AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2017
Feb 22, 2018
2194_er_2018-02-22_ae17987b-9079-4a8d-ac1d-b1eeb60fc05b.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
2017 VAR ÁR VAXTAR HJÁ EIMSKIP Afkomuspá ársins 2018 er EBITDA á bilinu 60 til 65 milljónir evra
- Tekjur námu 664,0 milljónum evra, hækkuðu um 150,1 milljón evra eða 29,2% frá 2016
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,6% og tekjur hækkuðu um 58,1 milljón evra eða 15,3%
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 41,2% og tekjur hækkuðu um 91,9 milljónir evra eða 68,8%, en þar af voru 73,2 milljónir evra vegna nýrra fyrirtækja
- EBITDA nam 57,2 milljónum evra, jókst um 3,7 milljónir evra eða 7,0% frá 2016
- Hagnaður nam 16,8 milljónum evra samanborið við 21,9 milljóna evra hagnað 2016
- Neikvæð breyting á gengismun á milli ára að fjárhæð 5,8 milljónir evra hafði mest áhrif
- Eiginfjárhlutfall var 53,2% og nettóskuldir námu 102,8 milljónum evra í árslok
- Stjórn félagsins leggur til 6,80 króna arðgreiðslu á hlut, alls um 10,2 milljónir evra
| REKSTRARREIKNINGUR | Q4 2017 | Q4 2016 | Breyting | % | 2017 | 2016 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 175.884 | 140.497 | 35.387 | 25,2% | 663.973 | 513.922 | 150.051 | 29,2% |
| Rekstrargjöld | 163.986 | 130.592 | 33.394 | 25,6% | 606.775 | 460.447 | 146.328 | 31,8% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 11.898 | 9.905 | 1.993 | 20,1% | 57.198 | 53.475 | 3.723 | 7,0% |
| Afskriftir | (7.731) | (7.998) | 267 | 3,3% | (30.148) | (28.077) | (2.071) | (7,4%) |
| Rekstrarhagnaður - EBIT | 4.167 | 1.907 | 2.260 | 118,5% | 27.050 | 25.398 | 1.652 | 6,5% |
| Hrein fjármagnsgjöld | (1.240) | 683 | (1.923) | - | (7.236) | (345) | (6.891) | - |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (146) | (201) | 55 | 27,4% | (339) | 210 | (549) | - |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.781 | 2.389 | 392 | 16,4% | 19.475 | 25.263 | (5.788) | (22,9%) |
| Tekjuskattur | 104 | (475) | 579 | 121,9% | (2.671) | (3.368) | 697 | 20,7% |
| Hagnaður tímabilsins | 2.885 | 1.914 | 971 | 50,7% | 16.804 | 21.895 | (5.091) | (23,3%) |
| Hagnaður á hlut í evrum | 0,0152 | 0,0092 | 0,0060 | 65,3% | 0,0885 | 0,1148 | (0,0263) | (22,9%) |
| Tekjubreyting | 25,2% | 7,6% | 29,2% | 2,9% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 6,8% | 7,0% | 8,6% | 10,4% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 2,4% | 1,4% | 4,1% | 4,9% | ||||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 1,80 | 0,78 | 1,80 | 0,78 | ||||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 31.12.2017 31.12.2016 | Breyting | % | 31.12.2017 31.12.2016 | Breyting | % | ||
| Eignir | 459.515 | 391.691 | 67.824 | 17,3% | 459.515 | 391.691 | 67.824 | 17,3% |
| Fastafjármunir | 313.529 | 253.256 | 60.273 | 23,8% | 313.529 | 253.256 | 60.273 | 23,8% |
| Veltufjármunir | 145.986 | 138.435 | 7.551 | 5,5% | 145.986 | 138.435 | 7.551 | 5,5% |
| Eigið fé | 244.610 | 243.775 | 835 | 0,3% | 244.610 | 243.775 | 835 | 0,3% |
| Skuldir | 214.905 | 147.916 | 66.989 | 45,3% | 214.905 | 147.916 | 66.989 | 45,3% |
| Langtímaskuldir | 117.614 | 64.456 | 53.158 | 82,5% | 117.614 | 64.456 | 53.158 | 82,5% |
