Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands Earnings Release 2016

Feb 23, 2017

2194_er_2017-02-23_18f91816-82fb-4a0a-9f8e-cbb2cd30cd32.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

ÁRIÐ 2016 VAR METÁR HJÁ EIMSKIP EBITDA hækkaði um 23,7% að teknu tilliti til einskiptisliðar

  • Rekstrartekjur námu 513,9 milljónum evra, hækkuðu um 14,3 milljónir evra eða 2,9% frá 2015
  • Tekjur hækkuðu um 16,3 milljónir evra eða 3,3% þegar tillit er tekið til 2,0 milljóna evra söluhagnaður vegna skips sem innifalinn var í tekjum 2015
  • EBITDA nam 53,5 milljónum evra, hækkaði um 8,3 milljónir evra eða 18,3% frá 2015
  • Aðlöguð EBITDA hækkaði um 10,3 milljónir evra eða 23,7% þegar tillit er tekið til 2,0 milljóna evra söluhagnaðar
  • Hagnaður nam 21,9 milljónum evra, hækkaði um 4,1 milljón evra eða 23,0% frá 2015
  • Eiginfjárhlutfall var 62,2% og nettóskuldir námu 41,6 milljónum í árslok
  • Stjórn félagsins leggur til 6,80 króna arðgreiðslu á hlut, alls um 11,0 milljónir evra
  • Afkomuspá ársins 2017 er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra

Fjárhæðir eru í þúsundum evra

REKSTRARREIKNINGUR Q4 2016 Q4 2015 Breyting % 2016 2015 Breyting %
Rekstrartekjur 140.497 130.610 9.887 7,6% 513.922 499.581 14.341 2,9%
Rekstrargjöld 130.592 120.863 9.729 8,0% 460.447 454.384 6.063 1,3%
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir - EBITDA 9.905 9.747 158 1,6% 53.475 45.197 8.278 18,3%
Afskriftir (7.998) (7.271) (727) (10,0%) (28.077) (24.729) (3.348) (13,5%)
Rekstrarhagnaður - EBIT 1.907 2.476 (569) (23,0%) 25.398 20.468 4.930 24,1%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 683 392 291 74,2% (345) 419 (764) -
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga (201) 7
9
(280) - 210 331 (121) (36,6%)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.389 2.947 (558) (18,9%) 25.263 21.218 4.045 19,1%
Tekjuskattur (475) (658) 183 27,8% (3.368) (3.416) 48 1,4%
Hagnaður tímabilsins 1.914 2.289 (375) (16,4%) 21.895 17.802 4.093 23,0%
Hagnaður á hlut í evrum 0,0092 0,0116 (0,0024) (20,4%) 0,1148 0,0929 0,0218 23,5%
Tekjubreyting 7,6% 9,9% 2,9% 10,6%
EBITDA / rekstrartekjur 7,0% 7,5% 10,4% 9,0%
EBIT / rekstrartekjur 1,4% 1,9% 4,9% 4,1%
Nettóskuldir / LTM-EBITDA 0,78 0,78 0,78 0,78
EFNAHAGSREIKNINGUR 31.12.2016 31.12.2015 Breyting % 31.12.2016 31.12.2015 Breyting %
Eignir 391.691 355.157 36.534 10,3% 391.691 355.157 36.534 10,3%
Fastafjármunir 253.256 233.280 19.976 8,6% 253.256 233.280 19.976 8,6%
Veltufjármunir 138.435 121.877 16.558 13,6% 138.435 121.877 16.558 13,6%
Eigið fé 243.775 228.124 15.651 6,9% 243.775 228.124 15.651 6,9%
Skuldir 147.916 127.033 20.883 16,4% 147.916 127.033 20.883 16,4%
Langtímaskuldir 64.456 55.550 8.906 16,0% 64.456 55.550 8.906 16,0%
Skammtímaskuldir 83.460 71.483 11.977 16,8% 83.460 71.483 11.977 16,8%
Vaxtaberandi skuldir 81.149 71.401 9.748 13,7% 81.149 71.401 9.748 13,7%
Nettóskuldir 41.606 35.418 6.188 17,5% 41.606 35.418 6.188 17,5%
Efnislegar eignir / heildareignir 89,4% 92,6% 89,4% 92,6%
Eiginfjárhlutfall 62,2% 64,2% 62,2% 64,2%
SJÓÐSTREYMI Q4 2016 Q4 2015 Breyting % 2016 2015 Breyting %
Handbært fé frá rekstri 14.485 15.574 (1.089) (7,0%) 48.667 37.357 11.310 30,3%
Fjárfestingarhreyfingar (18.442) 4.032 (22.474) - (39.907) (35.206) (4.701) (13,4%)
Fjármögnunarhreyfingar (1.306) (11.611) 10.305 88,8% (4.761) (5.173) 412 8,0%
Breyting á handbæru fé (5.263) 7.995 (13.258) - 3.999 (3.022) 7.021 -
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (316) (1.262) 946 75,0% (439) (534) 95 17,8%
Handbært fé í lok tímabils 39.543 35.983 3.560 9,9% 39.543 35.983 3.560 9,9%

