AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2018
Aug 30, 2018
2194_ir_2018-08-30_c5a76d95-fa76-48a0-b47d-0db7352130e8.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
HAGNAÐUR Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI 4,6 MILLJÓNIR EVRA
- Tekjur námu 172,6 milljónum evra, hækkuðu um 1,1% frá Q2 2017
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 2,9% drifið af 6.3% vexti í gámaskipakerfinu
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 10,9% drifið af 36.6% vexti í þurrvöruflutningum
- EBITDA nam 14,9 milljónum evra, dróst saman um 1,8 milljónir evra frá Q2 2017
- Hagnaður nam 4,6 milljónum evra samanborið við 4,9 milljóna evra hagnað Q2 2017
- Eiginfjárhlutfall var 49,7% og nettóskuldir námu 128,8 milljónum evra í lok júní
- Afkomuspá fyrir árið 2018 er óbreytt á bilinu 57 til 63 milljónir evra en samkvæmt fyrirliggjandi forsendum liggur afkoman frá neðri mörkum að miðgildi bilsins
| REKSTRARREIKNINGUR | Q2 2018 | Q2 2017 | Breyting | % | 6M 2018 | 6M 2017 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 172,631 | 170,722 | 1,909 | 1.1% | 328,163 | 314,222 | 13,941 | 4.4% |
| Rekstrargjöld | 157,718 | 154,019 | 3,699 | 2.4% | 305,999 | 288,209 | 17,790 | 6.2% |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA | 14,913 | 16,703 | (1,790) | (10.7% | 22,164 | 26,013 | (3,849) | $(14.8\%)$ |
| Afskriftir | (7,918) | (7, 485) | (433) | $(5.8\%)$ | (15, 725) | (14, 856) | (869) | $(5.8\%)$ |
| Rekstrar(tap) hagnaður - EBIT | 6,995 | 9,218 | (2, 223) | 24.1% | 6,439 | 11,157 | (4, 718) | $(42.3\%)$ |
| Hrein fjármagnsgjöld | (901) | (2,836) | 1,935 | 68.2% | (2,015) | (4,346) | 2,331 | (53.6%) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (345) | (65) | (280) | (1,015) | (173) | (842) | 486.7% | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 5,749 | 6,317 | (568) | 9.0% | 3,409 | 6,638 | (3,229) | $(48.6\%)$ |
| Tekjuskattur | (1, 134) | (1, 383) | 249 | 18.0% | (380) | (1, 511) | 1,131 | (74.9%) |
| Hagnaður tímabilsins | 4,615 | 4,934 | (319) | 6.5% | 3,029 | 5,127 | (2,098) | (40.9% |
| Hagnaður á hlut í evrum | 0.0242 | 0.0253 | 0.0000 | 0.0% | 0.0155 | 0.0255 | 0.0000 | 0.0% |
| Tekjubreyting | 1.1% | 35.4% | 4.4% | 31.3% | ||||
| EBITDA / rekstrartekjur | 8.6% | 9.8% | 6.8% | 8.3% | ||||
| EBIT / rekstrartekjur | 4.1% | 5.4% | 2.0% | 3.6% | ||||
| Nettóskuldir / LTM-EBITDA | 2.41 | 1.45 | 2.41 | 1.45 | ||||
| EFNAHAGSREIKNINGUR | 30.06.2018 | 30.06.2017 | Breyting | $\%$ | 30.06.2018 | 31.12.2017 | Breyting | $\%$ |
| Eignir | 477,105 | 434,390 | 42,715 | 9.8% | 477,105 | 459,515 | 17,590 | 3.8% |
| Fastafjármunir | 325,766 | 280,665 | 45,101 | 16.1% | 325,766 | 313,529 | 12,237 | 3.9% |
| Veltufjármunir | 151,339 | 153,725 | (2,386) | $(1.6\%)$ | 151,339 | 145,986 | 5,353 | 3.7% |
| Eigið fé | 237,086 | 236,706 | 380 | 0.2% | 237,086 | 244,610 | (7, 524) | $(3.1\%)$ |
| Skuldir | 240,019 | 197,684 | 42,335 | 21.4% | 240,019 | 214,905 | 25,114 | 11.7% |