| Skammtímaskuldir | 97.291 | 83.460 | 13.831 | 16,6% | 97.291 | 83.460 | 13.831 | 16,6% |
| Vaxtaberandi skuldir | 125.984 | 81.149 | 44.835 | 55,3% | 125.984 | 81.149 | 44.835 | 55,3% |
| Nettóskuldir | 102.815 | 41.606 | 61.209 | 147,1% | 102.815 | 41.606 | 61.209 | 147,1% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 85,4% | 89,4% | 85,4% | 89,4% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 53,2% | 62,2% | 53,2% | 62,2% | ||||
| SJÓÐSTREYMI | Q4 2017 | Q4 2016 | Breyting | % | 2017 | 2016 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 10.596 | 14.485 | (3.889) | (26,8%) | 37.420 | 48.667 | (11.247) | (23,1%) |
| Fjárfestingarhreyfingar | (25.123) | (18.442) | (6.681) | (36,2%) | (75.139) | (39.907) | (35.232) | (88,3%) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 13.412 | (1.306) | 14.718 | - | 22.581 | (4.761) | 27.342 | - |
| Breyting á handbæru fé | (1.115) | (5.263) | 4.148 | (78,8%) | (15.138) | 3.999 | (19.137) | - |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 24.545 | 45.122 | (20.577) | (45,6%) | 39.543 | 35.983 | 3.560 | 9,9% |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (261) | (316) | 55 | 17,4% | (1.236) | (439) | (797) (181,5%) | |
| Handbært fé í lok tímabils | 23.169 | 39.543 | (16.374) | (41,4%) | 23.169 | 39.543 | (16.374) | (41,4%) |
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Árið 2017 má kalla "ár vaxtar" hjá Eimskip, þar sem flutningsmagn, tekjur og EBITDA hafa aldrei verið hærri. Árið var frábært í flutningsmiðlunarstarfseminni með nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og innri vexti. Félagið stóð frammi fyrir erfiðleikum í áætlunarsiglingum vegna sjómannaverkfallsins í byrjun ársins og ójafnvægis í flutningum tengdum Íslandi sem hefur aldrei verið meira og hafði neikvæð áhrif á rekstrarafkomu.
Rekstrartekjur 2017 voru 664,0 milljónir evra, hækkuðu um 150,1 milljón evra á milli ára eða 29,2%. Tekjuvöxturinn kom frá nýjum félögum í samstæðunni, auknu flutningsmagni og hærri verðum á alþjóðlegum flutningamörkuðum. EBITDA fyrir árið nam 57,2 milljónum evra og hækkaði um 7,0%. Hagnaður ársins nam 16,8 milljónum evra samanborið við 21,9 milljónir evra 2016 og lækkaði um 5,1 milljón evra, en lækkunin endurspeglar einkum 5,8 milljóna evra óhagstæðar gengissveiflur á milli ára.
Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 438,4 milljónum evra og hækkuðu um 15,3%. Magn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 3,6%. Góður vöxtur var í innflutningi til Íslands og Trans-Atlantic á árinu á meðan nokkur samdráttur var í útflutningi frá Íslandi og Færeyjum. EBITDA af áætlunarsiglingum nam 39,5 milljónum evra samanborið við 42,4 milljónir evra á árinu 2016. Sjómannaverkfallið og kostnaður vegna ójafnvægis í flutningum á fyrri helmingi ársins höfðu 2,6 milljóna evra neikvæð áhrif á EBITDA. Einskiptisliðir að fjárhæð 0,8 milljónir evra voru vegna sektar frá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi og kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum. Einskiptistekjur tengdar endurskipulagningu á rekstri í Asíu að fjárhæð 2,5 milljónir evra voru færðar á fjórða ársfjórðungi.