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

"Ég er ánægður með að kynna árið 2016 sem metár hjá Eimskip. Tekjur voru 513,9 milljónir evra sem samsvarar 3,3% vexti miðað við aðlagaðar tekjur ársins 2015. EBITDA hækkaði í 53,5 milljónir evra og er það 23,7% vöxtur miðað við 43,2 milljóna evra aðlagaða EBITDA á árinu 2015. Á árinu var gjaldfærð 1,1 milljón evra vegna kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum. Hagnaður ársins nam 21,9 milljónum evra og jókst um 23,0%. Sjóðstreymi félagsins hélst áfram sterkt og handbært fé frá rekstri jókst um 11,3 milljónir evra eða 30,3% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi námu 380,3 milljónum evra og hækkuðu um 6,2% og EBITDA jókst um 18,5% á sama tíma og 5,9% vöxtur var í magni. Tekjur af flutningsmiðlun námu 133,6 milljónum evra og drógust saman um 5,6% vegna lækkandi verða í alþjóðlegum flutningum. EBITDA var samt sem áður 11,0 milljónir evra og hækkaði um 17,7% vegna kostnaðaraðhalds og framlegð hélst þrátt fyrir lækkun á flutningsverðum. Heildarmagn í flutningsmiðlun jókst um 4,8%.

Rekstrartekjur fjórða ársfjórðungs námu 140,5 milljónum evra og hækkuðu um 9,9 milljónir evra eða 7,6%. EBITDA fjórðungsins nam 9,9 milljónum evra og hækkaði um 1,6% samanborið við 2015. Tekjur í áætlunarsiglingum voru 101,7 milljónir evra og hækkuðu um 7,0 milljónir evra eða 7,4%, en EBITDA áætlunarsiglinga lækkaði um 3,0% vegna 0,8 milljóna evra kostnaðar tengdum fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum og verri afkomu í Noregi á fjórðungnum. Árið 2016 var metár í rekstri Eimskips í Noregi hvað varðar tekjur og EBITDA, en reksturinn var lakari á fjórða ársfjórðungi samanborið við árið á undan. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi vexti í tekjum og EBITDA í Noregi. Flutt magn í áætlunarsiglingum var nánast óbreytt vegna magnminnkunar í Noregi. Tekjur af flutningsmiðlun námu 38,8 milljónum evra og hækkuðu um 2,8 milljónir evra eða 7,9% samanborið við fyrra ár, einkum vegna kaupanna á Extraco. EBITDA af flutningsmiðlun var 2,1 milljón evra og hækkaði um 23,2%, sem skýrist af hækkandi flutningsverðum og 9,3% vexti í magni á fjórðungnum.

Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í maí 2016 viljayfirlýsingu um mögulegt samstarf um smíði á þremur gámaskipum og samnýtingu á afkastagetu. Félögin undirrituðu í janúar samkomulag um samstarf, en það bíður kynningar og staðfestingar frá viðeigandi samkeppnisyfirvöldum ef við á. Eimskip undirritaði á sama tíma samning við skipasmíðastöð í Kína um smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa og Polar Code. Skipin munu uppfylla ítarlegar kröfur um umhverfisstaðla og eru hönnuð með sparneytni að leiðarljósi. Samningsverð hvors skips nemur um 32 milljónum dollara og er gert ráð fyrir að skipin verði afhent á árinu 2019. Royal Arctic Line undirritaði einnig samning um smíði á einu sambærilegu skipi við sömu skipasmíðastöð.