| Langtímaskuldir | 135,344 | 91,208 | 44,136 | 48.4% | 135,344 | 117,614 | 17,730 | 15.1% |
| Skammtímaskuldir | 104,675 | 106,476 | (1,801) | $(1.7\%)$ | 104,675 | 97,291 | 7,384 | 7.6% |
| Vaxtaberandi skuldir | 150,347 | 114,376 | 35,971 | 31.4% | 150,347 | 125,984 | 24,363 | 19.3% |
| Nettóskuldir | 128,830 | 77,768 | 51,062 | 65.7% | 128,830 | 102,815 | 26,015 | 25.3% |
| Efnislegar eignir / heildareignir | 86.1% | 86.2% | 86.1% | 85.4% | ||||
| Eiginfjárhlutfall | 49.7% | 54.5% | 49.7% | 53.2% | ||||
| SJÓÐSTREYMI | Q2 2018 | Q2 2017 | Breyting | % | 6M 2018 | 6M 2017 | Breyting | % |
| Handbært fé frá rekstri | 8,019 | 11,779 | (3,760) | (31.9%) | 10,007 | 19,155 | (9, 148) | (47.8%) |
| Fjárfestingarhreyfingar | (10, 914) | (24, 989) | 14,075 | 56.3% | (24, 755) | (40, 051) | 15,296 | 38.2% |
| Fjármögnunarhreyfingar | 1,869 | 9,176 | (7, 307) | 79.6% | 12,401 | 18,551 | (6, 150) | 33.2% |
| Breyting á handbæru fé | (1,026) | (4,034) | 3,008 | 74.6% | (2, 347) | (2, 345) | (2) | $(0.1\%)$ |
| Handbært fé í upphafi tímabils | 21,614 | 41,356 | (19, 742) | (47.7% | 23,169 | 39,543 | (16, 374) | $(41.4\%)$ |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 929 | (714) | 1,643 | 695 | (590) | 1,285 | 217.8% | |
| Handbært fé í lok tímabils | 21,517 | 36,608 | (15,091) | $(41.2\%)$ | 21,517 | 36,608 | (15,091) | $(41.2\%)$ |
GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
"Eftir krefjandi fyrsta ársfjórðung ársins 2018, var afkoma annars ársfjórðungs meira í takt við okkar væntingar. Félagið fjárfesti í nýju vikulegu siglingakerfi með því að bæta tveimur skipum við og er því að fara í gegnum umbreytingarferli. Það mun taka tíma að byggja upp magn fyrir vikulega þjónustu en við erum bjartsýn á áætlanir okkar og útlitið varðandi bókanir er jákvætt, fyrir inn- og útflutning til og frá Íslandi, í Trans-Atlantic og Short-Sea. Á öðrum ársfjórðungi hófust flutningar fyrir nýja verksmiðju PCC á Húsavík sem eykur flutningsmagn á gráu línunni sem sinnir strandsiglingum við Ísland. Í ágúst tryggði félagið aukið magn frá Bretlandi í gegnum nýjan viðskiptavin sem mun m.a. flæða inn á gráu línuna. Flutningsmagn í Trans-Atlantic á grænu línunni á milli Norður Ameríku og Norður Evrópu/Skandinavíu heldur áfram að aukast og nam vöxtur í flutningsmagni um 44% á öðrum ársfjórðungi.
Magn á öðrum ársfjórðungi ársins í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst í takt við okkar væntingar eða um 2,9% samanborið við sama tímabil í fyrra. Magnaukningin er drifin áfram af 6,3% vexti í gámaskipakerfinu tengt Trans-Atlantic flutningum og Íslandi og Færeyjum, þrátt fyrir samdrátt í innflutningi á bílum til Íslands. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 115,9 milljónum evra og drógust saman um 1,4% samanborið við sama tímabil í fyrra, sem skýrist að mestu vegna gengishreyfinga, samdráttar í tekjum í Noregi og lægri tekjum af innfluttum bílum til Íslands. EBITDA af áætlunarsiglingum nam 10,2 milljónum evra samanborið við 11,8 milljónir evra í fyrra.
