Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2017

Jan 29, 2018

2194_rns_2018-01-29_950f19fa-28ec-4885-a285-6979419c858f.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Áætlað er að EBITDA Eimskips árið 2017 verði á bilinu 57 til 58 milljónir evra

Áætlað er að EBITDA Eimskips árið 2017 verði á bilinu 57 til 58 milljónir evra

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2017 er EBITDA Eimskips (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir) á bilinu 57 til 58 milljónir evra. Þetta er undir þeirri 60 til 62 milljóna evra afkomuspá sem gefin var út þann 21. nóvember 2017, en um 7,5% hærra en EBITDA ársins 2016.

Ýmsar ástæður leiddu til þess að afkoman í nóvember og desember var undir væntingum. Stærsti áhrifavaldurinn var að útflutningur frá Íslandi og Færeyjum var minni en gert hafði verið ráð fyrir. Eimskip jók á sama tíma  afkastagetu siglingakerfis síns til að uppfylla skuldbindingu sína um vikulega þjónustu á öllum siglingaleiðum.

Félagið vinnur að gerð ársreiknings fyrir árið 2017 og endurskoðun stendur nú yfir. Ofangreind afkomuspá getur tekið breytingum í uppgjörsferlinu og endurskoðuninni.

Í samræmi við fjárhagsdagatal mun Eimskip birta ársreikning sinn fyrir árið 2017 þann 22. febrúar 2018 og mun kynna afkomu ársins 2017 og afkomuspá fyrir árið 2018 á fjárfestafundi sem haldinn verður 23. febrúar kl. 8:30 að Korngörðum 2 í Reykjavík.