármögnun að fjárhæð um 47 milljónir evra til 15 ára tengdri fjárfestingu í nýsmíði tveggja skipa.
Afkomutilkynning
E IMSKIP
Skammtímaskuldir námu 120,0 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 106,6 milljónir í árslok 2018. Hækkunin skýrist að mestu af IFRS 16 leiguskuldbindingum til greiðslu innan 12 mánaða og ógreiddum arði.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
Handbært fé frá rekstri nam 15,4 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2019 samanborið við 2,0 milljónir á sama tíma 2018. Án áhrifa IFRS 16 var handbært fé frá rekstri 11,0 milljónir evra og er um umtalsverða aukningu að ræða milli tímabila.
Nettó fjárfestingahreyfingar námu 7,9 milljónum evra samanborið við 13,8 milljónir á sama tímabili 2018. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 8,6 milljónum evra og þar af voru viðhaldsfjárfestingar 3,7 milljónir. Stærstu fjárfestingar tímabilsins voru í nýjum gantry gámakrana í Sundahöfn og standsetningu á hafnaraðstöðu Sundabakka.
Nettó fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 3,2 milljónir evra samanborið við 10,5 milljóna evra jákvæðar fjármögnunarhreyfingar á sama tímabili 2018.
Handbært fé var 26,7 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2019 samanborið við 21,9 milljónir í árslok 2018.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2019
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2019 er EBITDA á bilinu 51 til 57 milljónir evra.
Horfur fyrir árið 2019 eru ágætar í áætlunarsiglingum til og frá Íslandi þó loðnu brestur hafi vissulega haft áhrif á magn í útflutningi. Minnkandi umsvif og kólnun í íslenska hagkerfinu hefur áhrif á magn í innflutningi, sérstaklega á bílum og atvinnutækjum. Á hinn bóginn hefur dregið úr ákveðinni óvissu til dæmis í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti á árinu í Trans-Atlantic flutningum sem tóku vel við sér á seinni hluta síðasta árs og áframhald hefur verið á því það sem af er ári. Reiknað er með áframhaldandi bata í afkomu af frystiflutningastarfsemi í Noregi þó áfram sé gert ráð fyrir krefjandi rekstrarumhverfi. Áfram er gert ráð fyrir að alþjóðleg flutningsmiðlun skili betri afkomu á árinu 2019 en árið 2018.
Stjórnskipulagi félagsins var breytt í upphafi árs 2019 með það að markmiði að skerpa á áherslum í rekstri og auka arðsemina til lengri tíma litið. Í lok apríl var ráðist í frekari samþættingar- og hagræðingaraðgerðir á Íslandi sem eiga eftir að skila sér í betri afkomu. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum ytri vexti en nú er aukin áhersla lögð á að bæta arðsemi í núverandi starfsemi.
Á árinu 2019 verður fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum mikil vegna uppyggingar á hafnarsvæði í Sundahöfn, kaupungur á stórum hafnarkrana og kaupungur á tveimur nýjum skipum. Sjóðstreymi frá rekstri ásamt nýjum lántökum fjármagnar þá innviðauppyggingu.
Áfram er almenn óvissa varandi efnahagsaðstæður á heimsvísu s.s. Brexit og tollastríð, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengis- og vaxtaþróun og samkeppni.
Afkomutilkynning
E IMSKIP
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var um 248,5 milljónir evra eða 34,4 milljarðar króna við lok viðskipta þann 23. maí 2019.
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2018 var 228,0 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2018 220,1 krónu á hlut. Lokaverð þann 23. maí 2019 var 184,00 krónur á hlut, sem jafngildir 19,3% lækkun frá áramótum.
Fjöldi útgefinna hluta er 187.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2018 var 703 en hluthafar voru 691 talsins þann 23. maí 2019.
Aðalfundur Eimskips, sem haldinn var þann 28. mars 2019, samþykkti arðgreiðslu sem nam 3,50 krónum á hlut. Nam heildararðgreiðslan 653,2 milljónum króna eða um 4,8 milljónum evra. Arðgreiðsludagur var 10. apríl 2019.
LYKILSTÆRDIR ÁRSFJÓRDUNGA
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
| REKSTUR | Q1 2019 | Q4 2018 | Q3 2018 | Q2 2018 | Q1 2018 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 163.988 | 178.827 | 182.164 | 172.631 | 155.532 |
| Rekstrargjöld | 148.466 | 169.387 | 164.530 | 157.718 | 148.281 |
| EBITDA | 15.522 | 9.440 | 17.634 | 14.913 | 7.251 |
| EBIT | 2.444 | 513 | 9.738 | 6.995 | (556) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (2.513) | (1.896) | 6.269 | 4.615 | (1.586) |
| EBITDA / rekstrartekjur | 9,5% | 5,3% | 9,7% | 8,6% | 4,7% |
| EBIT / rekstrartekjur | 1,5% | 0,3% | 5,3% | 4,1% | (0,4%) |
| EFNAHAGUR | 31.03.2019 | 31.12.2018 | 30.09.2018 | 30.06.2018 | 31.03.2018 |
| Eignir | 519.068 | 486.296 | 487.944 | 477.105 | 468.781 |
| Eigið fé | 233.301 | 238.926 | 242.538 | 237.086 | 231.016 |
| Skuldir | 285.767 | 247.370 | 245.406 | 240.019 | 237.765 |
| Vaxtaberandi skuldir | 194.537 | 159.593 | 152.219 | 150.347 | 137.410 |
| Nettóskuldir | 167.853 | 137.652 | 132.889 | 128.830 | 115.796 |
| Eiginfjárhlutfall | 44,9% | 49,1% | 49,7% | 49,7% | 49,3% |
| SJÓDSTREYMI | Q1 2019 | Q4 2018 | Q3 2018 | Q2 2018 | Q1 2018 |
| Handbært frá rekstri | 15.394 | 8.375 | 10.647 | 8.019 | 1.988 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (7.865) | (13.683) | (13.467) | (10.914) | (13.841) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (3.189) | 7.522 | 708 | 1.869 | 10.532 |
| Handbært fé í lok tímabils | 26.684 | 21.941 | 19.330 | 21.517 | 21.614 |
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins, en félagið mun ekki skila athugasemdum við andmælaskjal 1 fyrr en andmælaskjal 2 hefur verið afhent. Hvenær það gerist er ekki vitað á þessari stundu. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
Afkomutilkynning
E IMSKIP
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20 lóndum í fjórum heimsálfum, er með 19 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.800 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 24. MAÍ 2019
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 24.maí 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri mun kynna uppgjör félagsins fyrir fyrsta ársfjörðung 2019. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasiðu Eimskips, www.eimskip.com/investors.
SAMPYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir fyrsta ársfjörðung 2019 á stjórnarfundi þann 23. maí 2019.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Q1 2019: Uppgjör birt 23. maí 2019
- Q2 2019: Uppgjör birt 29. ágúst 2019
- Q3 2019: Uppgjör birt 21. nóvember 2019
- Q4 2019: Uppgjör birt 27. febrúar 2020
- Aðalfundur: 27. mars 2020
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, sími: 525 7202
- Egill Örn Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, sími: 525 7202
- Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri, sími: 825 3399, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela sílkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.