Eimskip festi í október 2016 kaup á 90% hlut í flutningsmiðlunarfyrirtækinu Extraco í Rotterdam. Eimskip tilkynnti síðan í janúar um kaup á 80% hlut í Mareco sem er með höfuðstöðvar í Antwerpen í Belgíu. Fyrirtækin sérhæfa sig í frystiflutningsmiðlun. Heildarfjárfesting vegna fyrirtækjanna tveggja var um 29 milljónir evra, áætlaðar heildartekjur vegna þeirra nema um 80 milljónum evra á ári og EBITDA hlutfall um 6-8%. Fjárfestingarnar tvær eru í takt við stefnu félagsins þar sem þau starfa bæði á okkar mörkuðum, hvort um sig er sérhæft og mun skapa samlegð í okkar flutningsmiðlunarþjónustu. Eimskip ætlar að halda áfram að vaxa í flutningsmiðlun og við bjóðum Extraco og Mareco velkomin í samstæðuna. Með tengingu við samstæðu Eimskips og aukið bolmagn munum við skapa samlegð og útvíkka þjónustu við viðskiptavini okkar. Hvert og eitt flutningsmiðlunarfyrirtæki eykur sérþekkingu hópsins og gefur færi á að deila þekkingu og reynslu. Fyrirtækin hafa ekki yfir miklum rekstrarfjármunum að ráða en auka umsvif og fjölbreytni samstæðunnar. Fjárfestingarnar skapa vöxt í afkomu og handbæru fé. Við höldum áfram að leita að tækifærum með því að fjárfesta í fleiri flutningsmiðlunarfyrirtækjum.

Í byrjun nóvember 2016 tilkynnti Eimskip um undirritun samnings um kaup á norska flutningafyrirtækinu Nor Lines, með fyrirvara um samþykki norskra samkeppnisyfirvalda. Þann 20. febrúar tilkynnti samkeppniseftirlitið í Noregi að það hefði athugasemdir við kaup Eimskips á Nor Lines. Eimskip hefur 15 viðskiptadaga til að leggja fram

gagnrök sín í málinu og að því loknu hefur eftirlitið aðra 15 viðskiptadaga til að taka endanlega ákvörðun. Eimskip mun meta athugasemdir norska samkeppniseftirlitsins og senda inn gagnrök sín.

Í tengslum við fjárfestingarverkefni Eimskips hefur félagið samið við Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47 milljónir evra. Félagið vinnur nú að því að meta nokkur hagstæð tilboð í langtímafjármögnun vegna skipa.

Eimskip mun í lok febrúar gera breytingar á siglingakerfi sínu með það fyrir augum að styrkja enn frekar kerfið og þjónustu þess. Með breytingunum og fjölgun um eitt 700 gámaeininga skip mun afkastageta félagsins til og frá Evrópu og Norður-Ameríku aukast um 7-11%. Nýrri siglingaleið, rauðu leiðinni, verður bætt við og þjónustu grænu og gráu leiðarinnar verður breytt. Boðið verður upp á vikulega þjónustu í strandsiglingum til að styðja við aukin umsvif á Íslandi. Í byrjun maí mun Helsingborg taka við af Halmstad sem viðkomuhöfn félagsins í Svíþjóð. Breytingin mun efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar.

Eimskip hefur selt gámaskipið Brúarfoss, byggt árið 1992, og keypt Sophia, 700 gámaeininga skip smíðað á árinu 2008 sem verður afhent í maí. Við vinnum áfram að endurnýjun skipaflota okkar til að geta veitt viðskiptavinum okkar sem bestu og áreiðanlegustu þjónustu. Við munum halda áfram að nýta okkur aðstæður á skipamarkaði og fjárhagslegan styrk okkar til að kaupa notuð skip á hagstæðu verði. Eftir breytingarnar á skipaflotanum mun Eimskip verða með 21 skip í rekstri.

Markmið Eimskips er að vaxa bæði með innri vexti og kaupum á fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Félagið mun því halda áfram að meta nýja kosti í fjárfestingum á skipum og fyrirtækjum. Hlutafé verður ekki aukið vegna fjárfestinga en lántökur verða auknar, þó þannig að efnahagsreikningur félagsins verði áfram sterkur.