Rekstur flutningsmiðlunarstarfseminnar var góður á árinu. Rekstrartekjur námu 225,6 milljónum evra og hækkuðu um 68,8% samanborið við fyrra ár. Tekjur af starfseminni sem fyrir var hækkuðu um 18,7 milljónir evra eða 14,0% og nýju félögin, Extraco, Mareco og SHIP-LOG, skiluðu tekjuvexti að fjárhæð 73,2 milljónir evra. Magn í flutningsmiðlun jókst um 41,2% frá árinu 2016 en þar af komu 29,2% frá nýjum félögum í samstæðunni og innri vöxtur var 12%. EBITDA af flutningsmiðlun nam 17,7 milljónum evra á árinu og jókst um 6,6 milljónir evra eða 60,1%. EBITDA frá nýju félögunum í samstæðunni nam 5,1 milljón evra. Fjárfestingarnar hafa skapað verðmæti fyrir samstæðuna. Samþætting á starfsemi nýju fyrirtækjanna skapar öflugra flutninganet og tækifæri til vaxtar með nýjum vörutegundum, mörkuðum, samræmdri sölustarfsemi og samlegðaráhrifum. Með fjárfestingunum hefur félagið einnig náð öðrum markmiðum með því að auka hlutfall EBITDA af rekstrareiningum með litla fjárbindingu sem skila hærri arðsemi og aukinni landfræðilegri dreifingu tekna og EBITDA. Flutningsmiðlunarstarfsemin er orðin mikilvægari fyrir Eimskip og við munum halda áfram að stuðla að vexti hennar bæði með innri vexti og frekari kaupum á fyrirtækjum.
Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi 2017 námu 175,9 milljónum evra og hækkuðu um 25,2%, vegna nýrra félaga og aukins flutningsmagns. EBITDA nam 11,9 milljónum evra og hækkaði um 20,1% samanborið við sama tímabil 2016. Afkoman í nóvember og desember var undir væntingum, einkum vegna samdráttar í útflutningi frá Íslandi og Færeyjum. Flutt magn áætlunarsiglingum jókst um 4,5% á fjórðungnum. Magn í flutningsmiðlun jókst um 44,0%, þar sem 25,2% komu frá nýjum fyrirtækjum og 18,8% voru innri vöxtur. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 2,9 milljónum evra og hækkaði um 1,0 milljón evra eða 50,7% frá fyrra ári.
Félagið hefur fjárfest í gámasiglingakerfi sínu til framtíðar og hefur náð langtímamarkmiði sínu um vikulega þjónustu á öllum siglingaleiðum þess. Stærsta fjárfestingin var í vikulegri þjónustu á leiðinni á milli Norður-Ameríku og Evrópu og í strandflutningakerfinu á Íslandi. Eimskip hefur styrkt stöðu sína í Trans-Atlantic flutningum frá lokum nóvember 2017 með því að bjóða nýja vikulega þjónustu á milli norðanverðar Evrópu og Norður-Ameríku. Þetta er liður í stefnu félagsins um vöxt sem var náð með því að bæta þriðja 700 gámaeininga skipinu á grænu leiðina. Flutningsmagn Eimskips í Trans-Atlantic flutningum hefur aukist verulega á undanförnum árum og nam
vöxturinn 30,9% á árinu 2017. Þessi vöxtur, ásamt nýjum samningi við alþjóðlega skipafélagið CMA CGM, auk viðbótarmagns hjá núverandi viðskiptavinum Eimskips og nýjum viðskiptavinum sem reiða sig á vikulega þjónustu, lögðu grunninn að viðbótarskipi á þessari leið. CMA CGM samningurinn nær yfir svæðið milli Halifax, Nova Scotia og Portland, Maine í Bandaríkjunum.
Á síðustu þremur árum höfum við bætt þremur skipum við gámasiglingakerfi félagsins og aukið afkastagetu þess um 35%. Á sama tíma hefur flutt magn aukist um 32%. Við höfum nú náð markmiði okkar um að bjóða vikulega þjónustu á Norður-Atlantshafi. Aukin tíðni í siglingakerfinu mun auka tekjur og laða að nýja viðskiptavini. Áhersla okkar í áætlunarsiglingum á árinu 2018 er að auka tekjur og draga úr kostnaði sem leiðir til betri afkomu. Félagið leggur nú sérstaka áherslu á að bæta vinnuferla með því að horfa á bókunarferla frá upphafi til enda til að ná fram aukinni skilvirkni og arðsemi.