Vöxtur í magni í flutningsmiðlun á öðrum ársfjórðungi nam 10,9%, drifinn áfram af 36,6% vexti í þurrvöru en tekjur af flutningsmiðlun námu 56,8 milljónum evra og jukust um 6,6% samanborið við sama tímabil árið áður. EBITDA í flutningsmiðlun nam 4,7 milljónum evra samanborið við 4,9 milljónir árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld á öðrum ársfjórðungi námu 0,9 milljónum evra samanborið við 2,8 milljónir evra árið áður. Það eru stöðugar áskoranir í sveiflum á alþjóðlegum flutningsverðum, í gjaldmiðlum og í olíuverði.
Hagnaður tímabilsins var svipaður og í fyrra og nam 4,6 milljónum evra samanborið við 4,9 milljónir í fyrra.
Til að koma til móts við þarfir markaðarins hóf félagið í ágúst siglingar á nýjar hafnir í Póllandi og í Litháen á meðan makríl vertíð á Íslandi stendur yfir. Nýsmíðar félagsins á tveimur sérhæfðum gámaskipum, sem hvort um sig er 2,150 gámaeiningar, ganga samkvæmt áætlun og búist er við að þau verði afhent um mitt næsta ár. Fyrirhugað samstarf félagsins og Royal Arctic Line er til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu. Eimskip keypti í ágúst 51% hlut í rekstrarfélaginu Tromsö Terminalen í Noregi sem starfrækir 7,000 tonna frystigeymslu í Tromsö sem þjónustar sjávarútveginn. Félagið hyggur á að byggja stærri frystigeymslu í Tromsö. Á fyrri helmingi ársins útvíkkaði félagið þjónustunet sitt með því að opna skrifstofur í Kaupmannahöfn og á Las Palmas.
Búist er við að magn og tekjur frá nýjum viðskiptavinum í áætlunarsiglingum auki arðsemi félagsins það sem eftir lifir árs. Þar að auki vinnur félagið að fjölda umbótaverkefna með það að markmiði að bæta rekstur og arðsemi félagsins, t.d. skil á leiguskipi í Noregi í júlí, draga úr rekstrarkostnaði tengdum gámaflota félagsins, lækkun á launakostnaði, aðlaganir á siglingakerfinu, aukin samlegð á milli skrifstofa félagsins, ásamt öðrum verkefnum.
Afkomuspá félagsins fyrir árið 2018 er óbreytt eða EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra en samkvæmt fyrirliggjandi forsendum liggur afkoman frá neðri mörkum til miðgildis bilsins."
REKSTUR ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
Rekstrartekjur Eimskips á öðrum ársfjórðungi 2018 námu 172,6 milljónum evra samanborið við 170,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2017 og hækkuðu um 1,9 milljónir evra eða 1,1%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 2,9%, aðallega vegna vaxtar í gámaskipakerfinu tengt Íslandi, Færeyjum og Trans-Atlantic flutningum. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 115,9 milljónum evra samanborið við 117,5 milljónir evra fyrir sama tímabil í fyrra. Magnaukning í flutningsmiðlun nam 10,9% og tekjur af flutningsmiðlun námu 56,8 milljónum evra og jukust um 6,6%. Lægri alþjóðleg flutningsverð og þróun gjaldmiðla hafði neikvæð áhrif á tekjuvöxt.
Heildar rekstrarkostnaður á öðrum ársfjórðungi nam 157,7 milljónum evra samanborið við 154,0 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi síðasta árs og jókst um 3,7 milljónir evra eða 2,4%. Rekstrargjöld í áætlunarsiglingum námu 100,7 milljónum evra, samanborið við 102,2 milljónir evra á síðasta ári. Rekstrargjöld í flutningsmiðlun námu 57,0 milljónum evra og jukust um 10,2% sem skýrist að mestu vegna aukningar í fluttu magni.