Stjórn félagsins leggur til að arður verði hækkaður úr 6,50 krónum á hlut í 6,80 krónur á hlut, eða um 4,6% í íslenskum krónum, og verði alls 1.269,1 milljónir króna. Arður í evrum hækkar úr 8,6 milljónum evra í um 11,0 milljónir evra, en það samsvarar 27,7% hækkun sem endurspeglar styrkingu íslensku krónunnar.

Horfur fyrir árið 2017 eru jákvæðar og félagið gerir ráð fyrir vexti í innflutningi til Íslands. Horfur eru einnig góðar fyrir Færeyjar og Noreg. Reiknað er með að vöxtur verði í magni, tekjum og hagnaði í flutningsmiðlun á árinu meðal annars vegna nýju félaganna og þar sem gert er ráð fyrir hækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Extraco og Mareco munu skapa ný tækifæri og samlegð fyrir Eimskip bæði hvað varðar nýja vöruflokka og flutningaleiðir. Samkeppni verður áfram mikil, sérstaklega í starfsemi félagsins á Norður-Atlantshafi. Verkfallið í sjávarútvegi á Íslandi í janúar og febrúar mun hafa neikvæð áhrif á afkomu fyrsta ársfjórðungs. Við gerum ráð fyrir að fiskveiðikvóti ársins verði nýttur að fullu og að flutningar á fiski flytjist þar með af fyrsta yfir á annan ársfjórðung og að þeir dreifist yfir árið. Aukinn innflutningur til Íslands mun að hluta bæta upp fyrir minnkaðan útflutning á fiski á fyrsta ársfjórðungi. Áætluð EBITDA fyrir árið 2017 er á bilinu 57 til 63 milljónir evra."

REKSTUR ÁRSINS 2016

Rekstrartekjur Eimskips á árinu 2016 námu 513,9 milljónum evra samanborið við 499,6 milljónir evra árið áður og hækkuðu um 14,3 milljónir evra eða 2,9% á milli ára. Tekjuvöxtur var 3,3% þegar tekið er tillit til 2,0 milljóna evra tekjufærðs söluhagnaðar af skipi sem skilað var á þriðja ársfjórðungi 2015. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 380,3 milljónum evra og hækkuðu þær um 22,3 milljónir evra frá árinu 2015, eða um 6,2%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 5,9%, einkum vegna góðs vaxtar í flutningum tengdum Íslandi og Noregi. Tekjur af flutningsmiðlun námu 133,6 milljónum evra og drógust saman um 7,9 milljónir evra eða 5,6% samanborið við

2015, einkum vegna lækkandi verða frá alþjóðlegu skipafélögunum í þjónustu á milli Asíu og Evrópu. Magn í flutningsmiðlun jókst um 4,8% á milli ára.

Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 460,4 milljónum evra samanborið við 454,4 milljónum evra árið áður og jukust um 1,3%. Þar af nam rekstrarkostnaður 340,6 milljónum evra samanborið við 358,3 milljónir evra 2015 og dróst saman um 4,9%. Siglingakerfi félagsins var breytt haustið 2015 til að auka áreiðanleika þjónustunnar og til að auðvelda reksturinn yfir vetrartímann og hafa þessar breytingar bætt reksturinn. Viðhaldskostnaður skipa var einnig lægri en í fyrra, sem og olíukostnaður. Ráðist hefur verið í ýmis hagræðingarverkefni sem hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði. Þá hefur kostnaður í flutningsmiðlun félagsins dregist saman vegna áhrifa af lægri verðum frá alþjóðlegu skipafélögunum. Laun og launatengd gjöld námu 119,8 milljónum evra á tímabilinu og hækkuðu um 24,7% frá fyrra ári. Þar af skýrast 9,1% af almennum launahækkunum, 7,8% af auknum umsvifum, 6,0% af gengisbreytingum og 1,8% af fyrirtækjum sem bættust við samstæðu Eimskips á árinu 2015. Kostnaður tengdur fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum nam 1,1 milljón evra á árinu 2016.