Horfur fyrir árið 2018 eru jákvæðar í áætlunarsiglingum og flutningsmiðlun. Góður vöxtur er í magni í inn- og útflutningi til og frá Íslandi á fyrstu sex vikum þessa árs og horfur fyrir Færeyjar og Noreg eru stöðugar. Gert er ráð fyrir vexti í magni í Trans-Atlantic flutningum með vikulegu þjónustunni. Samkeppni er áfram hörð í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi. Afkomuspá fyrir árið 2018 er EBITDA á bilinu 60 til 65 milljónir evra.
Bygging tveggja nýrra gámaskipa vegna fyrirhugaðs samstarfs við Royal Arctic Line gengur samkvæmt áætlun og gert er ráð fyrir að skipin verði afhent á miðju ári 2019. Skipin munu verða þau stærstu og hagkvæmustu í skipaflota Eimskips. Samkeppniseftirlitið er að meta fyrirhugað samstarf.
Eimskip hefur á undanförnum árum unnið að lækkun á kolefnisspori sínu með góðum árangri. Uppsöfnuð lækkun á kolefnisspori félagsins á árunum 2016 og 2017 var 12,3% samanborið við grunnárið 2015, reiknað á flutta einingu í tonnum. Markmið Eimskips er að ná 40% uppsafnaðri lækkun á kolefnisspori félagsins til ársins 2030, til samræmis við markmið Evrópusambandsins og Noregs.
Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2018 sem nemur 6,80 krónum á hlut, sem er sama fjárhæð á hlut og greidd var á síðasta ári. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.269,1 milljón króna eða um 10,2 milljónum evra, sem samsvarar um 61,0% af hagnaði ársins 2017."
REKSTUR ÁRSINS 2017
Rekstrartekjur Eimskips árið 2017 námu 664,0 milljónum evra samanborið við 513,9 milljónir evra á árinu 2016 og hækkuðu um 150,1 milljón evra eða 29,2%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,6% með vexti tengdum Íslandi og Trans-Atlantic á sama tíma og samdráttur var í útflutningi frá Íslandi. Magnaukning í flutningsmiðlun var 41,2%, en þar af voru 29,2% vegna nýrra fyrirtækja og 12,0% vegna innri vaxtar. Tekjur að fjárhæð 2,5 milljónir evra tengdar endurskipulagningu á rekstri í Asíu voru færðar á fjórða ársfjórðungi.
Rekstrargjöld félagsins námu 606,8 milljónum evra samanborið við 460,4 milljónir evra árið á undan og jukust um 146,3 milljónir evra eða 31,8%. Aukningin skýrist af nýjum fyrirtækjum, aukinni afkastagetu siglingakerfisins, hærri olíukostnaði, hærri launakostnaði bæði vegna styrkingar íslensku krónunnar á milli ára og vegna almennra launahækkana og aukinna umsvifa, auknu flutningsmagni og hærri verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Rekstrargjöld áætlunarsiglinga námu 385,5 milljónum evra og hækkuðu um 17,8% á milli ára. Rekstrargjöld í flutningsmiðlun voru 221,2 milljónir evra og hækkuðu um 66,2%.
Á fjórða ársfjórðungi kom í ljós að eitt af félögunum sem keypt voru á árinu 2017 hafði fært tekjur og kostnað þeim tengdum vegna tiltekinna viðskipta brúttó, en þau viðskipti eiga samkvæmt IFRS staðli að færast nettó í
rekstrarreikningi. Tekjur og gjöld á hverjum ársfjórðungi hafa verið leiðrétt í samræmi við það. Breytingin hefur einungis áhrif á tekjur og gjöld fjórðunganna, ekki EBITDA.
EBITDA ársins nam 57,2 milljónum evra samanborið við 53,5 milljónir evra á árinu 2016 og jókst um 3,7 milljónir evra eða 7,0%. Á fyrsta ársfjórðungi voru færðir einskiptisliðir, kostnaður samtals að fjárhæð 2,3 milljónir evra. Sjómannaverkfallið á Íslandi hafði 1,5 milljóna evra neikvæð áhrif, kostnaður tengdur kaupum á fyrirtækjum nam 0,4 milljónum evra og loks nam sekt frá Fjármálaeftirlitinu 0,4 milljónum evra. Einskiptistekjur að fjárhæð 2,5 milljónir evra tengdar endurskipulagningu á rekstri í Asíu voru færðar á fjórða ársfjórðungi. Ný félög í samstæðunni hækkuðu EBITDA ársins um 5,1 milljón evra.