EBITDA fjórðungsins nam 14,9 milljónum evra samanborið við 16,7 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2017, lækkun um 10,7%. Afkoman var lituð af kostnaði tengdum þriðja skipinu á grænu línuna, spennu á ákveðnum markaðssvæðum tengdum frystiflutningi, gjaldmiðlum og olíuverði.
EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 10,2 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 11,8 milljónir evra á öðrum fjórðungi síðasta árs og lækkaði um 1,5 milljónir evra eða 12,9%. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 4,7 milljónum evra, sem er lækkun um 0,3 milljónir evra eða 5,5%.
Afskriftir fjórðungsins námu 7,9 milljónum evra, jukust um 0,4 milljónir evra frá öðrum fjórðungi síðasta árs og stafar hækkunin einkum af auknum fjárfestingum í fastafjármunum, óefnislegum eignum og nýjum félögum í samstæðunni.
Hrein fjármagnsgjöld námu 0,9 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 2,8 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2017. Breytingin á milli ára skýrist einkum af neikvæðum gengismun á öðrum ársfjórðungi 2017.
Hagnaður á ársfjórðungnum nam 4,6 milljónum evra samanborið við 4,9 milljóna evra hagnað á öðrum ársfjórðungi í fyrra, sem er lækkun um 6,5%.
REKSTUR FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS
- Tekjur námu 328,2 milljónum evra, hækkuðu um 13,9 milljónir evra eða 4,4% frá 6M 2017
- Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,4%; tekjur hækkuðu um 6,9 milljónir evra eða 3,3%
- Magn í flutningsmiðlun jókst um 10,5%; tekjur hækkuðu um 7,0 milljónir evra eða 6,7%
- EBITDA nam 22,2 milljónum evra og dróst saman um 3,8 milljónir evra eða 14,8% frá 6M 2017
Rekstrartekjur Eimskips fyrstu sex mánuði ársins 2018 námu 328,2 milljónum evra samanborið við 314,2 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 13,9 milljónir evra eða 4,4%. Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,4% og magnaukning í flutningsmiðlun var 10,5%.
Rekstrargjöld félagsins námu 306,0 milljónum evra samanborið við 288,2 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og jukust um 17,8 milljónir evra eða 6,2%. Hækkunin skýrist af aukinni afkastagetu siglingakerfisins, hærri olíukostnaði, hærri launakostnaði vegna almennra launahækkana og aukinna umsvifa og auknu flutningsmagni.
EBITDA tímabilsins nam 22,2 milljónum evra samanborið við 26,0 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum síðasta árs og dróst saman um 3,8 milljónir evra eða 14,8%. Afkoman var lituð af kostnaði tengdum aukinni afkastagetu á grænu og gráu línunni, gámakostnaði, spennu á ákveðnum markaðssvæðum tengdum frystiflutningi, gjaldmiðlum og olíuverði.
Neikvæð afkoma að fjárhæð 1,0 milljón evra varð af afkomu hlutdeildarfélaga sem skýrist að mestu vegna sjóðs tengdum fjárfestingum í gámaskipum.
Hagnaður fyrir fyrstu sex mánuði ársins nam 3,0 milljónum evra samanborið við 5,1 milljón evra hagnað á sama tímabili í fyrra og dróst saman um 2,1 milljón evra.
Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt á árunum 2014 til 2018 samanborið við sama tímabil árið áður. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.
Eimskip er með 21 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og níu leiguskip. Fjórtán af skipunum eru í áætlunarsiglingum, þrjú skip sinna "spot" þjónustu, eitt skip er í stórflutningum og þrjú skip í ferjurekstri. Eimskip fækkaði um eitt leiguskip í Noregi í byrjun þriðja ársfjórðungs.
Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum.