EBITDA ársins nam 53,5 milljónum evra samanborið við 45,2 milljónir evra 2015 og hækkaði um 8,3 milljónir evra eða 18,3%. Aðlöguð EBITDA hækkaði um 23,7% þegar tekið er tillit til 2,0 milljóna evra söluhagnaðarins af skipinu sem skilað var á þriðja ársfjórðungi 2015. EBITDA hlutfall tímabilsins var 10,4% samanborið við 8,7% aðlagað hlutfall fyrir árið 2015. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 42,4 milljónum evra samanborið við 35,8 milljónir 2015 og hækkaði um 18,5%. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 11,2% samanborið við 10,0% EBITDA hlutfall 2015. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 11,0 milljónum evra samanborið við 9,4 milljónir evra árið 2015 og hækkaði um 17,7% vegna kostnaðaraðhalds og framlegð hélst þrátt fyrir hækkun á flutningsverðum. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 8,3% og jókst frá því að vera 6,6% árið á undan.

Afskriftir námu 28,1 milljón evra samanborið við 24,7 milljónir á árinu 2015 og hækkuðu um 13,5%. Hækkunin skýrist aðallega af fjárfestingum í rekstrarfjármunum, dokkunum skipa og nýjum fyrirtækjum innan samstæðunnar.

Nettó fjármagnskostnaður nam 0,3 milljónum evra samanborið við 0,4 milljóna evra nettó fjármunatekjur á árinu 2015. Gengissveiflur leiddu til 2,5 milljóna evra gengishagnaðar samanborið við 3,5 milljóna evra gengishagnað árið áður. Þessi 1,0 milljónar evra lækkun gengishagnaðar skýrir að mestu breytinguna á fjármagnsliðum á milli ára.

Hagnaður ársins nam 21,9 milljónum evra og jókst um 4,1 milljón evra eða 23,0% frá 2015. Hagnaður á hlut var 0,1148 evrur og hækkaði um 23,5% frá fyrra ári.

Á eftirfarandi myndum kemur fram að flutt magn í áætlunarsiglingum félagsins og flutningsmiðlun hefur vaxið jafnt og þétt. Magnvísitalan á hægri ásnum miðast við að magnið árið 2010 sé 100.

4

Í milljónum evra

Á árinu 2015 voru gerðar ýmsar breytingar á siglingakerfi félagsins til að auka afkastagetu þess og áreiðanleika þjónustu við viðskiptavini. Í febrúar 2015 voru græna leiðin, sem siglir á milli Íslands og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, og rauða leiðin, sem annaðist strandsiglingar við Ísland með tengingu við Evrópu, sameinaðar í nýja græna leið með þremur skipum sem sigla beint á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomum á Íslandi. Í október 2015 fékk gráa leiðin aukið hlutverk þar sem öðru 500 gámaeininga leiguskipi var bætt við leiðina til að auka afkastagetu og bætt var við viðkomum í Århus í Danmörku, Halmstad í Svíþjóð og í Swinoujscie í Póllandi. Breytingar verða gerðar á kerfinu í lok febrúar 2017. Nýrri rauðri leið verður bætt við og þjónustu grænu og gráu leiðarinnar verður breytt. Boðið verður upp á vikulegar strandsiglingar til að styðja við aukna grósku í starfsemi á Íslandi. Í maí mun Helsingborg taka við sem viðkomuhöfn í Svíþjóð í stað Halmstad. Með nýja kerfinu mun afkastageta til og frá Evrópu og Norður-Ameríku aukast um 7-11%.

Félagið er með 21 skip í rekstri, þar af tólf eigin skip og níu leiguskip. Fjórtán skipanna eru í áætlunarsiglingum, þrjú eru í 'spot' þjónustu, eitt er í stórflutningum og þrjú í ferjusiglingum.

Rekstur félagsins hefur verið að vaxa á undanförnum árum eins og sjá má á eftirfarandi myndum og verulegur vöxtur var í rekstrartekjum og EBITDA á árunum 2015 og 2016.

Myndirnar sýna hvernig rekstrartekjur og EBITDA skiptast á ársfjórðunga á árunum 2012 til 2016. Á myndunum hafa rekstrartekjur og EBITDA verið leiðrétt fyrir einskiptisliðum á árinu 2012. EBITDA á þriðja ársfjórðungi hefur verið hækkuð um 0,7 milljónir evra vegna kostnaðar við skráningu félagsins á markað. EBITDA á fjórða ársfjórðungi hefur einnig verið hækkuð um alls 3,9 milljónir evra, þar af um 1,0 milljón evra vegna skráningar félagsins og um 2,9 milljónir evra vegna kostnaðar við kauprétti sem framkvæmdastjórn féll frá.