Afskriftir ársins námu 30,1 milljón evra samanborið við 28,1 milljón evra á árinu 2016 og hækkuðu um 7,4%. Hækkunin stafar einkum af afskriftum óefnislegra eigna í tengslum við kaup á nýjum félögum.
Hrein fjármagnsgjöld námu 7,2 milljónum evra samanborið við 0,3 milljóna evra hrein fjármagnsgjöld 2016, sem er neikvæð breyting á milli ára um 6,9 milljónir evra. Gengissveiflur á árinu leiddu til gengistaps að fjárhæð 3,3 milljónir evra samanborið við 2,5 milljóna evra gengishagnað á árinu 2016, sem er 5,8 milljóna evra neikvæður viðsnúningur á milli ára.
Hagnaður ársins nam 16,8 milljónum evra samanborið við 21,9 milljónir evra á árinu 2016 og dróst saman um 5,1 milljón evra, en breytingin skýrist að mestu af óhagstæðum gengissveiflum.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt á árunum 2013 til 2017 samanborið við sama tímabil árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Eimskip breytti siglingakerfi sínu í lok febrúar 2017 þar sem nýrri rauðri leið var bætt við og þjónustu grænu og gráu leiðarinnar var breytt. Vikulegum strandsiglingum var bætt við til að styðja við aukna grósku í starfsemi á Íslandi. Í maí tók Helsingborg við sem viðkomuhöfn í Svíþjóð í stað Halmstad. Í lok nóvember jók félagið enn afkastagetu siglingakerfisins með því að bjóða vikulega þjónustu á milli norðanverðrar Evrópu og Norður-Ameríku með viðbótarskipi á grænu leiðinni.
Eimskip er með 22 skip í rekstri, þar af þrettán eigin skip og níu leiguskip. Fimmtán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú í 'spot' þjónustu, eitt í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum. Félagið keypti Sophia, 700 gámaeininga skip sem byggt var 2008, og gaf því nafnið Selfoss.
Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum sem sýna hvernig tekjur og EBITDA skiptast á fjórðunga á árunum 2013 til 2017. Verulegur vöxtur var í rekstrartekjum og EBITDA
á árunum 2015 til 2017. EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2017 tekur tillit til einskiptisliða samtals að fjárhæð 2,3 milljónir evra. Þar af eru 1,5 milljónir evra vegna áhrifa sjómannaverkfallsins hér á landi, 0,4 milljónir evra vegna sektar frá Fjármálaeftirlitinu og 0,4 milljónir evra vegna kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum. Tekjur á fjórða ársfjórðungi fela í sér einskiptistekjur tengdar endurskipulagningu í Asíu að fjárhæð 2,5 milljónir evra.
* 2,3 milljóna evra einskiptisliðum vegna kostnaðar var bætt við í Q1 2017 og 2,5 milljóna evra einskiptistekjur eru innifaldar í Q4 2017
REKSTUR FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGS
- Tekjur námu 175,9 milljónum evra, hækkuðu um 35,4 milljónir evra eða 25,2% frá Q4 2016
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,5% og tekjur hækkuðu um 15,0 milljónir evra eða 14,7% Magn í flutningsmiðlun jókst um 44,0% og tekjur hækkuðu um 20,4 milljónir evra eða 52,7%, en
- þar af voru 16,7 milljónir evra vegna nýrra fyrirtækja
- EBITDA nam 11,9 milljónum evra og jókst um 2,0 milljónir evra eða 20,1% frá Q4 2016
Rekstrartekjur Eimskips á fjórða ársfjórðungi 2017 námu 175,9 milljónum evra samanborið við 140,5 milljónir evra á sama tímabili árið áður og hækkuðu um 35,4 milljónir evra eða 25,2%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 4,5%, einkum vegna vaxtar í innflutningi til Íslands, Færeyja og Noregs og vegna vaxtar í Trans-Atlantic flutningum. Magn í útflutningi frá Íslandi og Færeyjum var hins vegar undir væntingum nóvember og desember. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 116,7 milljónum evra og hækkuðu um 14,7%. Rekstur flutningsmiðlunar gekk vel á fjórðungnum, magn jókst um 44,0% og tekjur námu 59,2 milljónum evra og hækkuðu um 52,7%. Tekjuvöxturinn skiptist þannig að 43,0% koma frá nýjum félögum í samstæðunni en 9,7% eru vegna innri vaxtar í kjölfar aukins flutningsmagns. Á meðal tekna fjórðungsins voru 2,5 milljónir evra tengdar endurskipulagningu á rekstri í Asíu.
