AI assistant
Eimskipafélag Íslands — Earnings Release 2018
Oct 26, 2018
2194_rns_2018-10-26_f0e1ffac-aaa2-44ff-ab9e-f9e085185dd0.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Disclosure 365525
Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar
EIM: Uppfærð EBITDA spá fyrir árið 2018 verði á bilinu 49 til 53 milljónir evra
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir þriðja ársfjórðung er áætluð EBITDA á fjórðungnum á bilinu 8-10% undir þriðja ársfjórðungi síðasta árs sem nam 19,3 milljónum evra.
Helstu ástæður fyrir lakari afkomu eru, samdráttur í Noregi ásamt því að bilanir á frystiskipum höfðu töluverð neikvæð áhrif á reksturinn þar. Einnig hefur innflutningur til Íslands verið minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Uppbygging á magni í vikulegum Trans-Atlantic og Short-Sea siglingum er einnig að taka lengri tíma en gert var ráð fyrir. Auk þess varð félagið fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við fækkun starfsfólks í Evrópu. Afkoma af frystiflutningsmiðlun er áfram undir væntingum.
Í ljósi bráðabirgða niðurstöðu þriðja ársfjórðungs og horfum fyrir síðustu mánuði ársins er afkomuspá fyrir árið 2018 lækkuð og liggur á bilinu 49 til 53 milljónir evra samanborið við 57 til 63 milljónir evra sem gefin var út í maí 2018. Í ágúst sl. var samhliða afkomutilkynningu upplýst að væntingar væru um að afkoma ársins yrði í neðri mörkum til miðgildis EBITDA spár.
Félagið vinnur enn að uppgjöri ársfjórðungsins og í samræmi við fjárhagsdagatal mun Eimskip birta þriðja ársfjórðung 2018 á Kauphöll þann 20. nóvember og fjárfestafundur verður haldinn 21. nóvember kl. 8:30 að Korngörðum 2 í Reykjavík.