REKSTRARTEKJUR EBITDA

* Söluhagnaður að fjárhæð 2,0 milljónir evra vegna skips sem hætt var við kaup á er innifalinn í tekjum og EBITDA í Q3 2015

REKSTUR FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGS

  • Rekstrartekjur námu 140,5 milljónum evra, hækkuðu um 9,9 milljónir evra eða 7,6% frá Q4 2015
  • Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 0,1% og tekjur hækkuðu um 7,0 milljónir evra eða 7,4%
  • Flutningsmagn í flutningsmiðlun jókst um 9,3% og tekjur hækkuðu um 2,8 milljónir evra eða 7,9%
  • EBITDA nam 9,9 milljónum evra samanborið við 9,7 milljónir evra í Q4 2015

Rekstrartekjur Eimskips námu 140,5 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2016 samanborið við 130,6 milljónir evra 2015 og hækkuðu um 9,9 milljónir evra eða 7,6% á milli ára. Tekjur af áætlunarsiglingum félagsins námu 101,7 milljónum evra samanborið við 94,7 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og jukust um 7,0 milljónir evra eða 7,4%. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 0,1%. Góður vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og

Færeyjum sem dreginn var niður með samdrætti í magni í Noregi. Tekjur af flutningsmiðlun félagsins námu 38,8 milljónum evra samanborið við 35,9 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2015 og hækkuðu um 2,8 milljónir evra eða 7,9% og skýrist vöxturinn að miklu leyti af kaupunum á Extraco. Magn í flutningsmiðlun, bæði frystiflutningsmiðlun og almennri flutningsmiðlun, jókst um 9,3% á fjórða ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra.

Rekstrargjöld fyrirtækisins námu 130,6 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 120,9 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2015 og hækkuðu um 8,0%. Þar af nam rekstrarkostnaður 96,3 milljónum evra samanborið við 94,8 milljónir evra 2015 og jókst um 1,6%. Þá hefur kostnaður í flutningsmiðlun félagsins dregist saman vegna áhrifa af lægri verðum frá alþjóðlegu skipafélögunum, en kostnaður jókst um 3,0% á meðan tekjuvöxtur var 7,9%. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 31,7% og námu 34,3 milljónum evra samanborið við 26,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2015. Kostnaður tengdur fjárfestingum í nýjum fyrirtækjum nam 0,8 milljónum evra á fjórðungnum.

EBITDA fjórðungsins nam 9,9 milljónum evra samanborið við 9,7 milljónir evra á sama tímabili 2015 og hækkaði um 0,2 milljónir evra eða 1,6%. EBITDA hlutfall tímabilsins var 7,0% samanborið við 7,5% árið á undan. EBITDA af áætlunarsiglingum félagsins nam 7,8 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 8,0 milljónir á sama tímabili 2015 og lækkaði um 3,0%, einkum vegna kostnaðar tengdum fjárfestingum og vegna samdráttar í magni í Noregi. EBITDA hlutfall áætlunarsiglinga var 7,6% samanborið við 8,5% 2015. EBITDA af flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins nam 2,1 milljón evra samanborið við 1,7 milljónir evra á sama tímabili 2015 og hækkaði um 23,2%, meðal annars vegna hækkunar flutningsverða, aukins magns og með tilkomu Extraco á fjórðungnum. EBITDA hlutfall flutningsmiðlunar var 5,5% samanborið við 4,8% á fjórða ársfjórðungi 2015.

Nettó fjármunatekjur námu 0,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 0,4 milljóna evra nettó fjármunatekjur á sama tímabili árið áður. Þar af var gengishagnaður á fjórðungnum bæði árin, 1,7 milljónir evra 2016 en 1,3 milljónir evra 2015.

Hagnaður fjórðungsins nam 1,9 milljónum evra og lækkaði um 16,4% samanborið við fjórða ársfjórðung 2015.

EFNAHAGUR

  • Heildareignir námu 391,7 milljónum evra í árslok 2016
  • Eiginfjárhlutfall var 62,2%
  • Vaxtaberandi skuldir námu 81,1 milljón evra
  • Nettóskuldir námu 41,6 milljónum evra

Fastafjármunir námu 253,3 milljónum evra í lok ársins samanborið við 233,3 milljónir evra í árslok 2015. Nettó fjárfestingar í rekstrarfjármunum námu 31,3 milljónum evra á árinu samanborið við 31,7 milljónir 2015.