Rekstrargjöld félagsins námu 164,0 milljónum evra samanborið við 130,6 milljónir evra á fjórða fjórðungi 2016 og jukust um 33,4 milljónir evra eða 25,6%. Rekstrargjöld áætlunarsiglinga námu 104,3 milljónum evra og hækkuðu um 12,1%. Hækkunin skýrist af kostnaði tengdum aukningu á afkastagetu siglingakerfisins og hærri olíukostnaði. Rekstrargjöld flutningsmiðlunar námu 59,7 milljónum evra og hækkuðu um 58,9%. Hækkun rekstrargjalda í flutningsmiðlun skýrist, eins og tekjuvöxturinn, einkum af nýjum fyrirtækjum og auknu flutningsmagni.
EBITDA fjórðungsins nam 11,9 milljónum evra samanborið við 9,9 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2016 og hækkaði um 2,0 milljónir evra eða 20,1%. Nýju félögin í samstæðunni hækkuðu EBITDA fjórða ársfjórðungs um 0,6 milljónir evra. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 8,8 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 7,8 milljónir evra á fjórða fjórðungi 2016 og hækkaði um 12,6%. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins
nam 3,1 milljón evra og hækkaði um 47,5%, en þar af skýrast 28,9% af nýjum fyrirtækjum og 18,6% af innri vexti.
Afskriftir fjórðungsins námu 7,7 milljónum evra, lækkuðu um 0,3 milljónir evra á milli ára eða 3,3%.
Hrein fjármagnsgjöld námu 1,2 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi samanborið við 0,7 milljóna evra hreinar fjármunatekjur á sama tímabili 2016, sem er neikvæð breyting á milli ára um 1,9 milljónir evra. Gengissveiflur á fjórðungnum leiddu til gengistaps að fjárhæð 0,2 milljónir evra samanborið við 1,7 milljóna evra gengishagnað á fjórða ársfjórðungi 2016.
Hagnaður fjórða ársfjórðungs nam 2,9 milljónum evra samanborið við 1,9 milljónir evra á sama tímabili 2016 og hækkaði um 1,0 milljón evra.
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 459,5 milljónum evra í lok árs 2017
- Eiginfjárhlutfall var 53,2%
- Vaxtaberandi skuldir námu 126,0 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 102,8 milljónum evra
Fastafjármunir námu 313,5 milljónum evra í árslok 2017 samanborið við 253,3 milljónir evra í árslok 2016. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 58,5 milljón evra samanborið við 31,3 milljónir evra á árinu 2016. Stærstu fjárfestingarnar voru vegna skipasmíðinnar í Kína, kaup á Selfossi og kaup á þremur fasteignum í Sundahöfn. Félagið undirritaði samning við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um kaup á fasteignunum þremur fyrir 8,3 milljónir evra, en kaupverðið verður greitt á árinu 2019. Samkvæmt IFRS stöðlum er skuldbindingin um kaupin á ofangreindum fasteignum flokkuð sem fjármögnunarleiga í efnahagsreikningi og hækkar þar með fastafjármuni og langtímaskuldir.
Veltufjármunir námu 146,0 milljónum evra í lok ársins samanborið við 138,4 milljónir evra í árslok 2016. Handbært fé nam 23,2 milljónum evra samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok 2016. Viðskiptakröfur jukust úr 96,6 milljónum evra í árslok 2016 í 118,9 milljónir evra í lok árs 2017 vegna nýrra félaga í samstæðunni, aukinnar starfsemi, árstíðabundinna sveiflna og gengismunar.
Eigið fé nam 244,6 milljónum evra í árslok 2017 og var eiginfjárhlutfallið 53,2%. Til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 62,2% í árslok 2016. Arður að fjárhæð 1.269,1 milljón króna, eða 10,6 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl 2017.