* 2,3 milljóna evra einskiptisliðum vegna kostnaðar var bætt við í Q1 2017 og 2,5 milljóna evra einskiptistekjur eru innifaldar í Q4 2017
EFNAHAGUR
- Heildareignir námu 477,1 milljón evra í lok júní 2018
- Eiginfjárhlutfall var 49,7%
- Vaxtaberandi skuldir námu 150,3 milljónum evra
- Nettóskuldir námu 128,8 milljónum evra
Fastafjármunir námu 325,8 milljónum evra í lok júní 2018 samanborið við 313,5 milljónir evra í árslok 2017. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 21,5 milljónum evra samanborið við 24,2 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2017. Helstu fjárfestingar voru í nýjum gámum, tækjabúnaði fyrir höfnina á Húsavík og slipptöku skipa.
Veltufjármunir námu 151,3 milljónum evra í lok júní samanborið við 146,0 milljónir evra í árslok 2017. Handbært fé nam 21,5 milljónum evra í lok júní samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur jukust úr 118,9 milljónum evra í árslok 2017 í 125,0 milljónir evra í lok júní 2018 vegna árstíðabundinna sveiflna.
Eigið fé nam 237,1 milljónum evra í lok júní og var eiginfjárhlutfallið 49,7% samanborið við 53,2% eiginfjárhlutfall í árslok 2017. Á aðalfundi félagsins þann 22. mars sl. var samþykkt að greiða arð til hluthafa að fjárhæð 1.269,1 milljón króna, eða 10,4 milljónir evra sem greiddur var til hluthafa í apríl 2018.
Vaxtaberandi skuldir námu 150,3 milljónum evra í lok júní samanborið við 126,0 milljónir evra í árslok 2017. Eimskip og Íslandsbanki gerðu samkomulag í febrúar um aukningu og framlengingu á veltifjárláni til 18 mánaða að fjárhæð 90,0 milljónir evra. Félagið hefur dregið samtals 82,5 milljónir evra á lánið í tengslum við fjárfestingartengd verkefni. Nettó skuldir námu 128,8 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs samanborið við 102,8 milljónir evra í árslok 2017.
Skammtímaskuldir námu 104,7 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs samanborið við 97,3 milljónir evra í árslok 2017 en aukningin stafar aðalega vegna aukinna vaxtaberandi skulda.
SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR
- Handbært fé frá rekstri nam 10,0 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins
- Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 24,8 milljónum evra
- Handbært fé var 21,5 milljónir evra í lok júní
Handbært fé frá rekstri nam 10,0 milljónum evra á fyrri helmingi ársins 2018 samanborið við 19,2 milljónir evra árið áður.
Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 24,8 milljónum evra samanborið við 40,0 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2017. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 24,2 milljónum evra, þar af viðhalds capex uppá 15,4 milljón evrur, en stærstu fjárfestingarnar voru í gámum, slipptökum skipa og tækjabúnaði fyrir hafnarstarfsemi.
Nettó fjármögnunarhreyfingar námu 12,4 milljónum evra á fyrsta helmingi ársins 2018 samanborið við 18,6 milljónir evra árið áður.
Handbært fé í lok júní var 21,5 milljónir evra samanborið við 23,2 milljónir evra í árslok 2017.
ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2018
Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2018 er óbreytt frá því sem var kynnt í maí s.l. og er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra. Miðað við fyrirliggjandi forsendur mun afkoma liggja frá neðra bili að miðgildi spárinnar.
Búist er við áframhaldandi vexti í gámaskipakerfinu. Gert er ráð fyrir hóflegum vexti í Færeyjum en að vöxtur í Noregi dragist saman frá fyrra ári. Einnig er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti í Trans-Atlantic og Short-Sea flutningum og að vöxturinn verði um 40% á milli ára. Samkeppni er áfram hörð á markaðssvæðum félagsins, sérstaklega í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi.
Frystiflutningsmiðlun átti undir högg að sækja á fyrsta ársfjórðungi og flutt magn dróst saman en það snerist við á öðrum ársfjórðungi með jákvæðum vexti. Flutt magn í þurrvöru hélt áfram að vaxa kröftuglega líkt og á fyrsta ársfjórðungi.