Veltufjármunir námu 138,4 milljónum evra í lok ársins samanborið við 121,9 milljónir evra í árslok 2015. Breytingin frá árslokum 2015 skýrist einkum af breytingum á handbæru fé og viðskiptakröfum á tímabilinu. Handbært fé nam 39,5 milljónum evra í árslok samanborið við 36,0 milljónir evra í árslok 2015. Viðskiptakröfur jukust úr 83,9 milljónum evra í árslok 2015 í 96,6 milljónir evra í lok árs 2016 vegna árstíðabundinna sveiflna, gengismunar og nýrra félaga í samstæðunni.

Eigið fé nam 243,8 milljónum evra í árslok og var eiginfjárhlutfallið 62,2%. Arður að fjárhæð 1.213,2 milljónir króna, eða 8,6 milljónir evra, var greiddur hluthöfum í apríl 2016.

Skammtímaskuldir námu 83,5 milljónum evra samanborið við 71,5 milljónir evra í árslok 2015. Hækkunin 2016 skýrist að mestu af árstíðabundnum sveiflum, gengismuni og hækkun vaxtaberandi skammtímaskulda.

Vaxtaberandi skuldir námu 81,1 milljón evra í árslok og hækkuðu úr 71,4 milljónum evra í lok árs 2015. Nettóskuldir námu 41,6 milljónum evra samanborið við 35,4 milljónir evra í árslok 2015.

SJÓÐSTREYMI OG FJÁRFESTINGAR

  • Handbært fé frá rekstri nam 48,7 milljónum evra á árinu 2016
  • Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 39,9 milljónum evra
  • Handbært fé var 39,5 milljónir evra í lok árs 2016

Sjóðstreymi Eimskips var sterkt á árinu 2016. Handbært fé frá rekstri nam 48,7 milljónum evra á árinu og jókst um 11,3 milljónir evra eða 30,3% frá 2015.

Nettó fjárfestingarhreyfingar námu 39,9 milljónum evra samanborið við 35,2 milljónir evra 2015. Heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 34,4 milljónum evra, en stærstu fjárfestingarnar voru gámar og hafnarkrani. Til samanburðar námu heildarfjárfestingar í rekstrarfjármunum 48,3 milljónum evra á árinu 2015.

Handbært fé var 39,5 milljónir evra í lok árs samanborið við 36,0 milljónir evra í árslok 2015.

ÁÆTLUÐ AFKOMA ÁRSINS 2017

Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2017 er á bilinu 57 til 63 milljónir evra.

Horfur fyrir árið 2017 eru jákvæðar og félagið gerir ráð fyrir vexti í innflutningi til Íslands. Horfur eru einnig góðar fyrir Færeyjar og Noreg. Reiknað er með að vöxtur verði í magni, tekjum og hagnaði í flutningsmiðlun á árinu meðal annars vegna nýju félaganna og þar sem gert er ráð fyrir hækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Extraco og Mareco munu skapa ný tækifæri og samlegð fyrir Eimskip bæði hvað varðar nýja vöruflokka og flutningaleiðir. Samkeppni verður áfram mikil, sérstaklega í starfsemi félagsins á Norður-Atlantshafi. Verkfallið í sjávarútvegi á Íslandi í janúar og febrúar mun hafa neikvæð áhrif á afkomu fyrsta ársfjórðungs. Gert er ráð fyrir að fiskveiðikvóti ársins verði nýttur að fullu og að flutningar á fiski flytjist þar með af fyrsta yfir á annan ársfjórðung og að þeir dreifist yfir árið. Aukinn innflutningur til Íslands mun að hluta bæta upp fyrir minnkaðan útflutning á fiski á fyrsta ársfjórðungi.

Almenn óvissa er varðandi efnahagsaðstæður á heimsvísu, flutningsmagn, verð á flutningum, olíukostnað, gengisþróun og samkeppni.

HLUTHAFAR

Markaðsvirði Eimskips var 518,2 milljónir evra eða 60.0 milljarðar króna þann 22. febrúar 2017

Lokaverð bréfa Eimskips hækkaði um 36,9% á árinu 2016. OMXI8 vísitalan lækkaði á sama tíma um 9,0%. Lokaverð ársins 2015 var 235,50 krónur á hlut og 322,50 krónur á hlut í árslok 2016, en meðaltalslokaverð ársins 2016 var 274,24 krónur á hlut. Lokaverð þann 22. febrúar 2017 var 321,50 krónur á hlut og var markaðsvirði félagsins miðað við fjölda útistandandi hluta því 60,0 milljarðar króna þann dag sem jafngildir 518,2 milljónum evra.