Skammtímaskuldir námu 97,3 milljónum evra í lok fjórða ársfjórðungs samanborið við 83,5 milljónir evra í árslok 2016. Hækkunin skýrist af nýjum fyrirtækjum, árstíðabundnum sveiflum og gengismun.
Vaxtaberandi skuldir námu 126,0 milljónum evra í lok árs 2017 og hækkuðu úr 81,1 milljón evra í árslok 2016. Eimskip samdi í janúar 2017 við Íslandsbanka um framlengda og aukna lánalínu að fjárhæð 47,0 milljónir evra. Lánalínan var hækkuð í 67,0 milljónir evra í desember. Félagið dró alls 43,4 milljónir evra á línuna á árinu 2017 í tengslum við fjárfestingar og skýrir það að mestu hækkun vaxtaberandi skulda á tímabilinu. Nettóskuldir námu 102,8 milljónum evra samanborið við 41,6 milljónir evra í árslok 2016.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
Handbært fé frá rekstri nam 37,4 milljón evra á árinu 2017
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 75,1 milljón evra
- Handbært fé var 23,2 milljónir evra í lok árs 2017
Handbært fé frá rekstri nam 37,4 milljónum evra á árinu 2017 samanborið við 48,7 milljónir evra árið áður.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 75,1 milljón evra samanborið við 39,9 milljónir evra á árinu 2016. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 61,9 milljónum evra, þar af voru viðhaldsfjárfestingar 23,6 milljón evra. Stærstu fjárfestingarnar voru vegna skipasmíðinnar í Kína, kaup á Selfossi og kaup á þremur fasteignum í Sundahöfn. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 34,4 milljónum evra á árinu 2016, en þar af námu viðhaldsfjárfestingar 23,8 milljónum evra.
Nettó fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 22,6 milljónir evra samanborið við 4,8 milljóna evra neikvæðar fjármögnunarhreyfingar á árinu 2016. Breytingin er aðallega tilkomin vegna nýrra lána í tengslum við fjárfestingar.
Handbært fé var 23,2 milljónir evra í lok ársins 2017 samanborið við 39,5 milljónir evra í árslok 2016.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2018
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2018 er EBITDA á bilinu 60 til 65 milljónir evra.
Horfur fyrir árið 2018 eru jákvæðar í áætlunarsiglingum og flutningsmiðlun. Góður vöxtur er í magni í inn- og útflutningi til og frá Íslandi á fyrstu sex vikum þessa árs og horfur fyrir Færeyjar og Noreg eru stöðugar. Gert er ráð fyrir vexti í magni í Trans-Atlantic flutningum með vikulegu þjónustunni. Samkeppni er áfram hörð í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi.
Eimskip hefur verið að fjárfesta í siglingakerfi sínu og í fyrsta sinn í sögu félagsins er nú boðið upp á vikulega þjónustu á öllum gámasiglingaleiðum á Norður-Atlantshafi. Sú afkastageta sem bætt hefur verið við mun auka kostnað, en útlit er fyrir að tekjur muni aukast og flutningsmagn lítur vel út. Gert er ráð fyrir að vöxtur í innflutningi til Íslands muni halda áfram, en samdráttur verður í einhverjum vörutegundum, sérstaklega bifreiðum. Gert er ráð fyrir vexti í útflutningi frá Íslandi. Ójafnvægi í flutningsmagni til og frá Íslandi mun halda áfram, en félagið hefur aðlagað siglingakerfi sitt og tekið upp nýtt gámastaðsetningargjald til að vega upp á móti neikvæðum áhrifum af ójafnvæginu. Vikuleg þjónusta á grænu leiðinni mun auka Trans-Atlantic flutningsmagn, bæði frá núverandi og nýjum viðskiptavinum, en það mun taka tíma að byggja magnið upp. Gert er ráð fyrir að reksturinn í Færeyjum og Noregi verði stöðugur. Horfur fyrir flutningsmiðlunarstarfsemina eru góðar og kaup á nýjum fyrirtækjum undanfarin hár hafa skilað samlegð og auknum tækifærum til framtíðar, auk þess sem félagið gerir ráð fyrir áframhaldandi innri vexti.