Félagið vinnur að ýmsum verkefnum og bindur vonir við að þau komist í framkvæmd á seinni helmingi ársins með það að markmiði að bæta afkomu og arðsemi rekstursins, t.d. með skilum á leiguskipi í Noregi, lækkun á rekstrarkostnaði gáma, lækkun á launakostnaði, aðlögun á siglingakerfinu, aukin samlegð skrifstofa og önnur verkefni.
Almenn óvissa er varðandi pólitíska áhættu á alþjóðavettvangi, spennu á ákveðnum viðskiptasvæðum, efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.
HLUTHAFAR
Markaðsvirði Eimskips var 343,1 milljónir evra eða 42,9 milljarðar króna þann 30. ágúst 2018
Lokaverð bréfa Eimskips í árslok 2017 var 250,50 krónur á hlut. Lokaverð þann 30. ágúst 2018 var 230,00 krónur á hlut, sem jafngildir 8,2% lækkun frá áramótum og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 42,9 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 343,1 milljón evra. Fjöldi útgefinna hluta er 187.000.000, þar af eru 360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í lok ágúst var 766.
LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA
| REKSTUR | Q2 2018 | Q1 2018 | Q4 2017 | Q3 2017 | Q2 2017 |
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 172,631 | 155,532 | 175,884 | 173,868 | 170,722 |
| Rekstrargjöld | 157,718 | 148,281 | 163,986 | 154,581 | 154,019 |
| EBITDA | 14,913 | 7.251 | 11,898 | 19,287 | 16,703 |
| EBIT | 6,995 | (556) | 4,167 | 11,726 | 9,218 |
| Hagnaður tímabilsins | 4,615 | (1,586) | 2,885 | 8.792 | 4,934 |
| EBITDA / rekstrartekjur | 8.6% | 4.7% | 6.8% | 11.1% | 9.8% |
| EBIT / rekstrartekjur | 4.1% | $(0.4\%)$ | 2.4% | 6.7% | 5.4% |
| EFNAHAGUR | 30.06.2018 | 31.03.2018 | 31.12.2017 | 30.09.2017 | 30.06.2017 |
| Eignir | 477,105 | 468,781 | 459,515 | 445,663 | 434,390 |
| Eigið fé | 237,086 | 231,016 | 244,610 | 242,703 | 236,706 |
| Skuldir | 240,019 | 237.765 | 214,905 | 202,960 | 197,684 |
| Vaxtaberandi skuldir | 150,347 | 137.410 | 125,984 | 112,960 | 114,376 |
| Nettóskuldir | 128,830 | 115,796 | 102,815 | 88,415 | 77,768 |
| Eiginfjárhlutfall | 49.7% | 49.3% | 53.2% | 54.5% | 54.5% |
| SJÓÐSTREYMI | Q2 2018 | Q1 2018 | Q4 2017 | Q3 2017 | Q2 2017 |
| Handbært frá rekstri | 8,019 | 1,988 | 10,596 | 7,669 | 11,779 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (10, 914) | (13, 841) | (25, 123) | (9,965) | (24, 989) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 1.869 | 10,532 | 13,412 | (9,382) | 9.176 |
| Handbært fé í lok tímabils | 21,517 | 21,614 | 23,169 | 24,545 | 36,608 |
RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.
UM EIMSKIP
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20 löndum í fjórum heimsálfum, er með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.800 starfsmönnum.
KYNNINGARFUNDUR 31. ÁGÚST 2018
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 31. ágúst 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung 2018. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.
SAMÞYKKI STJÓRNAR
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2018 á stjórnarfundi þann 30. ágúst 2018.
FJÁRHAGSDAGATAL
- Hluthafafundur 6. september 2018
- Q3 2018: Uppgjör birt 20. nóvember 2018
- Q4 2018: Uppgjör birt 21. febrúar 2019
- Aðalfundur 2019: 21. mars 2019
FREKARI UPPLÝSINGAR
- Gylfi Sigfússon forstjóri, s. 525 7202
- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, s. 525 7202
- Hallgrímur Björnsson, fjárfestatengsl, s. 825 7212, netfang: [email protected]
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.