Fjöldi útgefinna hluta er 200.000.000, þar af eru 186.639.230 útistandandi hlutir og 13.360.770 eigin hlutir. Fjöldi hluthafa í árslok 2016 var 806, en hluthafar voru 812 talsins þann 22. febrúar 2017.

Arðgreiðslustefna félagsins er að árleg arðgreiðsla jafngildi 10-50% af hagnaði eftir skatta. Ákvörðun um arðgreiðslu og nákvæma fjárhæð er háð áætlun fyrirtækisins um fjárfestingar, horfum á markaði og fullnægjandi fjármagnsskipan á hverjum tíma. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2017 sem nemur 6,80 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.269,1 milljónir króna eða um 11,0 milljónum evra, sem samsvarar um 50,0% af hagnaði ársins 2016.

LYKILSTÆRÐIR ÁRSFJÓRÐUNGA

Fjárhæðir eru í þúsundum evra

REKSTUR Q4 2016 Q3 2016 Q2 2016 Q1 2016 Q4 2015
Rekstrartekjur 140.497 134.070 126.102 113.253 130.610
Rekstrargjöld 130.592 116.310 109.924 103.621 120.863
EBITDA 9.905 17.760 16.178 9.632 9.747
EBIT 1.907 10.843 9.381 3.267 2.476
Hagnaður tímabilsins 1.914 9.381 8.755 1.845 2.289
EBITDA / rekstrartekjur 7,0% 13,2% 12,8% 8,5% 7,5%
EBIT / rekstrartekjur 1,4% 8,1% 7,4% 2,9% 1,9%
EFNAHAGUR 31.12.2016 30.09.2016 30.06.2016 31.03.2016 31.12.2015
Eignir 391.691 379.111 371.003 368.468 355.157
Eigið fé 243.775 240.061 229.928 220.796 228.124
Skuldir 147.916 139.050 141.075 147.672 127.033
Vaxtaberandi skuldir 81.149 79.958 78.846 80.764 71.401
Nettóskuldir 41.606 34.836 31.383 33.427 35.418
Eiginfjárhlutfall 62,2% 63,3% 62,0% 59,9% 64,2%
SJÓÐSTREYMI Q4 2016 Q3 2016 Q2 2016 Q1 2016 Q4 2015
Handbært frá rekstri 14.485 5.831 15.671 12.680 15.574
Fjárfestingarhreyfingar (18.442) (7.225) (4.293) (9.947) 4.032
Fjármögnunarhreyfingar (1.306) (1.213) (11.103) 8.861 (11.611)
Handbært fé í lok tímabils 39.543 45.122 47.463 47.337 35.983

RANNSÓKN SAMKEPPNISEFTIRLITSINS

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins stendur enn yfir. Eimskip mun áfram leggja sig fram um að veita svör í samræmi við lagalegar skyldur félagsins. Það er félaginu fyrir bestu að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir sem allra fyrst.

UM EIMSKIP

Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 60 starfsstöðvar í 20 löndum, er með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.700 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands.

KYNNINGARFUNDUR 24. FEBRÚAR 2017

Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 24. febrúar 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30. Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2016 og fjórða ársfjórðung. Hægt verður að nálgast kynningarefni fundarins að honum loknum á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors og í fréttakerfi Nasdaq Nordic. Fjárfestafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu á Facebooksíðu Eimskips: www.facebook.com/Eimskip/. Fundurinn fer fram á íslensku og hefst útsending kl. 8:30.

SAMÞYKKI STJÓRNAR

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti endurskoðaðan ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2016 á stjórnarfundi þann 23. febrúar 2017.

FJÁRHAGSDAGATAL

  • Aðalfundur 2017: 23. mars 2017
  • Q1 2017: Uppgjör birt 23. maí 2017
  • Q2 2017: Uppgjör birt 24. ágúst 2017
  • Q3 2017: Uppgjör birt 21. nóvember 2017
  • Q4 2017: Uppgjör birt 22. febrúar 2018
  • Aðalfundur 2018: 22. mars 2018

FREKARI UPPLÝSINGAR

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: [email protected]

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.