Almenn óvissa er varðandi almenna kjarasamninga á Íslandi, efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var 349,5 milljónir evra eða 43,3 milljarðar króna þann 22. febrúar 2018
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2017 var 250,50 krónur á hlut og nam meðaltalslokaverð ársins 2017 296,83 krónum á hlut. Lokaverð þann 22. febrúar 2018 var 232,00 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 43,3 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 349,5 milljónum evra. Til samanburðar var markaðsvirði félagsins 60,0 milljarðar króna eða 518,2 milljónir evra þann 22. febrúar 2017.
Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2017 var 712, en hluthafar voru 756 talsins þann 21. febrúar 2018.
Arðgreiðslustefna félagsins er að árleg arðgreiðsla jafngildi 10-65% af hagnaði eftir skatta. Ákvörðun um arðgreiðslu og nákvæma fjárhæð er háð áætlun félagsins um fjárfestingar, horfum á markaði og fullnægjandi fjármagnsskipan á hverjum tíma. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2018 sem nemur 6,80 krónum á hlut, sem er sama fjárhæð á hlut og greidd var á síðasta ári. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.269,1 milljón króna eða um 10,2 milljónum evra, sem samsvarar um 61,0% af hagnaði ársins 2017.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| REKSTUR | Q4 2017 | Q3 2017 | Q2 2017 | Q1 2017 | Q4 2016 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 175.884 | 173.868 | 170.722 | 143.499 | 140.497 |
| Rekstrargjöld | 163.986 | 154.581 | 154.019 | 134.189 | 130.592 |
| EBITDA | 11.898 | 19.287 | 16.703 | 9.310 | 9.905 |
| EBIT | 4.167 | 11.726 | 9.218 | 1.939 | 1.907 |
| Hagnaður tímabilsins | 2.885 | 8.792 | 4.934 | 193 | 1.914 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 6,8% | 11,1% | 9,8% | 6,5% | 7,0% |
| EBIT / rekstrartekjur | 2,4% | 6,7% | 5,4% | 1,4% | 1,4% |
| EFNAHAGUR | 31.12.2017 | 30.09.2017 | 30.06.2017 | 31.03.2017 | 31.12.2016 |
| Eignir | 459.515 | 445.663 | 434.390 | 414.652 | 391.691 |
| Eigið fé | 244.610 | 242.703 | 236.706 | 234.879 | 243.775 |
| Skuldir | 214.905 | 202.960 | 197.684 | 179.773 | 147.916 |
| Vaxtaberandi skuldir | 125.984 | 112.960 | 114.376 | 91.733 | 81.149 |
| Nettóskuldir | 102.815 | 88.415 | 77.768 | 50.377 | 41.606 |
| Eiginfjárhlutfall | 53,2% | 54,5% | 54,5% | 56,6% | 62,2% |
| SJÓÐSTREYMI | Q4 2017 | Q3 2017 | Q2 2017 | Q1 2017 | Q4 2016 |
| Handbært frá rekstri | 10.596 | 7.669 | 11.779 | 7.535 | 14.485 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (25.123) | (9.965) | (24.989) | (17.479) | (18.442) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 13.412 | (9.382) | 9.176 | 11.633 | (1.306) |
| Handbært fé í lok tímabils | 23.169 | 24.545 | 36.608 | 41.356 | 39.543 |
Fjárhæðir eru í þúsundum evra
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt stjórnvaldssekt á félagið að fjárhæð 50 milljónir króna, um 0,4 milljónir evra, í tengslum við birtingu á uppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2016 og var sektin gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi 2017. Þar sem Eimskip er ósammála lagatúlkun FME og niðurstöðu þess hefur félagið vísað málinu til dómstóla.
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20 löndum í fjórum heimsálfum, er með 22 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.850 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 23. FEBRÚAR 2018
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 23. febrúar 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2017 og fjórða ársfjórðung. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti endurskoðaðan ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2017 á stjórnarfundi þann 22. febrúar 2018.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Aðalfundur 2018: 22. mars 2018
- Q1 2018: Uppgjör birt 17. maí 2018
- Q2 2018: Uppgjör birt 30. ágúst 2018
- Q3 2018: Uppgjör birt 20. nóvember 2018
- Q4 2018: Uppgjör birt 21. febrúar 2019
- Aðalfundur 2019: 21. mars 2019
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, sími: 525 7202
- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.